Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VW Passat 1800 Turbo
Trendline, f. skrd. 09.03.2001,
ek. 15 þús. km., 4ra dyra, bsk.
Aukahlutir: 17" álfelgur,
krómlistapakki, ljóskastarar,
samlitur, sóllúga, vindkljúfasett,
vindskeið, hiti í sætum o.fl.
Verð 2.540.000.
Opnunartímar:
Mánud.-föstud. frá kl. 10-18.
Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
HUGMYNDIR hafa verið uppi um
það á Egilsstöðum að færa höfnina
við Lagarfljótsbrú, þaðan sem far-
þegaferjan Lagarfljótsormurinn er
gerð út, nær bæjarkjarnanum í því
skyni að bæta aðstöðu fyrir smá-
báta og auka aðdráttarafl hafn-
arinnar og um leið Lagarfljóts-
ormsins. Jökull Hlöðversson er
meðal þeirra sem telja færslu hafn-
arinnar vel raunhæfa en þær
ganga út að grafa 500 metra lang-
an skipaskurð frá svokallaðri Nátt-
hagavík upp að gróðrarstöðinni
Blómabæ á Egilsstöðum og útbúa
þar smábátahöfn.
„Eftir því sem maður hugsaði
meira um þessa hugmynd, sá mað-
ur alltaf betur og betur hvað það
væri gráupplagt að hafa höfnina
þarna upp frá,“ segir Jökull Hlöð-
versson. „Með því að færa höfnina
nær bænum, gæti kannski myndast
eitthvert mannlíf við hana svipað
því sem er í bæjum við sjávarsíð-
una, þar sem höfnin er aðalmóts-
staður bæjarbúa. Lauslega áætlað
kostar þessi höfn, án þess að mað-
ur hafi nokkuð fyrir sér í því, ekki
meira en höfn sem yrði gerð úti í
Fljótum,“ segir Jökull. Hann segir
að fjarlægja þurfi um 100 þúsund
rúmmetra af jarðvegi miðað við að
grafið sé 2–2,5 metra niður fyrir
jarðvegsyfirborðið. Á milli 80 og
90 krónur kosti að fjarlægja hvern
rúmmetra og þá sé kostnaður við
skurðgröftinn 8–9 milljónir króna.
Skurðinn þarf að grafa í gegnum
land Egilsstaðabænda og myndi
uppgröfturinn fylla kíla í landi
þeirra með þeim afleiðingum að
þeir fengju mun betra land fyrir
vikið að sögn Jökuls. Munu land-
eigendur ekki vera mótfallnir þess-
um hugmyndum.
Besta aðstaðan sem
næst miðbænum
Benedikt Vilhjálmsson, útgerð-
arstjóri Lagarfljótsormsins, segir
að rekstrargrundvöllur ferjunnar
byggist á hafnaraðstöðu á Egils-
stöðum eins og gefur að skilja.
„Besta aðstaðan fyrir okkur er
náttúrlega sem næst miðbænum,“
segir hann. „Þar fyrir utan er
hægt að gera svo margt skemmti-
legt í kringum höfnina í miðju bæj-
arfélagi. Svo þurfum við að fá að-
stöðu í Atlavík til að unnt sé að
gera skipið út þaðan, þar sem fólk-
ið er og þyrstir í afþreyingu,“ seg-
ir Benedikt. „Ef Austur-Hérað og
Fellahreppur snéru bökum saman
og lykju við stofnun hafnar-
samlagsins, sem búið er að vera í
umræðunni í fimm ár, þá hefðu
þau aðgang að fjármagni frá ríki
og hafnarsjóði til hafnargerðar.
Með þessum hætti erum við að
hvetja til þess að samfélagið komi
að þessu verkefni með okkur.
Þetta er ekki bara fyrir okkur, því
með því að skapa hafnaraðstöðu
erum við að skapa aðstöðu fyrir
aðra bátaeigendur hér á svæðinu.
