Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 24
Sjaldheyrðar Bachperlur SÍÐASTI tónleikalaugardagur Sumartón- leika í Skálholti rann upp um nýliðna helgi með þreföldum skammti, tónleikum kl. 15, 17 og 21. Á fyrstu tónleikunum var slegið margra ára aðsóknarmet svo fjöldi gesta varð að standa, og sama gilti á undangengnu er- indi dr. Orra Vésteinssonar fornleifafræðings kl. 14 um „Skálholt, höfuðstað Íslands í 700 ár“. Að seinni tíðar vanda fundu tónleikagestir litla sem enga umsögn í tónleikaskrá um verkin sem flutt voru, og væri út af fyrir sig hægt að bæta úr því hér. En í fyrsta lagi væri það utan meginverkahrings undirritaðs, auk þess sem lítið aðhald veittist umsjónarmönn- um slíkra þarfaplagga, ef reikna mætti með því að gagnrýnendur fylltu helztu eyður eftir á. Annars munu Sumartónleikarnir fráleitt einir um téða handvömm í hérlendu tónlistar- lífi, m.a.s. þegar um jafnsjaldheyrð verk er að ræða og Missa Brevis Bachs í g-moll, sem ef að líkum lætur var flutt í fyrsta sinn hér á landi á laugardaginn var. Þrennir tónleikar laugardagsins leituðu æ aftar í tíma. Yngstu verkin voru á þeim fyrstu, þau elztu á þeim síðustu. Þ.e.a.s. síð- barokk, mið- og snemmbarokk og loks endur- reisn. Á hérumræddum undornstónleikum var meistari Bach í forsæti, en brezkir höf- undar á þeim næstu. Hollenzki forntónlist- arjöfurinn Jaap Schröder leiddi Bachhljóm- sveitina í Skálholti í báðum tilvikum. Eftir Bach var fyrst leikin „Sinfónía“ (= forleikur) úr kantötunni Am Abend aber desselbigen Sabbats BWV 42; í mörgu athygliverð tón- smíð með töluvert sérefni fyrir óbóin tvö og fagottið við göngustælta fylgibassalínu í átt- undapörtum og 4/4. Smákantatan Schlage doch, gewünschte Stunde var eina dagskráratriðið sem eitthvað var gefið út á í tónleikaskrá, með því að sr. Guðmundur Óli Ólafsson hermdi (undir „Textar“) að sterkar líkur þættu nú á því að samtímamaður Bachs í Leipzig, G.M. Hoff- mann, hefði samið þetta litla verk, en ekki Bach. Allt um það var kantatan hin fallegasta smíð, í fremur hægum valstakti og fyrir alt- einsöng og strengjasveit blandað klingi bjöllu „söngmeyja“ sem réttláttust af klukkuslögum banastundar. Bráðvel leikið af Bachsveitinni og fallega sungið af Guðrúnu Eddu Gunn- arsdóttur. Loks kom Missa Brevis í g-moll. Tónsetn- ing Bachs á stytta messutextanum var sex- þætt, Kyrie, Gloria, Gratias, Domini Fili, Qui tollis og Cum Sancto Spiritu; allt endurunnið úr þáttum frá fyrri kantötum tónskáldsins (BWV 10, 72 og einkum 187) eins og Bach átti til að gera, ekki sízt í tímahraki. Engu að síður var hvarvetna af góðu að taka, og burt- séð frá umfangssmæð messunnar mætti jafn- vel kalla að hún slægi víða hátt í meist- araverk eins og Magnificat. Fyrstu tveir þættirnir og sá síðasti voru fyrir kór með hljómsveit, hinir aríur fyrir einsöngvara (bassa, alt og loks tenór). Voru allir ljómandi vel sungnir og leiknir. Sama var uppi á ten- ingnum í kórþáttunum, og ekki við fámennan blandaðan kvartett að sakast þótt hann hefði ekki alltaf í fullu tré við hljómsveitina. Fá- menni hans og þar með vandfengið styrk- jafnvægi (og kannski einnig vottur af sól- ískum messa di voce tilþrifum hjá sumum söngvurum sem áttu betur við í einsöngs- aríunum) gerðu að verkum að raddfærslan heyrðist stundum ekki nógu vel. Þar hefði blandaður oktett verið algert lágmark. Væri að sönnu óskandi að fjárhagur strympu vænkaðist svo í framtíðinni að Bachsveitin í Skálholti gæti teflt fram a.m.k. 8–12 manna alvörukór. M.a. til uppfærslu á kórkantötum Bachs sem allt of lengi hafa legið óbættar hjá garði í íslenzku tónleikahaldi. TÓNLIST Skálholtskirkja J. S. Bach: Sinfónía úr kantötu BWV 42. Kantatan „Schlage doch, gewünschte Stunde“ BWV 53. Missa Brevis í g BWV 235. Rannveig Sif Sigurð- ardóttir S, Guðrún Edda Gunnarsdóttir A, Þorbjörn Rúnarsson T, Benedikt Ingólfsson B; Bachsveitin í Skálholti undir forystu Jaaps Schröder. Laugardag- inn 3. ágúst kl. 15. SUMARTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ EINS og landsmenn vita var haldið veglega upp á aldarafmæli Halldórs Laxness í vor og síðast- liðinn vetur var í gangi mikil um- ræða um skáldið, verk þess og pólitískar skoðanir, sem spratt upp af skáldsögu Hallgríms Helgason- ar Höfundur Íslands. Líta má á skáldsögu Hallgríms sem lið í því uppgjöri sem eðlilegt og æskilegt er að fram fari við höfundarverk þess höfundar sem bar höfuð og herðar yfir aðra íslenska rithöf- unda á tuttugustu öld. Þegar staða Laxness í íslenskum bókmenntum er hugleidd kemur helst á óvart hversu lítið fræðimenn hafa í raun sinnt verkum hans. „Laxnessfræð- inga“ eigum við fáa þótt ýmsir hafi skrifað um einstök verk og rann- sakað afmarkaða þætti í höfund- arverkinu. Vafalaust eru margar ástæður fyrir því að bókmennta- fræðingar hafa í svo litlum mæli tekist á við verk Laxness en kannski liggur hluti skýringarinn- ar í þeirri staðreynd að einn tiltek- inn fræðimaður, Peter Hallberg, hafði um langa hríð óvenjulegan og greiðan aðgang að skáldinu sjálfu og öllum gögnum þess og vera kann að aðrir hafi kinokað sér við að ráðast inn á þetta „yfirráða- svæði“ hans. Peter Hallberg var „Laxnessfræðingurinn“ og sem slíkur skilaði hann af sér merkum bókum um ævi og verk skáldsins sem eru án nokkurs efa dýrmæt undirstaða fyrir hvern þann sem vill nálgast verk Laxness út frá nýju sjónarhorni. Á níunda ára- tugnum kom nokkur kippur í Lax- nessrannsóknir þegar komu út bækur um verk Laxness eftir þá Árna Sigurjónsson, Halldór Guð- mundsson og Sigurð Hróarsson. Þær bækur áttu það allar sameig- inleg að þar voru verk skáldsins fyrst og fremst skoðuð í ljósi þjóð- félagslegra og pólitískra hræringa á ritunartímanum. En það er langt frá því að verkum Halldórs Lax- ness hafi verið gerð fullnægjandi skil – og verður vonandi seint því það er eðli hinna bestu bókmennta að vera ótæmandi uppspretta fyrir jafnt gamla og nýja lesendur. Nú þegar búið er að halda upp á ald- arafmælið með pompi og pragt verður þess vonandi ekki langt að bíða að ný kynslóð fræðimanna (eða hinir eldri) ráðist í Laxness- rannsóknir út frá hinum fjölbreyti- legustu sjónarhornum. Bók Gunnars Kristjánssonar, Fjallræðufólkið, hefur undirtitilinn „Persónur í verkum Halldórs Lax- ness“, enda er hér um að ræða rannsókn á persónusköpun í helstu skáldsögum Halldórs og fjallar Gunnar um persónur á borð við Stein Elliða, Sölku Völku, Bjart í Sumarhúsum, Ólaf Kárason Ljós- víking, Snæfríði Íslandssól og Ar- nas Arnæus, séra Jón Prímus og fleiri. Það eru því aðalpersónur stærstu skáldsagnanna sem Gunn- ar beinir kastljósinu að og skoðar hann þær í ljósi trúarheimspeki og guðfræði. Gunnar bendir í formála að bókinni réttilega á að nálgun hans sé að mörgu leyti nýstárleg því að þrátt fyrir að trúarlegt sam- hengi verka Laxness fara varla framhjá nokkrum lesenda þá er það staðreynd að verk hans hafa svo til alfarið verið skoðuð í þjóð- félagslegu og pólitísku samhengi (sbr. ofannefnda fræðimenn). Hér ber þó að geta þess að ýmsir aðrir bókmenntafræðingar hafa rýnt í einstök verk skáldsins út frá sjón- arhorni sálgreiningar og texta- tengsla, svo eitthvað sé nefnt (Silja Aðalsteinsdóttir, Dagný Kristjáns- dóttir, Bergljót S. Kristjánsdóttir, Helga Kress, Ástráður Eysteins- son, Torfi Tulinius, Guðrún Nordal og Ármann Jakobsson, svo fáeinir séu nefndir.) Gunnar Kristjánsson, sem er doktor í