Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 18

Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 18
ERLENT 18 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ                  ! " ""#  $%&'(% ( )"" ""** + )"" ""*,                                 ! "#  $ %   "&#  '  ( )*+  , ,          -    ,      ,       /      .  0  1##1  '  (    2  ' ( &31  4  #" '  (    5   6633"  5    177#3 '  ( /+     8   0  9     0         :);*    0      0     <  8            :/;  8  !8 0 !8  $  8   8 < 8 < ,  0.  8                        61     &37     6131# . /0 !1 2 %%  3 !  '  .  '  ( MIKIL spenna er enn á ný hlaupin í samskipti Kína og Taívans en kín- versk stjórnvöld brugðust í gær harkalega við þeim yfirlýsing- um Chen Shui-bi- an, forseta Taív- ans, að framtíð eyjunnar yrði að- eins ákveðin af íbúum hennar í þjóðaratkvæða- greiðslu. Sögðu kínverskir emb- ættismenn að Chen væri á góðri leið með að leiða þjóð sína í glötun. Í Dagblaði alþýðunnar, sem er málpípa kínverska kommúnista- flokksins, var þeirri skoðun lýst í gær að það væri mikið hættuspil fyr- ir Taívana að hrófla við þeirri stöðu sem nú væri. Þótti Chen hafa gefið í skyn með ummælum sínum að Taívan væri fullvalda ríki en þó að Taívan hafi í raun og veru notið fulls sjálfstæðis frá árinu 1949 lítur stjórnin í Peking á eyjuna sem órjúfanlegan hluta Kína. Hefur hún hótað að beita vopnavaldi til að sameina Taívan meginlandinu að fullu á nýjan leik. Skv. fréttasíðu BBC hafði Chen, sem er mikill sjálfstæðissinni, lagt til að þing Taívans samþykkti lög sem gera myndu landsmönnum kleift að lýsa yfir sjálfstæði. Virtist hann með þessu hafa svikið loforð sem hann gaf þegar hann var kjörinn forseti Taívans í hittiðfyrra en þá hét hann því að storka ekki stjórnarherrunum í Peking um of í sjálfstæðismálinu. Vilja ekki að deilan fari úr böndunum Stjórnarerindrekar í Taívan reyndu í gær að draga úr ummælum forsetans og segja fréttaskýrendur að svo virðist raunar sem hvorugur aðili vilji að þessi nýjasta deila um stöðu Taívans fari úr böndunum. Eru menn minnugir þess að minnstu munaði að til stríðs kæmi árið 1996 en þá hófu Kínverjar heræfingar skammt undan Taívan-sundi í því skyni að sýna Taívan-stjórn að henni færi betur að hafa sig hæga. Blönduðust Bandaríkjamenn inn í deiluna þá en Bandaríkjastjórn tók ákvörðun um að senda herskip á svæðið til að veita Taívönum liðsinni. Ólíklegt er hins vegar að Kínverj- ar grípi til sambærilegra aðgerða nú, að mati Josephs Cheng, stjórnmála- fræðings við háskólann í Hong Kong. „Þær myndu valda því að andúð íbúa Taívans á meginlandinu færi enn vaxandi og þær myndu líka hafa slæm efnahagsleg áhrif,“ sagði Cheng en fjárfestingar taívanskra fyrirtækja í Kína námu 17 milljörð- um Bandaríkjadala árið 2000. Spenna hlaupin í samskipti Taívans og Kína enn á ný Chen sagður vera að leiða Taívana í glötun Peking. AFP. Chen Shui-bian FRANSKA stjórnin bannaði í gær hægriöfgahreyfinguna Róttæka einingu sem tengist 25 ára manni er reyndi að myrða Jacq- ues Chirac, forseta Frakklands, í París 14. júlí síðastliðinn, á þjóðhátíðar- degi landsins. Stjórnin skír- skotaði til ákvæðis í lögum frá 1936 um bann við hreyfingum sem kynda undir ofbeldi og kynþáttahatri. Leiðtogar Rót- tækrar einingar sögðust ætla að stofna nýja hreyfingu á næstu vikum. Rútuslys í Mexíkó AÐ MINNSTA kosti 32 fórust og sextán slösuðust þegar rútu var ekið á brúarstólpa í norð- vesturhluta Mexíkó í gær. Talið var að slysið hefði orðið vegna hemlabilunar. Varað við hungursneyð