Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 17
FYRIR helgina samþykkti kauphöll-
in í New York, NYSE, tillögur að
nýjum skilyrðum fyrir fyrirtæki sem
skráð eru hjá kauphöllinni. Nýju
skilyrðin verða tekin fyrir hjá banda-
ríska verðbréfaeftirlitinu, SEC, og
vonir standa til að þau verði komin í
gagnið með haustinu. Morgunblaðið
leitaði álits framkvæmdastjóra
Kauphallar Íslands, Þórðar Frið-
jónssonar, á nýju skilyrðunum og
spurði hvort kauphöllin hefði í
hyggju að setja fyrirtækjum sem
skráð eru hér á landi viðlíka skilyrði.
„Við fylgjumst vandlega með því
sem NYSE er að gera og við munum
skoða gaumgæfilega skilyrðin sem
þeir hafa samþykkt í stjórninni hjá
sér. Þessar tillögur mótast auðvitað
af röð hneykslismála sem hefur ein-
kennt efnahagslíf og viðskiptalíf í
Bandaríkjunum að undanförnu. Til-
lögurnar eru mjög víðtækar og
miklu strangari kröfur eru gerðar en
áður, sérstaklega hvað varðar
stjórnir fyrirtækja og tengsl stjórn-
armanna við fyrirtæki. Þetta munum
við að sjálfsögðu skoða gaumgæfi-
lega hér í Kauphöll Íslands og einnig
í samstarfi við aðrar kauphallir á
Norðurlöndunum. Á þeim vettvangi
er ætlunin að sameina sem allra
mest skilyrði fyrir skráningu og önn-
ur atriði sem varða starfsemi kaup-
hallanna. Ég á von á því að þetta út-
spil NYSE verði tekið sérstaklega
fyrir á næstu vikum og mánuðum,“
segir Þórður.
Skýrari skil í Evrópu en BNA
Að sögn Þórðar ber að líta til þess
að í Evrópu eru yfirleitt skýrari skil
milli framkvæmdastjórnar og
stjórnar fyrirtækja en í Bandaríkj-
unum. Skilyrðin frá NYSE séu því
líklega m.a. gerð til að skýra skilin
þarna á milli. Hann segist þó telja
nokkuð langt gengið um sumt í
NYSE-skilyrðunum, ekki síst hvað
varðar skilgreiningu á því hvað sé
óháður stjórnarmaður. „Þeir ganga
mjög langt í skilgreiningu á því hvað
sé óháður stjórnarmaður. Í skil-
greiningu segir að stjórnarmaður
þurfi bæði að vera óháður fyrirtæk-
inu og einnig að hann skuli vera
óháður sem hluthafi. Skilyrðin telja
að lítill hluthafi í fyrirtæki sé ekki
hæfur til að sitja í stjórn þess sem
óháður stjórnarmaður. Hér er
kannski gengið lengra en virðist í
fljótu bragði vera eðlilegt, því sam-
kvæmt þessu mætti meiri hluti
stjórnarmanna ekki vera
hluthafar í fyrirtækinu. Það er
mjög langt gengið að segja að hlut-
hafar megi ekki mynda meirihluta.“
Þórður segir það hins vegar skipta
verulegu máli hvernig tengsl stjórn-
armanna við fyrirtæki séu en telur ef
til vill of langt gengið að meina þeim
sem eiga hlut í fyrirtæki að sitja í
stjórn þess með þessum hætti. „Ég
tel óeðlilegt að útiloka almennan
hluthafa, sem hefur engra annarra
hagsmuna að gæta gagnvart við-
komandi fyrirtæki en að fá greiddan
arð, frá stjórnarsetu. Hins vegar er
allt annað mál hvort það getur talist
eðlilegt að launatengsl séu milli
stjórnarmanns og framkvæmda-
stjórnar eða að einhvers konar
greiðslur gangi milli fyrirtækis og
stjórnarmanns. Slík fjárhagstengsl
af einhverju tagi draga úr sjálfstæði
stjórnarmanns gagnvart fram-
kvæmdastjórn,“ segir Þórður.
