Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
MERKILEGT má það kallast með
suma, að þeir sýnast helst lifa fyrir
það að eignast sem mesta fjármuni í
löndum og lausum aurum. Tugir
milljóna, hundruð milljóna, millj-
arðar. Þeir virðast aldrei fá nóg.
Fram á grafarbakkann er verið að
græða og eignast meira og meira.
Svo á trúlega að taka þetta allt með
sér þegar lagt er upp í ferðina
miklu.
Og nú ætlar liðið, sem sumir kalla
fjárfesta, stofnfjárfesta eða jafnvel
ofurfjárfesta, að gleypa sparisjóðina
líka, því stjórnendur þeirra hafa of
mikil völd. Þeir eru vondir menn.
Allt er það auðvitað undir yfirskini
hagræðingar í bankakerfinu og
betri þjónustu við litla manninn og
allt hvað heiti hefur.
Formaður bankamanna, Friðbert
Traustason, hagfræðingur frá Flat-
eyri, sagði álit sitt á þessu sápu-
stykki í fréttaþættinum Hér og nú
hjá fréttamanninum Bergljótu
Baldursdóttur að morgni 1. ágúst.
Vestfirðingurinn sagði eiginlega allt
sem segja þurfti um þetta mál: Það
er dýrt að vera Íslendingur. Það
kostar. Íslendingar geta gleymt því
að heita sjálfstæð þjóð ef allt á að
leggja á mælistiku gróða og stór-
sameiningar sem oft er algjörlega
út í bláinn.
Það er gott að eiga ofurfjárfesta.
Þeir eru ágætir í bland með öðrum.
En þeir verða að vera „undir con-
trol“. Það verður að hafa þá í bönd-
um eins og berserkina forðum.
Leysa þá einstaka sinnum og svo
geta þeir grenjað og bitið í skjald-
arrendur þess á milli. Ef þeir fá al-
gjörlega frjálsar hendur er fjandinn
laus og eftir verður sviðin jörð og
landauðn þar sem síst skyldi. Þetta
vita allir menn. Sláum því skjald-
borg um sparisjóðina. Það er ómet-
anlegt að hafa þá undir stjórn
heimamanna í krummaskuðunum.
Þeir eru líklegri til að fylgjast með
því hvar skórinn kreppir, hver á
sínum stað, heldur en peningaber-
serkirnir. Nú verður Alþingi að
treysta gjarðirnar.
HALLGRÍMUR SVEINSSON,
Hrafnseyri.
Sláum skjaldborg
um sparisjóðina
Frá Hallgrími Sveinssyni:
NÚ ER spurning hver má eiga
banka- eða sparibéf. Það er fynd-
inn „kjölfestufjárfestir“ sem byrjar
á að gera allt vitlaust. Fín kjölfesta
það. Bankar og sparisjóðir högn-
uðust um meira
en sex milljarða
nettó á síðasta
ári – fyrir utan
milljarða í vara-
og afskriftar-
sjóði. Auðvitað
þurfa þeir meiri
„hagræðingu“!
Skítt með það þó
undirstöðuat-
vinnuvegir tapi
að meðaltali. Verðmætin verða til í
bönkunum en ekki einhverju hel-
vítis slori, eða subbulegum iðnaði.
Ég er að byrja að skilja af hverju
ónot fara um mig við að heyra orð-
ið „hagræðing“ – því um daginn dó
guðhræddur maður – sem átti
örugga vist í Himnaríki. Þegar
hann bankaði hjá Lykla-Pétri kom
sjálfur Satan til dyra. Mann-
greyinu brá og sagði óvart; „Guð
almáttugur – átti ég ekki að fara til
Himnaríkis?“
„Jú,“ sagði Satan og glotti við
tönn. „Það er búið að sameina.“
Vist í Himnaríki er því ekki
örugg þótt maður lifi af hógværð
og fari alltaf með Faðirvorið.
Þarna er hugsanlega skýring á
vaxandi fjölda „einnota kaupsýslu-
manna“ sem nú eru í tísku – vað-
andi um á skítugum skónum og
þurrka sér á náunganum daglega
án þess að hafa áhyggjur af neðra.
Það er ekkert neðra lengur! Kristi-
legt siðferði og skyldurækni við
náungann er bara gömul steypa því
– það er búið að sameina!
Bankastjórinn getur afslappaður
lánað milljarða í viðbót til að hirða
kvóta af nokkrum sjávarþorpum til
að „hagræða“ – ekki fer hann í
neðra! Græðgin er það sem blífur
og því er ráðið – að ráða þeim sem
ræður bankanum og kaupa öll hel-
vítis bréfin! Auðvitað! „Hagræð-
ing“ á forsendum fiskihagfræði
hefir líka heppnast frábærlega!
Þar er ekkert falsbókhald eins og
símaruglið í WorldCom. Nú er
bara að grípa tækifærið og „Kaupa
allt helvítis klabbið“ eins og Bör
Börson gerði þegar bankinn ætlaði
að vera með leiðindi.
KRISTINN PÉTURSSON,
rekur fiskverkun í litlu sjávar-
þorpi (kristinn@gunnolfur.is)
„Hagræðing“?
Frá Kristni Péturssyni:
Kristinn
Pétursson
4 stk. í pakka verð kr. 2.300.
Kanna í stíl kr. 2.995.
5 mismunandi gerðir.
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
DARTINGTON GLÖS