Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 52
KERTAFLEYTING á vegum nokk-
urra íslenskra friðarhreyfinga í
minningu fórnarlamba kjarn-
orkuárásanna á japönsku borg-
irnar Hiroshima og Nagasaki 6. og
9. ágúst 1945 fór fram á Reykja-
víkurtjörn í gærkvöld.
Nokkur fjöldi fólks safnaðist
saman við suðvesturbakka Tjarn-
arinnar við Skothúsveg klukkan
22.30 og fór fram stutt dagskrá þar
sem Hjálmar Hjálmarsson leikari
flutti ávarp. Fundarstjóri var Árni
Þór Sigurðsson, forseti borgar-
stjórnar.
Íslenskar friðarhreyfingar stóðu
að kertafleytingunni átjánda árið í
röð.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kertum
fleytt á
Reykja-
víkurtjörn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
RÁÐAST á í haust í bólusetningu á
um 70 þúsund börnum og ungling-
um fyrir heilahimnubólgu af C-
stofni. Verkefnið hefst í október og
er kostnaður fyrsta áfangans áætl-
aður milli 90 og 100 milljónir
króna. Bólusetja á ungbörn á
fyrsta ári og allt upp í 18 ára ung-
linga.
Árlega fá 20 til 25 börn og ung-
lingar heilahimnubólgu hérlendis,
flest af C-stofni. Dánarhlutfall er
hátt og deyr um það bil eitt af
hverjum tíu börnum sem fá sjúk-
dóminn. Haraldur Briem sóttvarna-
læknir, sem er ábyrgur fyrir verk-
efninu, segir að reynslan hafi sýnt
að með bólusetningu megi draga úr
nýgengi. Það sé reynsla Breta og
Íra. Haraldur segir að bólusetja
eigi börn strax við þriggja mánaða
aldur og stefnt sé að því að þessi
sérstaka bólusetning verði hluti af
því bólusetningakerfi sem þegar er
fyrir hendi. Ungbörn eru í dag m.a.
bólusett gegn barnaveiki, stíf-
krampa, kíghósta, rauðum hundum,
mislingum og hettusótt.
Haraldur segir smábörn líklega
verða bólusett tvisvar á fyrsta
árinu. Nóg er að bólusetja eldri
börn og unglinga einu sinni.
Ljúka á verkefninu
í lok næsta árs
Þórólfur Guðnason, sérfræðingur
í smitsjúkdómum barna, hefur ver-
ið ráðinn verkefnisstjóri bólusetn-
inga við landlæknisembættið. Hefja
á bólusetningarnar í október og
segir Haraldur ráðgert að verkefn-
inu ljúki við lok næsta árs. Kostn-
aður verður sem fyrr segir milli 90
og 100 milljónir í fyrsta áfanga
verksins en hann ræðst að nokkru
leyti af því hvort börn verða bólu-
sett tvisvar eða þrisvar á fyrsta
árinu.
Skólabörn verða bólusett í
grunnskólum og framhaldsskólum
og segir Haraldur verða leitað lið-
sinnis skólahjúkrunarfræðinga og
heilsugæslunnar. Hugsanlega verði
nokkrir hjúkrunarfræðingar ráðnir
til verksins og teymi þeirra muni
fara skipulega í framhaldsskólana.
Um 70 þúsund börn og unglingar bólusett gegn heilahimnubólgu
Kostnaður í byrjun 90
til 100 milljónir króna
SVO virðist sem skúmurinn hafi
átt erfitt uppdráttar í skúma-
byggðinni við Kvísker í Öræfum í
sumar.
Hálfdán Björnsson á Kvískerjum
hefur fylgst með varpinu og merkt
skúmsunga allt frá árinu 1943.
Hann segir að varpið hafi komist í
eðlilegt horf hvað egg varðar í vor,
en svo virðist sem ungarnir hafi
margir drepist nýkomnir úr eggj-
um. Þegar Hálfdán fór að leita
unga til að merkja voru flestir
horfnir.
