Morgunblaðið - 03.02.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Verð á mann frá 19.800* kr.
þegar bókað er á www.icelandair.is
www.icelandair.is
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Flugsæti á broslegu verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
19
89
0
01
/2
00
3
*Innifalið: Flug og flugvallarskattar
Rannsókn hafin
Mikil rannsókn er hafin á slysinu
á laugardag er bandaríska geimferj-
an Kólumbía fórst rétt fyrir lend-
ingu og með henni sjö manna áhöfn.
Bendir flest til, að slysið megi rekja
til þess, að hitahlífar sködduðust er
einangrunarbrot úr eldsneytisgeymi
ferjunnar féll á þær við flugtak um
miðjan janúar.
Framkvæmdaleyfi
Fulltrúar sveitarfélaganna Norð-
ur-Héraðs og Fljótsdalshrepps hafa
afhent fulltrúum Landsvirkjunar
formlegt framkvæmdaleyfi vegna
byggingar Kárahnjúkavirkjunar.
Sýningarskáli og hótel
Samningur um uppbyggingu hót-
els og sýningarskála á horni Að-
alstrætis og Túngötu var undirrit-
aður á föstudag. Á uppbyggingunni
að vera lokið í ársbyrjun 2005.
Mikil þátttaka
Yfir 600 manns hafa skráð sig til
þátttöku í verkefninu „Nýsköpun
2003 – Samkeppni um gerð við-
skiptaáætlana“ en skilafrestur er til
31. maí næstkomandi. Námskeið í
tengslum við samkeppnina verða
haldin víða um land í þessum mán-
uði.
Greiðslugeta könnuð
Lánþegar skulu hafa óskoraðan
rétt til að falla frá lántöku innan 14
daga frá því lán var tekið samkvæmt
tillögu, sem nú er til umræðu á vett-
vangi Evrópusambandsins. Jafn-
framt ber lánveitendum skylda til að
kynna sér vel greiðslugetu lántak-
enda.
Veðurhamur
Stórhríð var norðanlands í gær og
víða mjög erfið færð á vegum. Ekk-
ert ferðaveður var í Víkurskarði og
Brattabrekka og Breiðdalsheiði
voru ófærar. Þá fór rúta með 20 ung-
lingum út af undir Ingólfsfjalli en
þar var bálhvasst.
2003 MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR BLAÐ B
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
PELE ÞURFTI 25 TILRAUNIR, EIÐUR EINA / B5
SNORRI Steinn Guðjónsson hitti
forráðamenn hins fornfræga þýska
handknattleiksliðs, Grosswaldstadt,
í Lissabon á sunnudag þar sem und-
irritaður var samningur til tveggja
ára. Snorri Steinn sagði að aðeins
ætti eftir að ganga frá einu smáatriði
í samningi hans en að öðru leyti væri
allt klappað og klárt.
„Ég er mjög ánægður með að vera
búinn að ganga frá þessu máli.
Markmiðið hjá mér er að komast inn
í hlutina á fyrsta árinu og átta mig á
hlutunum. Ég fer ekki til Þýskalands
fyrr en í sumar þegar keppnistíma-
bilinu er lokið með Val. Það eru
spennandi tímar framundan hjá Val,
við erum með í baráttunni á öllum
vígstöðvum,“ sagði Snorri Steinn og
bætti því við að hann hlakkaði til að
fara heim til Íslands og fara að leika
handknattleik á ný. „Það er mikil
reynsla að upplifa svona keppni og
hvað það þarf til þess að ná árangri,
en það er líka langt síðan ég lék al-
vöruleik og ég bíð spenntur eftir því
að hitta félagana í Val og spila hand-
bolta á ný,“ sagði Snorri sem var á
leikskýrslu í einum leik íslenska liðs-
ins en var að öðru leyti fyrir utan lið-
ið.
Morgnunblaðið /RAX
Króatar komu skemmtilega á óvart á HM í Portúgal með því að leggja Spánverja í tvíframlengdum
leik í undanúrslitum og Þjóðverja í úslitaleiknum, 34:31. Hér hampa þeir verðlaunagripnum í
Lissabon í gærkvöldi. Allt um HM á B2,B3, B6, B7, B8, B9, B10 og B12.