Samræmd skilyrði á Norðurlöndum
Varðandi núverandi skilyrði fyrir
skráningu hjá Kauphöll Íslands seg-
ir Þórður mesta áherslu hafa verið
lagða á að allar upplýsingar um fyr-
irtækið, stjórnarmenn og áætlanir
liggi fyrir. „Hér á landi hafa þó ekki
verið í gildi skilyrði um að stjórn-
armenn séu óháðir á þann hátt sem
NYSE hefur gert tillögur um. Sömu-
leiðis hefur ekki verið gerð krafa um
að stjórn fundi án framkvæmda-
stjórnar fyrirtækja, reyndar er hið
gagnstæða skilyrt í íslenskum lög-
um. Skilyrði um hæfi stjórnarmanna
og að þeir séu óháðir fyrirtækinu,
sem lögð er áhersla á hjá NYSE, eru
hvorki til í okkar reglum né í kaup-
höllunum í nágrenni við okkur. Mér
sýnist að flestar viðbótarkröfurnar
sem eru gerðar í nýju tillögunum séu
ekki í skilyrðum norrænu kauphall-
anna. Þetta eru allt atriði sem við
þurfum að skoða gaumgæfilega.“
Þórður segir skilyrði fyrir skráningu
fyrirtækja vera að miklu leyti sam-
ræmd á Norðurlöndunum. „Þessi
skilyrði eru að verulegu leyti sam-
ræmd að því er varðar skráningar og
það er verið að vinna að frekari sam-
ræmingu reglnanna. Norex er sér-
stakt kauphallarfyrirtæki sem allar
kauphallirnar á Norðurlöndunum
eru í. Það fyrirtæki er með sérstaka
stjórn og á þeim vettvangi er tekin
fyrir stefnumótunin sem síðan er
fylgt eftir í ýmsum nefndum sem
tengjast Norex. Það hefur verið
meginstefna í skráningarreglum
okkar að samræma þær sem mest
því sem gengur og gerist á Norð-
urlöndunum.“
Þörfin fyrir hert skilyrði af því
tagi sem kynnt voru í liðinni viku er,
að mati Þórðar, meiri í Bandaríkj-
unum en hér á landi. „Það er alveg
ljóst að það er meiri þörf fyrir þetta í
Bandaríkjunum. Fyrirtækin þar eru
svo gífurlega víðfeðm og flókin að
það er erfiðara að hafa yfirsýn yfir
alla starfsemi fyrirtækjanna þar en
hér. Jafnframt hafa aðrar venjur og
siðir mótað umhverfið í Bandaríkj-
unum nokkuð á annan veg en í Evr-
ópu, að Bretlandi undanskildu. Hins
vegar getur vel verið að mörg þess-
ara skilyrða eigi fullt erindi til okkar
og menn hafa oft velt upp hvaða skil-
yrði á að setja um stjórnarmenn og
tengslum þeirra við fyrirtækin. Við
höfum hins vegar ekki gengið langt í
þessum efnum.“
Umræðu þörf hér á landi
Þórður segist ekki vita til þess að
fyrirtæki hérlendis hafi sett sér
stefnu um siðferði í viðskiptum en
slíkt skilyrði er hluti af tillögunum
sem NYSE samþykkti fyrir helgina.
Hann segist þó vita til þess að mörg
fyrirtæki hafi velt þessum málum
fyrir sér og bendir á að Kauphöll Ís-
lands hafi t.d. sérstakar siðareglur.
„Ég held að menn þurfi fyrst og
fremst að fara rækilega yfir öll þessi
atriði sem eru talin upp. Mér sýnist
að þarna séu nokkur atriði sem
mætti skoða hér sérstaklega. Til
dæmis hvort ætti að gera kröfu um
að skráð fyrirtæki setji sér stefnu
um siðferði og stjórnarhætti. Eins
þyrfti að skoða atriði eins og hvaða
upplýsingar eigi að gefa um kaup-
réttarsamninga og tengsl stjórnar-
manna við fyrirtæki. Þetta þarf allt
saman að skoða rækilega og athuga
hvort þessi skilyrði eiga að gilda hér-
lendis eða ekki.“
Að sögn Þórðar hefur það verið
rætt hjá Kauphöll Íslands hvort
ástæða sé til að efna til umræðna um
reglur Kauphallarinnar og skilyrði
fyrir skráningu fyrirtækja hér á
landi. Hann segir afleiðingar þróun-
arinnar í Bandaríkjunum vera mikið
til umræðu hjá kauphöllum í Evrópu.
