Morgunblaðið - 17.08.2002, Side 18
SUÐURNES
18 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
RÁÐAMENN Reykjanesbæjar hafa
unnið markvisst að því að auka komu
erlendra ferðamanna í bæinn, m.a.
með kaupum á víkingaskipinu Ís-
lendingi. Með alþjóðaflugvöll í næsta
nágrenni og fjöldann allan af áhuga-
verðum stöðum ætti þetta að vera
leikur einn, eða hvað? Eitt er víst að
margir af þeim ferðamönnum sem
þangað koma nýta sér tjaldstæðið
Stekk við Njarðvík en misjafnt er
hvort þeir dvelja eitthvað á svæðinu
og skoða sig um eða hafa einungis
stuttan stans.
Blaðamaður Morgunblaðsins kom
við á tjaldstæðinu sl. miðvikudags-
morgun, um það leyti sem ferða-
mennirnir voru að stíga úr tjöldum.
Sumir voru nýkomnir og aðrir að
fara af landi brott og voru því mis-
fróðir um landið.
Dæmigerðir ferðamanna-
staðir heilla ekki
Bandaríkjamaðurinn Hermon
Hagopian var að gera reiðhjólið sitt
klárt fyrir daginn en hann hugðist
hjóla í Garðinn. Hann hefur ferðast
um landið sl. tvær vikur á hjólinu
sínu en ætlar að eyða síðustu dög-
unum á Suðurnesjum og skoða sig
um. „Ég hef nú haldið mig á Suður-
landinu í þessari ferð og lengst af
dvalið í Skaftafelli. Það er yndislegur
staður en ansi kaldur eins og landið
allt og búinn að vera blautur,“ sagði
Hermon. „Eftir að ég kom hingað
hjólaði ég til Grindavíkur og þaðan
Krísuvíkurhringinn með viðkomu í
Reykjanesvita. Þetta landslag er nú
öðruvísi en það sem ég er vanur
heima í L.A. en engu að síður mjög
fallegt og heillandi.“
Þegar blaðamaður spurði Hermon
hvort hann hefði heimsótt eitthvað af
þeim fjölmörgu stöðum sem erlendir
ferðamenn hafa heillast af á svæðinu
sagðist hann sneiða algjörlega hjá
slíkum stöðum og njóta frekar svæð-
isins í heild í rólegheitum á hjólinu.
– Hvernig hefur gengið að hjóla,
hafa ökumenn verið tillitssamir?
„Þetta hefur gengið mjög vel og
ökumenn verið duglegir að sveigja
fram hjá manni og sýna tillitssemi.
Það eina sem ég get kvartað undan
er þegar þeir ausa yfir mann
grjótinu, það gerir hraðinn,“ sagði
Hermon að lokum, setti á sig hjálm-
inn og rauk af stað.
Óvissa fram undan
Frönsku hjónin Mariane og Alain
Berthier og synir þeirra, Archibald,
tíu ára, og Nalo, fjögurra ára, komu
til landsins um miðja nótt og voru í
þann veginn að ljúka fyrsta morg-
unverðinum þegar blaðamann bar að
garði. Þau sögðust ekkert geta tjáð
sig um landið, væru hér í fyrsta sinn
og auk þess að byrja ferðina. „Enn
sem komið er líst okkur bara vel á
þetta. Við ætlum að vera hér í viku á
bílaleigubíl og keyra um. Við búumst
við að halda okkur einvörðungu á
Suðurlandsundirlendinu enda ekki
mikið hægt að gera á svona stuttum
tíma,“ sagði Alain. Þegar þau voru
spurð um undirbúning ferðarinnar
sagði Mariane að þau hefðu keypt
ferðina í gegnum Netið. „Þegar tvö
eldri barna okkar voru farin í ferða-
lag ákváðum við að skella okkur í eitt
líka. Við leituðum upplýsinga á Net-
inu og þetta var einn af þeim mögu-
leikum sem upp komu en ferðin var
einungis ákveðin með viku fyrirvara.
Við vitum lítið sem ekkert um landið
en þegar við litum á legu þess voru
hlýjar peysur með fyrstu flíkunum
sem fóru ofan í tösku,“ sagði Mar-
iane og togar í peysuna sína því til
sönnunar. Hún bætir við að hún sjái
nú að ekki hafi veitt af. Fjölskyldan
hugðist koma við í Bláa lóninu, en að
öðru leyti var ferðin óráðin.
Á tjaldstæðinu mátti einnig sjá
fjöldann allan af ferðamönnum með
bakpoka en að sögn Erlings Hann-
essonar, sem rekur Stekk, er helm-
ingur allra sem gista á svæðinu
þýskir bakpokaferðalangar. „Hingað
kemur mikið af Evrópubúum en
Þjóðverjar eru fjölmennastir.“
Þegar hann er spurður um aðsókn
segir Erlingur að hann hafi ekki far-
ið varhluta af samdrættinum sem
orðið hafi í ferðalögum fólks eftir
daginn örlagaríka, 11. september.
