Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 39

Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 39 LÖGREGLAN í Reykjavík hafði mikinn viðbúnað vegna verslun- armannahelgarinnar enda stærsta ferðahelgi ársins. Megináherslur voru að tryggja örugga umferð og hafa uppi aðgerð- ir til að sporna gegn innbrotum. Það var því í mörg horn að líta hjá lög- reglumönnum en alls voru 565 verk- efni færð til bókunar. Umferðin gekk vel og ánægjulegt var að sjá hversu vel ökumenn hafa brugðist við ábendingum lögreglu um að gera ráðstafanir með auka- spegla á bifreiðar sínar ef kerrur eða fellihýsi byrgja sýn ökumanna. Um helgina voru 14 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur og 47 hafa verið kærðir vegna hraðakst- urs Höfð voru afskipti af dvöl 5 ára stúlku með ölvuðum föður sínum á vínveitingastað í miðbænum. Barninu var komið í hendur móður sinnar og barnavernd tilkynnt um málið. 18 ára stúlka var handtekin eftir að hafa lagt til unnusta síns með hnífi í íbúð í Breiðholti. Hann var fluttur á slysadeild þar sem hann gekk undir aðgerð en síðan leyft að fara heim. Stúlkan hefur viðurkennt árásina og er málið talið upplýst. Henni hefur verið sleppt. Ráðist var að vagnstjóra á laugar- dagskvöld við aðstöðu þeirra við Lækjartorg. Árásarmaðurinn er ófundinn en vagnstjórinn hlaut minniháttar meiðsli. 10 innbrot um verslunar- mannahelgina Lögreglu hefur verið tilkynnt um 10 innbrot um helgina sem eru tals- vert færri en oft er eftir helgar. Lögreglan er mjög ánægð með við- brögð borgara við beiðni hennar um að tilkynna um grunsamlegar mannaferðir. Að mati lögreglu er það lykilatriði þess að takist að sporna gegn fjölgun innbrota. Fjög- ur þessara innbrota voru í ökutæki þar sem verðmæti höfðu verið skilin eftir. Tvítug kona var handtekin þar sem hún var inni í bifreið í Holta- hverfi. Konan hafði meðferðis tösku með ýmsum varningi sem hún gat ekki gert grein fyrir. Hún var vistuð í fangageymslu. Lögreglan varð síð- an aftur að hafa afskipti af henni vegna þjófnaðar við BSÍ. Hún var vistuð aftur í fangageymslu. Brotist var inn í húsnæði í Gerð- unum og þaðan stolið verðmætum. Þá var brotist inn í íbúðarhús í Breiðholti og stolið veski með verð- mætum. Innbrotsaðila tókst að komast undan er íbúar urðu varir mannaferða. Þá var brotist inn í íbúð í vest- urbænum. Tvær stúlkur og þrír pilt- ar ruddust út úr íbúð er eigandinn kom heim til sín. Þau höfðu þá fjar- lægt nokkur verðmæti. Höfð voru afskipti af ökumanni í miðbænum aðfaranótt laugardags. Í bifreiðinni fannst hnífur og hnúa- járn auk fjölnotalyfseðils á nafni annars einstaklings. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð og við frekari leit fundust ætluð fíkniefni og ýmsir hlutir sem hann gat ekki gert grein fyrir. Hann var því vistaður í fanga- geymslu lögreglu. Höfð voru afskipti af tveimur mönnum sem notað höfðu vinnuskúr í Grafarholti til fíkniefnaneyslu. Þá fannst lítilræði af hassi á öku- manni sem grunaður er um ölvun við akstur. Á laugardagskvöldið voru einnig tveir karlmenn stöðvaðir á bifreið í Breiðholti og fundust ætluð fíkniefni og einnig ætlað þýfi. Úr dagbók lögreglunnar 2. til 6. ágúst Færri innbrot en venjulega Talsverðan reka hefur borið á fjörurnar við eyðibýlið Skoruvík á Langanesi, sem án efa myndi duga til að girða af gott land ef einhver myndi hirða hráefnið. Rústir gamla Skoruvík- urbæjarins eru til hægri á myndinni og gamla rekaviðarsmiðjan er í bakgrunni. Morgunblaðið/Kári Kristjánsson Rekaviður í Skoruvík Á FÖSTUDAGINN eru væntanleg- ir til landsins þeir Boris Spassky, fyrrum heimsmeistari í skák, og Lothar Schmid, fyrrum yfirdómari í einvígi Spasskys og Fischers, sem hér var haldið fyrir 30 árum. Þeir eru hingað komnir til að taka þátt í opnu, alþjóðlegu málþingi sem Skáksamband Íslands stendur