Morgunblaðið - 15.12.2002, Qupperneq 20
PÚLSMÆLI
Trönuhrauni 6, • sími 565 1533
220 Hafnarfirði
www.p.olafsson.is
Láttu
hjálpa þér í
líkamsræktinni
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Markið • Hreysti • Maraþon
Útilíf • Nanoq • Hlaup.is
Skógar, Egilsstöðum
Úr.verk. Halldórs Ólafss. Akureyri
Georg V. Hannah, Akranesi
Georg V. Hannah, Keflavík
Gagnleg vefslóð fyrir þá sem ætla
til Belgíu: www.visitbelgium.com
Mikið er um það nú um hátíðirnar að fjölskyldur fari saman í frí til útlanda.
„MÉR finnst fjölga stöðugt því fólki
sem fer til útlanda yfir jól og áramót.
Skólarnir hafa lengst og því hefur sá
tími sem fjölskyldan getur verið
saman í fríi styst og þess vegna vilja
margir nýta sér fríið til að fara utan
og vera með fjölskyldunni,“ segir
Laufey Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Plúsferða, þegar rætt
er við hana um ferðir landans til út-
landa um hátíðirnar. Aðrir viðmæl-
endur okkar tóku í sama streng.
„Það hefur ef til vill áhrif á aukn-
inguna að það koma samliggjandi
frídagar og þá vill fólk nýta tímann
vel og sumir kjósa að fara til út-
landa,“ segir Andri Már Ingólfsson,
forstjóri Heimsferða.
„Óumdeilanlega liggur straumur-
inn til Kanaríeyja en á vegum
Heimsferða verða þar um 800 manns
yfir jólin. Það hentar greinilega að
komast í beint flug í sólina,“ segir
Andri Már. „Við erum með heldur
fleiri farþega til Kanaríeyja núna um
jólin en í fyrra. Þetta fólk virðist hafa
bókað ferðina snemma. Svo erum við
með litla hópa sem eru að fara í aðrar
áttir.“
Austurlönd eða
skíðaferð til Ítalíu
Laufey Jóhannsdóttir, segir Plús-
ferðir vera með beint leiguflug til
Alicante um jólin en þar munu dvelja
vel á þriðja hundrað manns yfir há-
tíðirnar. „Nánast allir í þessum hópi
eiga hús á svæðinu. Er það nýjung
hjá Plúsferðum að bjóða beint leigu-
flug til Alicanti á þessum árstíma.“
Laufey segir að á vegum Plús-
ferða fari um 200 manns til Kanarí-
eyja og dvelji þar um jólin. „Það er
líka töluverður fjöldi fólks sem er að
fara til Danmerkur og er þá vænt-
anlega að fara til að vera með fjöl-
skyldu og vinum. Ég gæti trúað að
þessi hópur sé um tvö hundruð
manns sem hefur pantað flug og bíl
hjá okkur.“
Á vegum Úrvals-Útsýnar er fólk
einkum að fara á tvo staði um hátíð-
irnar, til Kanaríeyja og í skíðaferðir
til Ítalíu þá einkum til Madonnu de
Campiglio og Selva. „Um jól og ára-
mót dvelja á okkar vegum á Kan-
aríeyjum milli 500 og 600 manns,“
segir Páll Þór Ármann, sölu- og
markaðsstjóri ferðaskrifstofunnar.
„Í skíðaferðirnar til Ítalíu fara um
150 manns og dvelja í 13 daga.
Svo erum við með ákveðinn hóp
fólks sem er að fara á fjarlægar slóð-
ir á eigin vegum – ferðir sem við
skipuleggjum. Þessi hópur er á ann-
að hundrað manns. Fólk er í auknum
mæli farið að nota jól og páska til að
fara í frí til útlanda.“
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri
Heimsklúbbs Ingólfs og Príma, seg-
ist vera að senda fólk til Austur-
landa, þar á meðal til Taílands og
Balí. „Þrátt fyrir tilræðið á Balí fór
þangað 30 manna hópur á vegum
okkar og taldi sig hafa gert góða ferð
en aldrei hafa verið eins góð kjör í
boði þar og nú. Er þetta athyglivert
eftir það áfall sem ferðaiðnaðurinn á
Balí varð fyrir nýlega.“ Ingólfur seg-
ir allmargt fólk fara einnig til Fil-
ippseyja. Auk þess sé fólk frá ferða-
skrifstofunni í Karíbahafi á eyjunni
Dóminíkana eða á siglingu um Kar-
íbahaf á skipum Carnival og Princ-
ess. „Heildarfjöldi sem fer á okkar
vegum til útlanda um jólin er um 100
manns og er hann meiri í ár en í
fyrra.“
Á vegum Terra Nóva-Sól fara
nokkrir hópar á fjarlæga staði eins
og Kýpur, Agadir í Marokkó og As-
íulanda að sögn Goða Sveinssonar,
sölu og markaðsstjóra. „Fólk vill
gjarnan njóta jólanna á framandi
slóðum,“ segir hann.
