Morgunblaðið - 07.08.2002, Síða 2

Morgunblaðið - 07.08.2002, Síða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isGrótta/KR á erfitt verk fyrir höndum / B1 Radcliffe kom í mark á nýju Evrópumeti / B1 4 SÍÐUR Sérblöð í dag VEL búinn bóndann skorti ekki reið- skjóta í Flóanum. Hann hafði þá sjö til reiðar. Hvaðan bóndinn og hross- in komu eða hvert leiðin lá í rigning- unni fylgdi ekki sögunni. Allir báru sig vel þrátt fyrir votviðrið. Morgunblaðið/Kristinn Með nokkra til reiðar LÖGREGLAN á Selfossi hefur til rannsóknar kæru sem barst nýlega frá talsmanni landeigenda við vatnasvæði Hvítár/Ölfusár sem tel- ur netalagnir í ánum ekki samrým- ast lögum. Deilur hafa löngum ver- ið uppi um þessar netalagnir þar sem deilt er um hvort leggja eigi netin frá föstu landi eða frá eyrum úti í ánum, sem kærandi heldur fram að nokkrir veiðibændur geri. Segir hann þolinmæði stangaveiði- manna gagnvart netaveiðunum á þrotum. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður í Árnessýslu, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að kæran hefði borist og væri til rannsóknar. Netalagnir væru kærðar en kæran beindist ekki að neinum einum að- ila. Því lægi enginn undir grun á þessu stigi málsins. Ljósmyndir af netalögnum í Hvítá hefðu fylgt kærunni en önnur málsgögn ekki. Ólafur Helgi sagðist hafa falið lög- reglunni að rannsaka málið frekar. Fyrsta verk hennar væri einkum að kynna sér tvennt, annars vegar hvar netalagnir væru heimilaðar í Hvítá og hins vegar hvaða reglur giltu um slíkar netalagnir. Líkt og fiskveiðar Hreggviður Hermannsson í Langholti í Hraungerðishreppi lagði kæruna fram. Hann sagði við Morgunblaðið að þolinmæði stangaveiðimanna og margra land- eigenda innan Veiðifélags Árnes- inga væri á þrotum. Netaveiðin færi ekki fram samkvæmt settum reglum og sagði Hreggviður þetta m.a. hafa haft þau áhrif á stanga- veiðina að hún heyrði nánast sög- unni til, miðað við það sem áður veiddist. Fleiri þættir en netaveiði hefðu reyndar haft þar áhrif. Hann sagði ekki vera deilt um rétt manna til netaveiða á svæðinu, heldur væri það fyrst og fremst að- ferðin sem notuð væri. „Við getum ekki lengur sætt okkur við þetta. Áin rennur þarna grunnt í álum og álarnir eru ein- faldlega girtir af með netunum. Menn fara svo þarna um á vélbát líkt og um fiskveiðar væri að ræða. Á meðan þetta fer fram við inn- gönguna fyrir alla sýsluna þá væri heppilegra að draga sem mest úr netaveiðinni eða hætta henni alfar- ið. Við viljum einfaldlega fá úr því skorið hvað sé rétt og rangt í mál- inu,“ sagði Hreggviður, sem taldi meirihluta rúmlega 200 fé- lagsmanna í Veiðifélagi Árnesinga vera sömu skoðunar. Netalagnir á vatnasvæði Hvítár/Ölfusár kærðar Segir þolinmæði veiðimanna á þrotum Deilt er um hvort leggja megi net frá eyrum í ánum Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins kom sjúkrabíll frá Ólafsvík fyrstur á staðinn og gat læknir í bílnum veitt fyrstu hjálp. Síðar komu sjúkrabílar frá Borgar- nesi og Akranesi einnig á vettvang. Klippa þurfti bílinn í sundur til að ná fólkinu. Að sögn læknis á vakt á Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi eru öku- mennirnir tveir alvarlega slasaðir. Sá sem var fluttur með þyrlunni slasað- ist meira; höfuðkúpubrotnaði og hlaut innvortis blæðingar. Hann var strax settur í aðgerð. Hinn ökumað- urinn er m.a. mikið slasaður í andliti og mjaðmagrindarbrotinn. Hann er á gjörgæslu en ekki í bráðri lífshættu. EINN lést og tveir slösuðust alvar- lega í hörðum árekstri tveggja bif- reiða á Vesturlandsvegi við Fiskilæk í Leirár- og Melasveit um fimmleytið í gær. Að sögn lögreglunnar í Borg- arnesi eru tildrög slyssins enn ókunn. Annar bíllinn var á leið norður en hinn á leið suður. Skullu þeir saman. Farþegi í bílnum á suðurleið var úrskurðaður látinn á slysstað og öku- maður bifreiðarinnar sem var á norð- urleið var fluttur með þyrlu Land- helgisgæslunnar á Landspítala – há- skólasjúkrahús í Fossvogi í Reykja- vík. