Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 15

Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 15 frá Pottar - gufupottar - pönnur Glæsileg gjöf VEGAGERÐIN er um þessar mund- ir að ljúka framkvæmdum við að malbika Garðveg, þ.e.veginn milli Garðs og Keflavíkur. Í sumar hefur verið unnið að malbikun á 3,6 km kafla en á síðasta ári var fyrri hluti vegarins unninn. Vegurinn hefur verið breikkaður, þannig að um mikla bót í vegaframkvæmdum er að ræða, að sögn Sigurðar Jóns- sonar, sveitarstjóra í Garði. „Al- menn ánægja ríkir meðal Garðbúa með þessa framkvæmd. Næsta verkefni okkar verður að berjast fyrir því að fá lýsingu á veginn til að auka enn frekar öryggi hans.“ Unnið hefur verið að stórátaki í lagningu gangstétta í Garðinum í sumar. Fyrir stuttu var 1.500 metra kafli lagður kantsteini og fram- kvæmdir eru nú hafnar við að steypa gangstéttirnar. Þetta mun hafa gífurlega mikil áhrif á útlit sveitarfélagsins að sögn Sigurðar. „Vinnuskólinn vinnur nú að lagn- ingu göngstígs meðfram ströndinni í Garðinum, frá Nesfiski í áttina að Útskálakirkju. Hér er um mjög vin- sæla gönguleið að ræða og mun þetta verða til að bæta alla aðstöðu til gönguferða,“ segir Sigurður. Átak í lagningu göngustíga og gangstétta Garður Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Þessir ungu menn eru að leggja göngustíg frá Gerðum að Útskálakirkju, meðfram strandlengjunni í Garði. „Það eru engar stelpur í hópnum því þær eru að sinna kvennavinnu, reyta arfa og svoleiðis,“ sögðu þeir í gríni. UMHVERFISÁTAK verður í Reykjanesbæ frá og með morgun- deginum. Átakið er samvinnuverk- efni bæjaryfirvalda, Hringrásar hf., Njarðtaks hf., Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, Bláa hersins auk fyrir- tækja og íbúa Reykjanesbæjar. Markmið verkefnisins er að hreinsa jaðra Reykjanesbæjar af öllum málmum og öðru rusli er gæti hafa safnast upp. Hreinsunarsvæði hafa verið tilgreind svo og sérstök verk- efni í átakinu, en einnig er óskað eft- ir ábendingum frá íbúum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Árna Sigfússonar bæjarstjóra. Hreinsunarsvæði eru þrjú; í Helguvík að Njarðvíkurhöfn auk iðnaðarsvæða, Njarðvíkurhöfn að Stekkjarkoti auk iðnaðarsvæða og svæðið frá Stekkjarkoti að Voga- stapa og Hafnir auk iðnaðarsvæða. Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar tekur á móti ábendingum um hvar málma og annað rusl er að finna og kemur þeim til tengiliða verkefnis- ins. Sérstakir gámar verða settir upp vegna átaksins, sem ætlaðir eru und- ir járnarusl. Í tilkynningunni segir að mikilvægt sé að fyrirtæki nýti sér gámana á þessum tíma, þeim að kostnaðarlausu. Átakið byrjar formlega á morgun, fimmtudaginn 8. ágúst, kl. 18, en stefnt er að því að ljúka því fyrir 1. september nk. „Íbúar og fyrirtækjaeigendur eru hvattir til að skrá sig í átakið hjá þjónustumiðstöðinni og taka þátt, ýmist með því að taka til í sínu nán- asta umhverfi eða mæta í hópátak á tilgreindum stöðum sem þjónustu- miðstöð bendir á,“ segir enn fremur í fréttatilkynningunni. Umhverfis- átak hefst á morgun Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.