Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 46
46 C ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Opið mánud.–fimmtud. frá kl. 9–18, föstud. frá kl. 9–17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir, Álfheiður Emilsdóttir. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. www.fjarfest.is - fax 562 4249 FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250, Borgartúni 31 Hvassaleiti - 3ja-4ra herb. Vel staðsett rúmgóð íbúð í fjölbýlishúsi ásamt bílskúr. Verð 12,5 millj. Póstnr. 103 2ja - 3ja. herbergja Njálsgata Komin er á sölu einstak- lingsíbúð í miðbæ Reykjavíkur. Verð 4,5 millj. Póstnr. 105 Skeljagrandi - bílageymsla Til sölu 2ja herb. íbúð. Glæsilegt útsýni Póstnr. 107 Kambasel - Tvöf. bílskúr - Fjölbýlishús Komin er á sölu 72,9 fm 2ja herb. íbúð. Sérgarður. Verð 12,7 m. Póstnr. 109 Mosarimi. Skemmtileg 3ja herb. íbúð á mjög góðum stað í Grafarvogi. Stutt í alla þjónustu. Verð 11 millj. Póstnr. 112 Mosarimi - Skemmtileg íbúð 4ra herb. íbúð með sérinn- gangi. Góðar suð-austursvalir. Stutt í þjónustu. LAUS STRAX. Póstnr. 112 Nýkomnar á sölu stórglæsilegar íbúðir, 3ja-4ra herb. 96,1 til 119,2 fm. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi, þar verða flísar. Í öllum íbúðum verður sérþvottahús og síma- og tölvutengi í öllum herbergj- um. Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum frá Brúnási. Hægt er að kaupa bíl- skúr. Sérinngangur verður í hverja íbúð. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Afhend- ing í maí 2003. Póstnr. 113 Kristnibraut 77-79 NÝTT - Lyftuhús - Grafarholti Einbýli, parhús og raðhús Prestbakki - Bílskúr. Komið er á sölu skemmtilegt raðhús á besta stað í Breiðholti. Húsið er mikið endurnýjað. Stutt í alla þjónustu. Póstnr. 109 Eyktarás - Aukaíbúð Vorum að fá mjög gott og vandað einbýlishús á þess- um vinsæla og góða stað. Stórar stofur með miklu útsýni. Stór innbyggður bílskúr. Góð 3ja herbergja aukaíbúð. Póstnr. 110 Rituhólar - Bílskúr 44,8 fm Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum, hægt að gera séríbúð í kjallara. Náttúru- garður. Stórkoslegt útsýni. Póstnr. 111 Sérhæðir Ferjuvogur - Ásamt bílskúr. Vorum að fá í sölu ca 120 fm hæð ásamt sérbyggðum stórum bílskúr. Mjög vel staðsett íbúð innst í lokaðri götu. Skjól- góður suðurgarður. Stutt í skóla og alla þjónustu. Eign sem vert er að skoða. Póstnr. 104 Bergstaðastræti - Nýtt Njörvasund - bílskúr 28 fm Vorum að fá á sölu ca 80 fm sérhæð. Góður garður. Frábær staðsetning. Póstnr. 104 Eskihlíð Vorum að fá í sölu glæsilega 4ra herb. sérhæð með 40 fm bílskúr. Parket er á gólfum, góðar innréttingar, mikið uppgerð. Verð 13,9 m. Póstnr. 105 4ra - 6 herbergja íbúðir Álakvísl - Sérinngangur Björt og skemmtileg 4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum. Góðar innréttingar, stæði í bílageymslu. LAUS STRAX. Póstnr. 110 Til sölu nýjar 3ja og 4ra herb. íbúðir, einnig tvær „PENTHOUSE“-íb. á besta stað í mið- bæ Rvíkur. Íbúðirnar verða afhentar full- búnar með vönduðum innréttingum og flís- um á baði, en án gólfefna að öðru leyti. Lyftuhús. Húsið er álklætt að utan að hluta og sameign verður frágengin. Möguleiki á að fá lán frá byggingaraðila á eftir húsbréf- um. Póstnr. 101 Naustabryggja 12-18 - 20-22 - Nýtt Nýjar og glæsilegar 3ja til 6 herbergja íbúðir, frá 95 fm upp í 218 fm „penthouse“-íb. á tveimur hæðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem verða flísar. Íbúð- irnar eru með vönduðum innréttingum. „Penthouse”-íb. verða afhentar tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Bíla- geymslur fylgja öllum íbúðum. Að utan verða húsin álklædd. Afhending á Naustabryggju 12-18 í júní 2003 og Naustabryggju 20-22 í mars 2003. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 110 Lækjarsmári - jarðhæð Vorum að fá á sölu stórglæsilega 82 fm 2ja herb. íbúð. Pergo-parket og náttúruflísar á gólfi. Suðurverönd. Stutt í Smáralindina. Póstnr. 200 Núpalind - Bílskýli. Vorum að fá á sölu glæsilega 112,3 fm íbúð á efstu hæð í fjölbýli. Glæsilegt útsýni. Vandaðar innrétt- ingar. Látið þessa eign ekki fram hjá ykkur fara. Póstnr. 201 Nýjar íbúðir Maríubaugur - Keðjuhús Til af- hendingar nú þegar. Tilbúin til innréttinga skemmtilega hönnuð ca 200 fm keðjuhús á einni hæð með innbyggðum 25 fm bíl- skúr. Húsin standa á útsýnisstað og af- hendast tilbúin til innréttinga. Fullfrágeng- ið að utan og lóð verður grófjöfnuð. Glæsilegt útsýni. Teikningar og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrif- stofu. Verð frá kr. 19,4 millj. Póstnr. 113 UPP er komin athyglisverðskammdegisþræta umþað hvort feður íslenskavelferðarkerfisins hafi verið að finna innan raða vinstri flokkanna eða hvort landsfeður Sjálfstæðisflokksins – frá Ólafi Thors til Davíðs Oddssonar – hafi átt þar drýgstan hlut að máli. Að mati þess sem þetta ritar er afar erfitt að lýsa einhvern hinna fjögurra leiðandi stjórnmálaflokka tuttugustu aldarinnar sigurvegara í velferðaruppbyggingu. Vinstri flokkarnir hafa óneitanlega verið þeir aðilar sem yfirleitt komu fyrst- ir fram með nýjar hugmyndir og tillögur og mættu oft í byrjun harðri og einarðri andstöðu borg- aralegra afla Sjálfstæðisflokksins. Með tímanum hefur sá flokkur hins vegar oftar en ekki fallist á hugmyndir vinstri flokkanna í vel- ferðarmálum og tekið þátt í að koma þeim í framkvæmd og þar með getað haft veruleg áhrif á end- anlega útfærslu þeirra og fram- kvæmd, t.d. hvernig löggjöf hvers einstaks málaflokks hefur þróast og hvernig fjárstuðningi hins opinbera hefur verið háttað. Saga húsnæðis- mála á Íslandi á tuttugustu öld er einkar góður vitnisburður um þetta. Deilt um verkamanna- bústaðina Héðins Valdimarssonar er í dag minnst sem föður verkamannabú- staðanna, sem allt til 1990 voru nánast eini félagslegi húsnæðiskost- urinn á Íslandi. Litlu mátti raunar muna að fyrstu lögin um verka- mannabústaði yrðu undir á Alþingi, því Sjálfstæðisflokkurinn lagðist gegn frumvarpi Héðins. Margir úr röðum bændaþing- manna, bæði Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks, töldu að bætt hús- næðiskjör verkamanna í Reykjavík og á öðrum þéttbýlisstöðum yrðu einungis segull sem herða myndi á fólksflóttanum úr sveitunum. Jónas Jónsson frá Hriflu hafði efasemdir um málið, en með bandalagi við Tryggva Þórhallsson, þáverandi forsætisráðherra, tókst Héðni að koma málinu á leiðarenda í þinginu. Á fjórða áratugnum, eftir að fyrstu verkamannabústaðirnir í eigu Byggingarfélags alþýðu – þar sem Héðinn var formaður – höfðu risið af grunni í Reykjavík, fundu sjálfstæðismenn félagsskapnum allt til foráttu og sökuðu Héðin m.a. um það að fyrir honum vekti það eitt að geta keypt atkvæði fyrir sig og Al- þýðuflokkinn með því úthluta stuðningsmönnum sínum húsnæði sem nyti opinbers stuðnings. Sjálfstæðismenn reyndu á þess- um árum að stofna eigið bygging- arfélag sem einnig gæti byggt íbúð- ir, en var synjað um þetta þar sem lánsrétturinn var lögum samkvæmt bundinn við eitt byggingarfélag í hverju sveitarfélagi. Byggingarrétt- urinn var hins vegar snarlega tek- inn frá Héðni og hans mönnum í Byggingarfélagi alþýðu eftir að hann árið 1938 sagði skilið við Al- þýðuflokkinn og gekk til liðs við Kommúnistaflokk Íslands í hinum nýja Sameiningarflokki alþýðu – Sósíalistaflokknum. Byggingarrétturinn var færður til nýstofnaðs Byggingarfélags verkamanna í Reykjavík, sem stofnað var af forystumönnum