MATVÆLA- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, sagði í gær að óttast væri að hálf milljón manna yrði hungurmorða í suðurhluta Eþ- íópíu vegna alvarlegra þurrka. Stofnunin óskaði eftir andvirði rúmra 110 milljóna króna til að hægt yrði að koma fólkinu til hjálpar. Embættismaður DPPC, nefndar sem stofnuð var til að fyrirbyggja hungursneyð, áætlar að 910.000 manns þurfi á hjálp að halda vegna þurrk- anna, að sögn dagblaðsins Ethiopian Herald í gær. Cherie Blair missti fóstur CHERIE Blair, eiginkona Tonys Blairs breska forsætis- ráðherrans, var útskrifuð af sjúkrahúsi í London í gær eftir að hafa misst fóstur, að sögn tals- manns Tonys Blairs. Cherie Blair, sem verður 48 ára gömul í næsta mánuði, ól son fyrir rúmlega tveimur árum. Aðgerðir gegn ölvun- arakstri STJÓRNVÖLD í Portúgal kynntu í gær hertar aðgerðir til að stemma stigu við bílslysum. Bílstjórar sem staðnir verða að ölvunarakstri eða öðrum um- ferðarlagabrotum verða sekt- aðir á staðnum. „Bílar þeirra sem ekki greiða sektina verða gerðir upptækir,“ sagði Anton- io Figueiredo Lopes innanrík- isráðherra. Sektirnir eiga að nema allt að 1.500 evrum, and- virði 125.000 króna. STUTT Frönsk öfga- hreyfing bönnuð Jacques Chirac Cherie Blair ÞESSI mynd, sem talin er vera eitt stærsta veggjakrotslistaverk sem um getur, skreytir gafl fjölbýlis- húss í Hamborg og ber heitið Tengsl manna og náttúru. Myndin er um 550 fermetrar og notuðu listamennirnir 1.500 spreybrúsa við gerð hennar. AP Veggjakrot BANDARÍSKA utanríkisráðuneytið hefur beðið dómara við alríkisdóm- stól í Washington-borg að vísa frá máli á hendur Exxon-olíufyrirtæk- inu vegna ætlaðra mannréttinda- brota í Indónesíu. Í bréfi, sem utanríkisráðuneytið sendi til dómarans, segir að sektar- dómur geti haft mjög neikvæð áhrif á samband Bandaríkjanna og Indónesíu og þar með hindrað bar- áttu bandarískra stjórnvalda gegn alþjóðlegum hryðjuverkamönnum. Segja Exxon hafa vitað af pyntingum Stjórnvöld í Indónesíu hafa gagn- rýnt málshöfðunina og segja dóm- stólinn vera að skipta sér af því, sem Indónesum einum komi við. Samkvæmt bandarískum lögum mega erlendir ríkisborgarar höfða mál á hendur bandarískum fyrir- tækjum vegna brota þeirra á al- þjóðalögum. Málið er höfðað fyrir hönd ellefu þorpsbúa frá Aceh-fylki á Súmötru, sem fullyrða að forsvarsmenn Exx- ons hafi vitað af mannréttindabrot- um sem framin hafi verið af indónes- ískum hermönnum sem staðið hafa vörð um borholur og aðra aðstöðu Exxon á svæðinu. Í stefnu þorpsbú- anna eru hermennirnir sakaðir um að hafa pyntað, rænt og nauðgað þorpsbúunum. Indónesíski herinn hefur undan- farin 26 ár háð blóðuga styrjöld við aðskilnaðarhreyfinguna í Aceh og hafa um ellefu þúsund manns, aðal- lega óbreyttir borgarar, fallið á þeim tíma, þar af 845 á þessu ári. Ætluð mannréttindabrot bandaríska olíufyrirtækisins Exxons Dómari beðinn að vísa málinu frá Jakarta. AP. RÚSSNESKIR vísindamenn hafa með gervitunglamyndum fundið neðanjarðará í Sahara-eyðimörkinni og er áin nægilega stór til þess að geta séð heilum bæ fyrir vatni, að því er svissneskt jarðvísindafyrir- tæki, Geoinformation, greindi frá í gær. Hópur vísindamanna sem vinnur hjá fyrirtækinu að verkefni fyrir stjórnvöld í Máritaníu notaði rúss- neska tækni til þess að staðsetja ána sem er undir hrauni, 250 metrum undir bænum Atar. Vatnsrennslið er 32 þúsund lítrar á klukkustund og mun duga til þess að sjá íbúum Atar, sem eru um 50 þúsund, fyrir því vatni sem þeir þurfa. Neðanjarðará í Sahara Moskvu. AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.