Morgunblaðið - 17.08.2002, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
DANSKIR Vítisenglar (Hell’s Ang-
els) hafa haft í frammi hótanir í garð
íslenskra sendiráðsstarfsmanna í
Kaupmannahöfn og í sumar létu tveir
þeirra ófriðlega í anddyri sendiráðs-
ins, hótuðu starfsfólki og kröfðust
þess að sendiráðið afhenti þeim Ís-
lending sem þar hafði leitað skjóls
undan þeim.
Bjarni Sigtryggsson, sendiráðu-
nautur í Kaupmannahöfn, sagði í
samtali við Morgunblaðið að danska
lögreglan hefði upplýst sendiráðið um
að Vítisenglar sem voru stöðvaðir á
Keflavíkurflugvelli og sendir úr landi
í febrúar sl. hefðu haft í hótunum um
að ná fram hefndum á íslenskum
sendiráðsstarfsmönnum í Kaup-
mannahöfn. Haft hefði verið samráð
við dönsku lögregluna um viðbrögð
og var ákveðið að herða eftirlit með
því hverjum væri hleypt inn í sendi-
ráðið. Jafnframt myndu sendiráðs-
starfsmenn láta lögregluna vita um
leið og Vítisenglar gerðu vart við sig.
Hótuðu limlestingum
Nokkru síðar leitaði íslenskur mað-
ur sem hafði lent í því óláni að ánetj-
ast fíkniefnum hjálpar hjá sendi-
ráðinu en hann hafði komist í skuld
við Vítisengla. Sendiráðið aðstoðaði
manninn við að verða sér úti um flug-
far til Íslands og þótti öruggast að bíl-
stjóri sendiráðsins æki með hann um
Kaupmannahöfn þar til flugvélin færi
í loftið, enda þótti víst að Vítisengl-
arnir myndu ganga í skrokk á honum,
kæmust þeir í tæri við hann. Stuttu
eftir að maðurinn gaf sig fram við
sendiráðið sáust nokkrir Vítisenglar
fyrir utan sendiráðið. Tveir þeirra
komu inn í anddyri sendiráðsins og
heimtuðu að sendiráðið afhenti mann-
inn. „Þegar þeim var ekki hleypt inn á
skrifstofur sendiráðsins börðu þeir
hér allar dyr og hótuðu starfsfólkinu
limlestingum ef það hleypti þeim ekki
inn eða borgaði skuld mannsins,“ seg-
ir Bjarni. Þegar var hringt á lögreglu
en þegar hún kom á staðinn höfðu
Vítisenglarnir haft sig á brott. Að
sögn Bjarna var þetta ekki í fyrsta
skipti sem Íslendingar leita skjóls hjá
sendiráðinu undan Vítisenglum eða
öðrum glæpahópum vegna fíkniefna-
skulda.
Vítisenglar og Bandidos-gengið
hafa lengi verið meðal alræmdustu
glæpasamtaka í Danmörku og víðar á
Norðurlöndunum. Þessi samtök hafa
lengi eldað saman grátt silfur en með-
limir þeirra beggja eru einu nafni
nefndir „rokkarar“. Allmörg áhang-
endafélög hafa verið stofnuð og segir
Bjarni að talið sé að samanlagður
fjöldi „rokkaranna“ og áhangenda
þeirra sé um 2.000 manns. Starfsemi
Vítisengla og Bandidos hefur verið
talsvert í sviðsljósinu í Danmörku
undanfarið og segir Bjarni að al-
menningi þyki yfirgangur þeirra með
ólíkindum en umsvif þeirra virðist sí-
fellt aukast. „Vítisenglar og Bandidos
hafa keypt hús í bæjum víða í Dan-
mörku og þeir hafa nánast hrakið ná-
grannana á flótta,“ segir Bjarni. Þá
leggi þeir undir sig fíkniefnasölu á
viðkomandi stað og geri íbúum bæj-
anna lífið leitt með ýmsum hætti.
Danir hafi hingað til farið frekar mild-
um höndum um þessi samtök en nú
virðist sem fólki finnist nóg komið.
Bjarni segir að stjórnarandstaðan
vilji að samtökin verði bönnuð en
stjórnarflokkarnir telji að það sé erf-
itt að banna starfsemi félaga með lög-
um en hafi falið dómsmálaráðuneyt-
inu að vinna með sveitarfélögum til að
kanna hvað sé hægt að gera til þess
að sporna gegn starfsemi Vítisengla
og Bandidos. Segir Bjarni að danska
lögreglan hafi lýst yfir ánægju sinni
með að íslenskan lögreglan skuli hafa
ákveðið að vísa Vítisenglum úr landi
eða meina þeim landgöngu.
Vítisenglar hótuðu íslensk-
um sendiráðsstarfsmönnum
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar
í Reykjavík handtók á miðvikudag
sjö manns í tengslum við smygl á
kókaíni til landsins en sleppti þeim
að loknum yfirheyrslum. Áttundi
maðurinn var yfirheyrður í gær. Átt-
menningarnir eru allir viðtakendur
sendibréfa frá Brasilíu sem inni-
héldu tæplega sjö grömm af kókaíni
hvert. Grunur leikur á að kókaíni
hafi verið smyglað með þessum
hætti mánuðum saman.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, segir að fyrir nokkrum mánuð-
um hafi lögregla fengið upplýsingar
um að kókaín bærist til landsins með
bréfsendingum frá Brasilíu. Þeim
upplýsingum hafi verið komið á
framfæri við tollgæsluna, sem fann 5
slík bréf á tollpóststofunni á Stór-
höfða hinn 7. ágúst sl. Hald var lagt á
bréfin og lögregla undirbjó aðgerðir
gegn viðtakendunum. Á miðvikudag
var ákveðið að láta til skarar skríða
en sama dag fundu tollverðir 3 sams
konar bréf. Þeir sem voru handtekn-
ir voru allir skráðir viðtakendur
bréfanna en talið er að sendandinn
sé sá sami. Við húsleit hjá einum
þeirra fundust um 400 grömm af
kannabislaufblöðum sem talið er að
hafi verið ræktuð hér á landi.
