Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir U PPBYGGING Salahverfis í Kópavogi er það ör, að segja má, að hverfið breyti um yfirbragð með hverjum mánuðinum sem líður. Neðst er hverfið þegar búið að taka á sig mynd, fólk flutt inn í hús og íbúð- ir og verzlun og þjónusta búin að koma sér fyrir í nýju og fullbúnu húsnæði. Talsvert er líka síðan að grunnskóli og leikskóli tóku þar til starfa. Uppbyggingin efst í hverfinu hef- ur einnig gengið vel. Við Kórsali og víðar standa há fjölbýlishús, sem þegar hafa verið tekin í notkun og einnig er talsvert um minni fjölbýlis- hús, þar sem íbúarnir eru þegar fluttir inn. Töluvert er einnig um falleg ein- býlishús og raðhús. Af hálfu bæjar- félagsins hefur þess verið gætt, að láta þjónustuna ekki vanta. Sem dæmi má nefna leikskólann við Rjúpnasali efst í Salahverfi, en all- langt er síðan hann var tekinn í notk- un. En uppbyggingin í efri hluta Sala- hverfis heldur áfram. Við Lómasali og víðar má sjá krana við krana líkt og um skóg væri að ræða og heyra má stanzlausan vélarniðinn frá stór- virkum vinnnutækjum, svo að úr verður samfelldur niður. Það er því eins gott að aka varlega um. Þetta er samt ekki annað en það sem fylgir nútímabyggingarsvæðum og rétt að hafa í huga, að þegar upp- byggingin er ör og mikil, þá stendur hún skemur. Áður en menn vita af er risin vegleg byggð með grónum lóð- um og umhverfi. Þau hús, sem þegar er flutt inn í, njóta sín vel í skammdeginu. Mörg þeirra eru ljósum prýdd og varpa skemmtilegri birtu á umhverfið. Alls er gert ráð fyrir um 1.000 íbúðum í Salahverfi og að um 3.000 manns muni búa í hverfinu full- byggðu. Stórir gluggar Eitt þeirra byggingarfyrirtækja, sem haslað hafa sér völl í Salahverfi, er Byggingarfélagið Viðar ehf., en stofnandi þess var Viðar Daníelsson byggingameistari. Þetta fyrirtæki hefur látið mikið til sín taka í Kópa- vogi og byggt þar mörg fjölbýlishús, þar á meðal stór og áberandi fjöl- býlishús neðarlega í Salahverfi. Við Lómasali 6–8 er fyrirtækið langt komið með 4–5 hæða blokk með 24 íbúðum, sem skiptast í sextán 3ja herb. íbúðir og átta 4ra herb. íbúðir. Þær minni eru 103 ferm. og þær stærri 120 ferm. Arkitekt er Kristinn Ragnarsson. Þetta er lyftu- hús og sex íbúðir á hverri hæð. Hverri íbúð fylgir eitt stæði í bíla- geymslu, en úr henni er innangengt í lyftu. Í kjallara er vagna- og hjóla- geymsla. Húsið er steinað í ljósum lit. Allar íbúðir á efri hæðunum eru með svöl- um, sem snúa í suðvestur og stórir gluggar eru áberandi. „Gluggarnir eru hafðir stórir með tilliti til útsýn- isins, sem er mjög mikið,“ segir Kristinn. „Útsýnisáttirnar eru suð- ur, vestur og austur, en til norðurs er húsið umlukið hærri húsum.“ „Við Íslendingar gerum aldrei nóg af að hagnýta okkur útsýnið, sem landið okkar er svo ríkt af,“ heldur Kristinn áfram. „Það mætti t. d. gjarnan nýta svalir fjölbýlishúsa bet- ur en gert er með því að setja upp svalaskýli. Þá er hægt að nota sval- irnar miklu meira og lengur, kannski 300 daga á ári í staðinn fyrir 20–30 daga. Með þessu fær fólk líka auka- rými.“ Sérinngangur er í hverja íbúð og er gengið inn í þær eftir göngum meðfram hlið hússins að austan- verðu. En er þetta í samræmi við óskir markaðsins í dag? „Sérinngangar eru alltaf vinsæl- ir,“ segir Kristinn. „Sameignin verð- ur þá minni og um leið minni vinna og fyrirhöfn við þrif. Í svona göngum skilur fólk síður eftir skófatnað og dót, þannig að allt verður tiltölulega hreint.“ Í staðinn fyrir svalagang með handriði með jafnri hæð alls staðar, er hafður veggur með opum, þannig að veggurinn verður hluti af útliti hússins og bogar og hringlaga op gefa veggnum skemmtilegra og jafn- vel suðrænt yfirbragð. „Með þessu verður þetta ekki bara langur gangur,“ segir Kristinn. „Hliðin á húsinu er heillegri en samt brotin upp á vissan máta eins og sagt er á fagmáli. Með þessu er líka haldið í útsýnið, þegar komið er út úr íbúðunum.