Það er vaxandi áhugi á bátamenn-
ingu hér og þetta er eitt albesta
svæði til seglbátasiglinga á land-
inu.“
Hann segir að opinber umræða
þurfi að fara fram með tilliti til
þess hvort sótt verði opinbert fé til
framkvæmdanna og eins þurfi að
fá afstöðu bæjaryfirvalda til máls-
ins þar sem framkvæmd af þessu
tagi er skipulagsskyld.
Vilja fá smábáta-
höfn á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Kristinn
Jökli Hlöðverssyni líst vel á hugmyndir um smábátahöfn á Egilsstöðum
sem tengd yrði fljótinu með skurði. Lagarfljótsormurinn í baksýn.
ALVARLEGUSTU slysin í heima-
húsum verða á eldra fólki en flest
verða þau á börnum, að því er
fram kemur í rannsóknarverkefni
Daggar Hauksdóttur, læknanema
á fjórða ári, sem hún vann undir
handleiðslu og í samvinnu við Jón
Baldursson, yfirlækni á slysa- og
bráðadeild Landspítalans, og
Brynjólf Mogensen, sviðsstjóra á
slysa- og bráðasviði spítalans.
Slys í heimahúsum eru meðal al-
gengustu slysa hér á landi. Árið
2000 voru 12.488 komur á slysa- og
bráðadeild Landspítalans í Foss-
vogi vegna slíkra slysa, eða 42% af
öllum komum á deildina. Flestir
voru börn á aldrinum eins til fjög-
urra ára.
Dögg gerði rannsóknina meðal
278 sjúklinga er leituðu á slysa-
deild fyrstu tvo mánuði þessa árs
og í niðurstöðunum kemur m.a.
fram að börn innan við 10 ára eru
stærsti hópurinn, eða 36%. Al-
gengasta tegund áverka var högg
vegna árekstrar við húsbúnað, eða
42%, og næstalgengast (23%) var
högg vegna árekstrar við hlut,
mann eða dýr, eins og það var
flokkað í rannsókninni. Í tilviki
barna voru slysin alvarlegust þeg-
ar þau féllu af húsgögnum og niður
á gólf, aðallega af hjónarúmi for-
eldra sinna, og annaðhvort bein-
brotnuðu eða fengu heilahristing.
Markmiðið að efla forvarnir
og bæta skráningu slysanna
Markmið rannsóknarinnar var
að skoða hvar á heimilinu og við
hvaða aðstæður slysin verða og
með meiri nákvæmni en gert er
með núverandi slysaskráningar-
kerfi, með það fyrir augum að efla
forvarnir og bæta slysaskráningu.
Sem fyrr segir voru börn innan
við 10 ára fjölmennust meðal þátt-
takenda í rannsókninni. Karlmenn
voru í meirihluta framan af ævi en
hlutfallið snerist við um miðjan
aldur. Börn innan við 10 ára höfðu
í 45% tilfella slasast vegna falls.
Algengasta gólfefnið í þessari teg-
und slysa var parket. Framleiðslu-
vörur sem voru meðvirkandi orsök
voru oftast húsgögn og vefnaðar-
vörur. Áverkaskor, alþjóðlegt kerfi
til að meta alvarleika áverka á
kvarðanum 0–75, var oftast 1 en
hæst 9 þegar um slys á eldra fólki
var að ræða, sem oftast féll í her-
bergjum sínum um lausar mottur
eða aðra innanstokksmuni. Inn-
lagnir í þessum 278 tilvikum voru
aðeins tvær.
Dögg dregur þá ályktun af nið-
urstöðunum að þær bendi til þess
að slys í heimahúsum séu oftast
vegna falls eða höggs. Börnin séu
langstærsti hópur slysaþola og
kynjaskipting innan aldurshópa er
sögð í samræmi við sambærilegar
rannsóknir. Dögg vekur athygli á
því að þegar húsgögn og vefnaðar-
vörur eru slysavaldur er í 58% til-
vika um að ræða börn yngri en 10
ára.