Snorri
samdi við
Gross-
waldstadt
Portland San Antonio
á eftir Patreki
PATREKUR Jóhannesson er með nokkur járn í eldinum. Lið Essen,
sem hann hefur leikið með undanfarin sex ár, hefur boðið honum
nýjan samning, hann er með samningstilboð upp á vasann frá þýska
liðinu Grosswallstadt, því sama og Snorri Steinn Guðjónsson geng-
ur til liðs við fyrir næstu leiktíð, og í gær óskaði þjálfari spænska
liðsins Portland San Antonio eftir því að fá að ræða við Patrek með
hugsanlegan samning í huga.
Patrekur staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að þjálfari
spænska liðsins hefði haft samband við sig en frekari viðræður við
spænska liðið myndu eiga sér stað einhvern næstu daga. Meðal
leikmanna Portland San Antonio eru Frakkinn Jackson Richardson
og Júgóslavinn Nedeljko Jovanovic en þeir léku stór hlutverk með
liðum sínum á heimsmeistaramótinu.
Stefán Gíslason til
liðs við Keflvíkinga
STEFÁN Gíslason skrifaði í gærkvöld undir tveggja ára samning við
Keflvíkinga og leikur með þeim í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar.
Stefán, sem er 22 ára Eskfirðingur, lék síðast með Grazer AK í aust-
urrísku úrvalsdeildinni en hætti þar um áramót. Áður lék hann með
Austfjarðaliðinu KVA, unglingaliði Arsenal, þá KR í eitt sumar, og
spilaði þá 12 leiki í efstu deild, 18 ára gamall, og síðan með Ströms-
godset í Noregi í þrjú ár en þar lék hann 40 leiki í úrvalsdeildinni.
„Mér líst virkilega vel á mig í Keflavík, bæði á þjálfarann og leik-
mannahópinn, eftir að hafa æft með liðinu í janúar. Þetta er ungur
og skemmtilegur hópur, ég verð þarna með eldri mönnum sem verð-
ur nýtt fyrir mig! Það er ljóst að liðið ætlar sér beint upp í úrvals-
deildina á ný og það verður gaman að taka þátt í þeirri baráttu,“
sagði Stefán við Morgunblaðið eftir undirskriftina í gærkvöld.
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 20/23
Viðskipti 11 Kirkjustarf 29
Erlent 12/13 Bréf 26
Listir 14/15 Dagbókin 28
Umræðan 16/17 Fólk í fréttum 34
Forystugrein 18 Veður 35
* * *
KVIKMYNDIN Nói albínói, eftir
Dag Kára Pétursson, hlaut þrenn
verðlaun á Kvikmyndahátíðinni í
Gautaborg, sem lauk í gær. Mynd-
in hefur þar með unnið til sex
verðlauna á þremur kvik-
myndahátíðum á einni viku. Áður
hafði myndin unnið til samtals
þrennra verðlauna á kvik-
myndahátíðum í Rotterdam í Hol-
landi og í Angers í Frakklandi.
Á Gautaborgarhátíðinni valdi
dómnefnd í keppni norrænna
kvikmynda Nóa albínóa bestu
kvikmyndina og er það í fyrsta
skipti sem íslensk mynd hlýtur
þau verðlaun, að því er fram kem-
ur í tilkynningu. Verðlaunaféð
nemur 200 þúsund sænskum krón-
um. Tvær íslenskar myndir tóku
þátt í keppni norrænna mynda í
Gautaborg en Harald Paalgaard
hlaut einnig verðlaun dómnefndar
fyrir kvikmyndatöku í kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar, Fálk-
um. Harald hlýtur 50 þúsund
sænskar krónur í verðlaun.
Nói albínói vann til tvennra ann-
arra verðlauna á hátíðinni en al-
þjóðasamtök kvikmyndagagnrýn-
enda (FIPRESCI) og samtök
kirkjunnar manna í Svíþjóð töldu
Nóa albínóa einnig bestu mynd há-
tíðarinnar. Í tilkynningu frá Kvik-
myndamiðstöð Íslands segir að
kvikmyndahátíðin í Gautaborg sé
helsta kvikmyndahátíð Norður-
landanna. Hana sæki á annað þús-
und manns úr alþjóðlegum kvik-
myndaheimi og gestir á sýningum
hátíðarinnar eru á annað hundrað
þúsund talsins.
Næst á dagskránni hjá aðstand-
endum Nóa albínóa er að vinna að
sölu myndarinnar á kvikmynda-
markaði í Berlín, sem hefst í
næstu viku. Þá má gera ráð fyrir
að mikið verði lagt í að kynna
myndina á kvikmyndahátíðinnni í
Cannes í maí en helmingi verð-
launafjárins frá Gautaborgarhá-
tíðinni, alls um 900 þúsund ís-
lenskum krónum, verður varið til
markaðssetningar fyrir þá hátíð.
