Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 27

Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 27
AÐALSTEINN Þorvalds-son guðfræðingur er ný-kominn til landsins eftirtæplega fimm mánaða dvöl í Ísrael og Palestínu þar sem hann sinnti hjálparstörfum á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar og segir hann ástandið í Palestínu vera mjög slæmt og fara versnandi. „Ég fór út í mars síðastliðnum og átti að vera í Betlehem og vinna þar fyrir menningar- og fræðslumiðstöð sem heitir International Center of Betlehem, en ástandið á svæðinu var þannig að mjög lítið var hægt að gera. Það var ýmist útgöngubann eða herinn á leiðinni inn eða út af svæðinu og maður vissi aldrei hvað- an á sig stóð veðrið þannig að ég náði ekki að ljúka miklu þar. Þess í stað vann ég fyrir Lútherska heimssam- bandið í Jerúsalem og aðstoðaði þá við bílalestir sem kristin samtök stóðu að, en þessar lestir fóru með mat og lyf inn á herteknu svæðin og til borga sem höfðu verið umsetnar og eru enn,“ segir Aðalsteinn. Hann segist hafa verið ásamt sex öðrum í teymi sem kallaðist Christ- ian accompaniment eða Kristileg samfylgd og er rekið af Hjálpar- stofnun kirkjunnar í Danmörku. „Við vorum tveir Íslendingar og sex Danir, þar af fjórir læknanemar, en við unnum fyrir samtök víðsvegar um svæðið, fylgdum bílalestunum, fylgdumst með mannréttindabrot- um og þess háttar.“ Ofbeldi daglegt brauð og kúgun mikil Aðalsteinn segir ástandið þarna afar slæmt, ofbeldi sé daglegt brauð og mikil kúgun viðgangist. Fólki sé til að mynda bannað að vinna, bann- að að sækja skóla og auk þess sé fólki stöðugt haldið föngnu. Sé út- göngubann sé fólkið í „litlu fangelsi“, það er fast inni á heimilum sínum, en þegar ekki er útgöngubann er fólkið í „stóru fangelsi“, það er lokað innan þess bæjarfélags sem það býr í. All- ar nauðsynjar þurfi menn að flytja fótgangandi eða á dýrum. „Palest- ínumenn í Betlehem komast ekki inn í Jerúsalem nema hafa leyfi til þess. Að sjálfsögðu stelast margir til þess að fara þangað en þeir geta lent í miklum vandræðum ef lögreglan handtekur þá. Það er auðveldara að fara til Jórdaníu en til Jerúsalem frá Betlehem,“ segir Aðalsteinn. Hann segir að fátækt og neyð meðal Palestínumanna aukist stöð- ugt og segist vel geta trúað því að farið sé að bera á verulegum matar- skorti hjá Palestínumönnum. Bænd- ur fái ekki að rækta land sitt svo framleiðslan sé að minnka. „Ég sá með eigin augum bónda sem var stöðvaður og landi, sem hann leigði, var stolið af ríkisstjórn Ísraels. Fá- tæktin eykst dag frá degi. Fátæka fólkið hefur ekki efni á að kaupa sér mat og þessu fólki fjölgar stöðugt. Þegar við byrjuðum að fara á bíla- lestunum var ætlunin að koma mat til þeirra sem eru fátækastir og þetta ástand versnaði á þeim tíma sem ég var þarna. Að öllum líkindum er nægur matur til í landinu, en þeir sem fátækastir eru hafa ekki efni á að kaupa hann,“ segir Aðalsteinn. Hann segir börn Palestínumanna ganga í skóla þegar það sé hægt, en það sé ekki alltaf, og Palestínumenn segi að heilu kynslóðirnar fari á mis við menntun. Hann segir að það sem einkenni líf þeirra Palestínumanna sem hann hitti sé vonleysi, þrekleysi, reiði, depurð og skilningsleysi. „Fólkið finnur engin rök fyrir því af hverju öllum er refsað ef einn Palestínu- maður brýtur af sér og þá á ég við hryðjuverk og sjálfsmorðsárásir Palestínumanna. Það er hroðalegt þegar það gerist, en það er öllum refsað fyrir það og almenningi er þetta óskiljanlegt.“ Hann segir að Palestínumenn for- dæmi almennt sjálfsmorðsárásirnar en hafi þó blendnar tilfinningar gagnvart þeim. „Það er ekki hlustað á þá, kúgunin er dagleg og öllum er refsað og þetta er það eina sem fólk sér gerast. Það sér ekki að þetta þjóni neinum tilgangi öðrum en að styrkja Ariel Sharon og lítur svo á að hann hati Palestínumenn og vilji losna við þá,“ segir Aðalsteinn. Hugmyndir um hvað er að gerast þarna hafa breyst Aðalsteinn segir að áður en hann fór út hafi hann haft ákveðnar hug- myndir um hvað væri í gangi í Ísrael og Palestínu. „Ég hafði hugmyndir um tvo jafningja sem berðust en þegar ég