Morgunblaðið - 21.01.2003, Síða 37
að hýsi fjöleignarhús eingöngu
atvinnustarfsemi er eigendum
heimilt að víkja frá fyrirmælum
laganna með samningum sín á
milli.
Húsfélög eru til
í krafti laganna
Það er afar útbreiddur mis-
skilningur að stofna þurfi hús-
félög sérstaklega. Í krafti fjöl-
eignarhúsalaganna eru húsfélög
til í öllum fjöleignarhúsum og
þau þarf ekki að stofna sér-
staklega og formlega. Kjósi eig-
endur hins vegar að fá sérstaka
kennitölu fyrir húsfélagið ber að
sækja um hana sérstaklega hjá
Hagstofu Íslands.
Allir eigendur og aðeins þeir
eru félagsmenn í húsfélagi við-
komandi fjöleignarhúss. Réttindi
og skyldur til þátttöku í hús-
félagi eru órjúfanlega tengd
eignarrétti að einstökum eign-
arhlutum. Mjög mikilvægt er að
fram komi að enginn getur synj-
að þátttöku í húsfélagi eða sagt
sig úr því nema með sölu eign-
arhluta síns.
Stjórnir húsfélaga
Í húsfélagi skal vera stjórn
sem kosin er á aðalfundi félags-
ins og skal hún skipuð að jafnaði
af a.m.k. þremur mönnum. Ef
þurfa þykir skal kjósa jafnmarga
varamenn og taka þeir sæti
stjórnarmanna við forföll þeirra
og eftir atvikum þegar stjórn-
armaður selur eignarhluta sinn
og hverfur úr húsfélagi.
Stjórnarmenn skulu vera lög-
ráða og kjörgengir eru til stjórn-
ar félagsmenn, makar þeirra eða
sambúðarfólk og nánir ætt-
ingjar. Þegar um er að ræða
fjöleignarhús með sex eign-
arhlutum eða færri er ekki þörf
á að kjósa og hafa sérstaka
stjórn og fara þá allir eigendur í
félagi saman með það vald og
þau verkefni sem stjórnin færi
annars með. Einnig er heimilt í
slíkum húsum að fela einum eig-
enda að einhverju leyti eða öllu
verkefni stjórnar.
Nauðsynlegt er að eigendur
fjöleignarhúsa geri sér grein
fyrir því að húsfélög eru til í
krafti fjöleignarhúsalaganna án
formlegrar stofnunar og eig-
endur í slíkum húsum eru allir
skyldir til þátttöku í félaginu á
meðan þeir eiga eign í viðkom-
andi húsi.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 C 37HeimiliFasteignir
.
Sími 588 55 30
Hannes Sampsted, sölumaður.
Jóna Bjarnadóttir, ritari.
Pétur Pétursson, sölumaður.
Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali.
Fax 588 55 40 • Netfang: berg@berg.is • Heimasíða: berg.is • Opið virka daga frá kl. 9-18
MOSFELLSBÆR
Rituhöfði - Mos. Nýkomið í sölu
glæsilegt 189 fm parhús með innbyggð-
um bílskúr í einu vinsælasta hvefi Mos-
fellsbæjar. Sérmíðaðar innréttingar.
Upptekin loft með halogenlýsingu. Eld-
hús með innréttingum úr mahóní. 4
svefnherbergi með vönduðum skápum.
Glæsileg snyrting með hornbaðkari og
sturtuklefa. Bílskúr með mikilli lofthæð
og geymslulofti. Eign í sérflokki. Áhv.
Húsbréf 9,6 m. V. 22,4 m. 5147
Álafosskvos - Mos. Höfum í
einkasölu atvinnuhúsnæði 135 fm.
Möguleikar til að reka margvíslega starf-
semi t.d. gallerí, handverksstofa, verslun
ofl. Frábær staðsetning, miklir mögu-
leikar. V. 11,9 m. 5159
Bjarkarholt m. bílskúr - Mos.
Höfum í einkasölu, með frábæra stað-
setingu, einbýlishús 136 fm að Bjarkar-
holti, Mosfellsbæ. Góður lagna- og
skriðkjallari, tvöfaldur bílskúr 58 fm,
gróðurhús og geymsluskúr. Eign með
mikla möguleika og góða staðset-
ingu. Áhv. 11,0 m. V. 20,9 m. 5152
Fálkahöfði - Mos. Afar glæsileg
104 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi
í þessu vinsæla hverfi í Mosfellsbæ.
Vönduð gólfefni og innréttingar. Útgegnt
á sólpall úr stofu. Örstutt í skóla og alla
útivist. Áhv. 6,3 m. húsbréf. V. 13,8 m.
5142
Flugumýri - Atvinnuhúsnæði
Höfum í sölu 126 fm atvinnuhúsnæði,
góð lofthæð, stór innkeyrsluhurð ásamt
gönguhurð. Búið er að útbúa skrifstofu
auk kaffistofu. Góð eign á góðum stað.