fyrir vegna 30 ára afmælis einvígis ald- arinnar. Málþingið verður haldið nk. laug- ardag í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu, en á sama stað stendur nú uppi sýningin „Skákarfur Íslend- inga og einvígi aldarinnar“. „Þó að ýmislegt hafi verið rætt og ritað um þetta merka einvígi þeirra Spasskys og Fischers má fullyrða að aldrei fyrr hafi komið saman til uræðna um atburðinn eins margir af þeim einstaklingum sem voru í aðalhlutverkum þessa örlagaríku daga árið 1972. Það má því búast við fróðlegum og skemmtilegum skoð- anaskiptum og e.t.v. verður hulunni svipt af einhverjum hinna fjölmörgu leyndardómsfullu atburða sem þá áttu sér stað,“ segir m.a. í frétta- tilkynningu. Dagskrá málþingsins verður sem hér segir: 13.30 Setning: Hrannar Björn Arnarsson, forseti Skáksambands Íslands. 13.35 Ávarp: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. 13.45 Erindi: Boris Spassky, fyrr- um heimsmeistari í skák. 14.10 Erindi: Lothar Schmid, yf- irdómari einvígisins 1972. 14.35 Erindi: Guðmundur G. Þór- arinsson, fyrrum forseti Skáksam- bands Íslands. 14.55 Kaffihlé. 15.30 Pallborðsumræður og fyr- irspurnir úr sal. Stjórnandi er Frið- rik Ólafsson, fyrrum forseti FIDE, en aðrir þátttakendur verða Boris Spassky, Lothar Schmid og Guð- mundur G. Þórarinsson. Málþinginu á að ljúka um kl. 17.30. Það er opið öllum og mun fara fram á ensku. Málþing um einvígi Fischers og Spasskys Fjallað um fjölgreind- arkenningu á ráðstefnu ÍSLENSKU menntasamtökin halda ráðstefnur um skólamál og endur- menntun dagana 7.–14. ágúst. Ráð- stefnurnar skiptast í mismunandi námskeið. 7.–9. ágúst er námskeið sem ber heitið: Einstaklingsbundið nám á nýrri öld. 10. ágúst er nám- skeið sem ber heitið: Fjölgreindar- kennsla í leikskóla. 12.–14. ágúst er námskeið með nafninu Fjölgreindar- kennsla og nám. Sérstakt námskeið er fyrir foreldra laugardagsmorgun- inn 10. ágúst og ber heitið: Foreld- raglaðningur. „Ráðstefnurnar eru haldnar í Ás- landsskóla, Kríuási 1–2, Hafnarfirði. Þetta er önnur ráðstefnan sem Ís- lensku menntasamtökin standa fyr- ir, en sambærileg ráðstefna var haldin fyrir ári og sóttu þá ráðstefnu á annað hundrað kennarar og skóla- stjórnendur víðs vegar af landinu. Til ráðstefnanna 7.–14. ágúst koma fyrirlesarar, bæði innlendir og er- lendir, sem þekktir eru fyrir störf sín. Nánari upplýsingar um dagskrá, skráningu og þátttökugjöld er að finna á vefsíðu: www.ims.is. Aðalfyrirlesari verður bandaríski prófessorinn Howard Gardner. Hann kom árið 1983 fram með nýja kenningu, fjölgreindarkenninguna, sem valdið hefur byltingu í allri um- ræðu og viðhorfi til kennslu og upp- eldis,“ segir í fréttatilkynningu. „Gardner taldi að skilgreiningin á greind væri of þröng og setti fram þá kenningu að maðurinn byggi yfir að minnsta kosti 8 grunngreindum. Sem eru: málgreind, rök og stærð- fræðigreind, rýmisgreind, líkams- og hreyfigreind, tónlistargreind, samskiptagreind, sjálfsþekkingar- greind, umhverfisgreind og nú er Gardner farinn að tala um að til sé níunda greindin sem er tilvistar- greindin. Vakin er sérstök athygli á að Howard Gardner hefur þegar staðfest komu sína á endurmenntun- arnámskeið Áslandsskóla að ári liðnu,“ segir í tilkynningunni. Síðasta daginn mun dr. Erla Kristjánsdóttir, lektor við KHÍ, kynna þá vinnu sem unnin hefur ver- ið í kennslu fjölgreindar hér á landi. Að því loknu verður samantekt á efni ráðstefnunnar og hvernig best væri að standa að fjölgreindar- kennslu með tilliti til framkominna upplýsinga. Sögubækur í skólastofunni PRÓFESSOR Robin Campbell frá háskólanum í Hertfordshire á Eng- landi heldur fyrirlestur hjá Endur- menntun HÍ miðvikudaginn 28. ágúst kl. 17–18:30 um gildi sögulest- urs fyrir lestrar- og skriftarkunnáttu barna. Hann stendur einnig fyrir vinnusmiðju fyrir kennara, leika- skólakennara