Morgunblaðið - 09.06.2002, Page 49

Morgunblaðið - 09.06.2002, Page 49
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 49 meistar inn. is ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI RAÐGREIÐSLUR Hættum rekstri tímabundið Mikill afsláttur Allt á að seljast 5% aukaafsláttur m.v. staðgreiðslu Sími 861 4883 á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík ÚTSALA - ÚTSALA föstudag 7. júní kl. 13-19 laugardag 8. júní kl. 13-19 sunnudag 9. júní kl. 13-19 Mánudaginn 10. júní kl. 07:00 verður umferð hleypt á mislæg gatnamót Víkurvegar við Vesturlandsveg og eru nýjar akstursleiðir sýndar á kortinu. Jafnframt verða tekin í notkun ný umferðarljós á gatnamótum Víkurvegar, Reynisvatnsvegar og Þúsaldar. Vegfarendur eru beðnir að sýna fyllstu aðgát í akstri um svæðið næstu daga þar sem enn er unnið að ýmsum frágangi. Endanleg verklok eru áætluð þann 1. júlí. Gatnamálastofa í Reykjavík Gatnamót vesturlandsvegar og víkurvegar Tilkynning um umferð UNGUR maður á förnum vegi í mið- borg Reykjavíkur varð nýlega fyrir fólskulegri árás tveggja honum ókunnra manna með þeim afleiðing- um að hann lést á sjúkrahúsi skömmu síðar án þess að komast til meðvitundar. Nú skyldi maður ætla að almenn- ingi yrði hverft við svo voveiflegan atburð og umræða ætti sér stað í fjölmiðlum vegna þessa. Nei. Í blöðum birtist smáfregn af láti unga mannsins (sem átti framtíð- ina og svo til allt lífið fyrir sér). Því er svo bætt við í framhjáhlaupi eins og til skýringar eða jafnvel afsökun- ar að árásarmennirnir, sem játað hafa verknaðinn, hafi verið undir áhrifum áfengis. Hvar er samúðin með aðstandend- um? Engu er líkara en það sé orðinn eðlilegur hlutur og ekki umtalsverð- ur að saklaust fólk sé drepið á götum Reykjavíkur. Líklega höfum við þegar sett nýtt met af mörgum miðað við höfðatölu og nú í ofbeldi án þess að þjóðinni þyki það umtalsvert. ÞÓRA JÓNSDÓTTIR, Þorragötu 5. Hamingjusnauð þjóð? Frá Þóru Jónsdóttur: ÞAÐ er margt sem hægt er að setja í samhengi við ungmenni en sum- arvinna er ekki þar á meðal. Fyrir skólakrakka sem ekki vinna með skólanum er mjög erfitt að fá sumarvinnu. Sérstaklega er það erf- itt fyrir aldurshópinn 16–18 ára. Þau eru of gömul í vinnuskólann og barnapössun, of ung í afgreiðslu- störf og flestir vinnuveitendur vilja eldri einstaklinga í vinnu hjá sér. Allt er lokað. Fyrir þessa krakka er því aðeins eitt að gera. Leita til bæjarfélagsins eftir vinnu. Þar er vinnuskólinn þeim lokaður því þau eru of gömul. Svo eru þau send á milli fjölda staða á vegum bæjarins eins og jójó til þess að sækja um vinnu. Á einum staðnum fylla þau út umsókn- areyðublað. Á þeim næsta tala þau við yfirmenn og á þeim þriðja betla þau. Sumir eru heppnir og komast að en það er bara um 1/3 þeirra sem sækja um og fæst bæjarfélög leggja meira fé í þessi ungmenni til þess að tryggja þeim störf. Reykjavík hefur þó staðið sig vel í þeim efnum og ættu önnur bæjarfélög að taka höf- uðborgina sér til fyrirmyndar. Þegar þeir krakkar sem eru ekki svo heppnir að fá vinnu eru búnir að fara nokkrum sinnum á hvern stað er þeim sagt að eina ráðið sé að skrá sig á atvinnuleysisbætur, sem er mjög niðurdrepandi og leiðinlegt. Þeim er svo sagt að það verði hringt í þau ef vinna handa þeim finnst, en báðir aðilar vita að svo verður ekki. Þetta endar svo með því að krakk- arnir sitja heima allt sumarið með 16.000 krónur á mánuði og niður- lægð. Þetta er auðvitað leiðinlegt fyrir krakkana, sérstaklega þá sem tóku þá ákvörðun að vinna ekki með skólanum til þess að geta lagt sig fram og ná góðum árangri í náminu. Mig langar svo í lokin að minna stjórnendur bæjarfélaganna á það að við unga fólkið erfum landið og þó við séum ekki með kosningarétt núna þá verðum við komin með hann eftir fjögur ár. Og við erum mörg. KRISTÍN ÞÓRA JÖKULSDÓTTIR, 16 ára nemi úr Keflavík. Hugleiðing til bæjarfélaganna! Frá Kristínu Þóru Jökulsdóttur: alltaf á föstudögum PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 S: 562 3614 Vönduð - ryðfrí HÚSASKILTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.