Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ GAMANMYNDIN The Sweetest Thing sló í gegn hina votviðra- sömu verslunarmannahelgi. Hún var frumsýnd miðvikudaginn 31. júlí til að leyfa ferðaglöðum kvik- myndaáhugamönnum að skella sér í bíó áður en haldið var út á land. „Tæplega 5.000 manns skemmtu sér konunglega á þessari frábæru gamanmynd um helgina og með forsýningum hafa rúmlega 7.000 manns séð hana. Þeir sem voru í bænum vildu greinilega skemmta sér líka og það gerðu þeir svo sannarlega á The Sweetest Thing,“ sagði Jón Gunnar Geirdal, markaðsstjóri Skífunnar, sýnilega ánægður með viðtökur landans á Diaz og félögum. Skvísurnar þrjár, þær Diaz, Selma Blair og Christina Apple- gate, náðu því að moka þeim Tommy Lee Jones og Will Smith úr toppsæti tekjulistans góða þar sem þeir svartklæddu félagar höfðu hreiðrað ágætlega um sig. Jafnræði ríkir því á listanum þar sem karlhetjur og kvenskör- ungar skiptast á um að verma toppsætið. Allt eins og það á að vera. " # $  %& ' && ( )   *  )   ,  )  - %.                                    !      "    #         $% & '& ()   "* +       "       #,*  -" * .  /0                         ! "   # $  %"% &    '#     ()    '!   '*  !+ ,-% .  $         0 1 2 ( 3 0 4 5 6 0 0 11 1) 1( 13 7 18 17 8 (2   1 2 ( ( 6 1 ( 3 2 1 1  6 5 18 4 (5 14 4 8 9  :%'&:#  " %'&:9  :;%'&: '&#  ":    '&< / :#  ":= / ' :$% & '& ;%'&:9  :%'&: '& '&< / := :#  ":$% & '& '&< / := := / ' '&< / := :#  " '&< / :$% & '&:>/?@  '&< / :#  ":$% & '& '&< / :$% & '& '&#  ":$% & '& $% & '& %'& '&< / :=  '&< /  '&< / := := / ' '&< / :* A 9  %'&:;%'& '&< / :$% & '& Sæt, sætari … Skvísurnar þrjár í Sweetest Thing. Diaz og stöllur hertaka aðsóknarlista íslensku kvikmyndahúsanna         #   ( $  2        $  2 #      &%@'& JARÐVATNSBARKAR Stærðir 50—100 mm Lengd rúllu 50 m Tilvalið þar sem ræsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, auðveld í meðhöndlun. Ármúla 21, sími 533 2020 Stærðir 50—80 og 100 mm. Lengd rúllu 50 mtr. Tilvalið þar sem ræsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, auðveld í meðhöndlun.     ! !"     # $ ! !"     % $ !  !"     & $ ! ' !"   $ ! !"  ( )*!+"  $)'        BRITNEY Spears ætti að taka stað Beethoven og Bach í tónlistar- kennslu í þýskum skólum, að sögn þýska menningarmálaráðherrans, Julian Nida-Rümelin. „Það er ekki hægt að vekja athygli flestra ung- linga á tónlistarmenningu með klassískri tónlist,“ sagði Nida- Rümelin í heimsókn á tilvonandi rokk- og poppsögusafn í borginni Gronau í vesturhluta Þýskalands. Ráðherrann sagði að skólar ættu að kenna táningum um tónlist með því að láta þá hlusta á lög sem þeir hafa gaman af og ekki útiloka dægursmelli. Nida-Rümelin sagði að sér gremdist að litið hefði verið á rokk- og popptónlist áratugum saman sem óæskilegan innflutning eins og „teiknimyndablöð og tyggjó“. Hann sagði það vera ástæðu þess að ríkisstjórn Þýska- lands vildi styðja nýja rokk- og poppsögusafnið. Safnið, sem verður opnað um mitt næsta ár, verður hið fyrsta sinnar tegundar utan Bandaríkj- anna, að sögn framkvæmdastjóra verkefnisins, Andreas Bomheuer. Britney í stað Beethoven Reuters Britney Spears ásamt leikaran- um Verne Troyer á verðlauna- afhendingunni Vali táninganna á dögunum. ÞAÐ er allsérstætt, Stefnumótið sem haldið verður í kvöld á Gauki á Stöng. Hljómsveitin Anonymous mun þá spila en hún er nýkomin úr þriggja mánaða hljómleika- ferðalagi um Bandaríkin, þar sem spilað var á 27 tónleikum, hvorki meira né minna. Með í för var einnig raftónlistarmaðurinn Ívar Örn, en saman skipa þau listahóp- inn LBH Krew. Morgunblaðið setti sig í sam- band við Tanyu Lind Pollock, helming þessa geðþekka raf- poppsdúetts, en hinn helmingurinn er Marlon Lee Úlfur Pollock. Þess má geta að sveitin hafnaði í þriðja sæti í Músíktilraunum á síðasta ári. „Þetta kom þannig til að á síð- asta ári fórum við, Anonymous, til London og kynntumst þar manni sem bauð okkur til New York, en hann var að fara að opna klúbb þar,“ upplýsir Tanya, þegar hún er spurð um tilurð þessa mikla ferða- lags. „Svo þegar þegar það fréttist að við værum á leið til New York bauð annar aðili okkur í túr sem hann var að skipuleggja, sem inni- hélt fullt af ljóðskáldum og tónlist- armönnum.“ Og voru þetta þá aðallega litlir staðir sem þið spiluðuð á? „Nei, þeir voru nú af öllum stærðum og gerðum.“ Og fóruð þið þvers og kruss um Bandaríkin? „Þetta voru aðallega miðríkin og í kringum New York. Þetta gekk mjög vel og við lifðum bara á því að selja diska. Við fór- um með brennda diska út með okkar eigin efni og seldum um 200 stykki.“ Hvað er svo framundan hjá Anonymous? „Við erum nú með umboðsmann en erum svosem ekkert að drífa okkur að koma út plötu. Það glittir í túr um Evrópu en það er ekki búið að setja niður neinar dagsetn- ingar ennþá.“ Einnig mun áðurnefndur Ívar Örn troða upp og eitthvað verður um óvænta gesti. Þá mun mynd- snúðurinn Sinestra einnig koma fram (VJ). Húsið er opnað kl. 21 að vanda og er miðaverð 500 kr. Anonymous leikur á Stefnumóti Tölvað á Gauknum Morgunblaðið/Árni Sæberg Anonymous, að loknu vel heppnuðu strandhöggi í Bandaríkjunum. arnart@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.