Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 22
ERLENT
22 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
JAFNAÐARMENN, undir forystu
Gerhards Schröders kanslara,
héldu velli í kosningunum í Þýska-
landi á sunnudaginn, hinum tvísýn-
ustu síðan á árum seinni heims-
styrjaldar, en kanslarinn stendur
nú frammi fyrir harðari stjórnar-
andstöðu heima fyrir og á fyrir
höndum að bæta tengslin við
Bandaríkjastjórn, sem stirðnuðu
mjög í kosningabaráttunni.
Schröder tryggði samsteypu-
stjórn jafnaðarmanna og græn-
ingja fjögur ár til viðbótar við
stjórnartaumana, en nú bíða hans
verkefni á borð við stöðugt at-
vinnuleysi, hægur efnahagsbati og
stirðnandi velferðarkerfi. And-
stæðingar kanslarans segja að
naumur meirihlutinn, sem hann
vann í kosningunum, muni duga
skammt.
Framkvæmdastjóri Ifo-hag-
fræðirannsóknarstofnunarinnar í
München, Hans-Werner Sinn, tók í
sama streng og sagði að þessi
naumi meirihluti sem Schröder
vann muni ekki duga til að koma í
gegn umtalsverðum efnahagsum-
bótum. Einungis svokölluð „stór-
samsteypustjórn“ jafnaðarmanna
og kosningabandalags kristilegu
hægriflokkanna, CDU og CSU,
myndi geta læknað þá kvilla sem
hrjái þýskt efnahagslíf. „Ég sé
enga aðra lausn, þótt ég sé ekki
bjartsýnn á að stórsamsteypu-
stjórn muni verða að veruleika,“
sagði Sinn.
En framkvæmdastjóri annarrar
rannsóknarstofnunar í hagfræði,
Klaus Zimmerman, var á öndverð-
um meiði. „Undir stórsamsteypu-
stjórn yrði viljinn til umbóta jafn-
vel enn minni,“ sagði hann.
„Niðurstaðan er sú, að það er já-
kvætt fyrir efnahagslífið að ólík-
legt sé að stórsamsteypustjórn
verði mynduð.“
Mesta fylgi græningja
Niðurstöður kosninganna, er
birtar voru í gær, sýna að jafn-
aðarmenn og græningjar fengu alls
47,1% atkvæða, en stjórnarand-
stöðuflokkarnir, undir forystu
hægrimannsins Edmunds Stoibers,
fengu alls 45,9 prósent. Fengu
jafnaðarmenn og græningjar þar
með alls 306 sæti af 603 á þinginu,
en hægrimenn og frjálsir demó-
kratar, sem eru hliðhollir kaup-
sýslumönnum, alls 295 sæti. Aft-
urbatakommúnistar fengu tvö sæti.
Schröder kom glaðbeittur fram
ásamt Joschka Fischer, utanríkis-
ráðherra og formanni græningja, á
fundi fagnandi stuðningsmanna
stjórnarinnar í Berlín. „Framund-
an eru erfiðir tímar, og saman
munum við ná í mark,“ hrópaði
Schröder.
Græningjar fögnuðu mjög, enda
fengu þeir nú mesta fylgi í 22 ára
sögu flokksins, 8,6%. En Fischer
Kosningarnar í Þýskalandi einhverjar þær tvísýnustu í manna minnum
Samsteypustjórn
Schröders hélt
naumlega velli
Reuters
Stoiber, leiðtogi hægrimanna, skoðar niðurstöðutölur úr kosningunum.
Berlín. AP.
!
!
"#
$
%
$&
'(
)
*+,
++
*-.
-/
*
012
ÞAÐ voru græningjar sem björguðu
samsteypustjórn Gerhards Schröd-
ers í kosningunum á sunnudaginn,
og þeir gerðu það með því að leggja
alla áherslu á sinn stærsta kost –
Joschka Fischer, vinsælasta stjórn-
málamann í Þýskalandi. Í embætti
utanríkisráðherra undanfarið kjör-
tímabíl hefur Fischer öðlast aukna
diplómatahæfileika er komu í ljós er
úrslitin lágu fyrir. „Okkur tókst
þetta með því að vinna saman,“ sagði
hann í gær.
Fischer lítur út eins og aldraður
herra Bean, kann að koma fyrir sig
orði, hefur persónutöfra og getur
hent tíðarandann á lofti. Hann er
kominn langt að, frá uppruna sínum
lengst úti á vinstri væng stjórnmál-
anna og í utanríkisráðuneytið. Það
er að mörgu leyti persónuleika hans
að þakka að græningjar, sem fyrir
ekki löngu voru álitnir lítið annað en
blómabörn að mótmæla kjarnorku,
urðu smám saman að alvöru flokki í
þýskum stjórnmálum. Og 1998 kom-
ust þeir í stjórn í fyrsta sinn og
nældu í ráðherraembætti. Og þetta
er maðurinn sem einu sinni stóð upp
á þýska þinginu og sagði: „Hátt-
virtur forseti, þér eruð hálfviti.“
Faðir Fischers var slátrari af ung-
verskum uppruna, Fischer hætti í
skóla 19 ára og hljópst að heiman til
að ganga að eiga unnustu sína. Nú er
hann 54 ára og á fjórðu eiginkonuna.
