Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 24
– Mamma, má ég fá hund á jólunum? – Nei, elskan mín, við ætlum að hafa kalkún eins og allir aðrir … Í barnablaðinu 1. des- ember báðum við krakka að senda inn jólaefni, og fá bók að launum ef það birtist á síðum blaðsins. Hér kemur það sem Tanja Rós Ív- arsdóttir, 12 ára, úr Engjaselinu í Reykja- vík sendi okkur. Að launum fær Tanja bókina Harrý og hrukkudýrin sem er í boði bókaútgáfunnar Æskunnar, en það var langvinsælasta bókin meðal krakk- anna sem sendu inn. Setjið nöfn jólasveinanna inn í rétta reiti. Hér er smá vísbending, beint úr Jólasveinunum eftir Jóhannes úr Kötl- um. 1) Níundi var … 2) … kom fyrstur, 3) … sá áttundi, 4) Tíundi var … 5) … hét sá þriðji, 6) Ellefti var … 7) … var annar, 8) Sá sjötti … 9) … sá tólfti, 10) Sá fimmti … 11) Sjöundi var … 12) Sá fjórði … 13) Þrettándi var … Lausn: 1) Bjúgnakrækir. 2) Stekkjarstaur. 3) Skyrgámur. 4) Gluggagægir. 5) Stúfur. 6) Gáttaþefur. 7) Giljagaur. 8) Askasleikir. 9) Ketkrókur. 10) Pottaskefill. 11) Hurðaskellir. 12) Þvörusleikir. 13) Kertasníkir. Íslensku jóla- sveinarnir Jólabíó-leikur Jólasveina- viska Daníel Sigmundsson er 6 ára nemandi í Selásskóla í Árbæ. Hann æfir fótbolta með Fylki og um daginn fór hann með liðsfélögum sínum og vinum, Konna og Gústa, í bíó að sjá Santa Clause 2 eða Jólasvein- inn 2, og það fannst honum gaman. Þar segir frá jólasveini sem þarf að ná sér í konu og þá kemur annar jólasveinn, sem er vélmenni, í hans stað á meðan. „Það voru bara allir í myndinni skemmtilegir,“ segir Daníel aðspurður. „Platjólasveinninn var samt vondur og vildi ekki gefa krökkunum pakka, bara góði jólsveinninn.“ Daníel segir að myndin hafi verið fyndin, og þá sérstaklega hreindýrin, sem voru frekar vitlaus. „Þau skautuðu um allt, líka á góða jólasveininn, og einn át svo mikið súkkulaði, – hann bara lá á bakinu,“ segir Daníel og líkir eftir afvelta hrein- dýri. – Er þetta sami jólasveinn og gefur þér í skó- inn? „Nei, þetta er ekki sami!“ segir Daníel alveg hissa á vanþekkingu blaðamannsins. „Það er Giljagaur.“ Hreindýrin fyndin Daníel, 6 ára fót- boltakappi.  Það er alls ekki svo erfitt að búa til mjög flotta jóla- sveina úr blómapotti. Það sem til þarf  Froðu- eða trékúla – 4 sm  Leirblómapottur – 6 sm  Rauðar efnisleifar  Hvítt filt  Hvítur dúskur  Hvítt krullað dúkkuhár – eða bómull  Málning: andlitslituð og rauð  Lím  Svartur merkipenna Það sem gera skal 1) Límið tré-/ froðukúluna á botninn á blómapottinum. 2) Málið pottinn rauðan og kúluna andlitslitaða. Látið þorna. 3) Vefjið rauða efninu um „hausinn“ svo til verði húfa. 4) Límið mjóa rönd af hvítu filteri neðst, það er húfubarðið. 5) Einnig neðst á blómapott- inn, það getur verið faldur eða snjór. 6) Snyrtið rauða efnið, brjótið saman og límið þannig að spíss myndist. Látið þorna. 7) Límið dúskinn á spíssinn. 8) Ef húfuskottið lafir ekki, má líma það niður, ef vill. 9) Teiknið augu með penna. 10) Gerið skegg með dúkku- hárinu. Ef þið viljið má bæta ýmsu á sveinka. Er hann með poka? Er hann með gleraugu úr vír? Er þetta kannski jólasveinakona? Notið hugmyndaflugið. Jólasveinninn minn Fjör að föndra Eru allir búnir að fá í skóinn? Alla vega eru nokkrir jólasveinar komnir til byggða, þeir Stekkjarstaur, Giljagaur og Stúfur, og í dag er von á Þvörusleiki og með honum í för verða sjálf Grýla og Leppalúði! Hrekkjóttir hávaðaseggir Þið þekkið öll íslensku jólasveinana, þá þrettán skrítnu karla – ekki satt? Og þeir eru sko eldgamlir. Fyrir meira en hundrað árum hélt fólk að jólasveinarnir væru tröll, barnafælur og jafnvel mannætur! En er það ekki bara bull? Jólasveinarnir voru samt víst eitthvað óþekkari í