Morgunblaðið - 17.08.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 17.08.2002, Síða 16
AKUREYRI 16 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fjarkennsla Verkmenntaskólans á Akureyri býður nám með tölvusamskiptum til meðal annars stúdentsprófs og meistarastigs. Boðið er upp á tæplega 200 áfanga á framhaldsskólastigi. Athygli er vakin á nýjum reglum um endurgreiðslu kennslugjalds. Innritun í síma 464 0300 dagana 19. og 20. ágúst frá kl. 8:15-15:00 báða dagana. Nánari upplýsingar eru á vefsíðum skólans. Kennslustjóri fjarkennslu VMA. Vefslóð: http://vma.is/fjarkennsla DAGANA 19. ágúst til 2. september mun herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vísitera Þingeyj- arprófastsdæmi sem er eitt víðfeðmasta prófastsdæmi landsins. Það nær alveg frá Svalbarðströnd að vestan og austur að Langanesi. Á þessu svæði öllu búa samtals rúmlega 6.100 manns, og er pró- fastsdæminu skipt í átta prestaköll. Í prófastsdæminu starfa því átta sóknarprestar, auk þess sem einn héraðsprestur starfar að ýmsum verkefnum með prófasti. Hverju prestakalli er skipt í sókn- ir, og eru þær frá einni og upp í fjórar talsins, eða alls 20 í öllu pró- fastsdæminu. Þar af leiðir að sókn- arkirkjurnar eru 20 talsins, en einn- ig eru á svæðinu fimm aðrar kirkjur og tvö bænhús. Biskupinn mun heimsækja alla söfnuðina, og samtals verða í vísitasíunni um 30 guðsþjónustur og helgistundir, og eru allir velkomnir í þessar samverustundir. Biskup mun funda sérstaklega með hverjum sóknarpresti fyrir sig, svo og öllum sóknarnefndum. Farið verður yfir eignarskrár hverrar kirkju og ásig- komulag kirkjunnar skoðað. Rætt verður um safnaðarstarfið og mann- lífið almennt, en margar sóknir í Þingeyjarprófastsdæmi eiga við þann vanda að stríða að fólkinu fækkar. Biskup mun heimsækja skóla, þar sem skólastarf verður byrjað, en biskup óskar þess innilega að börn og unglingar komi til kirkjunnar sinnar svo hann geti talað við þenn- an mikilvæga aldurshóp í kirkju- starfinu. Foreldrar eru hvattir til að taka börnin með sér til kirkju, því biskup mun sérstaklega tala við þau, blessa þau og afhenda þeim lítinn kross til minja um skírn þeirra. Biskupinn mun heimsækja dval- arheimili og sjúkrahús, auk þess sem hann hyggst eins og tími gefur heimsækja nokkur fyrirtæki. Í för með biskupi er kona hans, Kristín Þ. Guðjónsdóttir, prófastur Þingey- inga, sr. Pétur Þórarinsson, og kona hans, Ingibjörg S. Siglaugsdóttir, og ritari vísitasíunnar, sr. Guð- mundur Guðmundsson héraðsprest- ur. Biskup Íslands vísiterar Þingeyj- arprófastsdæmi ÞAÐ er varla hægt að tala um að veðrið hafi leikið við Akureyr- inga eða aðra Norðlendinga í sumar og eru margir orðnir frek- ar þreyttir á ástandinu. Í gær var enn kalt í veðri, auk þess sem mikið hefur rignt síðustu sólar- hringa. Um miðjan dag í gær var aðeins 8 stiga hiti á Akureyri og gola. Í dag er áfram spáð norð- lægum áttum, rigningu eða súld um landið norðan- og austanvert. Á morgun er gert ráð fyrir breytilegri átt og björtu veðri víða um land, en þykknar upp og fer að rigna allra austast á mánu- dag. Þessir ungu menn, sem voru við leik á lóð leikskólans Hlíðar- bóls, létu veðrið ekki hafa áhrif á sig enda klæddir í samræmi við tíðarfarið. Morgunblaðið/Kristján Kalt og blautt veður KARL Guðmundsson og Rósa Kristín Júlíusdóttir opna sýningu í Samlaginu sunnudaginn 18. ágúst kl. 17.00 sem þau kalla „Samleik“. Sýningin verður opin til sunnudags- ins 25. ágúst. Karl Guðmundsson (Kalli) var nemandi Rósu Kristínar í Myndlist- arskólanum á Akureyri í fimm ár. Síðastliðin þrjú ár hafa þau unnið saman að listsköpun á vinnustofu Rósu Kristínar. Upp úr þeirri sam- vinnu spratt sýningin „Leikur með línu og spor“ sem var í Samlaginu sumarið 2000 og byggðist á mynd- rænum samræðum þeirra. Þessi sýning nú er afrakstur áframhaldandi myndræns samtals eða samleiks sem felur í sér nám og leik í senn, samspil nemanda og kennara, tveggja vina. Á sýning- unni eru málverk og máluð vatt- teppi. Opið er í Samlaginu frá kl. 14–18 alla daga