Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 25
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 25 STJÓRNIR Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankans hf. og Þróunarfélags Íslands hf. undirrituðu áætlun um sameiningu félaganna í gær. Sam- runinn miðast við 1. júlí 2002 og tek- ur sameinað félag við öllum rekstri, eignum og skuldum, réttindum og skyldum beggja félaga frá þeim tíma. Framkvæmdastjóri sameinaðs félags verður Ásmundur Stefánsson, núverandi framkvæmdastjóri EFA. Í tilkynningu um sameininguna kemur fram að samkomulag hafi náðst um að útistandandi hlutafé í hvoru félagi sé metið þannig að hlut- hafar EFA verði eigendur að 55% hlutafjár í hinu sameinaða félagi og hluthafar ÞFÍ verði eigendur 45% hlutafjárins. Rætt var um samein- ingu félaganna seint á síðasta ári en upp úr slitnaði í janúar. Viðræður voru svo teknar upp aftur í upphafi síðasta mánaðar. Gert er ráð fyrir að boðað verði til hluthafafunda um sameininguna í báðum félögum í lok september. „Það voru sameiningarviðræður í fyrrahaust sem var slitið þar sem mikið bar í milli hjá aðilum í mati á eignum. Það var hins vegar ljóst að vilji var fyrir því hjá mörgum lyk- ilhluthöfum í báðum félögum að sam- eina félögin. Þetta eru félög sem eru að vinna á sama markaði og nýtt sameinað félag verður sterkara og öflugra en þau eru hvort um sig,“ segir Ásmundur. Skiptahlutföll ásættanleg Stjórnarformaður ÞFÍ, Þorgeir Eyjólfsson, tekur í sama streng. „Það eru að stórum hluta sömu eig- endur á bak við félögin. Það er ljóst að þarna má ná fram hagræðingu en um leið auka möguleika á því að nýta tækifæri á markaði og auka ávinn- ing,“ segir Þorgeir. Að sögn Ásmundar telja stjórnir beggja félaganna að þau skiptahlut- föll sem menn hafa komið sér saman um séu viðunandi fyrir báða aðila. „Ég held að sameiningin komi hlut- höfum beggja félaga til góða hvað sem skiptahlutföllum líður. Ávinn- ingurinn af því að ná stærra og öfl- ugra félagi er það mikill að hann ætti að vega upp það sem kann að bera í milli á mati manna á eignum félag- anna hvors um sig,“ segir Ásmundur Stefánsson. EFA og Þróunarfélag Íslands sameinast ÞRÓUNARFÉLAG Íslands hf. skil- aði 153 milljónum króna í hagnað á fyrri helmingi ársins miðað við 1.409 milljóna tap á sama tímabili í fyrra. Verðlækkun hlutabréfa í eigu félags- ins var 2% á tímabilinu, segir í til- kynningu. Verðhækkun þeirra hluta- bréfa í eigu félagsins sem skráð eru á Aðallista Kauphallar Íslands nam 10,2%. Innleystur hagnaður vegna sölu hlutabréfa nam 36 milljónum króna en óinnleystur hagnaður 8 milljónum króna. Alls nam gengis- hagnaður hlutabréfa á fyrri helmingi ársins því 28 milljónum króna. Þró- unarfélagið keypti hlutabréf á tíma- bilinu fyrir 144 millljónir og seldi fyrir 127 milljónir króna. Uppgjörið er ekki samanburðar- hæft við milliuppgjör síðasta árs þar sem reikningsskilaaðferðum félags- ins hefur verið breytt í samræmi við breytingar á lögum um ársreikninga. Tölurnar sem fram koma í milliupp- gjörinu fyrir fyrri helming þessa árs eru þannig ekki verðleiðréttar eins og gert var á síðasta ári. Hefði óbreyttum aðferðum verið beitt hefði hagnaður félagsins eftir skatta minnkað um 28 milljónir króna og numið 125 milljónum króna. Eignir félagsins við lok tímabilsins námu 5.275 milljónum króna, þar af er hlutabréfaeign 3.919 milljónir króna. Eigið fé Þróunarfélagsins nemur 2.025 milljónum króna og eig- infjárhlutfall er 38,3%. Skuldir fé- lagsins voru samtals 3.250 milljónir króna í júníok og höfðu minnkað um rúm 8% frá áramótum. Þróunar- félagið með 153 millj- óna hagnað HAGNAÐUR af rekstri Eignar- haldsfélagsins Alþýðubankans hf., EFA, nam 131 milljón króna á fyrri helmingi ársins samanborið við 531 milljónar króna tap á sama tíma á síðasta ári. Hrein vaxtagjöld sam- stæðunnar námu 26 milljónum króna en voru tæpar 2 milljónir 2001. Gengishagnaður af skuldum og eign- um í erlendri mynt var 173 milljónir króna en gengistap á fyrri helmingi ársins 2001 var 304 milljónir króna. Heildareignir félagsins í júnílok námu 6.898 milljónum króna og hækkuðu um 5% frá áramótum. Eigið fé EFA nam 2.951 milljón króna. Eiginfjárhlutfall félagsins af niðurstöðu efnahagsreiknings í júní- lok var 42,7% samanborið við 43,9% í byrjun árs. Sé hins vegar miðað við 10. grein laga um lánastofnanir aðr- ar en viðskiptabanka og sparisjóði var hlutfallið, svokallað CAD-hlut- fall, 27,1% miðað 29,1% um áramót. EFA nýtti heimild í lögum til að beita verðleiðréttingum við reikn- ingsskil. Hefði það ekki verið gert hefði hagnaður tímabilsins verið 15 milljónum, eða um 11,5%, lægri og eigið fé 32 milljónum króna hærra. Hagnaður EFA 131 milljón króna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.