Morgunblaðið - 17.08.2002, Page 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
?- ):
-
"
@
* '1<
!!!
" # $
%&
#
' (
)'*!*
**
5 A )
,>#; *
<
4"
5#
'
'#5
# &!
B+
C'
'#
B; D
+
:
03) -
7
"0) -
$E.
SVONEFND óhljóðalist, sem
einnig má kalla noise, er líkt og aðrar
hreintrúarstefnur í tónlist (og listum
almennt) blindgata í eðli sínu. Víst var
óhljóðabylting síðustu áratuga hress-
andi sýrubað sem þvegið hefur af
rokki og raftónlist prjál og glingur,
laglínan lögð til hliðar um stund, síðan
hefðbundin kaflaskipting, þá taktur
og loks framvinda; þegar búið er að
henda fyrir borð allri yfirvigt og ekk-
ert er eftir nema hrein hugmynd er
gaman að sigla mishljómana og suðið,
þ.e. þar til skútan strandar á skeri til-
gangsins (þessi tilgangur, alltaf skal
hann spilla öllu). Þegar búið er að fara
alla leið, teyga byltingarbikarinn í
botn átta menn sig á að dreggjarnar
eru suð, noise, hvítt eða bleikt.
Lengra verður ekki komist.
Íslenskir tilraunatónlistarvinir eiga
skoska hljóðfrömuðinum Andrew
McKenzie mikið að þakka. Andrew
McKenzie er tríó, Hafler-tríóið, sem
hann stofnaði með Chris Watson,
forðum liðsmanni Cabaret Voltaire,
fyrir rúmum tveimur áratugum. Tríó-
ið var semsagt aldrei tríó (nema ef
vera skyldi þegar þeir Reptilicus-
félagar Jóhann Eiríksson og Guð-
mundur Markússon unnu með
McKenzie, meira um það síðar) og er
það ekki enn, því síðustu fimmtán ár-
in hefur McKenzie verið eini liðsmað-
ur tríósins. Andrew McKenzie bjó hér
á landi um tíma og hafði mikil áhrif á
íslenska framúrstefnu, var óþreyt-
andi að leggja mönnum lið við upp-
tökur og tilraunir og ekki síður að
ræða málin og veita þannig hingað
nýjum hugmyndum og pælingum.
Um það leyti voru ýmsir að fást við
óhljóðalist hér á landi og áttu eftir að
verða margir fleiri, ekki síst fyrir
áhrif frá McKenzie. Það var því vel til
fundið að halda tónleika með íslensk-
um óhljóðasveitum helgaða McKenz-
ie öðrum þræði, en á tónleikunum,
Raftónlistartilraununum, eins og það
var kallað, sem fóru fram í Vestur-
porti sl. miðvikudag, komu fram
Vindva Mei, Curver, Product 8 og
Stilluppsteypa, en heiðursgesturinn
Andrew McKenzie / Hafler Trio, flutti
stutt fjöllistaverk milli atriða.
Kleifhugasveitin Vindva Mei reið á
vaðið með sinni sérkennilegu blöndu
af braki og suði og óhljóðadiskói.
Fyrri hluti framlags tvíeykisins var
hægfara suð, frumstætt og heillandi
og sótti hægt og bítandi
í sig veðrið. Áður en
hugsunin á bak við
verkið náði þó að brjót-
ast fram, innri gerð
þess að verða ljós, gafst
hljóðkerfið upp. Það
tókst að koma því af
stað eftir smá hlé en í
stað þess að reyna að
ljúka við verkið sem var
klippt á svo harkalega,
fóru þeir Vindva Mei fé-
lagar út í aðra sálma,
léku sér með þunga vél-
ræna takta, diskó-
skotna á köflum, grófa og hranalega
eða svo brotna að lá við hjartslátt-
artruflunum hjá áheyrendum enda
gríðarlega góður botn. Öllu skemmti-
legri fannst mér seinni hlutinn, enda
situr fyrri hlutinn sem ókláruð setn-
ing í minningunni.
Hafler-tríóið flutti snyrtilega sam-
an sett örverk á meðan menn
græjuðu sig fyrir næsta skammt sem
Birgir Örn Thoroddsen átti, en hann
tróð upp undir nafninu Curver. Hans
verk var býsna gott; bjagaðar raddir,
talhólfsskilaboð, úrvarpsrödd og
söngl, voru vel notuð til að hnýta hluti
saman með draugapíanói og ýmisleg-
um mishljómum. Gott verk.
Enn kom Hafler-tríóið á svið og
flutti viðlíka verk og í fyrra skiptið en
McKenzie spilaði einnig á Westing-
house-ísskáp meðfram. Þegar hann
hafði lokið sér af tók til óspilltra mál-
anna Product 8, en annar liðsmanna
þess er Jóhann Eiríksson, helmingur
Reptilicus sem áður var getið. Reptil-
icus var og er ein merkasta hljómsveit
íslenskrar rokksögu, var einstök á
sinni tíð fyrir tilraunir með hljóð og
óhljóð. Sveitin gaf út nokkrar plötur,
sem sumar voru ekki plötur, og rís
hæst á plötunni Crusher of Bones
sem kom út fyrir sex árum. Jóhann er
potturinn og pannan í Product 8 og
fyrsta verkið sem flutt var í anda þess
samstarfs bar sterk höfundarein-
kenni hans, þéttur hljóðavefur með
þungri stígandi. Mikil spenna felst í
verkinu og hún var orðin nánast
óbærileg þegar forlögin gripu inní í
annað sinn þetta kvöld; hljóðkerfið dó
og í framhaldi af því fór rafmagnið,
nema hvað.
