Morgunblaðið - 07.08.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 07.08.2002, Síða 30
UMRÆÐAN 30 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ HÁSKÓLI Íslands er stærsti vinnustaður landsins. Þar starfa á áttunda þúsund nem- enda og vel á annað þúsund launaðra starfs- manna við að byggja upp þekkingu og miðla henni. Slík starfsemi er grundvöllur hagvaxtar alls staðar í heiminum og eftir því sem þjóðir skila sér lengra í efna- hagslegu tilliti þeim mun meiri verðmæta- sköpun verður fyrir til- stuðlan þekkingar og mennta. Gamla spekin um að bókvitið verði ekki í askana lát- ið er fyrir löngu gengin úr sér og lyk- illinn að framþróun samfélagsins felst í aukinni þekkingarsköpun og þeim möguleikum sem henni fylgir. Menntun er arðsöm fjárfesting Um þessar mundir er mikil um- ræða um fyrirhugaða stóriðju á Aust- urlandi og þær virkjanaframkvæmd- ir sem kosta þarf til svo af henni megi verða. Í umræðum hefur komið fram að ávöxtunarkrafan sé á bilinu 10– 13%. Þessi ávöxtunarkrafa er býsna há í samanburði við ýmsar aðrar fjár- festingar en þó er áhugavert að skoða þetta í samanburði við þá niðurstöðu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem kynnt var á vegum Stúdentaráðs árið 1992, að kennsla í tilteknum fræðigreinum skili 19,5% arðsemi og er þá einungis miðað við þjóðhags- legan ávinning af náminu en ekki ávinning námsmannsins sjálfs. Þess- ir útreikningar bera þess glöggt merki að þótt ávinningur af menntun einstaklings kunni að skila sér hægar en stórkostleg innspýting fjármagns í formi stórfram- kvæmda hefur hún jafnvel meiri áhrif til langs tíma litið. Sanngirni ríki í fjár- framlögum Vegna þess hve menntun er þjóðhags- lega hagkvæm hefur hér á Íslandi ríkt póli- tísk samstaða um að hið opinbera annist að stærstum hluta fjár- mögnun menntakerfis- ins. Þessi háttur hefur verið á rekstri Háskóla Íslands allt frá stofnun hans fyrir rúmum 90 árum. Á allra síðustu árum hefur umhverfi menntunar á Íslandi breyst nokkuð. Í stað þess að hér sé einungis rekinn einn ríkisháskóli hafa fjölmargir minni skólar sprottið upp og veita nú Háskóla Íslands mikla samkeppni bæði um nemendur og starfsmenn. Þessari þróun ber auðvitað að fagna, enda telur Stúd- entaráð að samkeppni af þessu tagi sé Háskóla Íslands einungis til góða. Þó er ástæða til þess að hafa áhyggj- ur af því að stefnumótun stjórnvalda hefur ekki enn náð að laga sig að þessum nýju aðstæðum með viðun- andi hætti. Sýnt hefur verið fram á að opinber framlög á hvern nemanda í Háskóla Íslands eru lægri en í aðra skóla á háskólastigi og við það bætist að Háskóli Íslands innheimtir ekki skólagjöld. Þessi aðstaða hefur leitt til þess að Háskóli Íslands á erfiðara með að bjóða nemendum og starfs- fólki upp á jafngóða aðstöðu og hinir skólarnir. Stúdentaráð telur að mikilvægt sé að rétta samkeppnisstöðu skóla á há- skólastigi og telur margar leiðir fær- ar til þess. Ekki getur talist æskilegt að fjárframlög til annarra skóla skerðist vegna skólagjalda, eins og lagt hefur verið til, því það hefur í för með sér lækkun heildarfjármagns í menntakerfinu. Stúdentaráð leggur áherslu á að ríkisvaldið tryggi að framlög til skólanna séu réttlát til að ná fram skilyrðum eðlilegrar sam- keppni og nýta sem best þá fjármuni sem veittir eru til háskólamenntunar. Virkjum kraftinn í Háskóla Íslands Þó má ekki gleyma því að það er Háskóli Íslands sjálfur, og stjórnend- ur hans, sem bera helst ábyrgð á samkeppnisstöðu skólans. Mikilvægt er að háskólayfirvöld sæki af kappi fram í leit að leiðum til þess að auka fjárstreymi