Morgunblaðið - 09.06.2002, Qupperneq 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
E
FTIR að vinnu hans
við dægurtónlistina
lauk hefur óhugnaður,
þungbúið, læviblandað
andrúmsloft og myrk
umfjöllunarefni, krydduð æsi-
spennandi augnablikum, einkennt
myndir og vinnubrögð Davids
Fincher. Að ógleymdri markvissri
framvindu hins snjalla sögumanns.
Þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur
og aðeins fimm myndir í fullri
lengd að baki hefur skapast fylgi
um Fincher, sem kennt er við „sér-
trúarflokka“ eða „cult“, sem er í
hæsta máta óvenjulegt miðað við
aðstæður og fæstir ná á löngum
ferli.
Á launaskrá Lucas
Fincher er fæddur í Denver, höf-
uðborg Klettafjallaríkisins Colo-
rado, árið 1962. Líkt og hjá fleiri
starfsbræðrum hans sem náð hafa
langt, kom kvikmyndaáhugi Finc-
hers fram á unga aldri. Aðeins átta
ára eignaðist hann 8 mm tökuvél
og fór að filma, uppnuminn af
verkum George Lucas, annars
kvikmyndagerðarmanns sem byrj-
aði að mynda á barnsaldri. Fincher
flutti til Oregon, þar sem hann út-
skrifaðist úr menntaskóla og hélt
síðan rakleiðis til vesturstrandar-
innar.
Eftir stutt stopp sem aðstoðar-
maður leikstjórans og framleiðand-
ans Johns Korty var það enginn
annar en Lucas sem gaf Fincher
fyrsta umtalsverða tækifærið í
Hollywood. Aðeins 18 ára var Finc-
her kominn á launaskrá Industrial
Lights and Magic (ILM), hins risa-
vaxna brelluhljóðvers Lucasar.
Hann var skráður á kreditlista
Star Wars: Episode VI – The Ret-
urn of the Jedi (’83), sem aðstoð-
artökumaður, ofl. Hafði svipuðu
hlutverki að gegna í brellumynd
Wolfgangs Petersen, Sagan enda-
lausa – The Never Ending Story
og Indiana Jones and the Temple
of Doom, báðar gerðar ’84.
Í læri hjá Sigurjóni
Eftir fjögur ár kvaddi Fincher
ILM og hóf nýjan feril við sjón-
varpsauglýsingastjórn árið 1984.
Sá eftirtektarverði árangur sem
hann náði í gerð auglýsinga fyrir
nokkur kröfuhörðustu fyrirtæki
heims, eins og Coca Cola, Nike,
Budweiser og Levi’s, vakti athygli
Íslendingsins Sigurjóns Sighvats-
sonar. Fyrirtæki hans, Propaganda
Films, var brautryðjandi í gerð
nýrrar bylgju sjónvarpsefnis, tón-
listarmyndbanda, sem fóru eins og
eldur í sinu um víða veröld. Sig-
urjón og félagi hans, Steve Golin,
höfðu næmt auga fyrir réttu mönn-
unum til að fást við leikstjórn
myndbanda ofurstjarna poppsins, á
borð við The Rolling Stones, Mad-
onnu, Sting, Aerosmith, George
Michael, Iggy Pop, Billy Idol,
Steve Winwood ofl. Flestir hafa
náð sér á strik sem leikstjórar á
hvíta tjaldinu og nægir að nefna,
auk Finchers, menn á borð við
Dominic Sena, Michael Bay og Ni-
gel Dick.
Í framhaldi vel lukkaðrar vinn-
unnar hjá Propaganda réðst Finc-
her til atlögu við gerð fyrstu kvik-
myndarinnar. Hún nefnist The
Beat of the Live Drum (’85). 72
mín. löng hljómleikamynd með
poppstjörnunni Rick Springfield,
sem sló í gegn hjá unglingum á
öndverðum níunda áratugnum með
lögum einsog „Celebrate Youth“ og
„Jessie’s Girl“. Myndin gleymdist
jafn fljótt og Springfield. Í hópi
tónlistarmynda sem Fincher leik-
stýrði má nefna þrjú við lög Mad-
onnu; „Express Yourself“, „Oh
Father“ og „Vogue“, allt mynd-
bönd sem þóttu bera af og vera
vitnisburður um hæfileika Finchers
og sama gildir um myndbönd sem
hann gerði fyrir gömlu rokk-
hundana í Aerosmith.