Eftir stutt hlé tókst að koma
straumi á tól og apparöt og Product 8
gat tekið til við fyrri iðju, að hrekkja
og hrella áheyrendur, að fræða og
fróa. Taktpælingar voru skemmtileg-
ar í seinni hlutanum, industrial-hip-
hoplegar á kafla, og hljóð öll vel valin
og góð. Samt sem áður náðist ekki í
seinni hlutanum að leysa spennuna úr
læðingi sem byggð hafði verið upp af
svo mikilli kostgæfni í þeim fyrri.
Þriðja innlegg Hafler-tríósins /
Andrews McKenzies var að bera
áheyrendum göróttan marglitan
drykk og stýra síðan fjöldasöng á
Dadaljóði Tristans Tzaras, Chanson
Dada, á frönsku, mais naturellement.
Lokakafli kvöldsins var í boði Still-
uppsteypu, nú dúetts eftir að Heimir
sneri sér að myndlist og hvarf inn í
ævintýraheim Vacuum drengja (sjá
frábæra plötu þeirra nýútkomna,
Songs from the Sea of Love). Þeir
Sigtryggur og Helgi komu sér vel fyr-
ir en áður en flutningur hófst sýndi
Sigtryggur nokkur allgeggjuð dans-
spor, svona rétt til að undirbúa menn
fyrir það sem í vændum var og það
var mikil veisla. Úr hátölurum
streymdu pælingar svo títt að eyrað
náði varla að grípa þær, taktar og
taktsyrpur svo ólíkrar gerðar að
áheyrandi mátti hafa sig allan við,
hver hugmyndin á fætur annarri, óða-
mála og margar í senn; hlustaðu á
mig, nei mig, nei mig – svallveisla
taktanna. Ekki þurfti lengi að hlusta
að rann upp fyrir mönnum ljós: þeir
Stilluppsteypufélagar, æðstu prestar
íslenskrar óhljóðalistar, voru að gefa
fortíðinni langt nef, eru búnir að yf-
irgefa óhljóðaland og komnir á kreik
á veiðilendum framtíðarinnar. Þeir
beittu töktum sem sumir hljómuðu
sem aftur úr fornöld eða fjarlægri
framtíð, fléttuðu saman og slitu í
sundur, óðu úr einu í annað. Ekki
óhljóðalist heldur nýhljóðalist. Jamm,
það er eins gott að segja það beint út:
Óhljóðin eru búin að vera, það er ekki
lengur gáfumannslegt að fara á noise-
tónleika (nema kannski til að rifja upp
gamalt stuð).
Birgir Örn Thoroddsen flutti tónverk sem
listamaðurinn Curver og stýrði enn fremur
tökkum hjá sér og öllum hinum.
Stilluppsteypufélagar, Sigtryggur og Helgi, gefa óhljóðalist langt nef.
Svallveisla taktannaTÓNLISTVesturport
Raftónlistartilraunir í Vesturporti mið-
vikudaginn 14. ágúst sl. Fram komu Hafl-
er-tríóið, Vindva Mei, Curver, Product 8
og Stilluppsteypa.
RAFTÓNLISTARTILRAUNIR
Árni Matthíasson
Ljósmynd/Björg SveinsdóttirAndrew McKenzie = Hafler-tríóið.
Teiknimyndablaðaútgefandinn
bandaríski Marvel Enterterprises
Inc. hefur tilkynnt um 4,2 milljóna
dollara hagnað á öðrum ársfjórðungi
þessa árs, sem eru umskipti miðað við
sama tímabil í fyrra þegar fyrirtækið
tapaði 11,4 milljónum Bandaríkja-
dala. Ástæðan er mikil tekjuaukning
vegna velgengni leikinnar kvik-
myndar um Kóngulóarmanninn en
hann er eitt sköpunarverka Marvel.
Kvikmyndin um kóngulóarmann-
inn er ein sú best sótta á þessu ári en
800 milljónir dala, eða um 68 millj-
arðar króna, hafa komið í kassa fram-
leiðanda myndarinnar.
Gengi bréfa Marvel á hlutabréfa-
markaðnum í New York er nú rúmir 5
dollarar en það hefur hæst farið á
árinu í 9,38 dollara á hlut.
Reuters
Kóngulóarmaðurinn er duglegur að raka saman peningum.
Hagnast á Kóngu-
lóarmanninum
HINIR upprisnu
Guns’n’Roses eru komnir
til Kína, hvar tónleika-
ferðalag þeirra um hnött-
inn mun hefjast. Skýrist
þetta af titli nýrrar plötu
sveitarinnar, Chinese
Democracy, sem er fyrsta
hljóðversplata hennar í
fjölda ára.
Axl Rose, hinn skraut-
legi leiðtogi hljómsveit-
arinnar og eini upp-
runalegi meðlimurinn,
segist búast við að hann
og félagar hans verði
meira og minna á vegum úti
næstu tvö til þrjú árin.
Rose bað aðdáendur sveit-
arinnar að bíða ekki eftir vænt-
anlegri plötu en sagði hana þó
vera í réttum og góðum farvegi.
Hann treysti sér ekki til að geta
sér til um útgáfudaginn að feng-
inni reynslu.
„Við erum búnir að velja lögin
á diskinn og allt það en ef þú ert
að bíða eftir disknum, hættu því.
Lifðu bara lífinu,“ ráðlagði Rose
aðdáendum.
Guns’n’Roses klárir í slaginn
Guns’n’Roses í þá gömlu góðu daga.
Rós
án
þyrna?