Morgunblaðið - 17.08.2002, Síða 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 61
N ju
ng!
ARI Í ÖGRI: Sjóðheit suðræn djass-
sveifla á útipalli kl. 16–17.30 og frá
kl. 22 og fram á rauðanótt.
BORG, Grímsnesi: Harmonikuunn-
endur á Selfossi með sumarbústaða-
ball.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi: Úl-
rik skemmtir.
CAFÉ 22: Plötusnúðarnir Benni og
Doddi.
CAFÉ AMSTERDAM: Rokkbandið
Stóri björn.
CAFÉ ROMANCE: Ray Ramon og
Mete Gudmundsen spila fyrir gesti
til 3 auk þess að spila fyrir mat-
argesti.
CATALINA, Hamraborg: Hljóm-
sveitin Útlagar.
CHAMPIONS CAFÉ, Stórhöfða 17:
Hljómsveitin Vírus leikur fyrir
dansi.
DOMUS VOX: Gospelsystur taka
lagið kl. 20.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað:
Skemmtunin „Ó borg mín borg“.
Flytjendur eru KK, Magnús Eiríks-
son og Þorleifur Guðjónsson.
GAUKUR Á STÖNG: Jet Black Joe
með tónleika kl. 22. Forsala að-
göngumiða hafin á Gauknum.
GULLÖLDIN: Stórsveit Ásgeirs Páls
sér um dansstemninguna.
HÓTEL ÖRK: Pass spilar.
HVERFISBARINN: Kiddi Big Foot
þeytir skífum.
JÓMFRÚIN, Lækjargötu: Söng-
konan Kristjana og píanóleikarinn
Agnar Már Magnússon kl. 16 til 18.
Leikið verður utandyra ef veður
leyfir.
KAFFI REYKJAVÍK: BSG halda uppi
fjörinu langt fram eftir öllu á menn-
ingarnótt.
KAFFI VÍN, Laugavegi 73: Dixie-
bandið Öndin kl. 22.
KAFFI-LÆKUR, Hafnargötu 30,
Hafn.: Njalli í Holti spilar.
KAFFI-STRÆTÓ, Mjódd: Dansdúóið
Íris Jóns og Siggi Már leikur fyrir
dansi.
NASA VIÐ AUSTURVÖLL: Ljós-
myndasýning franska tísku-
ljósmyndarans Jean Marie Babonn-
eau kl. 19. Kl. 20:30 fjöllistahópurinn
HÚM. Kl. 21 tónleikar með hljóm-
sveitinni Daysleeper. Kl. 22 tísku-
sýning. Undir sýningunni leikur
hljómsveitin DDD.
O’BRIENS, Laugavegi 73: Kristján
Kristjánsson píanóleikari.
ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Félagar ásamt Elvis Presley.
Nokkrir gestasöngvarar heiðra
minningu Presleys og taka vinsæl
lög hans.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópavogi:
Íslands eina von.
RABBABARINN, Patreksfirði:
Diskórokktekið & plötusnúðurinn
Dj Skugga-Baldur.
RÁIN, Reykjanesbæ: Hersveitin
leikur fyrir dansi.
SIRKUS: Hljómsveitirnar Stjörnu-
kisi, Fidel, Rúnk, Kimono koma
fram ásamt fleirum. Fimleikaatriði
og fjör!
TAPAS-BARINN: Sveiflukvartettinn
leikur með hléum frá 21 til mið-
nættis.
TJALDSVÆÐI HVERAGERÐIS:
Blómstrandi dagar í Hveragerði. Kl.
23–3 á Hótel Örk verður spilar Pass.
TÖÐUGJÖLD, Hellu: Í svörtum föt-
um spila.
VALASKJÁLF EGILSSTÖÐUM: Sálin
hans Jóns míns.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Dans-
sveitin Sín leikur.
VÍÐIHLÍÐ: SSSól spilar. Aldurs-
takmark 16 ár.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
SSSól verður í Víðihlíð í kvöld.
HÉR er á ferðinni afar tilrauna-
kennd raftónlist sem gefin er út af
Íslandsvinunum í Chicks on Speed,
hinum þýsku rafrokksgellum sem
heimsóttu landann á þarsíðustu
Airwaves-hátíð. Tónlistin hér er fá-
dæma sértæk, reyndar svo að í raun
er eins og þetta sé ekki tilbúið og
fyrsta prufurennsl-
ið hafi óvart ratað
inn á bandið, sem
síðan var sent út til
framleiðandans.
Hlustunarreynslan
er eins og að hlusta
á gamalt, ryðgað útvarpstæki, sem
búið er ónýtum stillingartakka sem
er sífellt á ferðinni og hefur verið
hertekið af litlum, gáskafullum
geimverum.
Eða eins og heimilistölvan sé far-
inn á fyllerí og sé með mikil-
mennskubrjálæði eða þjáist af alvar-
legu kasti af „delerium tremens“.
Skilur einhver hvað ég er að reyna
að segja hér? Ég skil þetta varla
sjálfur – eins og reyndar með plöt-
una.
Þessi „Við erum svo rosalega
miklir listamenn að við gerum bara
það sem okkur sýnist“-nálgun virkar
ekki hér. Hún getur, og hefur virkað,
en ekki hér. Því miður. Það er því
aftur að teikniborðinu og næst er
betra að ydda almennilega. Grófleik-
inn er ekki alltaf til bóta.
Tónlist
Súrsað
rafsullum-
bull
Dat Politics
Plugs Plus
Chicks on Speed Records
Margklofin og tvístruð raftónlist sem fer
út um holt og hæðir.
Arnar Eggert Thoroddsen
Krufningarlæknirinn
(The Coroner)
Hryllingsmynd
Bandaríkin, 2000. Myndform VHS. (90
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn:
Juan A. Mas. Aðalhlutverk: Jane Longen-
ecker og Dean St. Louis.
HRYLLINGSMYNDIN sem hér
er á ferðinni sver sig í ætt við fjölda-
morðingjafrásagnir líkt og vinsælar
eru innan formsins en sker sig um
leið úr sívaxandi hópi slíkra mynda
sökum frámunalegrar vanhæfni allra
aðstandenda. Hér er ekki of djúpt
tekið í árinni. Mynd
þessi ber mörg nei-
kvæðustu merki
áhugamannafram-
leiðslu; hún skartar
leikurum sem aldr-
ei virðast hafa stig-
ið framan við töku-
vél áður og hafa
ekki minnstu hug-
mynd um hvernig
ber að hegða sér þegar þangað er
komið; handritið er fyllilega röklaust
og samræður jafnan stirðar og/eða
fjarstæðukenndar; leikstjóri virðist
ekki bera neitt skynbragð á mynd-
ræna frásagnaraðferð (sem birtist á
hvað fyndnastan hátt í milliklippum
og innskotsatriðum), og svo mætti
lengi telja. Krufningarlæknirinn er
tvímælalaust ein af þeim myndum á
leigum borgarinnar sem ber að forð-
ast sem heitan eldinn.
0 stjörnur
Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Hlálegur
hryllingur