Morgunblaðið - 09.06.2002, Page 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Lars Eric Hall-beck fæddist í
Norrköping í Svíþjóð
10. febrúar 1934.
Hann lést á heimili
sínu í Skipasundi 74 í
Reykjavík miðviku-
daginn 29. maí síð-
astliðinn. Hann var
einkabarn foreldra
sinna, en þau voru
Inez Kristina Hall-
beck, fædd Blom-
qvist, f. 21. sept.
1897, d. 12. mars
1960, og eiginmaður
hennar Erik Hallbeck, járnbrautar-
stöðvarstjóri, f. 29. júlí 1880, d. 2.
maí 1934.
Eric kvæntist 1960 Sigrúnu
Helgadóttur, f. í Reykjavík 13. apríl
1934, og lifir hún mann sinn. Fyrstu
11 árin voru þau búsett í Linköping
í Svíþjóð en fluttu 1971 til Íslands
og settust að í Reykjavík þar sem
byggingarframkvæmdir í Linköp-
ing og síðan í tíu ár á arkitekta-
stofu til ársins 1971 er fjölskyldan
fluttist til Íslands. Þá hóf hann störf
á Teiknistofu Sambandsins í
Reykjavík, en mikilvægur vett-
vangur teiknistofunnar var m.a.
hönnun og teikningar, uppbygging
og þjónusta við frystihús og slát-
urhús um allt land. Eric starfaði
þar í 15 ár eða þar til teiknistofan,
líkt og fleiri deildir Sambandsins,
var lögð niður. Starfsmenn teikni-
stofunnar héldu þó áfram starfsem-
inni og stofnuðu í sameiningu Nýju
teiknistofuna ehf. og vann Eric þar
í um tíu ár eða þangað til hann
hætti þar 1996.
Eftir að Eric hætti störfum við
Nýju teiknistofuna bauðst honum
vinna við Menntaskólann við
Hamrahlíð. Þar var hann í tæp
fimm ár og sinnti margbreytilegum
störfum svo sem fjölritun, tækja-
vörslu og var um skeið bóksölu-
stjóri. Hann hætti störfum í MH ár-
ið 2001, þegar hann komst á
eftirlaun 67 ára að aldri.
Útför Erics fer fram frá Áskirkju
á morgun, mánudaginn 10. júní, og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
þau hafa átt heima síð-
an. Börn þeirra eru 1)
Marta Kristina Elisa-
bet, f. 3. sept. 1961, gift
Ole-Morten Parelius
frá Noregi. Þau búa í
Noregi og eiga þrjú
börn: Thomas Chri-
stoffer, f. 1987, Lars
Erik, f. 1993, og Evu
Kristinu, f. 1995. 2)
Helgi Erik Björn, f. 12.
apríl 1964, kvæntur
Marit Kristiansen frá
Noregi. Þau búa í
Reykjavík og eiga eina
dóttur: Ingu Martine Björnsdóttur,
f. 1999, og Jens Sigurd Haugli, f.
1986, sem er sonur Maritar. 3) Mar-
grét Inez Eva, f. 19. apríl 1967. Hún
býr í Bandaríkjunum.
Eric gekk í menntaskóla á Sol-
backa í Svíþjóð og lauk síðar námi í
Linköping sem vélatæknifræðing-
ur. Hann vann í fyrstu við ýmsar
Mágur minn, Lars Eric Hallbeck,
er látinn. Hann hafði kennt vanheilsu
í nokkrar vikur en engan grunaði að
andlát hans bæri svo brátt að. Eftir
stutta sjúkdómslegu á heimili sínu
sofnaði hann svefninum langa í örm-
um konu sinnar og barnanna þriggja.
Eric og Sigrún, systir mín, hittust
fyrst í Sviss þegar þau stunduðu nám
í frönsku við háskóla í Neuchâtel.
Þessi kynni leiddu síðar til hjúskapar
þeirra.