Hann fór að blanda sér í vinstri-
pólitíkina á sjöunda og áttunda ára-
tugnum meðfram ýmsum íhlaupa-
störfum. Fyrr á þessu ári kom í ljós
mynd af honum á mótmælafundi að
berja lögreglumann.
Friðarstefnan vék
En hann snéri baki við slíkum of-
beldisaðgerðum og gekk til liðs við
umhverfisverndarhreyfingu sem
smám saman varð að Græn-
ingjaflokknum. 1983 var hann í
fyrsta sinn kosinn á þing, og 1985
varð hann fyrsti græninginn sem tók
við stjórnarembætti en hann var um
skamma hríð umhverfisráðherra í
sambandslandinu Hessen.
Fischer gat sér orð sem „raunsæ-
ismaður“ í flokknum, en þeir hafa
smám saman náð yfirhöndinni yfir
„hugsjónamönnunum“. 1999 hafði
Fischer kröfur friðarsinnanna í
flokknum að engu og samþykkti að
sendir yrðu þýskir hermenn til Kos-
ovo, að taka þátt í bardögum Atl-
antshafsbandalagsins við her Slob-
odans Milosevics. Sagði hann að
friðarstefnan yrði að víkja þegar
maður stæði frammi fyrir hættunni
á þjóðarmorði. „Ég var eins og þið,“
sagði hann við friðarsinnana, „þang-
að til fjöldamorðin voru framin í
Srebrenica.“ Skírskotaði hann þar til
voðaverka hers Bosníu-Serba í borg-
inni Srebrenica í Bosníustríðinu.
Raunsær
herra Bean
Berlín. AFP.
Fischer
’ Háttvirtur forseti,þér eruð hálfviti. ‘
GERHARD Schröder, sem var
endurkjörinn kanslari Þýskalands
á sunnudaginn, leiddi þjóðina í
gegnum fjögurra ára stórfelldar
breytingar; þingið var flutt aftur
til Berlínar og Schröder varð
fyrsti kanslarinn síðan í seinni
heimsstyrjöld sem sendi þýska
hermenn til átaka, er Atlantshafs-
bandalagið fór í stríð við Júgó-
slavíu.
Schröder er 58 ára. Í kosninga-
baráttunni beitti hann grófum
sjarma sínum, er höfðaði til venju-
legra Þjóðverja, og hæfileika sín-
um til að taka pólitíska áhættu er
fleytti Jafnaðarmannaflokknum
yfir hvern forarpyttinn á fætur
öðrum og Schröder sjálfum í
gegnum innanbúðardeilur við
samstarfsflokkinn, Græningja.
Sigur Schröders í kosningunum
1998 markaði þáttaskil í þýskum
stjórnmálum er bundinn var endi
á sextán ára stjórnartíð hægri-
mannsins Helmuts Kohls og til
valda komst kynslóð sem átti ræt-
ur að rekja til stúdentahreyfing-
arinnar í Þýskalandi í byrjun átt-
unda áratugarins.
En til að byrja með gekk
Schröder fæst í haginn. Valdabar-
átta skók stjórnina innan frá, en
myndir sáust af Schröder – sem
er af verkafólki kominn en kann
að njóta lífsins – púandi kúbanska
vindla og sitjandi fyrir í klæð-
skerasaumuðum fötum. Öldurnar
lægði, en ímyndin og stíllinn eru
Schröder svo mikilvæg að hann
leitaði til dómstóla fyrr á þessu
ári til að kveða niður orðróm um
að hann litaði svarta, þykka hárið
á sér.
Braut blað í sögu Þýskalands
Með störfum sínum í hinni nýju,
glæstu kanslaraskrifstofu í Berlín
og á alþjóðavettvangi hefur
Schröder gert Þýskaland sjálfs-
öruggara og fengið það til að axla
aukna ábyrgð. Hann var fyrsti
kanslarinn eftir seinna stríð sem
stjórnaði frá sameinaðri Berlín og
sá fyrsti sem ekki átti neinar per-
sónulegar minningar frá stríðinu.
Nokkrum mánuðum eftir að hann
tók við völdum braut hann blað í
sögu landsins er hann sendi her-
menn til bardaga í Júgóslavíu er
Vesturlönd ákváðu að hafa af-
skipti af átökum í Kosovo.
Schröder lagði starf sitt að veði
í fyrra er hann boðaði til atkvæða-
greiðslu um vantraust á sig til
þess að þagga niður í efasemda-
mönnum í stjórninni sem voru
ekki vissir um réttmæti þess að
senda þýska hermenn til Afganist-
ans í kjölfar hryðjuverkanna 11.
september. Schröder hafði betur í
Gerhard Schröder er fyrsti Þýskalandskanslarinn
sem ekki á neinar persónulegar minningar úr stríðinu
Kanslari sem jók sjálfs-
öryggi Þýskalands
Reuters
Schröder fagnar sigrinum ásamt Peter Struck varnarmálaráðherra.
Berlín. AP, AFP.