til skólans í formi styrkja til rannsókna og sölu á þjónustu við stofnanir og fyrirtæki. Til þess að Háskólinn geti einbeitt sér í auknum mæli að rannsóknum þarf að tryggja að starfsumhverfi og kjaramál starfsmanna séu með þeim hætti að það stuðli að kraftmiklu rannsóknar- og frumkvöðlastarfi innan veggja Háskóla Íslands. Ríkisvaldið getur stuðlað að því að möguleikar Háskól- ans vænkist, ekki aðeins með því að gæta réttlætis í fjárveitingum, held- ur með að tryggja að laga- og reglu- gerðaumhverfi skólans búi honum góð skilyrði til þess að virkja þá krafta sem í honum búa. Þannig get- ur Háskóli Íslands styrkst og orðið undirstaða þeirrar stóriðju sem býr í menntun og þekkingu þjóðarinnar. Uppistöðulón bókvitsins Brynjólfur Stefánsson Menntun Stúdentaráð telur mik- ilvægt, segir Brynjólfur Stefánsson, að rétta samkeppnisstöðu skóla á háskólastigi. Höfundur er formaður Stúdenta- ráðs HÍ. EFTIR orrahríð allra kosninga veltir margur fyrir sér hvað hefði betur mátt fara hjá sínum flokki í bar- áttunni. Ekki er vafi á því að sá flokkur sem hafði úr að spila hæf- asta fólkinu var Sjálf- stæðisflokkurinn, enda uppskeran eftir því nema í höfuðborg- inni. Við sem stutt höf- um Sjálfstæðisflokk- inn alla tíð litum stolt til frambjóðenda hans, þar var mikið af nýj- um frambjóðendum, ungu fólki í bland við þaulreynda sveitarstjórnarmenn. Í heild má Sjálfstæðisflokkurinn vel við una, – ætli við sláum ekki heimsmet eins og í mörgu öðru að flokkur komi svona sterkur út úr kosningum eftir svona langa setu í ríkisstjórn? Í Reykjavík var mjög sigur- stranglegur listi, þótt ekki tækist að velta R-listanum úr sessi. Í þetta sinn hélt hann velli með alls konar bellibrögðum og prettum. Eftir kosningar komu spekingar í spjall í sjónvarpið og ræddu úrslitin. Eitt var það sem þeir þrír voru sam- mála um, að jafnræði hefði verið með þeim Ingibjörgu Sólrúnu og Birni Bjarnasyni um tíma í fjölmiðl- um. Þetta er bara ekki sannleikur. Fyrir hvert eitt skipti sem Björn kom fram kom Ingibjörg fjórum sinnum, það liggja fyrir staðfestar tölur um þetta. Þá er ég kominn að prettunum hjá borgarstjóra. Hún kom fram við alls konar tækifæri; að klippa á borða, afhjúpa listaverk, taka skóflustungu, allt í nafni borg- arstjóraembættisins. Annað var það sem var mikið óþokkabragð, þegar Halldór Ás- grímsson lýsti yfir stuðningi við R-listann og sagðist ekki styðja Björn Bjarnason, ann- an eins drengskapar- mann sem Björn er og afburðastjórnmálamað- ur sem hafði verið með Halldóri í ríkisstjórn í nær átta ár. Nú er það ekki svo að maður þurfi að undrast þótt Halldór lýsi ekki yfir stuðningi við D-listann, en oft má satt kyrrt liggja, segir máltækið. Svo er ég ekki viss um að Björn hefði kært sig um að Halldór hefði lýst stuðningi sínum við hann. En miðað við hvernig Hall- dór talar um þá flokka sem stóðu að R-listanum er erfitt að koma því heim og saman að lýsa svo opinber- um stuðningi við þetta samkrull og hjálpa þeim að halda velli í borginni. Ég skrifaði grein í Morgunblaðið 1995 og aftur 1999 þegar stóðu yfir stjórnarmyndunarviðræður. Þar lýsti ég efasemdum um að best væri að ganga í stjórn með Framsókn. Af gamalli og biturri reynslu hafði ég svo sannarlega ástæðu til að efast. Framsókn er gamaldags klíkuflokk- ur sem lifði á bændum, kaupfélög- unum, Sambandinu sáluga. Í þétt- býlinu hefur hann lifað á klíku í stöðuveitingum, nokkuð sem heyrir sögunni til hjá öllum öðrum flokk- um. Hver hefur ekki heyrt þetta: „Það er best að vera í Framsókn til að fá góða stöðu.