Morgunblaðið - 17.08.2002, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Grunnskóli Vesturbyggðar
Vegna forfalla vantar
kennara við Patreksskóla. Um er að ræða al-
menna kennslu, handmennt og heimilisfræði.
Einnig vantar stuðningsfulltrúa í Birkimelsskóla
og Patreksskóla.
Upplýsingar veita Ragnhildur Einarsdóttir,
skólastjóri, í s. 691 5041 og Nanna Sjöfn Pét-
ursdóttir, aðstoðarskólastjóri, í s. 864 1424.
Stuðningsfulltrúar
Óskað er eftir stuðningsfulltrúum í sérdeild
Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Starfið er fólgið
í því að aðstoða líkamlega fatlaðan nemanda
og einhverfa nemendur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra og Starfsmannafélags
ríkisstofnana.
Umsóknir um starfið skulu sendar til
Fjölbrautaskólans í Garðabæ við Skólabraut,
210 Garðabæ eða í tölvupósti á netfangið:
fg@fg.is .
Ekki er nauðsynlegt að sækja um á sérstökum
eyðublöðum. Í umsóknum skal greina frá
menntun og fyrri störfum.
Öllum umsóknum verður svarað skriflega.
Allar nánari upplýsingar veita Guðrún I.
Hálfdanardóttir, kennslustjóri, og Anna G.
Hugadóttir, námsráðgjafi, í síma 520 1600.
Skólameistari.
Sýslumaður Snæfellinga
Skrifstofustarf
Á skrifstofu sýslumanns Snæfellinga í Stykkis-
hólmi er laust til umsóknar starf skrifstofu-
manns.
Helstu verkefni eru almenn skrifstofustörf og
gjaldkerastörf. Tölvukunnátta er nauðsynleg.
Til að byrja með verður ráðið í starfið til eins
árs frá 9. september 2002.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Steinsdóttir,
skrifstofustjóri, á skrifstofunni á Borgarbraut
2 eða í síma 430 4100.
Skriflegar umsóknir ber að senda til skrifstof-
unnar á Borgarbraut 2, Stykkishólmi, fyrir 2.
september 2002.
Sýslumaður Snæfellinga,
16. ágúst 2002.
Ólafur K. Ólafsson.
Norræni genbankinn fyrir húsdýr (Nordisk
Genbank Husdyr - NGH) er samstarfsverk-
efni á vegum Norrænu ráðherranefndar-
innar (NMR). Starfsmenn eru hluti af áætl-
un NMR um verndun erfðalinda á Norður-
löndum. Samkvæmt eigin áætlun NGH fyr-
ir 2002-2003 á NGH að tengja saman
þróunarstarf um verndun og nýtingu
erfðalinda í norrænu búfé þar sem kjör-
orðið er: „Verndun og sjálfbær hagnýting
erfðalinda skapar verðmæti."
NGH er til húsa við Institutt for husdyrfag,
við Norska landbúnaðarháskólinn (NLH) í
Ási í Noregi. NLH er formlegur vinnuveit-
andi starfsmanna NGH samkvæmt sér-
stökum samningi við NMR.
Staða verkefnisstjóra hjá Norræna genbank-
anum fyrir húsdýr er ný og laus til umsóknar.
Verkefnisstjóri skal þróa og vinna að áætlun-
um um rannsóknir og tækni, verkefnum, sem
geta stuðlað að stjórnun á erfðaauðlindum
húsdýra á Norðurlöndum, og taka þátt í áfram-
haldandi þróun starfsemi NGH.
Verkefnisstjóri
Starfssvið:
■ Vinna að uppbyggingu og samhæfingu
tengslanets (netverk) sem stuðlar að þekk-
ingaraukningu og tækniþróun í því miði að
koma á sjálfbærri stjórnun erfðaauðlinda
búfjár á Norðurlöndum.
■ Vinna að áætlunum og verkefnum, sem
byggja upp árangursríkt samstarf um stjórn-
un á breytileika búfjárerfðalinda til hagnýt-
ingar og hagkvæmrar verndunar norrænna
húsdýrategunda.
■ Stuðla að áframhaldandi þróun á starfsemi
NGH og skapa gott og uppbyggilegt sam-
starf milli aðila á Norðurlöndum sem vinna
á þessu sviði.
■ Gera verkefnavinnuna að sterkum og skil-
virkum þætti í starfsemi NGH og tryggja að
hún sé í samræmi við yfirlýsta áætlun stofn-
unarinnar um verndun erfðalinda á norð-
urslóðum.
■ Leggja til fagefni til upplýsingar og fræðslu.
Hæfniskröfur:
■ Menntun og reynsla á sviði rannsókna og
þróunar, auk verkefnisstjórnar.
■ Háskólamenntun með dr.gráðu, helst innan
erfðafræði, erfðabreytileika og búfjárkyn-
bóta.
■ Samstarfshæfileikar og frumkvæði og geta
dreift verkefnum og fylgt þeim eftir.
■ Ábyrgð, traust og jákvætt viðhorf og geta
nýtt tækifæri til að styrkja samvinnuna milli
NGH og ytri samstarfsaðila.
■ Góð kunnátta í skriflegri og talaðri dönsku/
norsku/sænsku eða finnsku/sænsku og
ensku.
Laun og kjör skv. launakerfi ríkisins. Staðan er
í launaþrepi 53-65 eftir menntun og reynslu.
Staðan veitt til 4 ára með möguleika á endur-
nýjun í önnur fjögur ár, skv. reglum NMR. NLH
er formlegur vinnuveitandi starfsmanna NGH.
Óskað er eftir umsóknum bæði frá konum og
körlum, frá öllum Norðurlöndunum.
Upplýsingar veitir Erling Fimland, sími
+47 6494 48017 eða í farsíma +47 9269 8547.
Umsóknir merktar: Still.nr. 67/02 sendist til:
Nordisk Genbank Husdyr, Postboks 5025, 1432
ÅS, Noregi.
Umsóknarfrestur er til 1. sept. 2002.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILKYNNINGAR
Framkvæmdir
Sóknarnefnd Kolfreyjustaðarsóknar í
Austfjarðaprófastdæmi hefur ákveðið
eftirfarandi framkvæmdir við nýja hluta
kirkjugarðsins á Fáskrúðsfirði:
1. Mæla upp og kortleggja legstaði og gera
uppdrátt af garðinum.
2. Samræma hæð og útlit leiða með því að
lækka og/eða jarðvegsfylla milli þeirra.
3. Samræma stefnu legsteina.
4. Koma fyrir tengingum vegna leiðalýsinga.
Þeir, sem hafa eitthvað við framkvæmd þessa
að athuga, eru vinsamlegast beðnir að hafa
samband við formann sóknarnefndar, Ingigerði
Jónsdóttur, í heimasíma 475 1266 eða vinnu-
síma 475 1400 innan átta vikna frá birtingu aug-
lýsingar þessarar, sbr. lög um kirkjugarða.
Bjóðum ný söfn, ættfræði, gamalt
prent, Fornmannasögur, Klaust-
urpóst, Ferðafélagið.... þetta er
bara brot af því besta.
Kíkið við hjá Gvendi dúllara á
menningardegi.
Gvendur dúllari — stundum betri
Fornbókasala Kolaportinu.