gamla daga. Þeir voru þjófóttir hrekkjalómar sem stálu mat og voru með gauragang einsog nöfnin þeirra segja til um. Á síðustu öld hafa þeir mildast og eru orðn- ir góðir karlar sem gefa okkur í skóinn, færa okkur pakka og segja skemmtisögur þegar við hittum þá. Jólasveinarnir eru kannski enn dálítið hrekkjóttir og frekar hávaðasamir, en börn eru ekki lengur hrædd við þá. Er það nokkuð? Þeir hafa nefnilega lært með tíð og tíma að haga sér skikkanlega. Kannski þeir hafi lært það af ykkur börnunum? Alla vega eru foreldrar þeirra ekki góð fyrirmynd! Gleymdi Stekkjarstaur sumum? Jólasveinarnir leggja það í vana sinn að þegar þeir hafa gefið öllum krökkum á lands- byggðinni í skóinn enda þeir í Reykjavík. Það er hægt að hitta þá kl. 10.30 í Ráðhúsi Reykjavíkur, en um helgar hljóta þeir að sofa út því þá mæta þeir ekki þangað fyrr en kl. 14. Um daginn áttum við á barnablaðinu leið um Ráðhús Reykjavíkur og sáum þá heilan helling af börnum sitja þar á gólfinu. Þau sögðust vera að bíða eftir Stekkjarstaur sem væri á leiðinni til byggða. Hann er víst oftast seinn því hann er jú fyrstur og allt er á sein- ustu stundu. Og hann þarf að flýta sér svo mikið að það hefur jafnvel gerst að hann hef- ur gleymt að setja í skóinn hjá sumum krökk- um! En þegar hann lét ekki á sér kræla byrjuðu krakkarnir að syngja hástöfum: Stekkjarstaur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laumaðist í fjárhúsin og lék á bóndans fé. Hann vildi sjúga ærnar, – þá varð þeim ekki um sel, því greyið hafði staurfætur, – það gekk nú ekki vel. Eins gott að vera góður! Þetta heyrði karlinn og loksins staulaðist hann inn stífur í fótum með rautt nef. Hann var í þjóð- legum og ósköp gamaldags búningi; hnébuxum og sauð- skinnsskóm. En hann var þá rétt kominn til byggða, eftir að hafa auðvitað runnið á rassinn í miðju fjalli. Og hvergi hafði hann fundið sauðamjólk á leið- inni – sem er víst besta mjólk í heimi – svo þegar hann kom til byggða fékk hann bara kúa- mjólk í kössum! Að lokum lét hann krakkana lofa sér að vera góð við mömmu og pabba um jólin, bursta tennurnar vel, annars fengju þau ekki nammi í skó- inn. Þessu lofuðu krakkarnir enda borgar það sig, svo mað- ur fái nú örugglega alla pakk- ana! Stekkjarstaur í stuði Morgunblaðið/Golli „Hér enga sauðamjólk að fá, bara kúamjólk í kössum!“ kvart- ar Stekkjarstaur og krökkunum finnst það fyndið. Ketkrókur kemur á Þor- láksmessu, eins gott að hann steli ekki jólasteik- inni! Þessi ekta jólasveina- mynd er eftir Lilju Rut Gunnarsdóttur, 12 ára, Neðstaleiti 2 í Reykjavík, sem fær jólabók að launum. Jólasveinar á leið til byggða Tekið af Jólavef Systu.  Það er nú tilvalið að skella sér á jólsveinamynd í bíó til að komast í almennilegt jólaskap á meðan maður bíður eftir jólunum. Nú er verið að sýna Santa Clause 2 í Sambíóunum og þú gætir jafnvel unnið þér inn miða, en þá verðurðu líka að svara eftirtöldum spurningum. 1) Á hvaða tungumáli þýðir „Santa-Clause“ jóla- sveinn? a)  Ensku b)  Dönsku c)  Norður-pólsku (töluð á norðurpólnum) 2) Hverjir hjálpa jólasveinunum að búa til leik- föngin? a)  Mýs b)  Álfar c)  Krakkar með stór nef 3) Á hvaða fljúgandi dýrum kemst jólasveinninn til byggða? a)  Dúfum b)  Fiðrildum c)  Hreindýrum 4) Hvernig kemst jólasveinninn inn í húsin okkar? a)  Niður um strompinn b)  Inn um bréfalúguna c)  Upp um klósettið 5) Hvenær opna krakkar í Ameríku jólapakkana sína? a)  Aðfangadagskvöld b)  Jólamorgun c)  Á afmælisdegi jólasveinsins Sendu svörin til okkar fyrir fimmtudaginn 19. desember: Barnablað Moggans - Santa Clause 2 - Kringlan 1 103 Reykjavík Einn góður … Krakkarýni: Santa Clause 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.