Morgunblaðið - 15.12.2002, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 B 27
bíó
GAMANMYNDIN Friday Aft-er Next er sú þriðja í röðinnium félagana Craig Jones og
Day-Day, sem Ice Cube og Mike Epps
leika, en í þessari eru lúðarnir
fluttir að heiman, búa saman og
vinna saman sem öryggisverðir í
verslunarmiðstöð. Jólahátíðin
gengur í garð og hún verður ekki
hefðbundin á því heimili.
Kvikmyndaferill Ice Cube óx á sín-
um tíma eðlilega upp úr rappferli
hans, sem aftur spratt uppúr jarð-
vegi hans í blökkumannahverfum
Los Angeles. Þar er hann fæddur
fyrir 33 árum, réttu nafni O’Shea
Jackson. Öfugt við suma starfs-
bræður sína kemur hann úr bæri-
lega tryggum fjölskylduaðstæðum,
en foreldrar hans störfuðu báðir við
háskólann í Los Angeles. En hann
fann sig betur utangarðs en innan.
Dag einn sat hann í skólanum og
lét sér leiðast þegar sessunautur
hans sagði við hann: „Semjum
rapplag“. Hann samdi svo sitt
fyrsta alvöru rapplag 16 ára að
aldri. Það kallaðist Boyz ’N The
Hood, var síðar hljóðritað af öðrum
rappara, Eazy-E, og lagði enn síðar
(1991) titil sinn til frumraunar
Johns Singleton í leikstjórn, en þar
fór Ice Cube einmitt með fyrsta kvik-
myndahlutverk sitt, kaldhæðins
tugthúslims.
Í millitíðinni var Ice Cube orðinn
afar vinsæll og ekki síður umdeild-
ur rappari með sveitum á borð við
CIA, N.W.A. og the Lynch Mob, en
stundaði um tíma nám í tækni-
teiknun í Phoenix, Arizona. Rapp-
textar hans voru, ekki síður en
margra annarra samferðamanna
hans, gagnrýndir fyrir hommafób-
íu, kvenfyrirlitningu og ofbeld-
isdýrkun; til dæmis yrkir hann um
að sparka í barnshafandi kærustu
og að lífið snúist aðeins um tvennt,
„kventíkur og peninga“. Hann er
þó talinn hafa haft jákvæð áhrif á
aðra rappara hvað varðar baráttu
fyrir réttindum blakka kynstofns-
ins vestra. Sjálfur hefur hann sagt:
„Ég bregð spegli upp að svörtu
Ameríku.“ Ekki var að sökum að
spyrja, að Ice Cube komst fljótlega á
dauðalista öfgasamtaka hægri
manna. Hann hefur verið virkur í
að uppgötva ýmsa rapplistamenn
og framleiða verk þeirra (YoYo,
Del Tha Funkee Homosapien,
K-Dee, Mack 10).
Kvikmynd Singletons, Boyz ’N the
Hood, varð upphaf kvikmyndaferils
beggja. Hann stóð sig prýðis vel í
næstu myndum, stórborgartryll-
inum Trespass (1992) eftir Walter
Hill (ásamt öðrum rappara, Ice T) og
vanmetnu löggudrama, The Glass
Shield (1994), eftir Charles Burnett.
Singleton nýtti hann vel á ný í High-
er Learning (1995), en svo samdi og
framleiddi Cube sína fyrstu mynd,
Friday árið 1995, grínaktuga lýs-
ingu á ungu blökkufólki, sem fékk
fremur slakar viðtökur þótt leikur
Cubes væri góður. Hann fékk nóg af
leiktilboðum eftir þetta, m.a. í
spennumyndinni Anaconda (1997),
en leikstýrði fyrstu mynd sinni The
Players Club, sem gerist að mestu í
nektardansklúbbi, árið 1998. Staðl-
að og hugmyndarýrt handrit hans
þótti helsti dragbítur myndarinnar
og þótt hann hafi m.a. staðið að
tveimur framhöldum Friday, þ.e.
Next Friday (2000) og Friday After
Next, sem nú er frumsýnd, hefur
vegur hans orðið mestur sem leik-
ara. Hann átti þannig í fullu tré við
George Clooney og Mark Wahlberg í
stríðsádeilunni Three Kings (1999),
svo dæmi sé tekið.
Ljóst má vera að Ice Cube lítur á
kvikmyndirnar sem sinn helsta
starfsvettvang í stað rappsins. Ný-
lega var sýnd hér önnur afurð hans,
All About the Benjamins og senn
kemur eflaust Barbershop, sem
lýsir mannlífi á rakarastofu og fékk
fína aðsókn vestra í sumar en vakti
einnig miklar deilur vegna meintr-
ar kynþáttafyrirlitningar. Barbers-
hop 2 er þegar komin á teikniborðið
og Ice Cube er með ýmis verkefni í
uppsiglingu sem hann skrifar einn-
ig handrit að. Hann á þó enn eftir
að sanna að hæfileikar hans við
handritsgerð séu ekki minni en
metnaðurinn. Kvikmynd lýtur öðr-
um lögmálum en einfaldanir rapps-
ins. Enn hefur Ice Cube ekki bráðn-
að.
Ísmolinn bráðnar ekki enn
Nöfn þeirra minna frekar á vörumerki,
uppnefni glæpahunda og skammstafanir
leyniþjónusta en venjuleg mannanöfn. En
bandarískir rapparar hafa á síðustu árum
reynt að færa vinsældir sínar, einkum
meðal blökkufólks af yngri kynslóð, yfir á
hvíta tjaldið. Fáir þeirra hafa fundið þar
viðlíka fótfestu og Ice Cube, sem ekki að-
eins hefur leikið í kvikmyndum við vax-
andi orðstír, heldur leikstýrt, samið
handrit og framleitt. Í Friday After Next,
sem frumsýnd er hérlendis um helgina,
gerir hann þrennt af þessu, framleiðir,
skrifar og leikur.
Árni Þórarinsson
SVIPMYND
Ice Cube segir um þriðju myndina sem kennd er við föstudag,
Friday After Next, að hún sé fyrsta jólamyndin sem gerist í blökku-
mannahverfum nútímans. Þar verður ekki mikið um snjó, en þeim mun
meira um „hvaða áhrif jólin hafa á okkur, samveruna með fjölskyldunni,
jólalögin og þess háttar“.
UM MIÐJAN næsta mánuð hefjast
tökur á nýrri mynd eftir handriti
Charlies Kaufman, sem samdi hina
undirfurðulegu Being John Malko-
vich. Nýja myndin verður í sama und-
irfurðulega dúrnum, gerist að miklu
leyti í mannshuganum þar sem að-
alpersónan reynir að þurrka út tiltekið
ástarsamband sem veldur honum
hugarangri. Miklar stjörnur skína í að-
alhlutverkunum – Jim Carrey, Kate
Winslet, Kirsten Dunst og Mark
Ruffalo, en leikstjóri er hinn líttþekkti
Michel Gondry.
Carrey og Winslet
leika Kaufman
Jim Carrey: Í nýju furðuverki frá Kaufman.
Mikið úrval af
tískuskartgripum
Laugavegi
s. 511 4533
Kringlunni
s. 533 4533
Smáralind
s. 554 3960
Mörkinni 3, sími 588 0640
Glæsilegar
jólagjafir