Í fótspor Scott og Cameron
Vel heppnaðar auglýsingarnar
og myndböndin fóru ekki framhjá
iðnaðinum. Fox var að undirbúa
þriðju Alien mynd sína og vantaði
ferskan kvikmyndagerðarmann
sem gat fetað í fótspor ekki ómerk-
ari manna en Ridleys Scott og
James Cameron. Fincher varð fyr-
ir valinu og þar með var ferill hans
hafinn sem alvöru kvikmyndaleik-
stjóri. Það er ekki auðvelt hlut-
skipti að vera sporgöngumaður
slíkra snillinga og myndin hlaut
misjafna dóma. Hún var öðruvísi
en þær fyrri; hér kom strax í ljós
myrkur og seiðmagnaður stíll
Finchers.
Að mörgu leyti kynngimögnuð
mynd en Hollywood og heimurinn
voru ekki enn tilbúin til að taka við
ferskum og hráköldum stíl Finch-
ers. Myndin gekk bærilega, nóg til
þess að hún skilaði arði og hélt líf-
inu í þessum ágæta framhalds-
myndbálki. Eins var hún það
áhrifarík og öðruvísi á margan hátt
að áhorfendur fóru að fylgjast með
gerðum leikstjórans sem þá þegar
hlaut nokkurt „cult“-fylgi, sem hef-
ur aukist með nánast hverri mynd
síðan.
Í sjöunda himni
Nokkru eftir frumsýningu Alien
3 fékk Fincher upp í hendurnar
forvitnilegt handrit eftir Andrew
Kevin Walker. Það nefndist Seven,
var óvenju grimmt og miskunn-
arlaust, þrungið nöturleika og van-
trausti. Kvikmyndin varð magnað
listaverk, víðs fjarri þeim farvegi
sem flestar sölumyndir um rað-
morðingja lulla hefðbundið eftir.
Gagnrýnendur lofuðu Seven í há-
stert er hún kom á markaðinn 1995
og áhorfendur flykktust á hana í
hópum. Fincher varð í einu vet-
fangi mð eftirsóttustu leikstjórum í
iðnaðinum og gat valið úr marg-
víslegustu verkefnum.
Beðið var með mikilli eftirvænt-
ingu eftir The Game, myndinni
sem varð fyrir valinu. Hún var
frumsýnd 1997, með Michael Doug-
las (var sérstaklega góður sem sál-
arlaus lögfræðingur) og Sean
Penn. Kaldranaleg og illskeytt líkt
og Seven og vel leikin, en ekki í
sama háa gæðaflokki.
Umdeildur klúbbur
Dræmar móttökurnar urðu ekki
til að spilla fyrir eftirvæntingunni
sem umlukti Fight Club, næsta
verkefni Finchers. Með aðalhlut-
verkin fara úrvalsleikararnir Ed-
ward Norton, Helena Bonham
Carter og Brad Pitt, samstarfs-
maður leikstjórans úr Seven.
Myndin er byggð á frægri og um-
deildri skáldsögu eftir Chuck Pala-
hniuk og menn voru ekki síður
ósammála um kvikmyndagerðina.
Ýmist hófu hana til skýjanna eða
fordæmdu. Kaldhæðnisleg sýnin á
ofbeldið og þjóðfélagið bauð sann-
arlega ekki upp á málamiðlanir.
Miklar væntingar voru bundnar við
aðsókn Fight Club árið 1999 en
þegar þær vonir brugðust var Bill
Mechanic, einn æðsti maður Fox,
látinn fjúka af stalli.
Aðdáendur Finchers telja Fight
Club með hans bestu verkum, svo
mikið er víst að áhorfandinn verður
að taka afstöðu til þessarar firna-
sterku myndar sem gleymist hreint
ekki auðveldlega og sértrúarsöfn-
uður Finchers stækkaði til muna.
Nú er röðin komin að frumsýn-
ingu Panic Room (’02) hérlendis,
en þessi vandaði spennutryllir
hlaut góða aðsókn og dóma vestan
hafs. Alltént er búið að ráða Finch-
er til að leikstýra þriðju myndinni
kenndri við Mission: Impossible.
Hún verður með dýrari myndum
sem gerðar hafa verið, Tom Cruise
í fararbroddi leikhópsins og fram-
tíðarhorfur almennt skjannabjartar
hjá hinum sérstæða og bráðflinka
herra Fincher.
Skapari spennu
og skelfingar
Bandaríkjamaðurinn David Fincher er af mörgum talinn einn
persónulegasti og færasti leikstjóri samtímans. Sæbjörn
Valdimarsson rifjar upp glæstan feril sem hófst fyrir alvöru í
tónlistarmyndbandasmiðju Sigurjóns Sighvatssonar.
Bandaríkjamaðurinn David
Fincher er talinn í hópi fremstu
leikstjóra samtímans þó myndir
hans séu misjafnar að gæðum.
Panic Room: Jodie Foster reynir að vernda dóttur sína, Kristen Stewart, fyrir óprúttnum innbrotsþjófum.
Eftir Panic Room er David Fincher enn sem fyrr bjartasta von spennumyndarinnar
saebjorn@mbl.is