kom út áttaði ég mig á því að það sem á sér stað þarna er her- nám. Það eru hermenn alls staðar og varðstöðvar þar sem menn eru stöðvaðir og skilríki skoðuð. Hug- myndir mínar um hvað er að gerast þarna breyttust allar við að sjá þetta og ástandið er miklu verra en ég bjóst við. Maður fær fréttir af sprengingum og skotbardögum en skynjar ekki kúgunina og þján- inguna sem er stanslaus og fer vax- andi á þessum slóðum. Til þess að friður komist á tel ég að þurfi að koma til meiriháttar hugarfars- breyting hjá Ísraelum, Palestínu- mönnum og alþjóðasamfélaginu,“ segir hann. Að lokum segist hann þess fullviss að hann muni halda aftur á þessar slóðir, en er þó ekki viss um að það verði á næstunni. „Ég mun heim- sækja alla þessa staði aftur og von- andi verður þá kominn friður á og mannlífið í blóma,“ segir Aðalsteinn. Sinnti hjálparstarfi í Palestínu Ástandið er miklu verra en ég bjóst við Hér sést Aðalsteinn afhlaða bíl sem flutti vatn og matföng til Palest- ínumanna í Nablus, en hann var einn þeirra sem dreifðu matvælunum. Fátækt og neyð Palest- ínumanna eykst stöð- ugt og ofbeldi er dag- legt brauð. Þessu kynntist Aðalsteinn Þorvaldsson nýverið. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 27 öræfunum þær rétt- sem þeir num. Þeir a áformin ma í stað- og vísa til iður nema d úrræði. ssu hefur rð og hef- ðhorf um gt eigi að jóðarbúið essar. Um vitað að og næstu mtalsverð, það komið dirritaðan sá vendi- Austfirð- ga flestir nsta kosti er horft. eð í reikn- sem talað á öðrum ættar. Þar erðaþjón- m má hafa em hreinu lítt verið þjóðgarð st rædd. Þá hljóta menn einnig að spyrja sig hvað mátt hefði gera fyrir þær þúsundir milljóna sem nú þegar er búið að henda í undirbúninginn að stórvirkjununum: uppbygging skóla, vegagerð, jarðgöng, upplýs- ingahraðbrautir, efling heilbrigðis- þjónustunnar, stuðningur við ný- sköpun og frumkvöðlastarf. Margt fleira mætti telja. Hvernig vegur þetta hvort á móti öðru? Þá hlýtur einnig sú spurning að koma til álita hvers virði það land er sem á að leggja undir í þessu máli. Hefur yf- irleitt verið reynt að meta það, og eru útreikningar um það teknir inn í arðsemisútreikninga stóriðjuafl- anna? Að öllu samanlögðu verða menn að meta hver fyrir sig hverjir hinir raunverulegu ávinningar geti orðið og hvort það sé yfirleitt til heilla fyrir landshlutann og þjóðina í heild að fela fyrirtæki eins og Landsvirkjun með samningum við erlendan auðhring forsjá yfir þeim miklu hagsmunum sem í húfi eru. Efasemdir almennings Það er væntanlega barnaskapur að ímynda sér að hægt verði að sannfæra stjórnvöld um að snúa frá settri stefnu. Hins vegar virðist sem svo, að eftir því sem fleiri stað- reyndir koma í ljós um fyrirhugað álver í Reyðarfirði og meðfylgjandi virkjunarframkvæmdir sjái menn betur hversu slæm áformin eru. Þótt Landsvirkjun hafi haft nánast einokunarstöðu hvað varðar áróður og upplýsingar hefur ekki enn tek- ist að skapa almenna sátt meðal þjóðarinnar um málið, og eftir því sem best verður séð virðast þeir sem styðja það gera það frekar af samúð með Austfirðingum en af trú á skynsemi framkvæmdanna. Það eru ekki bara skemmdir á náttúrunni sem fólk lítur til heldur horfir það ekki síður til þess hversu miklu eigi að fórna til þess að byggja upp verksmiðjuframleiðslu af mest gamaldags sort. Þá hlýtur það að vekja efasemdir um styrk stjórnvalda í þessu máli að nú á að keyra samninga við bandaríska ál- risann í gegn á mettíma og þannig reyna að minnka hættuna á því að sjónarmið öndverð framkvæmdun- um fái nægan styrk til að breyta framvindunni. Er ekki skynsam- legra að fara sér hægar og reyna að tryggja að fast land verði undir fæti, – alla vega svona í fyrstu skrefunum? Ójafn leikur Slagurinn um hálendið á eftir að verða harður, og ef náttúruvernd- arfólki tekst að safna saman vopn- um sínum og ríkisstjórnin heldur fast við sitt eiga stálin eftir að mæt- ast stinn. Hingað til hafa ríkis- apparötin lagst á eitt: Iðnaðarráðu- neytið, Landsvirkjun, Orkustofnun, og hin smærri leika með. Andspæn- is standa náttúruverndarsamtökin, félaus og máttvana, og hugumstórir