„Í framhaldi umræðna myndum
við velta því fyrir okkur hvernig best
er að standa að endurskoðun reglna
um skráningu og skráningarlýsingar
í þessu nýja ljósi sem hefur verið
varpað á málið, einkum með þessari
framvindu í Bandaríkjunum. Í því
efni munum við að sjálfsögðu starfa
mjög náið með samstarfskauphöll-
unum á Norðurlöndunum,“ segir
Þórður.
Skilyrði
NYSE ganga
of langt
Skoða þarf vandlega skilyrði fyrir
skráningu fyrirtækja hér á landi
Morgunblaðið/Golli
Þórður Friðjónsson, framkvæmdastjóri Kauphallar Íslands, telur skilyrði
NYSE er varða hæfi stjórnarmanna ganga of langt.
Tap hjá
Hlutabréfa-
sjóði Íslands
HLUTABRÉFASJÓÐUR Íslands
tapaði tæpum 1.200 þúsund krónum
á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Um
er að ræða mun betri afkomu hjá fé-
laginu miðað við sama tímabil í
fyrra, en þá var tapið 54 milljónir
króna.
Í tilkynningu félagsins til Kaup-
hallar Íslands kemur fram að heild-
areignir félagsins voru í lok tímabils-
ins 384 milljónir króna samanborið
við 412 milljónir króna í árslok 2001.
Eigið fé félagsins í lok tímabilsins
nam 417 milljónum króna samanbor-
ið við 480 milljónir um áramót en á
aðalfundi félagsins hinn 25. mars sl.
var samþykkt að lækka nafnverð
hlutafjár félagsins úr 350,2 milljón-
um í 233 milljónir króna.
„Í lok fyrri hluta árs 2002 námu
eignir í innlendum hlutabréfum 255
milljónum króna og í innlendum
skuldabréfum 90 milljónum króna.
Samtals nam erlend verðbréfaeign
40 milljónum króna í lok tímabils-
ins,“ segir í tilkynningu sjóðsins.
Hluthafar í Hlutabréfasjóði Ís-
lands hf. voru 1.298 í lok júní 2002.
Hagnaður
Ryanair eykst
um 68%
HAGNAÐUR lággjaldaflugfélags-
ins Ryanair eftir skatta nam rúmum
3,2 milljörðum króna á öðrum árs-
fjórðungi sem er 68% aukning frá
sama tímabili í fyrra.
Forsvarsmenn Ryanair segja hins
vegar að ekki megi búast áfram við
slíkri aukningu milli ára þar sem
mikill kostnaður féll á félagið á öðr-
um ársfjórðungi í fyrra vegna nýrra
áætlunarleiða. Þrátt fyrir varnaðar-
orð félagsins hækkuðu bréf félagsins
um 5 pens í kauphöllinni í London í
gær og var lokaverð þeirra 387,5
pens.
Farþegum Ryanair fjölgaði á
tímabilinu um 38% og veltan jókst
um 29%. Til þess að mæta miklum
vexti hefur félagið pantað þrjár nýj-
ar Boeing-þotur.
10% hlut og aðila fjárhagslega
tengda þeim. Ennfremur segir um
Aðallista að eignarhald almennra
fjárfesta skuli dreifast á a.m.k.
300 hluthafa. Skilyrði um aldur
eru þau sömu fyrir báða lista. Fé-
lag sem óskar eftir skráningu
hlutafjár verður að geta lagt
fram endurskoðaða ársreikninga
fyrir þrjú heil ár sem ná til allra
helstu þátta félagsins. Skilyrðin,
ásamt öðrum reglum um Kaup-
höll Íslands, eru aðgengileg á vef-
síðu kauphallarinnar; www.-
icex.is.
skráningu á Vaxtarlista. Þó er
tekið fram að markaðsvirði hluta-
fjár á Vaxtarlista megi aldrei
vera lægra en 1 milljón evra mið-
að við opinbert gengi.
