Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Glæsileg... Baðkar og sturta 336.900 kr. 180x90x213 cm, með nuddi verð áður: 449.323 kr. Baðkar með nuddi 195.900 kr. Scala handlaug 29.656 kr. stölluð, 470x470 mm og 20mm á hæð ...hreinlætistæki Handy C. hornbaðkar 149.900 kr. 135x135x58 cm, með nuddi Ver› á›ur: 197.202 kr. 180x90x58 cm verð áður: 208.778 kr. 145x145x58 cm, með nuddi Ver› á›ur: 381.227 kr. Stelleria hornbaðkar 285.900 kr. Það væri vel þegið ef þér sæjuð yður fært að líta við hjá okkur, mr. Bush. Þjóðháttadagar á Héraði Tónlist og hljóð- færanotkun Á hverjum fimmtu-degi milli klukkan13 og 17 yfir sum- artímann eru þjóðhátta- dagar svokallaðir hjá Minjasafni Austurlands. „Þetta eru lifandi uppá- komur þar sem teknir eru fyrir þjóðlegir hættir og handverk,“ sagði Rann- veig Þórhallsdóttir, safn- stjóri hjá Minjasafni Aust- urlands. „Oftast er verið að vinna að einhverju sérstöku þema hvern fimmtudag. Á morgun verður tekið fyrir tónlist og hljóðfæranotkun og þá sækjum við gripi í geymslur okkar sem tengj- ast tónlistarnotkun á Hér- aði.“ – Eigið þið mikið af slíku? „Við eigum til dæmis mikið af alls konar orgelum og svo fundum við nótnabækur frá Vigfúsi Sig- urðssyni, sem var fjölhæfur tón- listarmaður úr Fljótsdalnum. Einnig fundum við handskrifaðar nótur að áður óþekktum valsi eftir Inga T. Lárusson. Það kom hér maður sem varð alveg óður og uppvægur þegar hann komst að tilvist valsins og fékk að ljósrita nóturnar. Við fundum einnig vöru- lista frá versluninni Drangey yfir íslenskar og erlendar hljómplötur frá því í byrjun sjötta áratugarins. Einnig fundum við hnappaharmo- nikku og gítar sem notaður var á útisamkomum hér um 1940. Org- elin eru þó mest áberandi. Þau tengjast einkum kirkjum. Það eru og voru hér margar kirkjur. Það kom eitt orgel hér inn um daginn frá heimili í Fellum og annað er væntanlegt frá kirkju í Jökuldal. Fólk átti gjarnan orgel til heim- ilisnota fyrr á tímum.“ – Hvað fleira hafið þið tekið fyr- ir í sumar? „Hinn 13. júní var fjallað um túnslátt með gamla laginu. Þá slógum við hérna úti og fengum krakka í vinnuskólanum í lið með okkur. Síðan skoðuðum við veiði- vopn fyrr og nú. Á Austurlandi er saga hreindýraveiða samtvinnuð innflutningi hreindýra. Raunar eru þessar veiðar sérkenni Aust- urlands nú. Við eigum líklega eina elstu byssu á Íslandi hér á safn- inu. Þetta er fótgönguliðs-fram- hlaðningur eða tinnubyssa frá 1794. Gripurinn kom úr vopnabúri Kaupmannahafnar og framleið- andinn er C.W. Kyhl sem var byssusmiður við umrætt vopna- búr. Í lok júni var svo fjallað um útsaum af ýmsu tagi. Hingað kom þá kona sem kenndi ýmsar út- saumsgerðir. Fyrsta viðfangsefnið í júlí var að fjalla um ýmislegt tengt lífs- baráttu kotbóndans. Þá var fjallað um tínugerð, en tínur eru box úr sveigðu birki sem skorið var ákaf- lega þunnt og skreytt með út- saumi úr afhýddri birkirót. Einnig var tekin fyrir eldsmíði þar sem notuð voru birkikol sem Gestur Helgason frá Droplaugarstöðum framleiðir. Hallgrímur og Sigurður Helgasyn- ir frá Vopnafirði voru eldsmiðirnir. Fimmtu- daginn þar á eftir var útskurður úr ýsubeinum kynntur. Gestir og gangandi fengu að reyna sig við útskurðinn. Síðasta fimmtudag var svo tekin fyrir ostagerð. Við bjuggum að vísu ekki til osta en við skoðuðum upp- skriftir og fólk fékk heim með sér uppskrift. Maður frá Mjólkurbúi Flóamanna kom hingað og fjallaði um ostagerð fyrr á öldum. Osta- og smjörsalan gaf sýnishorn af nú- tímaostum til að smakka á.“ – En hvað eigið þið þá eftir að fjalla um í sumar? „Þrír fimmtudagar eru eftir af sumaropnunartímanum. Þá verð- ur tekin fyrir fjallagrasanotkun og tínsla á fjallagrösum. Ég er af- komandi grasa-Þórunnar Gísla- dóttur og fylgdist með ömmu minni Kristínu Gissurínu Gissur- ardóttur (Gínu ömmu) sjóða smyrsl úr birkilaufum og fjalla- grösum. Ætlunin er að fara með hóp héðan á einkabílum og tína fjallagrös. Fólki er bent á að hafa með sér nesti en leiðsögnin kostar 400 krónur. Við vonum bara að það rigni ekki, það er það eina sem getur stöðvað okkur. Sama á við um fimmtudaginn þar á eftir þeg- ar við ætlum að tína lerkisveppi. Mikið er af lerkisveppum í lerki- skógi á leiðinni í Hallormsstaða- skóg. Ég hef alist upp við að tína lerkisveppi á þessu svæði og fer alltaf í ágúst og tíni sveppina og frysti þá síðan. Ég er Austfirðing- ur, ættuð frá Borgarfirði eystri og veit að það er ríkt í fólki hér á svæðinu að bjarga sér og búa til sem mest sjálft, sennilega eru þetta leifar af kotbúskapnum. Foreldrar mínir þurrka stundum enn harðfisk, taka slátur og sjóða sviðalappir. Afi minn, Árni Björg- vin Halldórsson, lögfræðingur á Egilsstöðum, sem nú er látinn, smíðaði hjalla fast við hús sitt og þar verkaði hann skerpukjöt, harðfisk og hákarl. Hann hélt fast við ræt- ur sínar úr Borgarfirði eystra og kynnti fjöl- skyldu sinni vandlega forna matargerð. Son- ur minn veit t.d. ekkert betra en tyggja söl og borða súr- mat.“ – Á hverju ætlið þið að enda sumarstarfið? „Síðasta viðfangsefni sumarsins verður að Hlynur Halldórsson í Miðhúsum kemur og kennir fólki að skera út í tré. Hann er mikill listamaður á þessu sviði og svo var einnig um föður hans.“ Rannveig Þórhallsdóttir  Rannveig Þórhallsdóttir fædd- ist á Akureyri 9. febrúar 1974. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og BA-prófi í almennri bók- menntafræði 1999. Hún var Eras- mus-stúdent í Aristoteles- háskólanum í Þessaloniki á Grikk- landi 1996 til 1997. Árið 2002 lauk hún framhalds- og grunnskóla- réttindum frá Háskólanum á Ak- ureyri. Hún er safnstjóri á Minja- safni Austurlands. Unnusti Rannveigar er Frosti Þorkelsson smiður. Sonur Rannveigar er Kol- beinn Þór Nökkvason. Ríkt í fólki hér að bjarga sér, búa til sem mest sjálft

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.