Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 20
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 20 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ FYRIRTÆKIÐ IB ehf. á Selfossi flutti nýlega inn nýjan, öflugan og fullkominn slökkvibíl með nýrri tækni sem kallast „One Seven“ og byggist á því að sjöfalda það vatns- magn sem notað er. Fyrirtækið gerði samning við umboðsaðilann í Þýskalandi, Schmitz, um smíði bíls- ins og sendi þangað Ford-bíl sem þýska fyrirtækið smíðaði yfir og setti í hann búnaðinn. „Með þesum bíl dettum við inn í áratuga þróun þessa þýska fyrir- tækis og fáum einkaleyfi á að smíða á bílana hér heima. Með kaupum á bílnum og þessum samningi fáum við líka hönnunina á yfirbygging- unni frá Schmitz Allir aðrir bílar í þessum stærðarflokki, sem við mun- um selja, verða því smíðaðir á okkar vegum hér á landi,“ sagði Ingimar Baldvinsson, framkvæmdastjóri IB ehf. Hann sagði einnig að fyrirtækið væri með útflutning á bílnum til Noregs í undirbúningi ásamt því að bjóða upp á innflutning á stærri slökkvibílum frá Schmitz. Notaður við slökkvistörf í Fákafeni Ingimar Baldvinsson fór með bíl- inn í slökkviaðgerðir í stórbrunanum í Fákafeni 9 í Reykjavík á dögunum. Þar virkaði bíllinn mjög vel með öðr- um tækjum sem þar voru í notkun. Nýi bíllinn er hugsaður sem öfl- ugur undanfari með lágmarks út- kallstíma þar sem ef til vill þarf að fara langar útkallsleiðir. Hann er 19 sekúndur í 100 km hraða og er með 150 km hámarkshraða. Í yfirbygg- ingunni er 1.000 lítra vatnstankur og síðan er „One Seven“-tækjabúnaður til staðar í bílnum en það er slökkvi- tækni sem blandar saman vatni og nýrri umhverfisvænni tegund af slökkvifroðu sem gerir að verkum að hver vatnsdropi sjöfaldast. Þeir 1.000 lítrar af vatni sem bíllinn ber með sér er á við 7 þúsund lítra af vatni með venjulegri slökkvitækni sem notuð er. Auk þess eru í yf- irbyggingunni rafstöð, ljósamastur og allur helsti búnaður, þannig að bíllinn getur líka nýst sem útkallsbíll á slysstað þegar umferðarslys verða. Ingimar bendir sérstaklega á að kastlengd froðunnar sé í kringum 25 metrar og hægt að koma henni við þó aðstæður séu þröngar, sem komi sér vel í bruna. Þá bendir hann á að froðan í bílnum brotni niður að 97% á 14 dögum á meðan önnur froða sem notuð er sé eitruð. Þá segir hann augljóst að þessi bíll taki öðr- um tækjum fram, því með þeirri tækni sem Þjóðverjarnir hafi þróað þurfi ekki að þyngja bílana með stórum dælum og vatnsþörf við slökkvistarfið verði ekki eins mikil. IB ehf. er á leið í hringferð um landið með bílinn til að kynna hann og hina nýju slökkvitækni frá Schmitz fyrir slökkviliðum og brunavörnum sveitarfélaga. Í kynningarefni um One Seven- tæknina er bent á að tækjabúnaðinn er hægt að fá færanlegan í bíla, í nýja slökkvibíla og í aðra bíla. Einn- ig er hægt að fá staðbundin tæki til að hafa í byggingum og nota vatn og loftpressur sem fyrir eru í húsunum og fá slík tæki bæði handvirk og sjálfvirk. Þá er bent á að froðan sé góð vörn fyrir muni og hús vegna góðrar viðloðunar. Þetta segir Ingi- mar að sé góður kostur til athugunar fyrir fyrirtæki, stofnanir og ekki