Kaupa „jólapakka Icelandair“
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir að þeir sem
eru að fara sérstaklega í frí yfir jólin
séu helst að fara til Flórída. „Ætli
það verði ekki um nokkur hundruð
Íslendingar á Flórída núna ef með
eru taldir þeir sem eiga þar hús og
dvelja þar í lengri tíma í senn,“ segir
hann. „Hins vegar eru flestir sem
ferðast á þessum árstíma að fara að
heimsækja fjölskyldu eða vini og þá
er Kaupmannahöfn vinsælasti
áfangastaðurinn og hin Norðurlönd-
in. Frankfurt og Amsterdam virðist
líka vinsælar borgir til að eyða jól-
unum með sínum nánustu sem og
London.“ Guðjón segir mun meira
bókað til útlanda í desember en á
sama tíma í fyrra og hafi hin nýju
fargjöld, netsmellir, örugglega haft
sitt að segja. „Fleiri en áður leyfa sér
að fara í ódýra ferð fyrir jólin eða þá
að heimsækja sína nánustu sem eiga
heima erlendis þegar svona lág far-
gjöld eru í boði eins og raunin er.
Mjög margir eru einnig að kaupa sér
„jólapakka Icelandair“ núna fyrir
jólin og hann virðist ætla að verða
jafnvinsæl jólagjöf í ár eins og í
fyrra. Jólapakkinn er í raun farseðill
með aukaglaðningi til allra áfanga-
staða Icelandair í Evrópu og Minn-
eapolis í Bandaríkjunum á aðeins
22.900 kr. Einnig er hægt að kaupa
SagaClass útgáfu af pakkanum og
kostar hann 39.900 kr. til sömu
áfangastaða.“
Æ fleiri Íslendingar fara til útlanda um hátíðirnar
Morgunblaðið/Ómar
Flestir sem ætla að leggja land undir fót um jólin fara í sól og sumaryl, eða heimsækja vini og kunningja sem búa erlendis.
Þeir sem ætla til útlanda um
hátíðirnar fara flestir til Kan-
aríeyja. Þá fara rúmlega tvö
hundruð manns í leiguflugi til
Alicante til að dvelja í sum-
arhúsunum sínum og annar
eins fjöldi verður á Flórída.
Hildur Einarsdóttir komst
líka að því að skíðaferðir njóta
sívaxandi vinsælda hjá fjöl-
skyldunni á þessum árstíma.
Á annað þúsund manns
verður á Kanaríeyjum MANCHESTER United-safnið hefur
tekið á móti milljónum gesta síðan
brasilíska fótboltagoðsögnin Pele opn-
aði safnið 1997. Áhangendur Man-
chester United hafa komið hvaðanæva
úr heiminum til að minnast 116 ára
sögu þessa sigursæla félags.
Í nýju sýningarrými safnsins er nú
sýning þar sem hægt er að sjá meðal
annars skó Ole Gunnars Solskjærs og
verðlaunapeninga Alex Fergusons.
Gestir geta einnig fengið að skoða
búningsherbergi Davids Beckhams.
Á næsta ári verður bætt við safnið
gagnvirkum miðlum. Þá geta gestir
fengið að sjá hvernig atvinnumenn í
fótbolta þjálfa og geta borið sína eigin
eiginleika og getu í fótbolta saman við
getu þeirra.
Reuters
Nýjungar á Manchester
United-safninu
Manchester United-safnið er
opið daglega. Slóðin er:
www.manutd.com.
Netfang:ben.gardener@man-
utd.co.uk.
Góðir skór
Skóbúðin
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.