Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 40
FRÉTTIR
40 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KVENFÉLAGIÐ Aldan hefur gef-
ið eina milljón króna til kaupa á
nætursjónaukum fyrir þyrlur
Landhelgisgæslunnar. Til verk-
efnisins hafa eftirtaldir gefið auk
kvenfélagsins Öldunnar: Þyrlu-
sjóður Stýrimannaskólans í
Reykjavík, fjórtán milljónir,
Sjóvá-Almennar hf. eina milljón,
Rauði krossinn eina milljón og
fimmtíu þúsund og dóms-
málaráðuenytið hefur lagt fram
sjö milljónir króna. Samtals hafa
því safnast tuttugu og fjórar
milljónir og fimmtíu þúsund en
áætlaður heildarkostnaður er 36
milljónir. Stefnt er að því að taka
nætursjónaukana í notkun næsta
haust.
„Nætursjónaukarnir munu
verða notðir af þyrluáhöfnum
Landhelgisgæslunnar við leit og
björgun á sjó og landi.
Nætursjónaukarnir gera
það að verkum að flug-
menn og áhafnir vélanna
geta séð í myrkri. Það
eykur notkunarmöguleika
þyrlanna til muna og veld-
ur því að flugmenn geta
flogið þyrlunum að nóttu
til við aðstæður sem þeim
var ekki kleift að athafna
sig við.
Sem dæmi má nefna að
björgunarflug í fjalllendi
og á óupplýstum svæðum
hefur hingað til verið nán-
ast óframkvæmanlegt.
Ljóst er að tæki þessi
valda gjörbyltingu við leit
og björgun,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Landhelg-
isgæslunni.
Aldan gefur
Gæslunni milljón
til tækjakaupa
Frá vinstri: Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri LHG, Særún Axelsdóttir, formað-
ur Öldunnar, Sumarrós Jónsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Guðbjörg
Ágústsdóttir, úr stjórn Öldunnar, Sigurður Steinar Ketilsson, yfirmaður gæslu-
framkvæmda LHG, Benóný Ásgrímsson, flugrekstrarstjóri LHG og Auðunn
Friðrik Kristinsson, stýrimaður LHG.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Markaður í
Skagafirði
FERÐAÞJÓNUSTAN Lónkoti í
Skagafirði stendur fyrir þremur
mörkuðum yfir sumarið.
Markaðirnir fara fram síðustu
sunnudaga í júní, júlí og ágúst og
eru haldnir í tjaldi staðarins, sem er
hið stærsta á landinu. Dagarnir
eru: 30. júní, 28. júlí og 25. ágúst.
Markaðirnir eru opnir gestum frá
kl. 13-18. Hægt er að fá frekari
upplýsingar og panta söluborð hjá
Ferðaþjónustunni Lónkoti. Mark-
aðir í Lónkoti hafa verið árvissir
síðan 1999, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fyrirlestur
um forða-
fræði jarð-
hitasvæðis
í Kenýa
CORNEL Ofwona flytur fyrirlestur
um verkefni sitt til meistaraprófs,
þriðjudaginn 11. júní kl. 15.15 í stofu
158 í VR-II, Hjarðarhaga 2-6. Fyr-
irlesturinn nefnist A Reservoir Study
of Olkaria East Geothermal System,
Kenya. Öllum heimill aðgangur.
Fyrirlestur Cornels fjallar um
forðafræði (Reservoir Engineering)
Olkaria-jarðhitasvæðisins í Kenýa.
Eldri líkön af jarðhitasvæðinu eru
endurbætt í samræmi við niðurstöð-
ur úr jarð- og jarðeðlisfræðirann-
sóknum á jarðhitasvæðinu og ná-
grenni þess. Mælingar í borholum
eru notaðar til að áætla vinnslusögu
og þrýstilækkun vegna vinnslu síð-
ustu 20 ára. Með forðafræðilegum út-
reikningum er þrýstilækkun, sem bú-
ast má við í framtíðinni, áætluð.
Gerðar eru eftirlíkingar með tölvulík-
ani sem upprunalega kemur frá Law-
rence Berkley Lab. í Bandaríkjun-
um.
Leiðbeinandi er Jónas Elíasson
prófessor. Aðrir í meistaranefnd eru
dr. Sveinbjörn Björnsson og dr.
Snorri P. Kjaran.
Ræktun
plantna í sum-
arhúsalandinu
GARÐYRKJUFÉLAGIÐ efnir til
fræðslufundar í Norræna húsinu
mánudaginn 10. júní kl. 20. Kristinn
H. Þorsteinsson formaður félagsins
ætlar að fjalla um ræktun plantna í
sumarhúsalandinu.
Kristinn flytur erindi sitt í máli og
myndum.
Allir eru velkomnir. Inngangseyr-
ir er 500 kr., kaffi og te er innifalið í
verðinu.
Að erindi loknu verður stofnaður
Sumarhúsaklúbbur Garðyrkjufélags
Íslands.
Markmið klúbbsins er að stuðla að
fjölbreytilegri ræktun gróðurs í
sumarhúsalöndum, segir í fréttatil-
kynningu.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