Fyrstu kynni mín af Eric voru þeg-
ar Sigrún kom með tilvonandi eigin-
mann sinn frá Svíþjóð og kynnti hann
fyrir fjölskyldu sinni á Íslandi. Eric
var afar fríður maður, meðalmaður á
vöxt, dökkur á hár og fagureygður.
Hann talaði auðvitað ekki orð í ís-
lensku og við hin í fjölskyldunni ekki
sænsku en við hrifumst strax af þess-
um elskulega og fágaða manni og
hann varð fljótt allra hugljúfi. Í minn-
ingunni voru aldrei neinir hnökrar á
samskiptum okkar á milli þrátt fyrir
ólík tungumál, einhvern veginn skild-
um við alltaf Eric og hann okkur.
Brúðkaup Erics og Sigrúnar var
haldið á Íslandi og fluttust þau
skömmu síðar til Linköping, heima-
borgar Erics.
Ég var svo lánsöm að búa hjá þeim
í tæpt ár meðan ég stundaði nám þar
ytra. Þau lögðu sig fram við að láta
mér líða sem best og ég varð strax ein
af fjölskyldunni. Heimili þeirra var
fagurlega búið gömlum, glæsilegum
húsgögnum frá búi foreldra Erics og
við hátíðleg tækifæri var borð dúkað
með postulíni, silfri og kristal. Þá var
Eric í essinu sínu, hann var gestgjafi
fram í fingurgóma.
Eric og Sigrún fluttu til Íslands
með fjölskyldu sína árið 1971. Þá voru
börnin orðin þrjú, Elísabet, Björn og
Eva. Þau bjuggu sér fallegt heimili í
Skipasundi 74 og börnin uxu þar úr
grasi. Eftir að móðir mín varð las-
burða flutti hún í húsið til þeirra og
naut ómældrar ástúðar þeirra allra til
dauðadags.
Eric og Sigrún höfðu yndi af alls
kyns útivist og ferðalögum og þær
voru tíðar tjaldferðirnar og veiðitúr-
arnir sem þau fóru með börnum sín-
um um landið vítt og breitt á gamla,
lúna bílnum sínum. Meðan ég og fjöl-
skylda mín bjuggum úti á landi komu
þau oft í heimsókn til okkar norður.
Þá var slegið upp veislu og börnin
okkar stofnuðu til vináttu sem þau
búa að enn þann dag í dag.
Tengslin við heimaland Erics voru
sterk í huga þeirra beggja og þau fóru
reglulega með börnunum til Svíþjóð-
ar og voru sumarlangt í bústað sínum
skammt fyrir utan Linköping. Þar
var oft gestkvæmt og sérstaklega
lögðu þau sig fram við að halda sam-
bandi við frændsystkin Erics og vini.
Börnin þrjú fluttust að heiman og
smám saman til annarra landa og þá
tóku við ferðalög til þeirra og svo
komu börnin heim til pabba og
mömmu með sínar fjölskyldur. Sam-
band Erics við börn sín var mjög náið
og gráta þau nú sárt elskaðan föður.
Hin seinni ár fóru þau hjónin næst-
um árlega vestur á Suðureyri í
Tálknafirði, æskuheimili mömmu.
Um leið og þau voru komin vestur
tóku þau til við að mála og dytta að
hverju einu sem til féll. Eric var
vinnusamur og honum féll aldrei verk
úr hendi. Og svo veiddi hann fisk úr
sjónum.
Ég held að Eric hafi verið veiði-
mennskan í blóð borin. Hann fór í lax-
og silungsveiði, á skyttirí og reri til
fiskjar. Ef ég man rétt kom hann oft-
ast heim með afla, gerði samvisku-
samlega að honum og mér virtist
frystihólfið alltaf vera yfirfullt af fiski
og fugli.
Hjónaband Erics og Sigrúnar var
einstaklega farsælt og ég held að það
hafi ekki síst verið vegna virðingar og
hlýju sem einkenndi þeirra samskipti.