guðfræði og starfandi prestur, hefur um árabil rannsak- að verk Laxness og þá sérstaklega trúarlega þætti þeirra. Doktors- ritgerð sína varði hann við Ruhr- Universität í Bochum í Þýskalandi árið 1978 og ber hún titilinn „Reli- giöse Gestalten und christliche Motive im Romanwerk „Heims- ljós“ von Halldór Laxness“. Rit- gerðin hefur ekki birst á íslensku en Gunnar birti greinina „Úr heimi Ljósvíkingsins“ (Tímarit Máls og menningar 2/1982) sem mun vera unnin upp úr henni. Þá hefur hann birt tvær greinar um Íslandsklukkuna („Stígvélaði kava- lérinn. Um Arnas Arnæus“ í Tíma- riti Máls og menningar 2/1998 og „Þjónn þeirra svarlausu; um Snæ- fríði Íslandssól og Arnas Arnæus“ í jólablaði Lesbókar Morgunblaðs- ins 2000) auk einnar greinar um Kristnihald undir jökli sem birtist í riti Halldórsstefnu 1992. Gunnar notar efni þessara fjögurra greina í þremur af níu köflum bókarinnar en að langstærstum hluta er hér um frumsamið og óbirt efni að ræða. Fjallræðufólkið skiptist í níu kafla og hefur hver þeirra yfir- skrift sem tekinn er úr texta skáldsins. Fyrsti kaflinn ber yf- irskriftina „Sárfætlingar vonarinn- ar“ og gegnir hann hlutverki inn- gangs að rannsókninni í heild. Næstu sjö kaflar eru hins vegar helgaðir einni tiltekinni skáldsögu hver og fjallar Gunnar þar um sög- urnar í tímaröð miðað við útgáfuár þeirra. Fyrsta verkið sem hann fjallar um er Vefarinn mikli frá Kasmír, síðan koma Salka Valka, Sjálfstætt fólk, Heimsljós, Íslands- klukkan, Brekkukotsannáll og Kristnihald undir jökli. Síðasti kaflinn er síðan nokkurs konar niðurstöðukafli þar sem höfundur dregur saman meginatriðin í þeirri greiningu sem á undan er gengin og ber saman hinar ólíku persónur einstakra verka, enda ber kaflinn yfirskriftina: „Frá Steini Elliða til séra Jóns Prímusar. Um trú og trúarheimspeki í verkum Halldórs Laxness.“ Segja má að Gunnar Kristjáns- son hafi eina meginspurningu að leiðarljósi við rannsókn sína á per- sónum Laxness og hana mætti kannski orða þannig: Í hverju er aðdráttarafl persóna Laxness fólg- ið? Hann bendir á þá skemmtilegu þverstæðu að þrátt fyrir að marg- ar af persónum Laxness séu elsk- aðar og dáðar af lesendum þá vild- um við víst fæst líkjast þeim eða deila með þeim örlögum. Og hann leggur áherslu á margræðni per- sónusköpunar skáldsins: „Um margt af því fólki sem mest ber á í verkum Halldórs má með sanni segja að það sé ekki allt þar sem það er séð, við endurtekin stefnu- mót verður flestum ljóst að það „býr mik- ið í því“ eins og oft er sagt um fólk. En í hverju felst aðdrátt- arafl þess? Hvernig eru persónurnar, hver er hugmynda- fræðin á bak við þær?“ (9). Gunnar skoðar einstakar per- sónur „í ljósi hug- mynda og hugmynda- fræði sem Halldór Laxness þekkti“, því, eins og hann segir: „Þótt persónurnar séu ekki endilega talsmenn sjónarmiða höfundarins hljóta þær að mótast af skoðunum og viðhorfum hans“ (9). Aðdráttarafl persóna Laxness telur Gunnar stafa öðrum þræði af því að þær séu óháðar stað og stund því „höfundi hefur tekist að gæða [þær] því lífi, þar sem hið táknræna og algilda vegur þyngra en hverful stundin“ (10). Þetta tel- ur hann einnig skýringuna á því að persónurnar eiga „erindi við nýja lesendur, að vísu ekki alltaf það sama því að enginn veit hver afdrif þeirra verða í breyttu samfélagi“ (10). Hið táknræna og algilda eðli sem býr að baki persónusköpunar Laxness rekur Gunnar Kristjáns- son til trúarlegs samhengis en þess ber að geta að hann skil- greinir trúarlegt samhengi afar vítt og tekur það m.a. til tilvist- arspurninga mannsins (sjá bls. 178). Þá skilgreinir hann viðfangs- efni á borð við „Guð, ástina, þján- inguna, fegurðina, réttlætið og