Morgunblaðið - 17.08.2002, Side 28

Morgunblaðið - 17.08.2002, Side 28
ERLENT 28 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ SVO virðist sem vaxandi ágreining- ur sé meðal bandarískra repúblik- ana um áætlanir og yfirlýsingar George W. Bush, forseta Bandaríkj- anna, um árás á Írak. Í hópi efa- semdamannanna eru ýmsir kunnir menn á þingi, í utanríksráðuneytinu og embættismenn í fyrri ríkisstjórn- um en þeim finnst sem Bandaríkja- stjórn sé hvorki undir það búin að fara í stríð, né hafi hún fært haldbær rök fyrir nauðsyn þess. Meðal þessara manna eru þeir Henry A. Kissinger, fyrrverandi ut- anríkisráðherra, og Brent Scow- croft, fyrsti þjóðaröryggisráðgjafi George Bush eldra. Þeir vilja vissu- lega, að Saddam Hussein, forseta Íraks, verði bolað burtu með ein- hverjum hætti en óttast, að yfirlýs- ingar og aðgerðir Bush forseta verði til að reka fleyg á milli Bandaríkja- manna og bandamanna þeirra, valda aukinni ókyrrð í Miðausturlöndum og skaða langtímahagsmuni Banda- ríkjanna. Benda þeir á, að ríkis- stjórnin hafi ekki fært neinar sönnur á, að Bandaríkjunum stafi hætta af Írak. Var ítarlega fjallað um þessi mál í The New York Times í gær. Powell reynir að snúa á haukana Colin Powell utanríkisráðherra, sem átti fund með Kissinger fyrr í vikunni, og ráðgjafar hans hafa ákveðið, að best sé að beina um- ræðunni á alþjóðavettvangi að skip- an mála í Írak að Saddam Hussein gengnum, ekki bara til að tryggja lýðræðislega stjórnarhætti þar í landi, heldur ekki síður til að klekkja á haukunum í ríkisstjórninni og draga úr stríðsæsingunum. „Við, sem lítum ekki á innrás sem trúaratriði, heldur bara sem hugsan- legan kost, viljum huga að afleiðing- unum, að því, sem við tekur. Ef menn eru ekki tilbúnir til þess, eiga þeir ekki að hafast að,“ var haft eftir háttsettum manni, sem kemur að mótun bandarískrar utanríkis- stefnu. Samstaðan gegn hryðjuverkum í hættu Scowcroft, sem átti þátt í að byggja upp breiða, alþjóðlega sam- stöðu gegn Írak í Persaflóastríðinu, segir í grein, sem birtist í gær í The Wall Street Journal, að „árás á Írak nú mun skaða og jafnvel eyðileggja hina alþjóðlegu samstöðu í barátt- unni gegn hryðjuverkum“. Þessi gagnrýni ætti að ná eyrum Bush því að Scowcroft var í raun einn af Bush-fjölskyldunni í stjórnartíð Bush eldra og náinn vinur hann alla tíð síðan. Chuck Hagel, öldungadeildar- þingmaður repúblikana í Nebraska, segir, að Powell og næstráðandi hans, Richard L. Armitage, hafi var- að Bush við árás á Írak án mikils, al- þjóðlegs stuðnings en háttsettir embættismenn í Hvíta húsinu og í utanríkisráðuneytinu vilja þó ekki við það kannast. Lawrence S. Eagle- burger, sem var utanríkisráðherra í stuttan tíma í stjórn Bush eldra, var- ar líka við vanhugsaðri árás á Írak. Í viðtali við ABC News sagði hann, að hefði bandaríska leyniþjónustan það ekki alveg á hreinu, að Saddam Hussein réði yfir gjöreyðingarvopn- um, þá skildi hann ekki hvers vegna ráðast ætti á Írak á sama tíma og bandamenn Bandaríkjanna væru því andvígir. Undir þetta tekur Dick Armey, leiðtogi meirihluta repúblik- ana í fulltrúadeildinni. Trúverðugleiki Bush að veði Í grein sinni í The Wall Street Journal segir Scowcroft, að verði lit- ið svo á, að Bandaríkjastjórn hafi snúið baki við deilu Ísraela og Pal- estínumanna til að geta jafnað um Saddam Hussein, muni það valda „ofsalegri reiði í okkar garð“. Segir hann, að næstum öll heimsbyggðin sé á móti árás á Írak nú og þess vegna yrðu Bandaríkjamenn að standa einir að henni með tilheyr- andi erfiðleikum og kostnaði. Richard N. Perle, fyrrum hátt- settur embættismaður