Eric dáði konuna sína og kom það
einkar vel í ljós í natni og elsku sem
hann sýndi henni. Oft þegar Sigrún
kom örþreytt heim úr kennslu var Er-
ic tilbúinn með sælkeramat handa
konu sinni, hann varð með tímanum
meistarakokkur og sérstaklega
fannst honum gaman að matreiða
fiskinn eða fuglinn sem hann hafði
sjálfur veitt.
Nú er hann allur þessi góði maður
sem okkur þótti svo vænt um. Bæði
hann og Sigrún voru hætt að vinna og
farin að hlakka til að njóta elliáranna.
Farin að skipuleggja ferðalög til
barna og barnabarna í Noregi og Am-
eríku og sumardvöl í bústaðnum í Sví-
þjóð. En þá kom kallið.
Eric átti því láni að fagna að lifa
kærleiksríku lífi umvafinn ást konu
sinnar og barna. Hans jarðneska lífi
er nú lokið. Nú tekur við annað til-
verustig og hver veit nema nú sitji
þeir Eric, pabbi og Haffi minn á rauð-
gullnum skýjabólstri og geri klárt
fyrir næsta veiðitúr austur á sanda.
Systur minni, Sigrúnu, börnunum
Elísabet, Birni og Evu, tengdabörn-
um og barnabörnum votta ég mína
dýpstu samúð.
Guð blessi minningu Erics.
Margrét Helgadóttir.
Suður með sjó á sveitabæ var lítill
hnokki að leik fyrir rúmum tuttugu
árum. Að næsta byggða bóli voru
fimm km og voru 56 beygjur á þeirri
leið. Af bæjarhólnum sást sú leið vel
og sá stutti fylgdist vel með stopulli
umferðinni. Nokkrum sinnum á ári
renndi bíll þessa leið, bíll sem skar sig
út úr öllum hinum bílunum vegna
þess að hann keyrði með ljósin á, líka
um hábjartan daginn. Sá stutti vissi
strax hverjir voru þar á ferð: „Sigrún
og Eric!“„Þú verður að segja þessu
fólki að slökkva ljósin svona um há-
bjartan daginn,“ sagði vinnumaður
við stráksa. „Nei, hann Eric keyrir
alltaf með ljósin kveikt, hann er nefni-
lega frá Svíþjóð,“ gall í þeim stutta
vinnumanninum til skýringar. Stuttu
seinna renndi rykugur bíllinn í hlað
og út stigu þau hjónin Sigrún og Eric.
„Andskotans vagan…það eru seksti
beijúr pa vagan!“ heyrðist frá Eric á
hans syngjandi sænskuskotinni ís-
lensku. „Æ, þarna ertu Matte mínn,
gaman að sjá þig,“ sagði hann svo
brosandi til stráksa.
Frá því að ég man eftir mér fórum
við í jólaboð til Sigrúnar og Erics í
ERIC
HALLBECK
!"!#
!
"#!$ %& !'())!
'%* & !'())!
( % + ! & !,
- ' .! '())! /,! '"! "! ( ,
*'%/,! ''())!
"# " /,! ''())!0
! "#
!
"
# $%& '()
! *%
+ # ", * ! ' - + *%
. # / ", * ! / # *%
!0, ", * ! "
0"*%
1* ", * *% *2 3#
# ", * !
- ", * !
0" ' *%
4 !0 4 #
!"#
!
" # "
$$%& !
"
' (
!
"
)!*+
,
( '
- ,
$%& ' %%
()##%%% *"% "
' ##%"
+" ! #,%%
"#( (%
!"#
!"# $% !"
& "'%(" ) $
' '( "( '(
" " "( '(
!
! " #$ % # % #
% # &' ( $ #$
% # ) ' % # #( (%#$
* * *+ Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Legsteinar
Vönduð íslensk framleiðsla
Fáið sendan myndalista
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
MOSAIK
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Önnumst allt er lýtur að útför.
Hvítar kistur - furukistur
- eikarkistur.
Áratuga reynsla.
Símar 567 9110 & 893 8638
utfarir.is