síst söfn eftir þá áminningu sem síðasti stórbruni bar með sér í þeim efnum. Nýr slökkvibíll fluttur inn frá Þýskalandi Notar slökkvitækni sem sjöfaldar vatnsmagnið Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ingimar Baldvinsson, framkvæmdastjóri IB ehf. á Selfossi, með nýja slökkvibílinn með One Seven-tækninni sem fyrirtækið flutti inn. Selfoss HAFNARSJÓÐUR Þorlákshafnar mun í ár gangast fyrir hafnardegi eins og undanfarin ár. Að þessu sinni varð dagurinn í dag, 17. ágúst fyrir valinu. Á síðasta ári voru hafnardag- arnir tveir í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins. Að þessu sinni verður dagskráin með hefðbundnu sniði og hefst kl. 10 með golfmóti fyrir alla bæjarbúa og dorgveiði fyrir yngri kynslóðina. Boðið verður upp á skemmtisiglingu kl. 13 en kl. 13.30 hefst síðan dagskrá við Tollvöruhúsið á Skarfaskeri, þar verður m.a. boðið upp á leiktæki, markað, fyrirtæki verða með kynn- ingu, töfrabrögð, harmonikkuleik, börnum boðið á hestbak, veitingar og fleira og fleira. Í Ráðhúsi Ölfuss verður sýning á grafískri hönnun, sýnd verða verk þeirra Ágústu Ragnarsdóttur og Þórarins Friðriks Gylfasonar og verður sýningin opin til 30. ágúst. Um kvöldið verður svo brenna og fjöldasöngur í fjörunni í Skötubót, forsöngvari verður Árni Johnsen. Að lokum leikur svo hljómsveitin Sixties fyrir dansi í Tollvörugeymsl- unni við Skarfasker. Hafnar- dagur í Þorláks- höfn Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson Hafnardagurinn hefur ávallt dregið að sér fjölda fólks. Þorlákshöfn LEIRLISTARKONAN Hrönn Waltersdóttir hefur nú rekið verk- stæði sitt Gallerí Smiðju í rúmt ár. Hrönn mótar skrautmuni og nytja- hluti úr steinleir og postulíni auk þess sem hún vinnur muni úr bræddu gleri. Þá málar hún myndir með vatnslitum og olíu. Á verkstæðinu hefur hún einnig verslun, þannig að fólk sem kemur í verslunarerindum getur einnig fylgst með vinnu Hrannar á verk- stæðinu. Í versluninni er ekki ein- ungis hægt að fá listmuni, Hrönn flytur inn frá Þýskalandi ofna, leir, glerunga oxíða o.fl. sem er til sölu. Hrönn hefur boðið upp á 16 tíma námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Í fyrravetur var hún með námskeið fyrir eldri borgara og í haust áætlar hún að vera með sér- stakt unglinganámskeið. Þegar Hrönn er spurð að því hvort allir geti unnið í leir segir hún að enginn hafi farið tómhentur heim af námskeiði hjá henni og oft er fólk búið að búa sér til allt upp í sjö hluti. Á miðvikudögum er vinnustofan opin og þá eru allir velkomnir, sem hafa grunn í leirlist. Fólk getur kom- ið og keypt sér leir, fengið aðstoð við að vinna listaverk og síðan brennir Hrönn verkin. Uglur, englar og blóm Hrönn er orðin þekkt hér í bænum fyrir „uglurnar“ sínar sem hún hann- aði í upphafi fyrir foreldrafélag grunnskólans. Foreldrar hafa gefið útskriftarnemendum uglur, þegar þeir kveðja skólann sinn. Einnig hef- ur hún gert minningarplatta úr leirnum, sem eru orðnir vinsælir. En hvað ætli sé skemmtilegast? Því svarar Hrönn um hæl: „Skemmtilegast er að vinna per- sónuleg verk.