Hálfdán segist ekki geta sagt
með vissu hvað valdi rýrum heimt-
um á ungum í landi Kvískerja í
sumar. Hann nefndi að ef til vill
hefði tófa tekið ungana og farið
með þá í greni sitt á fjöllum. Ekki
sést mikið af ungaleifum sem getur
stutt þessa kenningu. Hin skýr-
ingin er að ætisskortur valdi unga-
dauðanum. Það gæti skýrst af því
að minna er gert að fiski á bátum
fyrir framan Kvísker og því lítið af
fiskslógi. Hálfdán segir að skúmn-
um hafi gengið betur að koma upp
ungum á Skeiðarársandi. Þaðan er
stutt í Ingólfshöfða þar sem tölu-
vert fellur til af lunda.
Hálfdán taldi ekki ástæðu til að
örvænta um framtíð skúmastofns-
ins vegna ungadauðans. Endur-
heimst hafa merktir skúmar sem
eru nálægt þrítugsaldri. Íslenski
skúmastofninn hefur verið áætl-
aður um 5.400 varppör. Það mun
vera um helmingur skúmastofnsins
á norðurhveli jarðar, að því er
segir í Ísfyglu.
Vanhöld á
skúmi við
Kvísker
Morgunblaðið/Arnaldur
Ólafur Sigurðsson verkfræðing-
ur verst skúmi á Ingólfshöfða en
hann er stundum árásargjarn.
Morgunblaðið/RAX
Skúmsungi varð á vegi ljósmyndarans og verður ekki ráðið af svipnum
hvort honum var hlátur eða grátur í hug. Þessi ungi er einn af fáum sem
komust á legg í skúmabyggðinni á Kvískerjum í Öræfum í sumar.
Rúmlega
28 punda
lax í Selá
TVEIR vænir laxar voru veiddir á
flugu í Selá í Vopnafirði í fyrradag.
Annar laxinn var 104 cm langur og
um 11,2 kíló, eða um 23 pund, en
hinn laxinn var 113 cm langur og
um 14,1 kíló, eða rúmlega 28 pund,
að sögn Þorsteins Þorgeirssonar,
veiðivarðar við Selá. Breskir veiði-
menn veiddu laxana og slepptu
þeim lausum þegar búið var að
mæla þá.
Að sögn Þorsteins var lengd lax-
anna mæld þegar þeir voru dregnir
á land, en þyngdin var fundin út
með því að bera lengdina saman við
ákveðinn skala sem ber saman
lengd og þyngd fiska. Þorsteinn
segir að lítið sé um að það komi
þyngri laxar úr ánni en sá sem var
11,2 kíló og aldrei hafi komið eins
þungur lax og sá sem vó 14,1 kíló.
Aðspurður segir Þorsteinn að veið-
in í sumar hafi verið jöfn og ágæt
síðan um miðjan júlí sl.
Krónan
styrktist
um 1%
KRÓNAN styrktist um rúmlega 1%
í viðskiptum á millibankamarkaði í
gær en samkvæmt upplýsingum frá
millibankaborði Íslandsbanka námu
viðskipti gærdagsins um fimm millj-
örðum króna.
Gengisvísitala krónunnar var
126,35 stig í upphafi gærdagsins en
var 125,05 stig við lok dags. Um tíma
fór vísitalan niður fyrir 125 stig en
það var í annað sinn á þremur vikum
sem það gerist. Þar á undan hafði
það ekki gerst í 16 mánuði.
Tekinn á 143
km hraða
LÖGREGLAN á Höfn í Hornafirði
var með sérstakt umferðarátak um
verslunarmannahelgina og stöðvaði
55 ökumenn fyrir of hraðan akstur á
þjóðvegunum. Sá sem hraðast ók var
á 143 km hraða og má búast við tals-
vert hárri sekt fyrir brotið.
♦ ♦ ♦