Dreift eignarhald skilyrði
Hvort sem ætlunin er að skrá
hlutafé félags á Aðallista eða
Vaxtarlista verða minnst 25%
fjárins að vera í eigu almennra
fjárfesta. Með almennum fjár-
festum er átt við alla aðra en
stjórnarmenn, lykilstjórnendur,
einstaka hluthafa með meira en
SKILYRÐI fyrir skráningu hluta-
félaga hjá Kauphöll Íslands eru,
eins og sjá má í töflunni hér til
hliðar, verulega frábrugðin þeim
sem NYSE hefur lagt til að sett
verði í Bandaríkjunum. Auk þess-
ara sjö skilyrða gilda sérstök skil-
yrði um stærð, dreifingu eign-
arhalds og aldur þess hlutafélags
sem sækir um skráningu. Eigi fé-
lagið að vera skráð á Aðallista
þarf áætlað markaðsvirði hluta-
fjárins að vera að lágmarki 600
milljónir króna en 80 milljóna
króna lágmark er sett fyrir
Skilyrði fyrir skráningu hlutafélags
!
"
# $
$
% #& # $
$
$
&
$
&
'
(
$
(
FJÖLMIÐLARISINN AOL Time
Warner hefur ráðið Jon Miller yf-
irmann AOL-hluta fyrirtækisins
eða þess hluta sem snýr að Int-
ernetinu.
Miller var áður háttsettur
stjórnandi hjá USA Interactive og
sá þar meðal annars um vefsíðurn-
ar Match.com og Hotels.com.
AOL er stærsta netþjónustufyr-
irtæki í heimi en undanfarin miss-
eri hefur það ekki átt sjö dagana
sæla. Ítrekaðar tilraunir til að
hleypa lífi í sölu auglýsinga og
fjölgun viðskiptavina hafa ekki
gengið sem skyldi og hluthafar
AOL Time Warner vilja einkum
kenna AOL um hríðfallandi hluta-
bréfaverð félagsins.
Miller tekur við starfinu af Ro-
bert Pittman, sem sagði af sér fyrr
í sumar.
Nýr yfirmað-
ur netdeildar
AOL Time
Warner
NÝTT tryggingarfélag, Íslands-
trygging hf., hefur tekið til starfa.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
Íslandstrygging muni bjóða flestar
tegundir almennra vátrygginga
fyrir fjölskyldur og fyrirtæki.
Félagið hefur gert samninga við
flestar vátryggingamiðlanir á Ís-
landi sem, auk félagsins sjálfs,
annast sölu og þjónustu fyrir fé-
lagið. Frumherji hf. sér um tjóna-
skoðun bifreiða.
Einar Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri og einn hluthafa
hins nýja félags, segir að hluthafar
séu 40 talsins, þar á meðal starfs-
menn félagsins, sex að tölu.
Stærsti einstaki hluthafinn er FJ-
Stál með 12% hlut en hlutafé fé-
lagsins er 174 milljónir króna.
Fregnir af fyrirhugaðri starf-
semi félagsins bárust á fyrri hluta
síðasta árs. Af hverju er það fyrst
núna sem félagið hefur starfsemi?
„Síðustu misseri hafa ekki verið
góður tími til að safna fjármagni
og því gekk illa að fjármagna
þetta,“ sagði Einar.
Aðspurður segist Einar ekki
hræðast samkeppnina á markaðn-
um. Hann segir félagið ekki ætla
að undirbjóða keppinautana heldur
er lagt upp með nýtt viðskiptaform
sem gefið hefur góða raun í
Skandinavíu, að hans sögn.
„Tryggingamarkaðurinn er að
þróast í áttina að þessu formi í
Skandinavíu, þ.e. að trygginga-
félög vinna með sjálfstæðum vá-
tryggingamiðlunum sem fá síðan
prósentur af þeim tryggingum sem
þær selja. Við teljum sparnað í því
falinn að úthýsa sölunni og tjóna-
skoðuninni enda þarf þá ekki að
reka fjölmenna sölu- eða tjóna-
skoðunardeild.“
Nýtt tryggingarfélag
hefur starfsemi
Hluthafar 40 og hlutafé 174 milljónir
♦ ♦ ♦