“ Fólk getur komið, pantað verk og komið með hug- myndir. Hrönn vinnur svo úr hug- myndunum og skreytir verkið með myndum, hlutum og/eða atburðum sem tengjast manneskjunni sem á að fá listaverkið. Það sem einkennir mörg verka Hrannar eru englar, þá hefur hún notað mikið og segir að hún noti þá líka í auglýsingar sínar. „Svo eru það líka blómin,“ segir Hrönn og brosir. Mótar skrauthluti og heldur námskeið Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Hrönn Waltersdóttir í verslun sinni sem einnig er verkstæði. Hveragerði HVERAGERÐISBÆR hefur fest kaup á landi Aage Michelsen, sem liggur vestan við Hótel Örk. Stærð landsins er þrír hektarar og á því eru tvö íbúðarhús, annað nýtt og það eldra byggt 1968, auk gamalla útihúsa. Að sögn Orra Hlöðverssonar bæjarstjóra hefst nú skipulags- vinna, þar sem ákveðið verður hvernig landið verður nýtt. Árni Magnússon, formaður bæjarráðs, sagði að þarna yrði að stofni til íbúðarbyggð en óákveðið væri hvort leikskóli sem fyrirhugað var að risi á þessu svæði yrði þarna eða aðeins norðar þar sem fram- kvæmdir við gatnagerð eru hafnar. Þar ætla meðal annarra Búmenn að byggja íbúðir. Nýja landið liggur að Suður- landsvegi og hefur efni úr upp- greftri verið notað til þess að reisa hljóðmön til verndar íbúum nýja hverfisins gegn hljóðmengun frá þjóðveginum. Ekki fékkst uppgefið kaupverð landsins en þeir Árni og Orri sögðu það sanngjarnt. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Árni Magnússon, formaður bæjarráðs, og Orri Hlöðversson bæjarstjóri virða fyrir sér hið nýja byggingarland Hvergerðinga. Hveragerðisbær kaupir byggingarland Hveragerði BYGGÐASAFNI Árnesinga var færð einstæð gjöf, lista- verk eftir Agnesi Lunn, mið- vikudaginn 14. ágúst. Tvö verkanna eru gifsmyndir af íslenskum hestum og tvær stórar vatnslitamyndir, önn- ur af lestarferð með afurðir í kaupstaðinn og hin af lest á leið heim með kaupstað- arvarninginn. Gefandinn var Guðbjörg Haraldsdóttir Bay, sonardóttir Péturs Guð- mundssonar sem var skóla- stjóri Barnaskólans á Eyr- arbakka í meira en aldarfjórðung. Guðbjörg hefur búið í Danmörku um langt skeið. Listaverkin sem hún nú færði safninu að gjöf keyptu Guðbjörg og eiginmaður hennar af ekkju Lefoliis kaupmanns, Alexöndru, sem var fermingarsystir tengda- móður Guðbjargar og þann- ig kunnleikar á milli. Agnes Lunn dvaldi á Eyr- arbakka á hverju sumri í byrjun 20. aldar og byggðust tengsl henn- ar við Eyrarbakka á vináttu henn- ar við kaupmannsfjölskylduna Lefolii. Á Eyrarbakka gekk hún undir nafninu fröken Lunn, en hún hét fullu nafni Agnes Catinka Wil- helmine Lunn, virtur danskur listamaður. Fröken Lunn virðist hafa tekið ástfóstri við íslenska hestinn, því af honum gerði hún margar gifsmyndir og málverk. Í grein eftir Ingu Láru Baldvins- dóttur í Árbók Listasafns Sig- urjóns Ólafssonar um fröken Lunn leiðir hún líkur að því að frökenin hafi haft mikil áhrif á Sigurjón enda var hún að móta og mála í næsta nágrenni við heimili hans í Einarshöfn þegar hann var að alast upp. Byggðasafni Árnes- inga færð góð gjöf Morgunblaðið/Óskar Magnússon Guðbjörg Haraldsdóttir Bay, sem gaf safninu listaverkin, og Lýður Pálsson. Eyrarbakki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.