nema laugardaga frá kl. 11–16 og lokað er á mánu- dögum. Samlagið – listhús Samleikur Karls og Rósu Kristínar FÉLAGSMÁLARÁÐ Akureyrar- bæjar greiddi 24,2 milljónir króna í fjárhagsaðstoð fyrstu sjö mánuði árs- ins, sem er rúmlega 28% hækkun frá sama tímabili í fyrra. Fjárhagsaðstoð ársins stefnir í 45 milljónir, sem er 10 milljónum meira en fjárveiting ársins. Félagsmálaráð fjallaði um málið á síðasta fundi sínum og telur óhjá- kvæmilegt að við endurskoðun fjár- hagsáætlunar ársins verið tekið tillit til þessa með aukinni fjárheimild. Þá fól félagsmálaráð sviðsstjóra og deild- arstjóra fjölskyldudeildar að meta hvort ástæða væri til endurskoðunar á reglum um fjárhagsaðstoð og fram- kvæmd hennar. Einnig yrði reynt að greina ástæður þeirrar miklu aukn- ingar sem orðið hefur á fjárhagsað- stoð á síðastliðnum þrem árum. Í júní lágu fyrir 115 umsóknir um fjárhagsaðstoð. Veittir voru 82 styrk- ir að upphæð rúmlega 3,8 milljónir króna og sex lán að upphæð um 223 þúsund krónur. 15 umsóknum var synjað. Í júlí lágu fyrir 85 umsóknir og voru veittir 73 styrkir að upphæð tæplega 3,2 milljónir króna og fimm lán að upphæð um 190 þúsund krón- ur. Átta umsóknum var synjað. Sífellt fleiri leita eftir fjárhags- aðstoð ALLS bárust 19 umsóknir um starf sveitarstjóra Hörgárbyggðar en um- sóknarfrestur rann út í vikunni. Hörgárbyggð varð til við sameiningu Glæsibæjarhrepps, Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps og búa tæplega 400 manns í sveitarfélaginu. Umsækjendur um stöðu sveitar- stjóra eru: Árni Jónsson Akureyri, Guðlaug Kristinsdóttir Akureyri, Anna Lilja Sigurðardóttir Reykja- vík, Jón Kristófer Arnarson Egils- stöðum, Óskar Halldórsson Akur- eyri, Kristján Snorrason Dalvíkur- byggð, Helga A. Erlingsdóttir Þingeyjarsveit, Stefán Sigurðsson Akureyri, Ingi E. Friðjónsson Elh- igzi Noregi, Magni Þórarinn Ragn- arsson Egilsstöðum, Jónas Egilsson Reykjavík, Sif Ólafsdóttir Bifröst, Sigurður Steingrímsson Akureyri, Þorvaldur Þorsteinsson Akureyri, Sigfús Arnar Karlsson Akureyri, Pétur Brynjólfsson Akureyri, Hall- dór Jónsson Ísafirði, Gunnar Hall- dór Gíslason Akureyri og Guðmund- ur Sigvaldason Akureyri. Hörgárbyggð 19 umsókn- ir um starf sveit- arstjóra BÆTTAR samgöngur með nýjum og nútímalegum samgöngumann- virkjum eru eitt öflugasta tækið sem stjórnvöld hafa á hverjum tíma til að efla byggð í landinu, segir í ályktun sem samþykkt var á sam- eiginlegum fundi bæjarráða Ólafs- fjarðar og Siglufjarðar nýlega. Fundurinn fagnar þeim áföngum við forval og útboð framkvæmda við jarðgöng milli Siglufjarðar og Ólafs- fjarðar um Héðinsfjörð sem unnið hefur verið við að undanförnu sam- kvæmt vega- og jarðgangaáætlun Alþingis. Fundurinn hvetur jafnframt til þess að áfram verði haldið á sömu braut og í engu hvikað frá áformum um sameiginlegt útboð jarðganga á Austur- og Norðurlandi. Áríðandi sé að allar tímasetningar samkvæmt jarðgangaáætlun standist. Til að há- markshagræðing fáist í sameigin- legu útboði sé mjög mikilvægt að væntanlegum verktaka við jarð- göngin verði ekki settar of þröngar skorður varðandi verkfyrirkomulag og tímasetningar.Bent er á að það sé orðið verulega knýjandi fyrir samfélögin á Mið-Norðurlandi að framkvæmdir geti hafist við Héðins- fjarðargöng sem fyrst, enda sé fljót- séður sá mikli ávinningur sem verð- ur af tilkomu þeirra, ekki síst hvað varðar sparnað í opinberum rekstri með sameiningu og öflugu samstarfi sveitarfélaga á svæðinu eins og ný- framlögð byggðaáætlun ríkisstjórn- arinnar um eflingu Eyjafjarðar- svæðisins gerir ráð fyrir. Ályktun bæjarráða Ólafsfjarðar og Siglufjarðar Bættar samgöngur efla byggðirnar SÖNGVÖKUM sumarsins í Minja- safnskirkjunni á Akureyri fer nú fækkandi. Mánudagskvöldið 19. ágúst kl. 20.30 verða flytjendur þau Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleif- ur Hjartarson úr Svarfaðardal. Sam- an ætla þau að birta tónleikagestum sýnishorn íslenskrar tónlistarsögu í tali og tónum. Sungið í Minja- safnskirkju ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.