fyrr- um samherja Héðins Valdimars- sonar úr Alþýðuflokknum í stað Byggingarfélags alþýðu. Er frá leið sættust sjálfstæð- ismenn fullum sáttum við verka- mannabústaðakerfið, enda fjöl- marga merka forystumenn launþegahreyfingarinnar löngum að finna innan raða flokksins. Það var að sjálfsögðu í samræmi við þá meginstefnu flokksins að hann væri flokkur allra stétta, sem telja má meginatriði í þeirri hugmyndafræði flokksins sem liggur til grundvallar virkri þátttöku hans í uppbyggingu velferðarþjóðfélags á Íslandi. Sú stefna samræmist hins vegar trauðla þeirri nýfrjálshyggju sem nú er í vaxandi mæli að ryðja sér til rúms í flokknum og margir telja að vinni bæði leynt og ljóst að afnámi velferðarþjóðfélags á Íslandi í þeirri mynd sem Íslendingar hafa vanist. Velferðarstefna með semingi Sjálfstæðisflokkurinn hefur sem alkunna er lagt mikla áherslu á sjálfseignarstefnu í húsnæðis- málum. Hann á til að mynda stærstan þátt í því að jafnvel innan ramma félagslegra íbúðabygginga hefur sjálfseignin einnig verið ráð- andi, þó svo að félagslegt húsnæði hafi nánast alls staðar annars stað- ar á byggðu bóli verið í formi fé- lagslegra leiguíbúða. Þessi stefna, ásamt öflugri að- komu ríkisvaldsins að almennu lánakerfi sjálfseignarhúsnæðis, hef- ur gert láglaunafólki á Íslandi mögulegt að eignast eigið húsnæði í ríkari mæli en í flestum öðrum löndum. Jafnframt þessu hefur Sjálfstæð- isflokkurinn lengst af beitt sér gegn hugmyndum um auknar byggingar leiguhúsnæðis eða skyldra eign- arforma, sem einna skýrast kom fram í harðri andstöðu hans gegn hugmyndum um lánsrétt til handa húsnæðissamvinnufélögum, sem fram komu í upphafi níunda áratug- ar liðinnar aldar. Andstaða flokks- ins við hugmyndir um húsa- leigubætur var einnig mjög skýr þegar þær voru fyrst settar fram um svipað leyti. Félagsmálaráð- herra Alþýðuflokksins, Jóhanna Sigurðardóttir, var hins vegar mjög einarður stuðningsmaður bæði hús- næðissamvinnufélaga og húsa- leigubóta og skriðþungi hennar sem félagsmálaráðherra fjögurra rík- isstjórna árin 1987–1994 nægði til að koma báðum þessum málum í höfn. Hvað bæði þessi atriði áhrærir sannaðist enn og aftur aðlög- unarhæfni Sjálfstæðisflokksins að nýjum hugmyndum; húsnæðis- samvinnufélög á borð við Búseta og Búmenn eiga núorðið gott samstarf við sveitarfélög þar sem Sjálfstæð- isflokkurinn hefur meirihluta og fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 2002 lagði flokkurinn, undir forystu hins nýja oddvita síns, Björns Bjarnasonar, til að húsaleigubótakerfið yrði víkkað verulega út þannig að bótarétturinn næði ekki aðeins til íbúða, heldur einnig til einstakra herbergja sem leigð eru út. Mótandi áhrif Jú hún hlýtur að vera sú, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur – hvort sem andstæðingum hans líkar það betur eða verr – haft mótandi áhrif á þróun félags- og velferðarmála á Íslandi. Húsnæðismálin eru eitt af nokkrum skýrum dæmum um þetta. Um leið og við skiljum þetta er- um við líka komin með skýringuna á því hve íslenska húsnæðiskerfið og raunar allt velferðarkerfið er ólíkt því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Leiðandi flokkur íslenskra stjórn- mála hefur ætíð tekið við umbóta- hugmyndum vinstri manna með nokkrum semingi og vegna hins mikla kjörfylgis flokksins hefur hann náð að móta félagsmál á Ís- landi að verulegu leyti eftir sínu höfði. Afleiðingin er sú að við Ís- lendingar beitum velferðaraðgerð- um með mun meiri semingi en hin- ar Norðurlandaþjóðirnar. Velferð, húsnæði og stjórnmál Þróunin eftir Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðing hjá Borgarfræðasetri jonrunar@hi.is Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.