sið- fræðileg úrlausnarefni“ öll sem „trúarheimspekileg viðfangsefni“ (183). Gunnar telur þó ljóst að það sé „hugmyndafræði rómversk-kaþ- ólsku kirkjunnar [sem er] svífandi yfir vötnunum þótt hún kunni að vera óljós við fyrstu sýn“ (bls. 179). Þetta sýnir hann fram á í greiningu sinni á hinum mismun- andi persónum Laxness; hann bendir á ýmis trúarleg rit, dul- hyggjurit og heimspekirit sem Halldór þekkti og nýtti sér við persónusköpun og víða tekst hon- um að opna nýjar leiðir til skiln- ings á margbreytileika einstakra persóna auk þess sem hann rekur á sannfærandi hátt þær breytingar sem verða á persónusköpun skáldsins eftir því sem árin líða, eftir því sem þroskinn og reynslan færast yfir og trúarhugmyndir Laxness breytast. Í stuttu máli er hér um að ræða þróun frá hinum óbilgjarna kreddufasta trúmanni sem birtist í Steini Elliða í lok Vef- arans til hins umburðarlynda séra Jóns Prímusar sem hefur neglt fyrir kirkjudyrnar en er engu að síður „fulltrúi hinnar skilyrðis- lausu þjónustu við manninn og raunar ekki aðeins við manninn heldur við sköpunarverkið í heild sinni“ (174). Fjallræðufólkið er fróðleg lesn- ing sem ætti að höfða til allra aðdáenda Halldórs Laxness. Bókin fjallar um samhengi í verkum hans sem er ef til vill ekki á færi nema lærðra guðfræðinga að skynja til fulls. Hitt er annað mál að víða má fara aðrar túlkunarleiðir en þá trúarlegu að einstökum atriðum þeirra skáldsagna sem fjallað er um. Sem bókmenntafræðingur saknaði ég þess helst að Gunnar gerir lítið af því að bera kenningar sínar saman við kenningar annarra fræðimanna um sömu skáldsögur og hann fjallar um – eða einstök atriði þeirra. Að sjálfsögðu má deila um hversu mikið ber að vísa til þeirra sem áður hafa um efnið ritað en stundum stingur „fjar- vera“ umræðunnar í augu og mun ég nefna eitt slíkt dæmi. Á síðum 144–155 fjallar Gunnar ítarlega um gildi og táknræna merkingu tón- listar í verkum Laxness (og sér í lagi í Brekkukotsannál). Um þetta efni hefur Helga Kress fjallað bæði í ræðu og riti (birti um það grein í riti Halldórsstefnu 1992 og nýlega aðra í Skírni (vorhefti 2002), en þá síðarnefndu flutti hún í fyrirlestraformi fyrir nokkrum árum) en Gunnar vísar hvergi til skrifa Helgu. Vera kann að Gunn- ar kjósi að standa utan hinnar „bókmenntafræðilegu“ umræðu um verk Laxness, a.m.k. mætti draga þá ályktun þegar manna- nafnaskráin aftast í bókinni er skoðuð; þar kemst aðeins á blað einn íslenskur bókmenntafræðing- ur og er vísað til skrifa hans einu sinni í texta Gunnars. Engu að síð- ur hlýtur bók Gunnars að teljast a.m.k. jafnmikil bókmenntafræði og guðfræði og finnst mér það óneitanlega veikja verkið að höf- undur skuli víkjast undan að tak- ast á við kenningar annarra um viðfangsefni sitt og máta þær að sínum. Þessi veikleiki bókarinnar mun hins vegar ekki koma í veg fyrir að almennur lesandi geti not- ið bókarinnar, lært af henni og öðl- ast dýpri skilning á því hvernig Halldór Laxness setti saman sínar ógleymanlegu persónur. BÆKUR Fræðirit Gunnar Kristjánsson, Mál og menning 2002, 208 bls. FJALLRÆÐUFÓLKIÐ Gunnar Kristjánsson Soffía Auður Birgisdóttir Halldór Laxness Persónur Laxness í trúarlegu ljósi NÆSTU gestir sumartónleikaraðarinnar Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði í kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 20.30 koma frá Amster- dam. Það eru þau Gunnhildur Einarsdóttir barokkhörpuleikari og Hollendingurinn Poul Leenhouts sem leikur á endurreisnarblokk- flautur og flytja þau tónleikagestum létta barokktónlist í Seyðisfjarðarkirkju. Gunnhildur Einarsdóttir og Poul Leenhouts. Barokktónlist á Seyðisfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.