V. 7,8 m. 5104
Búagrund - Kjalarnesi Til sölu
vel skipulagt 135 fm einbýlishús auk 38
fm bílskúrs á góðum stað á Kjalarnesi. 4
svefnherbergi. Nýleg eldhúsinnrétting
og nýtt parkett á stofu, eldhúsi og holi.
Upptekin loft í stofu og eldhúsi. Mjög
fjölskylduvænt hús á góðu verði. Hag-
stæð áhv. lán. Byggsj. 6 m. V. 16,7 m.
5138
Helgaland - Í smíðum - Góð
kaup Í sölu fallegt 212 fm parhús með
innfelldum bílskúr. Húsið er á 2 hæðum.
Afhendist fullbúið að utan og fokhelt að
innan. Afhending í byrjun febrúar nk.
Mjög vandaður frágangur. Stór eignar-
lóð. Frábær staðsetning með útsýni.
5086
ÁLMHOLT - MOS Nýkomið í sölu
afar gott 188 fm einbýlishús á einum
vinsælasta stað i Mosfellsbæ. Örstutt í
hestahúshverfið og óspillta náttúru. Stór
stofa, borðstofa og 4 svefnherbergi. Fal-
leg eldhúsinnrétting. Arin í stofu. Stór og
fallegur garður. Hagst. áhv. lán. Hellu-
lagt bílaplan með snjóbræðslukerfi. V.
22,5 m. 1085
Byggðarholt - Mos. Snyrtilegt
raðhús 143 fm auk 21 fm bílskúrs. Stórt
þvottahús inn af eldhúsi. 3 góð svefn-
herbergi. Útgegnt úr stofu á stóran sólp-
all með skjólveggjum. Fallegur garður.
V. 18,7 m. 2266
Í smiðum
Lómasalir Glæsilegar og mjög vel
skipulagðar 3ja - 4ra herbergja íbúðir í 4ra
hæða fjölbýli í Salahverfi. Íbúðirnar eru
103 - 122 fm ásamt stæði í bílageymslu.
Eignirnar afhendast fullbúnar að utan sem
innan en án gólfefna. Allar nánari uppl. á
skrifstofu Berg. Byggingaraðili tekur á sig
öll afföll húsbréfa, lánar allt að 85% í
kaupverði. Greiðslur úr sölu mæta kaup-
um. V. 14,9 - 16,5 m. 5109
Blásalir Erum með í sölu vandaðar og
glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í 12
hæða blokk. Stórkostlegt útsýni úr öllum
íbúðum yfir Suðurnes og Reykjavíkur-
svæðið. Íbúðunum er skilað fullbúnum en
án gólfefna. Í öllum herbergjum eru sjón-
varps og símatenglar og sérhljóðeinangr-
un. Öll sameign verður fullbúin og lóð full-
frágengin með leiksvæðum. Upphitað bíl-
skýli er í kjallara sem selst sér. Bygging-
araðili tekur á sig öll afföll af húsbréf-
um, lánar allt að 85%, greiðslur úr sölu
mæta kaupum. V. 12,5 - 19,3 m. 2305
Ólafsgeisli - með bílskúr Höfum í
sölu nýbyggt einbýlishús á tveimur hæð-
um 211 fm ásamt 28 fm bílskúr. Húsið
selst frágengið að utan og tilbúið undir
tréverk að innan möguleiki er á 4 til 5
herbergjum og lítilli íbúð á fyrstu hæð.
FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ EIGN
MEÐ FRÁBÆRU ÚTSÝNI. V. 22,5 m.
2029
Einbýli
Grettisgata - Laus strax Lítið og
fallegt 82 fm einbýli. Í risi er fallegt svefn-
herbergi. Á miðhæð er forstofa, baðher-
bergi, stofa og eldh. Í kjallara er herbergi
og þv.hús ásamt geymslu. Húsið er mjög
vel við haldið, nýjar hitalagnir og gler. Fal-
leg eign á góðum stað. V. 11,9 m. 5140
Hlíðarhjalli - Glæsileg eign Í
einkasölu glæsilegt 3ja hæða einbýlishús
með tvöföldum bílskúr. Húsið er allt hið
vandaðasta. Fallegar innréttingar. Parket
og flísar á gólfum. Húsið er á einstökum
útsýnisstað. Eign fyrir vandláta. Áhv. 8 m.
Skipti koma til greina á minni eign. V. 33
m. 2017
Parhús
Háaleitisbraut Glæsilegt 190 fm par-
hús í vinsælu hverfi. Vandaðar innréttingar
og gólfefni. Arin í stofu. Sólpallur og fal-
legur garður. Örstutt í alla þjónustu. Vönd-
uð eign í góðu viðhaldi. Ekkert áhvílandi.
V. 22,9 m. 5070
Raðhús
Bræðratunga - Kópavogi Ný-
komið í sölu vandað raðhús á 2hæðum,
135 fm bílskúrsréttur. Eignin skiptist
þannig: Stofa ásamt borðstofu og tveimur
sv.herbergjum. Fataherb. og tvö baðher-
bergi. Barnvænt umhverfi og stutt í skóla.