“ Sem betur fer er fylgi Framsókn- ar frekar að dala með árunum. Nú þegar bætist við hjá Halldóri Ás- grímssyni að Íslendingar afsali sér sjálfstæði í fiskveiðum og fleiru með að ganga í ESB er kominn tími til að athuga alvarlega þetta stjórnarsam- starf. Þó að það hafi gengið vonum framar fyrst er alltaf að síga í verra horf. Ef Framsóknarflokkurinn heldur áfram að draga lappirnar í einkavæðingu ríkisfyrirtækja svo góðir fjárfestar hrökklist frá kaup- um á Landsbankanum er mælirinn fullur. Það er óþolandi að draga það lon og don að selja ríkisfyrirtækin, nokkuð sem stendur í stjórnarsátt- málanum frá 1999. Það virðist vera alls staðar sem Framsókn dregur úr eðlilegum framförum og einkavæð- ingu. Í heilbrigðisþjónustunni eru þeir frekar dragbítar en framfara- sinnar. Þegar Ingibjörg Pálmadótt- ir var heilbrigðisráðherra átti að gera einhver ósköp fyrir aldraða og öryrkja en ekki bólar á neinu, þótt Jón Kristjánsson taki við hennar stóli dregur frekar úr þeirri þjón- ustu. Ráðherrar og þingmenn Framsóknar eru áratugum á eftir öðrum í hugsunum og verkum, alltaf fer minna fyrir slagorði Framsókn- ar að þeir hafi fólk í fyrirrúmi. Að draga lappirnar í einkavæðingu og sölu ríkisfyrirtækja og stóriðju er vísasti votturinn að glata þeim gullnu tækifærum sem blasa við okkur núna, þetta þarf að vinna strax. Það bíður enginn með millj- arða tilbúna í lengri tíma, núna á tímum stórra breytinga frá degi til dags. Að loknum kosningum! Karl Ormsson Höfundur er fv. deildarfulltrúi. Stjórnmál Við megum ekki, segir Karl Ormsson, draga lappirnar í einkavæð- ingu og sölu ríkisfyr- irtækja og stóriðju. É g fór upp í sveit um helgina, sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað ég hafði með mér farsímann. Farsíminn varð raf- magnslaus og þar með var ekki hægt að ná í mig í „lengri tíma“. Það fannst mér óþægileg til- hugsun. Og ég var nánast friðlaus þar til ég komst í bæinn aftur og gat hlaðið símann minn; þetta litla tæknilega tæki, að nýju. Þar með var ég orðin „ínáanleg“, eins og það er stundum kallað; allir gátu náð í mig og ég gat náð í alla. Mér leið mun betur enda fannst mér ég aftur vera komin í sam- band við um- heiminn. Þetta er þó ekki eina dæmið um hve ég er orðin háð tækninni og þeim möguleikum sem hún hefur að bjóða. Ég verð t.d. viðþolslaus ef ég kemst ekki í tölvu í einhvern tíma til að kíkja á tölvupóstinn minn, þar sem ég get svarað skila- boðum og sent ný skilaboð (vin- konur mínar verða líka órólegar ef þær fá ekki svar frá mér fljótlega) og síðast en ekki síst finnst mér nauðsynlegt að fara reglulega inn á þjóðmála- og fréttasíðurnar á Netinu. Tæknin og heimurinn í kringum hana er því orðinn stór hluti af mínu daglega lífi. Og kannski verra en það, því að mitt daglega líf er stundum farið að snúast einum of mikið í kringum tæknina og hennar heim. Það er að minnsta kosti svolítið óhugn- anlegt, ef maður „spáir betur í það“, að stutt sveitarferð skuli snúast um það hvort farsíminn sé í sambandi eða ekki. Ég vildi þó ekki vera án tækni- nýjunganna sem hafa umturnað hinum vestræna heimi undanfarna áratugi. Þær hafa óneitanlega auð- veldað manni lífið á vissan hátt þótt þær búi um leið til nýjar þarf- ir og nýjar kröfur. Ég, nútíma- manneskjan, get til dæmis ekki ímyndað mér annað en að það hafi verið lýjandi að vera blaðamaður á þeim tíma þegar ritvélarnar og leiðréttingarborðarnir voru það besta sem tæknin hafði upp á að bjóða. Tölvurnar eru í mínum huga ómissandi tæki í störfum blaðamannsins. Netið sömuleiðis svo og farsímarnir. Öll þessi tækni gerir þó starf blaðamannsins að mörgu leyti meira