„Mér virðist þetta sumar ætla að
stefna í meðalár miðað við síðustu tíu
ár,“ sagði Erlingur og bætti við að
þær breytingar sem orðið hafa í
ferðaþjónustu í Reykjanesbæ
spiluðu einnig inn í. „Reykjanesbær
er ekki sá ferðamannavæni bær sem
hann var fyrir nokkrum árum. Und-
anfarin ár hafa ferðamenn ekki get-
að komist til og frá flugstöðinni og
Reykjanesbæ öðruvísi en í leigubíl-
um og það líkar þessum ferðamönn-
um illa, enda hleypir slíkt kostnaðin-
um upp úr öllu. Það sama er með
Bláa lónið eftir að SBK hætti að
bjóða upp á skipulagðar ferðir þang-
að. Það þarf að koma upp almenni-
legu samgöngukerfi hér í tengslum
við ferðamennina, t.d. „taxibus“ eins
og hugmyndir eru uppi um, ef við
ætlum ekki að halda áfram að horfa á
eftir ferðamönnunum í rútum á leið á
tjaldstæði höfuðborgarsvæðisins,“
sagði Erlingur að lokum.
Bærinn ekki
ferðamanna-
vænn líkt
og áður
Bandaríkjamaðurinn Hermon Hagopian ferðast á reiðhjóli og eyddi nokkrum dögum á Suðurnesjum.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Frönsku hjónin Mariane og Alain Berthier og synir þeirra, Archibald og
Nalo, eru á Íslandi í fyrsta sinn. Þau höfðu stuttan stans í Reykjanesbæ.
Undanfarin ár hafa ferðamenn ekki getað
komist milli flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
og Reykjanesbæjar öðruvísi en í leigubílum.
Þó gista margir erlendir gestir á tjaldstæði
bæjarins yfir sumartímann. Svanhildur
Eiríksdóttir ræddi við ferðamenn og um-
sjónarmann tjaldstæðisins.
Reykjanesbær
LÍTIL trilla eyðilagðist er í henni
kviknaði á þurru landi fyrir utan
verkstæði í Vogum á Vatnsleysu-
strönd rétt fyrir klukkan fjögur á
fimmtudag. Að sögn lögreglunnar í
Keflavík var verið að vinna við trill-
una þegar eldurinn varð laus og eru
eldsupptök rakin til slípirokks.
Stuttan tíma tók að slökkva eldinn.
Fyrir liggur, að sögn lögreglunn-
ar, að báturinn sé ónýtur, en um var
að ræða frambyggðan sex tonna
plastbát, í eigu heimamanna í Vog-
um.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Greiðlega tókst að slökkva eldinn en báturinn er ónýtur.
Trilla eyði-
lagðist í eldi
Vogar
FULLTRÚI minnihluta í sveitar-
stjórn Vatnsleysustrandarhrepps,
Halldóra Magný Baldursdóttir,
óskaði á fundi hreppsnefndar í
gær eftir skýringum á atvinnu-
málum unglinga í Vogum í sumar.
Í fyrirspurn sem Halldóra lagði
fram segir að á sama tíma og ung-
lingar sveitarfélagsins gengu um
atvinnulausir hafi verið ráðinn
verktaki úr Reykjanesbæ til að
inna af hendi störf sem ungling-
arnir gátu sinnt. „Þessi verktaki
réð til þessara starfa ungmenni úr
sínu byggðarlagi,“ segir í fyrir-
spurninni.
„Ég tel að sveitarstjórn Vatns-
leysustrandarhrepps hafi borið
skylda til að setja ákvæði um það í
verksamning við umræddan verk-
taka að hann réði ungmenni úr
Vatnsleysustrandarhreppi til
starfa, ef hann þyrfti á annað borð
að ráða ungmenni til starfa.“
Telur Halldóra að með þessu
hafi hagsmunum sveitarfélagsins
„gróflega verið kastað fyrir róða af
fádæma heimsku, eða vanþekkingu
á félagslegum þörfum sveitarfé-
laga, eins og t.d. að skapa störf
fyrir þegna sína, nema hvort-
tveggja sé, eins virðist mér að ver-
ið sé að þjóna hagsmunum ein-
hvers annars aðila en sveitar-
félagsins sem ykkur ber þó skylda
til að gæta“, líkt og segir í fyrir-
spurninni.
Hreppsnefnd Vatnsleysustrand-
arhrepps gaf þau svör á fundinum
að skýringar myndu liggja fyrir á
næsta fundi nefndarinnar.
Minnihlutinn segir illa staðið að atvinnu ungmenna
Verktaki réð unglinga
úr öðru byggðarlagi
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Minnihlutinn vill skýringar á atvinnumálum unglinga í Vogum.
Vogar