“ Byrjað var á þessu húsi fyrir um ári og íbúðirnar eiga að verða tilbún- ar til afhendingar núna rétt fyrir jól- in, fullbúnar en án gólfefna. Þriggja herb. íbúðirnar kosta 14,9 millj. kr. með stæði í bílageymslu og 4ra herb. íbúðirnar kosta 16,5 millj. kr., einnig með stæði í bílageymslu. Þegar er búið að selja 14 íbúðir af 24. „Ég tel það allgott,“ segir Þorgils Arason, framkvæmdastjóri Viðars ehf. „Það er mikið spurt og ég vonast til þess, að þær íbúðir sem eftir eru, seljist fljótlega.“ Nær allar íbúðirnar seldust fyrirfram Þarna skammt frá, við Lómasali 14–16, er Ágúst Friðgeirsson bygg- ingameistari langt kominn með að byggja fjölbýlishús, sem er fjórar hæðir auk bílakjallara. Í húsinu eru 24 íbúðir. Þar af eru sextán 3 herb. íbúðir, rúmlega 90 ferm. að stærð og átta 4 herb. íbúðir, sem eru 108 ferm. Sex íbúðir eru á hverri hæð. Að auki er bílakjallari með stæði fyrir hverja íbúð, sérgeymslu og sameig- inlegri hjóla- og vagnageymslu. Inn- angengt er í lyftu úr bílakjallara. Að utan er húsið steinað með marmara- salla. Uppsteypa á húsinu hófst í apríl sl. og áformað er að afhenda íbúðirnar í apríl-maí á næsta ári, en þær verða afhentar fullbúnar en án gólfefna. Athygli vekur, að 21 af 24 íbúðum í húsinu hefur selzt á meðan húsið er enn í byggingu. Kaupendur eru að meginhluta ungt fólk. „Ætlunin var að gera kynningar- bækling og tölvuteikningar af húsinu fyrir sölu eins og venjan er nú til dags, en hætt var við það, þar sem þess reyndist ekki þörf,“ segir Ágúst. „Þær þrjár íbúðir, sem eftir eru, koma væntanlega til með að seljast á næstunni, ef marka má fyr- irspurnir, en margir hafa sýnt þeim mikinn áhuga.“ Ágúst telur engan vafa leika á, að gott útsýni frá þessum íbúðum hefur framar öðru gert þær svo eftirsókn- arverðar sem raun ber vitni og segir: „Þeir eru margir, sem leggja mik- ið upp úr útsýninu og þessar íbúðir hafa sér til ágætis einstakt útsýni til suðvesturs yfir Kópavog og Reykja- nes og út á sjóinn. Það má segja, að allar íbúðirnar í þessu fjölbýlishúsi hafi útsýni, alveg frá neðstu hæð og upp úr. En þetta er óvenju góð sala, eink- um miðað við ástandið undanfarna tólf mánuði, þó að þetta hafi gerzt hjá mér áður. Stærðin á þriggja her- bergja íbúðunum er sennilega kjör- stærð fyrir mjög marga.“ Ágúst kvaðst merkja aukna eftir- spurn eftir nýjum íbúðum almennt að undanförnu. Hann er líka að byggja fjölbýlishús í Grafarholti, en eftirspurn þar hefur þó verið minni en í Kópavogi. Kristinn Ragnarsson arkitekt hef- ur einnig hannað þetta fjölbýlishús. „Þetta hús er mjög einfalt,“ segir hann. „En allar íbúðirnar eru með mjög djúpum svölum og það þjónar ákveðnum tilgangi. Í fjölbýlishúsum er lóðin ekkert notuð. Svalirnar eru garðurinn, sem fólkið hefur og á svölunum þarf því að vera pláss fyrir borð, stóla og grill. Venjulegar svalir hér á landi eru samt gjarnan ekki nema 1,80 m á breidd. Þá er ekki hægt að koma neinu fyrir nema grillinu og svo er hægt að fara út að reykja.“ Gott útsýni einkennir fjölbýlis- hús í byggingu við Lómasali Sú hraða uppbygging, sem einkennir Salahverf- ið, fer ekki framhjá nein- um, sem ekur þar um. Magnús Sigurðsson kynnti sér tvö fjölbýlishús við Lómasali. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Kristinn Ragnarsson arkitekt og Þorgils Arason, framkvæmdastjóri Viðars ehf. Í baksýn er fjöbýlishúsið Lómasalir 6–8. „Í staðinn fyrir svalagang með handriði með jafnri hæð alls staðar, er hafður veggur með opum, þannig að veggurinn verður hluti af útliti hússins og bogar og hringlaga op gefa veggnum skemmtilegt yfirbragð," segir Kristinn. Kristinn Ragnarsson, Ágúst Friðgeirsson byggingameistari og Birgir Halldórsson verkstjóri. Í baksýn er fjölbýlishúsið Lómasalir 14–16. Af 24 íbúðum í húsinu er 21 þegar seld, á meðan húsið er enn í byggingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.