krefjandi; þ.e. gerð er krafa um meiri hraða og meiri tæknikunnáttu, enn meiri hraða og enn meiri tæknikunn- áttu. En það er í lagi mín vegna; mér finnst gaman að lifa í þessu hraða þjóðfélagi þar sem svo margt snýst um tækni og tækni- nýjungar. En öllu má nú ofgera. Ég er t.d. af þeirri kynslóð, sem vel man eftir öllum póstkortunum og bréfunum, og ekki er laust við að ég sakni þess að fá ekki slíkar sendingar lengur. Nú er það bara glugga- pósturinn sem fyllir póstkassann (í raunheiminum) dag eftir dag; ann- an póst fær maður á Netinu, stutt- an og snaggaralegan í sím- skeytastíl. Og rómantísku ástarbréfin láta á sér standa, það þykir helst til of gamaldags. Í stað- inn er daðrað með rafrænum hætti; með dularfullum setningum og táknum á „e-maili“ eða hrein- skilnum (órómantískum) SMS- skilaboðum á borð við: Viltu koma í bíó? SMS-skilaboðin eru reyndar giska sérstakt fyrirbæri í sam- skiptum manna nú til dags. Og víst er að þau eru orðin snar þáttur í tilhugalífi ungs fólks. Ég man að minnsta kosti eftir því að hafa ver- ið í veislu hér um árið þar sem einn félagi minn sat allt kvöldið úti í horni, og pikkaði eitthvað á sím- ann sinn. Í ljós kom að hann hafði nýlega kynnst ungri konu sem var á þeirri stundu í annarri veislu á öðrum stað í bænum. Í staðinn fyr- ir að taka upp símann (farsímann) og hringja fannst þeim að því er virtist meira spennandi, og kannski rómantískara, að senda SMS-skilaboð allt kvöldið. En hver veit nema unga kyn- slóðin í dag eigi eftir að líta með söknuði til baka til þess tíma þegar SMS-skilaboðin voru í hávegum höfð? Þau hafi verið það róman- tískasta af öllu rómantísku. En talandi um ungu kynslóðina, eða yngstu kynslóðina, þá eru allar þessar tækninýjungar sjálfsagður hluti af hennar lífi. Sífellt yngri börn eignast farsíma – það er ekk- ert tiltökumál lengur að sjá krakka rétt við fermingaraldurinn ganga um með slíka gripi – og „gömul tækni“ úreldist fljótt. Ég man t.d. eftir að hafa heyrt frá- sögn af því þegar ung stúlka, á sjö- unda eða áttunda ári, svaraði í sím- ann heima hjá ömmu sinni. Síminn var svolítið „gamaldags“, þ.e. hann var fastur á vegg og með snúru tengda við símtólið. Þegar stúlkan hafði svarað í símann togaði hún í snúruna og kallaði til ömmu sinn- ar: Amma, símtólið er fast við vegginn! Sjálf á ég heima hjá mér gam- aldags svartan síma með skífu og hef oftsinnis þurft að kenna vin- konum dóttur minnar, á áttunda ári, að snúa skífunni til að hringja. Ein þeirra svaraði reyndar í sím- ann hjá mér um daginn og sagði: Heyrðu það er símtal til þín úr ... rafmagnssímanum! Já, tæknibreytingarnar eru ör- ar. Og í nútímaþjóðfélagi orðnar daglegt brauð. Þótt upphaflegur tilgangur þeirra hafi sennilega verið sá að auðvelda mönnum lífið; spara okkur sporin og fyrirhöfnina – og vissulega gera þær það upp að vissu marki – þá hafa þær óneit- anlega einnig orðið til þess að gera lífið örlítið flóknara. Hraðinn verð- ur meiri, eins og áður var minnst á, og sífellt meiri kröfur eru gerðar til okkar um að aðlagast nýrri tækni og nýjum samskiptum sem verða til í kjölfar hennar. Áreitið verður meira. Hættan er hins veg- ar sú að á einhverjum tímapunkti fari tæknin að stjórna lífi okkar um of. Ég er að minnsta kosti að hugsa um að geyma farsímann minn heima næst þegar ég fer í sveitina. Það er kannski í lagi að vera ekki „ínáanleg“ af og til. Að vera eða vera ekki „ínáanleg“ „Ein þeirra svaraði reyndar í símann hjá mér um daginn og sagði: Heyrðu, það er símtal til þín úr … rafmagnssímanum!“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.