einstaklingar sem á eigin fótum þrjóskast áfram á þrákelkninni einni saman. Hvernig þeim slag lyktar er ekki hægt að sjá fyrir en menn hljóta að spyrja sig hvers vegna aflmunarins hafi ekki gætt meira hingað til en raun ber vitni, og hvers vegna gengur svo erfið- lega fyrir hin ráðandi öfl að skapa almenna tiltrú á ævintýrinu. Hvers vegna þarf öll þessi opnuviðtöl í Mogganum, svo ekki sé nú talað um drottningarviðtölin í sjónvarpinu? Er eitthvað að óttast, eða er verið að breiða yfir veikleikana með of- forsið að vopni? Fyrir þann sem hér skrifar er skýringin að hluta til sú að fólk er hætt að trúa á leiðsögn að ofan í hversdagslegum málum, og í um- hverfismálum almennt er djúpstæð vitundarvakning sem við fyrst nú erum rétt að greina. Hvað varðar Landsvirkjun þá er hún vissulega máttug og áróðurinn kröftugur, en þegar á allt er litið er þetta gam- aldags útgerð sem á forsendur sín- ar í sérstakri lagasetningu frá þeim tíma þegar stóriðja þótti lausn allra mála. Lokaorð Ég er bjartsýnn á að skynsemin fái ráðið ákvörðunum okkar um meðferð náttúru landsins, – þrátt fyrir allt. Þjóðin stendur vel og hef- ur efni og þekkingu til að horfa til lengri framtíðar en áður. Við eigum að læra af reynslu annarra þjóða og ekki láta staðbundna landshluta- pólitík ráða ferðinni í málum sem sannarlega geta vaxið okkur upp yfir höfuð. Tækifærin eru allt í kring en okkur skortir ímyndunar- afl og áræði til að nýta þau. Trúin á stóru happdrættisvinningana, – síldarævintýrin, gullskipin, og loð- dýrabúin, – er þó enn alltof ríkjandi, og því miður trúum við því enn að bæði verði haldið og sleppt. Helst viljum við fá auðæfin í hendur fyrirhafnarlaust. Með aukinni menntun og fastari tengslum við al- þjóðasamfélagið er okkur þó að skiljast að auðæfin búa fyrst og fremst í okkur sjálfum, og endan- lega er það frjósemi hugans sem ræður um okkar hlutskipti. Úr þeim akri vex þó ekkert nema í hann verði einhverju því sáð sem ávöxt getur borið. arveðri: Horft af Hall- usturs Dyrfjöll og Snæfell, Trölladyngja og tignarleg jónhending. Neðan undir rynur í þungum söng, og kla þar sem eru Kringilsá, raukar. Á sömu stundu en ningamenn á stokk og a auðnina í fang, fjötra lags við sín stórkostlegu öðulón, neðanjarðargöng, autir og stöðvarhús, – allt nnað eins hefur hér aldrei , og hverjum er ekki sama hvammar og gróðurlendi, verði að fjölskyldugarði m að lækjargjálfri? Já, g hvar stend ég: hefi ég tta ekki bara allt í fínu ég að fylkja mér í hóp l friðs: umhverfissinnanna nna úr þéttbýlinu, sem eru og ónæm fyrir angistinni ki ekki síst: þýðir þetta ákveða þetta allt saman, rnig samviskan útleikur Söngur fljótsins áfram fyrir neðan, og andvarinn að sunnan ber með sér næstum ógreinanlegan ilm af háfjallagróðri: geldingahnappi, beitilyngi, og jafnvel fjalldrapa. Kyrrð, friðsæld, og tíminn hverf- ur inn í sjálfan sig. Hver á þetta allt saman? Á ég þetta, eða við, eða kannski þeir fyrir sunnan? Kannski eigum við þetta bara alls ekki neitt ... Hvað með börnin okkar, og börnin þeirra, og svo þeirra börn og þeirra börn? Kemur þeim þetta ekkert við? Eiga þau ekki að fá kyrrðina, víðátt- una, söng fljótsins eða fjallahringinn? Duga þeim kannski eftirlíkingar og minnismerki um náttúru sem einu sinni var? Bátsferðir á Hálslóni, flug- drekastökk af Kárahnjúkum, torfærurall um upp- blástursfláka, draugalestir um Dimmugljúfur, og ekki gleyma: myndlistarsýningunum í stöðvarhús- unum, – allt þetta getur trekkt að og við sláum tvær flugur í einu höggi: fáum álbræðsluna lang- þráðu og skemmtigarð fyrir alla fjölskylduna. Út- lendu túristarnir flykkjast örugglega að og allir græða. Þá myndi sannast enn einu sinni, að það verður bæði haldið og sleppt. Berjum okkur á brjóst, hrópum upp í vindinn, svo við förum sjálf að trúa þessu, og í guðs bænum burt með þetta of- stækispakk sem aldrei neinu eirir sem til framfara horfir. Það er búið að lofa okkur þessu, við eigum rétt á þessu, og þetta skal upp hvað sem tautar og raular. – Er það ekki? árahnjúka ng öræfanna Morgunblaðið/RAX Höfundur er tónskáld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.