Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 21 ORKUSTOFNUN Samkvæmt nýjum lögum þurfa notendur sem óska að fá húshitunarkostnað niðurgreiddan að sækja um það sérstaklega til Orkustofnunar – að öðrum kosti fellur niðurgreiðsla niður. Aðeins eigendur íbúðarhúsnæðis geta sótt um niðurgreiðslu og sem fyrr munu dreifiveiturnar annast greiðslurnar með því að lækka raforkuverð. Rétt á niðurgreiðslum eiga sömu aðilar og nutu þeirra áður. Nýmæli er þó að hitun með olíu verður niðurgreidd þar sem ekki er um aðra kosti að ræða. Þá verður raforka frá smávirkjunum og raforka á varmadælur niðurgreidd að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þeir sem nú njóta niðurgreiðslna eru hvattir til að sækja um sem fyrst því annars falla greiðslur niður frá og með 8. nóvember 2002. Fylltu út umsókn á Netinu Einfalt er að fylla út umsókn og senda á Netinu. Slóðin er www.os.is/nidurgreidslur. Einnig er hægt að fylla út eyðublað og senda Orkustofnun með pósti. Umsóknarfrestur rennur út 8. ágúst. Nánari upplýsingar fást hjá Orkustofnun: sími 569 6000, netfang: nidurgreidslur@os.is Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar Ný lög um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002. N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 0 6 9 6 7 SKURÐLÆKNUM í Los Angeles tókst í gær að aðskilja eins árs tví- burasystur sem voru með samvaxin höfuð. Aðgerðin var mjög áhættu- söm og tók 20 klukkustundir. Einn læknanna, Houman Hemm- ati, sagði að svo virtist sem aðgerðin hefði heppnast vel. „Allir voru með gæsahúð þegar aðgerðinni lauk. Fólk fagnaði, klappaði og grét,“ sagði Hemmati. Síðar í gær var frá því skýrt að önnur stúlkan hefði þurft að gangast undir aðra aðgerð vegna blæðingar í heila. Jorge Laz- areff, yfirtaugalæknir á sjúkrahús- inu þar sem aðgerðin fór fram, sagði þó að allt útlit væri fyrir að báðar stúlkurnar myndu ná bata. Stúlkurnar tvær, sem heita Maria Teresa og Maria de Jesus Quiej-Alv- arez, fæddust í þorpi í Gvatemala. Höfuð þeirra voru samvaxin og stúlkurnar sneru hvor í sína áttina. Að meðaltali fæðast fimm síamství- burar á hverja milljón barnsfæðinga og þar af eru aðeins 2% tvíburanna með samvaxin höfuð. Heilar stúlknanna voru ekki sam- vaxnir. Áhættusamasti þáttur að- gerðarinnar var að aðskilja æðar sem tengdu höfuð stúlknanna. Hætta var á að stúlkurnar fengju heilablóðfall ef læknunum hefði ekki tekist að aðskilja æðarnar þannig að blóð streymdi til heilanna. Slík að- gerð hafði áður verið gerð fjórum sinnum á síðustu tíu árum og nokkur barnanna dóu. Stúlkurnar gengust undir aðgerð- ina við barnasjúkrahús Kaliforníu- háskóla í Los Angeles. Um fimmtíu læknar og hjúkrunarfræðingar tóku þátt í aðgerðinni sem kostaði and- virði tæpra 130 milljóna króna þótt margir læknanna hefðu gefið vinnu sína. Sjúkrahúsið stóð fyrir söfnun til að standa straum af kostnaðinum ásamt líknarsamtökunum Healing the Children. Samvaxin höfuð tvíbura aðskilin Los Angeles. AP, AFP. Reuters Faðirinn, Wenceslao Quiej Lopez, með tvíburana fyrir aðgerðina. ALRÍKISLÖGREGLAN, FBI, í Bandaríkjunum er nú að herða ör- yggisreglur sínar og eftirlit vegna þess að í ljós hefur komið að mörg hundruð byssur og fartölvur í eigu stofnunarinnar virðast vera týnd- ar. Ljóst er að í tölvunum er mikið af leynilegum upplýsingum sem glæpamenn geta notfært sér. Um er að ræða 775 byssur og um 400 tölvur. Sum af vopnunum hafa, að sögn Glenn A. Fine, sem gerði skýrslu um ástandið, verið notaðar í vopnuðum ránum og ein byssan var sönnunargagn í morð- máli. Enda þótt mælt sé fyrir um að gerð sé birgðakönnun á tveggja ára fresti kom í ljós í fyrra að nær áratugur var liðinn síðan FBI hafði gert slíka könnun á byssu- og tölvueign sinni. Stofnunin á rúm- lega 15.000 fartölvur, þar af eru 317 horfnar. „Hirðuleysi og illa gerðar skýrslur“ „FBI hefur reynst hafa ákaflega lélegt eftirlit með vopnum og far- tölvum sínum,“ sagði Fine. Chuck Grassley, öldungadeildarþingmað- ur sem á sæti í dómsmálanefnd þingsins, sagði að augljóst væri að FBI hefði trassað árum saman að fylgjast með vopnaeigninni. „Ástæðan er lélegur agi, hirðu- leysi, illa gerðar skýrslur og lítil viðurlög ef þau eru nokkur,“ sagði Grassley. Embættismenn í dómsmálaráðu- neytinu í Washington telja að skýringin á þessari miklu rýrnun geti að verulegu leyti verið mistök í bókhaldi. Stundum hafi aðrar op- inberar stofnanir fengið hlutina að láni og einnig geti verið að starfs- menn lumi á þeim einhvers staðar. Fleiri stofnanir ráðuneytisins virð- ast eiga erfitt með að halda utan um hlutina, til dæmis gat fíkni- efnaeftirlitið, DEA, ekki gert grein fyrir sínum tölvum vegna þess að gögn þar að lútandi vantaði. Hvað varð um byssur FBI? Nær 800 vopn og 400 tölvur týndar Washington. AP. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 FRANSKUR hermaður fer gæti- lega með ósprungna sprengikúlu sem íbúar í þorpinu Dasake Aole, um 20 km norðvestur af Kabúl í Afganistan, fundu í gær. Verkfræð- ingar franska hersins, sem tilheyra alþjóðlega öryggisgæsluliðinu (ISAF) í Afganistan, aðstoða þorps- búa við að fjarlægja mörg tonn af virkum skotfærum og sprengjum. Sprengju- hreinsun AP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.