í stjórn Ron- alds Reagans og einn af þeim, sem reka harðastan áróður fyrir árás á Írak, segir yfirlýsingar Scowcrofts rangar. „Ef ekki verður farið í stríð við Íraka eftir allar yfirlýsingar forset- ans mun trúverðugleiki hans rjúka út í veður og vind og baráttan gegn hryðjuverkum verða fyrir miklu áfalli,“ sagði Perle og bætti við, að það væri barnalegt að halda, að Bandaríkjamenn gætu leyst hálfrar aldar gamla deilu Ísraela og araba. „Engar sannanir“ Öldungadeildarþingmaðurinn Chuck Hagel, sem varð einna fyrst- ur til að efast um stefnu Bush í Íraksmálum, sagði í vikunni, að CIA, bandaríska leyniþjónustan, hefði „alls engar sannanir“ fyrir því, að Írakar myndu bráðum ráða yfir kjarnavopnum. Hann tekur undir það með Kissinger, að ráðist Banda- ríkjamenn að fyrra bragði á ríki, sem eiga kjarnavopn, geti það hvatt Indverja til að ráðast á Pakistani og skapað aðstæður fyrir Ísraela til að reka alla Palestínumenn frá Vest- urbakkanum og Gaza. „Innrás í Írak er auðveld en erf- iðara að komast þaðan aftur,“ sagði Hagel og bætti við: „Kannski að Perle vilji vera í fararbroddi þegar herinn heldur inn í Bagdad.“ Bandaríkjastjórn að lenda í vandræðum heimafyrir með stefnuna í málefnum Íraks Vaxandi kurr í röðum repúblikana Reuters George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, flytur ávarp í fyrradag við Rushmore-fjallið í Suður-Dakóta. GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti bar sig vel á ráðstefnu um ástand efnahagsmála sem haldin var í Waco í Texas í byrjun vikunn- ar. Þar kvaðst hann „ótrúlega bjart- sýnn“ á að senn horfði til betri tíðar í efnahagsmálum vestra. Þau vandamál, sem að steðjuðu í efna- hagsmálunum, væru aðeins tíma- bundin. Bush sagði að skýringin á efna- hagsörðugleikunum væri þríþætt. Í fyrsta lagi hefði samdráttur í efna- hagslífinu verið yfirvofandi er hann tók við embætti forseta Bandaríkj- anna í upphafi árs 2001. Síðan hefðu árásirnar á Bandaríkin 11. septem- ber skiljanlega haft slæmar afleið- ingar og í þriðja lagi hefðu nýverið komið upp hneykslismál – sem m.a. tengdust orkurisanum Enron og fjarskiptafyrirtækinu WorldCom – sem drógu mjög úr trú fjárfesta á bandarískan efnahag. Óróleikinn sem af því hefði hlotist skilaði sér síðan út á markaði með slæmum af- leiðingum fyrir efnahagslífið. Allt voru þetta atriði sem segja má að Bush beri enga sök á. Und- anfarna mánuði hefur sú kenning hins vegar fengið byr undir báða vængi að það lið manna, sem Bush hefur sér til ráðgjafar í efnahags- málunum, sé einfaldlega ekki nógu vel skipað. Skýringin á miklum sveiflum á mörkuðum á Wall Street og annars staðar sé m.a. fólgin í því að fjárfestar beri ekki traust til ráðamanna hvað efnahagsmálin varðar. Segja sumir fréttaskýrendur að vandinn sé sá að Bush hafi veika ráðgjafa í efnahagsmálum, sem valdi því síðan að hann neyðist oft til að taka þau í eigin hendur. Það kunni ekki góðri lukku að stýra. „Hann segir eitthvað og samstundis verður verðhrun á mörkuðum,“ segir Stephen Moore, forseti sam- taka sem styðja framboð íhalds- samra repúblikana, í samtali við The New York Times. „Ég er ekki að segja að vandinn á mörkuðum sé honum að kenna. En orð hans hafa engan veginn þau áhrif að fjárfestar hlaupi til og taki að kaupa hlutabréf á ný.“ Fjármálaráðherrann O’Neill í litlum metum „Forsetanum hefur augsýnilega ekki tekist nógu vel upp,“ segir repúblikaninn Chuck Hagel, sem situr í öldungadeild Bandaríkja- þings. Rifjar hann upp að í tíð Bills Clintons Bandaríkjaforseta hafi menn ávallt verið sér meðvitandi um að að baki forsetanum stóð traustur maður, fjár- málaráðherrann Ro- bert Rubin. „Ég held ekki að að- ilar á mörkuðum hafi slíka trú á ráðgjöfum núverandi forseta.