Í bréfunum átta voru samtals um
56 grömm af kókaíni.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um
styrkleika efnisins en sé kókaínið
sterkt er það jafnan drýgt um tvo
hluta áður en það er selt. Skv. verð-
könnun SÁÁ meðal sjúklinga á Vogi
kostar grammið af kókaíni rúmlega
12.000 krónur.
Sjö manns hand-
teknir í tengslum
við kókaínsmygl
ÞEIR Hafsteinn Björnsson og Hilm-
ar Sigurðsson, sem róa á línu á
Gísla SH frá Ólafsvík, gáfust ekki
upp þótt þeir misstu stórlúðu sl.
þriðjudag. Þeir héldu aftur á slóð-
ina daginn eftir, lögðu sterkari línu
með stærri krókum og náðu lúð-
unni aftur, reyndar ekki fyrr en í
gær.
Hafsteinn Björnsson skipstjóri
tjáði Morgunblaðinu að lúðan stóra,
210 cm löng og 110 kg að þyngd,
hefði komið á venjulega fiskilínu.
Þegar hún var við bátssíðuna hefði
hann krækt í hana en þá hefði bara
rést úr króknum og lúðan slitið lín-
una. Sagði hann það ekki skrítið
þar sem venjuleg fiskilóð héldu
ekki slíkum þunga.
Þeir félagar ákváðu að gefast
ekki upp við svo búið. Lögðu þeir
haukalóð í næsta róðri daginn eftir
en hún er mun sterkari og með öfl-
ugri krókum. Ekkert gerðist þann
daginn og ekki heldur á fimmtudag
en í gær bar vel í veiði: Stórlúðan
kom upp þegar þeir drógu hauka-
lóðina. Var þá engum vettlinga-
tökum beitt, skipverjarnir spyrntu í
og snöruðu lúðunni um borð enda
auðveldara með réttu línunni og
krókunum góðu.
Við nánari skoðun kom í ljós slit-
inn línutaumur sem Hafsteinn segir
að svipi mjög til línunnar sem þeir
notuðu á þriðjudag. Telur hann
næsta víst að þarna hafi lúðan góða
gefið sig aftur og mátti hún sín þá
einskis.
Veiddu
sömu
lúðuna
tvisvar
Morgunblaðið/Alfons
Hafsteinn og Hilmar með lúðuna sem þeir misstu fyrir fáeinum dögum
en náðu í gær. Á minni myndinni má sjá gamla línu í kjafti lúðunnar.
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Hest-
eyri keypti í gær 22,5% hlut í Keri, áð-
ur Olíufélaginu. Seljandi var að lang-
stærstum hluta Fjárfestingarfélagið
Straumur, en einnig seldi Íslands-
banki rúmt 1%.
Hesteyri er í eigu Fiskiðjunnar
Skagfirðings og Skinneyjar-Þinga-
ness og er félagið nú stærsti hluthafi
Kers, en áður var Straumur stærstur.
Í gær var einnig tilkynnt um kaup
Sjóvár-Almennra trygginga í
Straumi. Sjóvá-Almennar keyptu
5,4% hlut í Straumi en áttu ekkert
fyrir.
22,5% hlutur í
Keri hf. skiptir
um hendur
Eigendaskipti/24
♦ ♦ ♦
SEXTÁN ára piltur var hand-
tekinn eftir að hafa stolið pen-
ingum úr sjóðsvél skyndibita-
staðar við Suðurlandsbraut í
Reykjavík í gærkvöldi.
Atvikið gerðist á níunda tím-
anum. Greip pilturinn peninga
úr sjóðsvél staðarins og hljóp
síðan út. Greinargóð lýsing lá
fyrir er lögregla mætti á vett-
vang og hafði hún uppi á pilti
skömmu síðar í nágrenninu.
Færði hún hann á lögreglustöð-
ina við Hlemm og þangað voru
foreldrar piltsins látnir sækja
hann.
Óljóst er hversu mikla pen-
inga hann greip.
Tók pen-
inga úr
sjóðsvél
ENGIN aðstaða er fyrir skólastarf í
húsnæði Klébergsskóla á Kjalarnesi,
þrátt fyrir að skóli eigi að hefjast eft-
ir rúma viku, þar sem verktaki við
nýbyggingu og endurbætur á eldra
skólahúsnæði hefur ekki staðið við
verkáætlun.
Nýr verktaki hefur verið fenginn
að málinu en Sigþór Magnússon
skólastjóri segir að það sé of seint.
„Staðan í dag er sú að það er ekkert
húsnæði þar sem ég get sest niður
með mínum kennurum að hefja und-
irbúning fyrir skólastarf.“ Starfs-
hópur skólastjóra, byggingarfulltrúa
og verktaka hefur verið myndaður
og reynir nú að bjarga málunum.
Stefán Jón Hafstein, formaður
fræðsluráðs Reykjavíkur, tekur und-
ir áhyggjur starfsliðs skólans af hús-
næðismálunum og segir málið hafa
klúðrast. Hann bætir við að oft sé
ótrúlega mikið gert síðustu dagana
og telur ekki stefna í neyðarástand.
Óljóst með upphaf skóla-
starfs í Klébergsskóla
Húsnæði/14