Slysin sjaldnast vegna leik-
fanga þeirra eða húsgagna
Niðurstöðurnar bendi til þess að
slys á börnum séu í fáum tilfellum
vegna sérhannaðra húsgagna fyrir
börn eða leikfanga, heldur vegna
annarra húsgagna á heimilum.
Einnig veki það athygli að flest
slysin verði innan setustofu og
svefnherbergja. Tímasetning
slysanna er oftast síðdegis og fram
að kvöldmat og síðan skömmu áður
en heimilisfólk gengur til náða.
Dögg segir við Morgunblaðið að
rannsóknin verði m.a. notuð á
slysadeildinni til að búa til nýjan
gátlista og einnig notuð til að efla
forvarnir. Þá er stefnt að því að
birta niðurstöður rannsóknarinnar
í Læknablaðinu á næstunni.
Ný rannsókn læknanema á orsökum slysa í heimahúsum
Yfir þriðjungur slysa á
börnum yngri en 10 ára
SUMARBÚSTAÐUR í landi Heið-
arbæjar við Þingvallavatn brann til
kaldra kola á sunnudag. Slökkvilið
Brunavarna Árnessýslu fór á vett-
vang en húsið var að mestu brunn-
ið þegar að var komið. Eldsupptök
eru enn óljós en grunur beinist að
kamínu sem var í húsinu. Ekkert
rafmagn var þar til staðar. Rann-
sókn á eldsupptökum stendur yfir
hjá lögreglunni á Selfossi.
Þá var tilkynnt um innbrot í
sumarbústað á Þingvöllum. Tals-
vert tjón var unnið á innanstokks-
munum og áfengi stolið. Einn mað-
ur var handtekinn grunaður um
verknaðinn en látinn laus að lok-
inni yfirheyrslu þar sem rannsókn-
arhagsmunir kröfðust ekki að hon-
um yrði haldið áfram. Málið er
óupplýst en verið að vinna úr
gögnum.
Sumarbústað-
ur á Þing-
völlum brann
Í MÝRDALNUM er búið að vera
einstaklega gott veður undanfarna
viku og bændur hafa náð að hirða
mikið af góðum heyjum.
Á Götum í Mýrdal er heyskap að
mestu lokið, einungis verið að slá
bletti til að snyrta til í kringum
bæinn. Þar rakst fréttaritari á þær
mágkonurnar Guðrúnu Einars-
dóttur og Sigríði Hjaltadóttur í
óða önn að snúa með hrífu í
flekknum sem hafði verið slegið
með orfi. Skikinn stendur í það
miklum halla að ekki er hægt að
komast þar að með nútíma hey-
vinnuvélum. Það er orðið frekar
sjaldgæft að bændur noti hrífu, en
þær kunnu greinilega handtökin
við þessa vinnu og voru snöggar
að snúa og brakandi þurrkurinn
færði með sér töðuilm. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Snúið með
gamla
laginu
á Götum
Fagradal. Morgunblaðið.
KARLMANNI, sem lögregla hand-
tók á heimili við Túngötu á Álftanesi
á mánudag, var sleppt úr haldi í nótt.
Tilkynnt var til lögreglunnar í Hafn-
arfirði klukkan 8 í gærmorgun um
mjög æstan og ölvaðan mann sem
hefði skotvopn undir höndum í hús-
inu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var
kölluð til aðstoðar lögreglu og var
heimili hans umkringt.
Eftir þriggja tíma umsátur réðust
sérsveitarmenn til inngöngu og yfir-
buguðu manninn. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði
viðurkenndi maðurinn að hafa hand-
leikið vopn á heimili sínu en sagðist
ekki hafa skotið úr því. Honum var
sleppt að loknum yfirheyrslum. Mál-
ið telst að mestu leyti upplýst.
Handtekinn eftir
umsátur lögreglu
Byssu-
manni
sleppt úr
haldi
♦ ♦ ♦