Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 16
LANDIÐ 16 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ „EF ÉG væri flík – þá værir þú gömul lopapeysa,“ var meðal þess sem heyrðist í Óðali síðasta föstu- daginn í júlí en þá voru krakkarnir í Vinnuskólanum þátttakendur í fræðsluátaki Jafningjafræðslunnar um sjálfsmynd unglinga. Sex starfsmenn Jafningjafræðsl- unnar komu í heimsókn og notuðu daginn með 50 unglingum úr Borg- arbyggð þar sem sjálfsmyndin var þemað. Farið var í marga leiki og endað á því að allir skrifuðu eitt- hvað jákvætt hver um annan. Krakkarnir voru mjög ánægðir með Jafningjafræðsluna og gest- irnir að sunnan hrósuðu þeim fyrir að vera opnir og skemmtilegir þátt- takendur. Hringferð Jafningja- fræðslunnar um landið hófst síðan á mánudaginn og á að enda á Ak- ureyri nk. fimmtudag. Morgunblaðið/Guðrún Vala Egilsdóttir Krakkarnir í Jafningjafræðslunni tóku þátt í leiknum „Ef ég væri“. Ef ég væri … Borgarnes FJÖLDI fólks kom á Flúðir um verslunarmannahelgina og fylgdist með ýmsum atriðum sem „Iðandi dagar“ höfðu uppá að bjóða. Meðal atriða á laugardeginum var tor- færukeppni á traktorum þar sem sex þátttakendur þreyttu keppni. Voru þeir um eina og hálfa mínútu að meðaltali með þrautirnar, þótti þetta góð skemmtun. Skilyrði var að vélar þátttakenda væru ekki yfir 50 hestöfl og eru því skiljanlega komn- ar til ára sinna. Sigurvegarinn frá í fyrra, Grétar Skúlason í Miðfelli, hafði bestan tíma og varði titilinn. Ölver Karl Emilsson á Graf- arbakka fékk viðurkenningu fyrir snjöllustu tilþrifin. Furðubátakeppnin á Litlu-Laxá er fastur liður á Iðandi dögum og fór fram eftir hádegi á sunnudeg- inum. Að sögn Önnu Ásmunds- dóttur, umsjónarmanns Iðandi daga, komu um 1.300 manns til að fylgjast með þegar 38 fley háðu keppni um hvert þeirra væri flott- asti og fyndnasti furðubáturinn og hlyti verðlaun. Var erfitt að gera upp á milli keppenda. Þá má nefna meðal atriða krakka-hreysti undir stjórn hreystimeistarans Kristjáns Ársælssonar, þar sýndu börnin skemmtilegar þrautir og æfingar. Einnig má nefna ídýfukeppni græn- metisframleiðenda þar sem gestir og gangandi völdu bestu ídýfuna. Uppskrift að Flúðaflippi, sem dæmdist best af fjórtán tegundum, er hægt að sjá á Netinu undir flud- ir.is. Á sunnudagskvöld var kveikt- ur varðeldur og garðyrkjubændur buðu upp á flugeldasýningu sem björgunarsveitarmenn önnuðust. Fjöldi gesta sem var á tjaldsvæð- unum á Flúðum og á Álfaskeiði var þá farinn vegna rigningarinnar sem var óneitanlega mikil en hér var þó alltaf logn. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Það sáust oft góð tilþrif í traktorstorfærukeppninni þar sem keppt var á gömlum vinnujálkum. Fjöldi gesta á Iðandi dögum á Flúðum Hrunamannahreppur Mörg börn reyndu með sér í hreystikeppni hjá Kristni Ársælssyni. BJÖRGUNARSVEITIN Víkverji í Vík og umferðarfulltrúi Suðurlands, Sigurður Hjálmarsson, voru með sameiginlegt átak um helgina til að bæta umferðarmenningu landans. Þeir voru staddir við Víkurskála á föstudagskvöldið og afhentu mönn- um bæklinga og fræðsluefni um um- ferðaröryggi, meðal annars var miði þar sem sagði að það munaði aðeins 8 mínútum á leiðinni milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs ef ekið væri á 90 í stað 110 km hraða. Að sögn Bryndísar Harðardóttur, björgunar- sveitarmanns í Vík, voru vegfarend- ur almennt mjög jákvæðir og ánægð- ir með þetta framtak Í lok versl- unarmannahelgarinnar kannaði um- ferðarfulltrúinn í Vík síðan hraða vegfarenda og voru ökumenn með örfáum undantekningum á löglegum hraða. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Bryndís Harðardóttir ræðir hér við Sigurð Ágúst Hjartarson. Mikil áhersla á umferðaröryggi Fagridalur EIN af fjölmennari útihátíðum um verslunarmannahelgina var haldin í Stykkishólmi. Ungmennafélag Ís- lands stóð fyrir unglingalandsmóti þar sem fjölbreytt dagskrá var í boði fyrir alla fjölskylduna. Keppt var í ýmsum íþróttagreinum fyrir unglinga á aldrinum 11–16 ára. Héraðssambönd innan UMFÍ skipulögðu þátttöku á mótið og voru gestir alls staðar að af land- inu. Talið var að í Stykkishólmi hefðu verið um 5.000 gestir. Kepp- endur voru um 1.300 og komu flest- ir þeirra frá UMSK eða 136, frá USS 110 keppendur og HSH 120 keppendur. Fjölmennt lið kom einnig frá Ungmennasambandinu Hrafnaflóka, 72 keppendur, en fé- lagssvæði þeirra er ekki fjölmennt. Mótið gekk mjög vel fyrir sig. Mótssetning fór fram á föstudags- kvöldi á íþróttavellinum í góðu veðri. Íþróttakeppnin fór fram á föstudag, laugardag og sunnudag. Kvöldvökur voru bæði á laugar- dags- og sunnudagskvöld. Mótinu var svo slitið á sunnudagskvöld með glæsilegri flugeldasýningu. Öll framkoma mótsgesta var til fyrirmyndar, enda engin ölvun mótsdagana. Það var létt verk að hreinsa bæinn eftir að um 5.000 gestir höfðu heimsótt hann. Verðlaun fyrir góðan árangur Verðlaun voru veitt fyrir góðan árangur. Þá var veittur Fyrir- myndarbikarinn því héraðssam- bandi sem sýndi bestu framkomu innan vallar sem utan á meðan á mótinu stóð. Þann bikar hlaut Hér- aðssamband Vestur-Skaftfellinga. Það eina sem setti strik í reikn- inginn var veðrið, en við það gátu mótshaldarar ekki ráðið þrátt fyrir góðan vilja. Mikið rigndi á laug- ardag og sunnudag og er það mesta úrkoma sem mælst hefur í Stykk- ishólmi í sumar. En hlýtt var í veðri og hægviðri svo að hægt var að halda dagskrá mótsins án tafar. Unglingalandsmótið í Stykkis- hólmi var Ungmennafélagi Íslands til sóma og jákvætt í starfi þess að bjóða unglingum og foreldrum upp á fjölbreytta dagskrá yfir verslun- armannahelgina þar sem áfengi og önnur vímuefni sjást ekki og geta á þann hátt sýnt fram á að hægt er að skemmta sér á heilbrigðan hátt. Fjölmenni á unglingalandsmóti um verslunarmannahelgina Keppt var í mörgum íþróttagrein- um á mótinu. Hér er verið að veita verðlaun fyrir árangur í 4x100 m boðhlaupi stúlkna 11–12 ára. Fremst er lið frá Ungmennafélagi Akureyrar og svo tvö lið frá Hér- aðssambandi Suður-Þingeyinga. Keppt í ýmsum íþrótta- greinum Stykkishólmur Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Sjá þurfti til þess að keppendur fengju eitthvað að borða. Um það sáu kvenfélagskonur og félagar í Lionsklúbbunum. Hér standa Lionsmenn í ströngu að grilla hamborgara og settu met, því aldrei höfðu þeir grillað annað eins magn á tveimur klukkustundum og 30 mínútum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.