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi en þaðan með sjúkrabíl á Landspítala – háskólasjúkrahús í Banaslys á Vest- urlandsvegi FORMLEG leit að unga manninum, sem saknað er eftir að bifreið sem hann var farþegi í lenti í Hvítá að- faranótt föstudags, lá niðri í gær. Vatnsyfirborðið við Brúarhlöð hefur hækkað um 110 cm í rigningunum að undanförnu. Verður beðið með leit með þrívíddarskanna í ánni uns sjatnar í henni. Maðurinn sem saknað er heitir Pálmi Þórisson til heimilis í foreldra- húsum í Hæðargarði 56, Reykjavík. Hann er fæddur 19. febrúar 1979. Foreldrar hans og fjölskylda vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem vinna að leit hans. Manns enn saknað eftir Hvítárslysið Áin of vatns- mikil fyrir leit FLUGVÉLIN sem lenti í alvar- legu flugatviki við Grænland í síð- ustu viku féll úr þrettán þúsund feta hæð í tvö þúsund fet áður en flugmennirnir náðu stjórn á vél- inni á nýjan leik og lentu vélinni heilu og höldnu í Kulusuk. Þorkell Ágústsson, aðstoðar- rannsóknarstjóri Rannsóknar- nefndar flugslysa, sagði að þegar flugvélin hefði verið að koma inn yfir austurströnd Grænlands hefðu flugmennirnir orðið varir við gangtruflanir sem líklegast hefðu stafað af ísingu. Flugmenn- irnir hefðu átt erfitt með að halda stjórn á vélinni sem hefði þá verið í þrettán þúsund feta hæð og hefði hún fallið niður í um tvö þúsund fet áður en þeir hefðu náð fullri stjórn á henni aftur. Eftir það hefðu flugmennirnir ákveðið að lenda vélinni í Kulusuk. Rannsóknarnefnd flugslysa í Danmörku hefur rannsókn atviks- ins með höndum. Rannsóknar- nefnd flugslysa hér aðstoðar stofnunina í Danmörku við rann- sóknina og er Þorkell fulltrúi stofnunarinnar við rannsókn at- viksins. Alvarlegt flugatvik Þorkell sagði engum vafa undir- orpið að um alvarlegt flugatvik væri að ræða. Flugvélin er af gerðinni Cessna 404. Hún er tveggja hreyfla og var í leiguflugi frá Reykjavík til Nuuk 1. ágúst síðastliðinn þegar atvikið átti sér stað. Í vélinni voru níu farþegar og tveir flugmenn. Flugatvikið við Grænland varð vegna ísingar Féll úr þrettán þúsund fetum í tvö þúsund Á BÆJARRÁÐSFUNDI Borgar- byggðar sem fram fór í gær var rætt um úrskurð félagsmálaráðuneytisins um ógildingu sveitarstjórnarkosning- anna sem fram fóru í vor. Lögð var fram svohljóðandi tillaga: „Bæjarráð Borgarbyggðar skorar á félagsmálaráðuneytið að endur- skoða úrskurð sinn frá 30. júlí 2002 þar sem kveðið er á um að sveitar- stjórnarkosningar í Borgarbyggð séu ógildar og kosningar skuli fara fram að nýju svo fljótt sem auðið er. Bæj- arráð telur þessa ákvörðun mjög íþyngjandi af hálfu ráðuneytisins gagnvart sveitarfélaginu og að hægt hefði verið að fara aðra og vægari leið í þessu máli. Bæjarráð Borgarbyggð- ar óskar jafnframt eftir viðræðum við félagsmálaráðuneytið um framhald málsins svo fljótt sem auðið er.“ Tillagan var samþykkt með tveim- ur atkvæðum gegn einu. Skorað á ráðuneyti að endurskoða úrskurð sinn Borgarbyggð ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi til að sækja slas- aðan mann er lent hafði sviffallhlíf sinni í Dyrdal í Henglinum. Hafði maðurinn klifrað upp í Hengilinn og síðan látið sig svífa niður í fallhlífinni. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Selfossi var tilkynnt um slysið kl. 18.48 í gærkvöldi og fóru sjúkraflutningamenn úr Reykjavík og lögreglumenn frá Selfossi á stað- inn. Vegna erfiðra aðstæðna á slys- stað reyndist nauðsynlegt að kalla til þyrlu til að sækja hinn slasaða. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi og var að sögn vakthafandi læknis ökkla- brotinn og með brot á hryggjarlið og mun væntanlega gangast undir upp- skurð í dag. Slasaðist við fallhlífarflug

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.