og áhugasama for- eldra daginn eftir eða 29. ágúst kl. 14–19. Campell hefur áratuga reynslu sem kennari, fræðimaður og yfir- maður rannsókna á uppeldissviði og hefur skrifað ellefu bækur um lestr- ar- og skriftarkunnáttu barna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Hann mun fjalla um gildi þess fyrir þriggja til ellefu ára börn að lesa sög- ur heima og í skóla. Þátttakendur fá innsýn í hugarheim barnsins og hvernig sögulestur getur örvað bæði lestur og skrift. Stuðst verður við vísindalega rannsókn á lestrar- og skriftarferli barns. Kennt er á ensku. Markaður í Skagafirði SÍÐASTI markaður sumarsins í Lónkoti í Skagafirði verður haldinn sunnudaginn 25. ágúst. Hefst mark- aðurinn kl. 13 og stendur til kl. 17. Sölufólk getur pantað aðstöðu hjá Ferðaþjónustunni, Lónkoti. FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur skipað Guðrúnu Björgu Bragadóttur viðskiptafræðing í stöðu skattstjóra Vestfjarðaumdæmis. Með auglýsingu dags. 20. júní sl. var embætti skattstjóra Vestfjarða- umdæmis auglýst laust til umsókn- ar og rann um- sóknarfrestur út 14. júlí sl. Sjö um- sóknir bárust um stöðuna, en einn umsækjenda, Ólafur Páll Gunn- arsson, dró um- sókn sína til baka að loknum um- sóknarfresti. Aðrir umsækjendur voru Álfheiður D. Gunnarsdóttir, Björn Jóhannesson, Guðrún Björg Bragadóttir, Pétur Björnsson, Valdimar Tómasson og Þórir Jó- hannesson. Guðrún er skipuð sem skattstjóri Vestfjarðaumdæmis frá 15. septem- ber nk. til næstu fimm ára. Að loknu námi frá HÍ árið 1995 starfaði hún hjá embætti Ríkisskattstjóra fram til ársins 1997, en frá þeim tíma hef- ur Guðrún verið við nám og störf á sviði skattamála í Danmörku, m.a. sem skattendurskoðandi við skatt- eftirlit og skattrannsóknir hjá dönskum skattyfirvöldum í tæp fjög- ur ár. Guðrún Björg Braga- dóttir skipuð skattstjóri Guðrún Björg Bragadóttir Fjallað um raf- rænt efni í riti um bókasöfn ÚT ER komið tímaritið Bókasafnið, 26. árgangur 2002. Að útgáfu þess stendur Upplýsing, Félag bóka- safns- og upplýsingafræða. Ritstjóri er Dögg Hringsdóttir, kerfisbóka- vörður hjá Landskerfum bókasafna hf. Ekkert meginþema er í blaðinu að þessu sinni, en mest ber þó á greinum um rafrænt efni og aðgengi að því, upplýsingalæsi, þekkingar- stjórn og skjalastjórn. Blaðið hefst á grein um bókabæinn Hay-on-Wye í Bretlandi eftir Stein- grím Jónsson, þar sem segir frá afar sérstæðu þorpi sem gekk í endurnýj- un lífdaga þegar framtakssamur náungi ákvað að setja þar á stofn fornbókaverslanir í stórum stíl. Alls eru fjórar greinar um rafrænt efni i þessu hefti Bókasafnsins. Þær eru: Aðgengi Íslendinga að rafrænum gagnasöfnum: yfirlit, Faggáttir: efn- isaðgangur að stafrænum heimild- um, Rafrænt efni: val vísindamanna á sviði náttúrufræða og loks er grein um gagnagrunninn Lýsi, þar sem skráð er myndlist í íslenskum hand- ritum. Tvær greinar eru byggðar á loka- verkefnum til MA-prófs í bókasafns- og upplýsingafræði í Danmörku og Englandi. Í þessum greinum er tekið fyrir áhugavert efni, annars vegar „Staða og innleiðing þekkingar- stjórnunar á Íslandi“ eftir Hrafnhildi Hreinsdóttur og hins vegar „Mat á kennslu í upplýsingalæsi á háskóla- stigi“ eftir Astrid M. Magnúsdóttur. Þá eru greinar um rannsóknir í bókasafns- og upplýsingafræði á Ís- landi 1994–2000, þjónustumælingar í framhaldsskólasöfnum, nýjan al- þjóðlegan staðal um skjalastjórn og að lokum grein um EBLIDA: sam- tök evrópskra bókavarðafélaga. Fleiri áhugaverð efni eru í blaðinu, m.a. ritdómar og hugleiðingar nokk- urra bókaorma um bækurnar í lífi þeirra. Blaðið er 80 síður í A-4 broti og er það til sölu m.a. í Þjónustu- miðstöð bókasafna. Netútgáfa 26. ár- gangs verður aðgengileg á haustdög- um 2002 á www.bokasafnid.is, segir í fréttatilkynningu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.