Áhv. Byggsj. 2,8 m. V. 15,9 m. 2263
Hæðir
Lækjarfit - Garðabæ Í einkasölu
snyrtileg 4ra herbergja 90 fm sérhæð. 3
góð svefnherbergi. Spónarparket á gólf-
um. Örstutt í skóla. Rólegt og barnvænt
umhverfi. Áhv. Húsbréf kr. 2,7 m. V. 10,8
m. 5134
Bugðulækur - Sérhæð Mjög falleg
131,6 fm sérhæð í þessu vinsæla hverfi.
Íbúðin skiptist í þrjú góð svefnherbergi,
stofu og borðstofu, rúmgott eldhús með
nýrri eldhúsinnréttingu. Flísar og parket á
gólfum. Eign á góðum stað og stutt í alla
þjónustu. V. 17,3 m. 2308
Sogavegur Í einkasölu 135 fm íbúð á
tveimur hæðum auk 29 fm bílskúrs. Park-
et og teppi á gólfum. Á efri hæð er stofa
og eldhús ásamt snyrtingu. Á neðri hæð
eru þrjú svefnherbergi ásamt baði og
þvottahúsi. Góð staðsetning. V. 14,9 m.
2092
4ra-6 herb.
Krummahólar - Gott verð Rúm-
góð og vel skipulögð 4ra herbergja 113 fm
íbúð á fyrstu hæð í góðu lyftuhúsi. Þrjú
svefnherbergi, rúmgóð stofa ásamt yfir-
byggðum svölum. Húsið er klætt að utan.
V. 11,3 m. 5160
Berjarimi m. bílageymslu -
Laus strax Mjög rúmgóð 132 fm 4 - 5
herb. íbúð á jarðhæð í snyrtilegu fjölbýli í
Grafarvoginum auk 36 fm bílageymslu.
Parket á gólfum. Björt og rúmg. stofa með
útgengi út á lóð. Áhv. húsbréf kr. 6,8 m.
Laus strax. Hagst. verð. V. 14,8 m. 5154
3ja herb.
Skúlagata Snyrtileg 3ja herbergja 61,5
fm íbúð á fjórðu hæð í mjög góðu fjölbýli.
Parket á gólfum, rafmagn allt yfirfarið. Bú-
ið er að skipta um gler að hluta. Góð stað-
setning í hjarta Reykjavíkur. V. 8,7 m.
5125
Möðrufell Til sölu falleg 3ja herbergja
78 fm íbúð á annarri hæð. Parket og flísar
á gólfum, eldhús innrétting frá IKEA. Bað-
herbergi allt nýuppgert með nuddbaðkari.
Fallegt útsýni í austur. Snyrtileg eign í
góðu viðhaldi. V. 9,6 m. 2276
Dúfnahólar - Mikið útsýni Snyrti-
leg 3ja herbergja 72 fm íbúð á 7. hæð í
lyftuhúsi. Parket og flísar á gólfum. Stórar
svalir sem eru yfirbyggðar að hluta með
frábæru útsýni. Barnvænt umhverfi. Áhv.
húsbréf 4,4 m. V. 9,8 m. 2265
2ja herb.
Grettisgata - Laus strax Mjög fal-
leg og í góðu viðhaldi 2 - 3ja herb. 62 fm
íbúð í snyrtilegu húsi við Grettisgötuna.
Nýtt Danfoss kerfi. Laus strax. Ekkert áhv.
Hagstætt verð 8,4 m. 5157
Hrafnhólar. Mjög falleg 65 fm íbúð á
fyrstu hæð í litlu fjölbýli. Parkett og flísar á
gólfum. Björt og rúmgóð stofa með út-
gengi á svalir í suð-vestur. Lagt fyrir
þvottavél á snyrtingu. Áhv. hagtæð lán.
Byggsj. og húsbréf. 5,3 m. V. 8,5 m. 5136
Þekking - öryggi - þjónusta
HÓTEL Örk var opnað 1986.Hótelið var reist af Helga
Jónssyni, sem rak það fyrstu árin,
en nú er það rekið af Íslandshót-
elum ehf.
„Heildarfjöldi fermetra er 5.250
og húsinu fylgir stór lóð, gufubað,
sundlaug og vatnsrennibraut. Það
er steinsteypt og fjórar hæðir,
teiknað af Kjartani Sveinssyni,“
sagði Ásbjörn Jónsson hótelstjóri.
„Árið 1989 var hótelið endur-
hannað að innan og þær breytingar
voru teiknaðar af Finni P. Fróðasyni
arkitekt. Hótel Örk er með 85 gisti-
herbergi en gistirými er fyrir allt að
170 manns. Þá eru í húsinu sex
veitinga- og ráðstefnusalir.“
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Hótel Örk í Hveragerði