“ Oftar en ekki nefna menn Paul O’Neill, fjármálaráðherra í rík- isstjórn Bush, til sög- unnar þegar rætt er um akkillesarhæla í efnahagsstefnu forsetans. Er óhætt að segja að fáir virðast hafa trú á því að O’Neill, sem var áður aðalforstjóri álrisans Alcoa, verði langlífur í embætti. Bush hefur þó margoft lýst yfir full- um stuðningi við O’Neill. Axarsköft O’Neills í embætti hafa verið fjölmörg. Þykir ráð- herrann helst til fljótfær í tilsvör- um, stundum með þeim afleiðingum að skyndilegt fall hefur orðið á mörkuðum á Wall Street. Sjálfur hefur O’Neill látið hafa eftir sér að hann skilji ekkert í því hvers vegna fjárfestar hafi svo mik- inn áhuga á því hvað hann segi. Þóttu þau ummæli ekki vekja tiltrú á ráðherranum eða gefa til kynna að hann væri sér meðvitandi um það hversu mikla ábyrgð hann bæri. Nú síðast voru það Suður-Ameríkuríkin sem höfðu tilefni til að reiðast O’Neill en hann var þar á ferða- lagi nýverið. Lét O’Neill hafa eftir sér, skömmu áður en hann hélt í för sína, að ef Suður-Ameríkuþjóð- irnar ætluðust til þess að Bandaríkin eða Al- þjóðagjaldeyrissjóð- urinn (IMF) veitti þeim aðstoð, í þeim miklu kröggum sem þau eru nú, yrðu þau „að setja ný lög og nýj- ar reglur sem tryggja að þegar fjár- hagsaðstoðin berst verði hún til góðs en streymi ekki bara þegar úr landi, inn á bankareikninga í Sviss“. Þótti O’Neill hafa móðgað vænt- anlega gestgjafa sína í Argentínu, Brasilíu og Úrúgvæ gróflega með þessum ummælum, enda vart hægt að skilja þau öðruvísi en svo, að hann teldi flesta ráðamenn í þess- um heimshluta gjörspillta. „Það eru ansi margir sem vildu helst að hann [O’Neill] væri horfinn [úr embætti] innan klukkustund- ar,“ hefur New York Times eftir ónafngreindum en áhrifamiklum aðila úr viðskiptalífinu, sem kýs Repúblikanaflokkinnn. Segir blaðið að margir repúblikanar hafi tjáð þá skoðun sína að skipta verði um fjár- málaráðherra eftir þingkosning- arnar í nóvember, en þá er líklegt að Bush taki að beina sjónum sínum að því hvernig hann tryggi sér end- urkjör í forsetakosningunum sem halda á haustið 2004. Telja þó sumir að vandinn felist ekki síst í því að fáir af nánustu ráð- gjöfum Bush í efnahagsmálum séu hæfir til að takast á við ráðherra- stólinn, sem Paul O’Neill nú situr í. Er fullyrt að nú séu uppi áætlanir að fá Dick Cheney varaforseta til að taka að sér rullu í þessum efnum en það ætti að draga eitthvað úr reynsluleysinu, sem virðist hrjá efnahagsmálateymi Bush. Vill ekki hljóta sömu örlög og Bush eldri Ljóst er allavega að Bush er stað- ráðinn í að hljóta ekki sömu örlög og faðir hans, sem mistókst að tryggja sér annað kjörtímabil á for- setastóli. Bush eldri naut einmitt fáheyrðra vinsælda meðal banda- rísku þjóðarinnar er kjörtímabil hans var u.þ.b. hálfnað – og skýrðist það m.a. af stríðsrekstrinum við Persaflóa 1991 – en tapaði engu að síður fyrir Clinton um haustið 1992, m.a. vegna þess að niðursveifla tók að plaga bandarískan efnahag. Segja fréttaskýrendur að ráð- stefnan í Waco í Texas í vikunni hafi verið sett á svið einmitt með það fyrir augum að senda þau skilaboð að forsetinn væri fyllilega í stakk búinn til að ráða fram úr vandanum. Samdráttur í efnahags- lífinu hefur sett svip sinn á forsetatíð George W. Bush. Eins og fram kemur í grein Davíðs Loga Sigurðs- sonar telja þó ekki allir að endalaust sé hægt að kenna utanaðkomandi öflum um. Paul O’Neill david@mbl.is Ráðgjafar Bush ekki vandanum vaxnir?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.