Sex verðlaun
á einni viku
Sigurganga Nóa albínóa heldur áfram
en myndin vann til verðlauna á þremur
hátíðum í síðustu viku
LANDSSAMTÖK lífeyrissjóða hafa
yfirtekið umsjón með gagnkvæmri
skiptingu ellilífeyrisréttinda milli
hjóna, en hingað til hefur það verið í
umsjón hvers lífeyrissjóðs fyrir sig.
Þannig næst betri yfirsýn yfir skipt-
ingu ellilífeyrisréttinda. Hægt er að
tryggja að skiptingin verði gagn-
kvæm hjá báðum aðilum og að allir
hlutaðeigandi sjóðir taki þátt í skipt-
ingunni, að því er fram kemur hjá
Landssamtökum lífeyrissjóða.
Slík skipting á sér einkum stað í
tengslum við hjónaskilnaði eða sam-
búðarslit og lýtur þá að þegar áunn-
um ellilífeyrisréttindum.
Skipta má ellilífeyrisréttindum
milli hjóna með þrennum hætti. Í
fyrsta lagi er heimilt að skipta ellilíf-
eyrisgreiðslum þegar ellilífeyristaka
hefur hafist. Í öðru lagi er hægt að
skipta þegar áunnum ellilífeyrisrétt-
indum í síðasta lagi sjö árum áður en
taka ellilífeyris getur fyrst hafist. Í
þriðja lagi er hægt að skipta þeim
ellilífeyrisréttindum sem eiga eftir
að ávinnast það sem eftir er starfs-
ævinnar.
Með skiptingunni er hægt að jafna
ellilífeyrisrétt hjóna. Skiptingin þarf
að vera gagnkvæm og taka til ellilíf-
eyrisréttinda beggja, en hún þarf
hins vegar ekki að vera til helminga,
þ.e.a.s. hlutföllin geta verið önnur.
LL sjá um skiptingu
ellilífeyrisréttinda
GRUNUR leikur á að kveikt hafi
verið í hjólbarða og rusli í bíla-
geymslu suðurhluta versl-
unarmiðstöðvarinnar Kringlunnar
í gærmorgun. Mikill reykur var í
bílageymslunni þegar Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins kom á vett-
vang um kl. 7.30, slökkti og reyk-
ræsti. Skemmdir eru aðallega af
völdum sóts og reyks. Enginn var
á ferli þegar slökkvilið bar að. Þá
voru engir bílar í bílageymslunni.
Morgunblaðið/Júlíus
Eldur í bílageymslu
HUGMYNDIR, sem lúta að því að
brúa Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi með
því að leggja veg um Hrútey, fara að
öllum líkindum í umhverfismat á
þessu ári og stefnir Vegagerðin að
framkvæmdum eftir þrjú til fjögur ár.
Eigandi eyjarinnar er gersamlega
mótfallinn framkvæmdinni enda
muni hún skaða lífríki þar og mögu-
leika á nýtingu æðarvarps sem þar er.
Hann segir nær að nota fjármunina til
að stytta leið milli Ísafjarðar og
Reykjavíkur um svokallaðan Vest-
fjarðaveg.
Að sögn Reynis Bergsveinssonar,
sem á Hrútey, komu umræddar hug-
myndir fyrst fram í dagsljósið árið
1997 en þær ganga út á að brúa bilið
milli eyjarinnar og lands austan meg-
in við hana en vestan megin yrði hún
tengd með uppfyllingu.
Verður þetta gert í stað uppbygg-
ingar vegar um Eyrarfjall, en að sögn
Gísla Eiríkssonar, umdæmisverk-
fræðings á Ísafirði, myndi það stytta
vetrarleiðina um Djúpið um 28 kíló-
metra en sumarleiðin yrði álíka löng
og áður. Gert sé ráð fyrir að fram-
kvæmdin fari í umhverfismat á þessu
ári en framkvæmdir geti hafist eftir
þrjú til fjögur ár.
Helmingi dýrara en
vegur um Eyrarfjall
Veglínan er að sögn Reynis áætluð
yfir eyna endilanga sem myndi að
sögn hans hafa afdrifaríkar afleiðing-
ar fyrir lífríkið þar. Hann segir eyna
gróðursæla auk þess sem nokkur
dúntekja er í henni og er löng saga á
bak við nýtingu æðarvarpsins þar.
Beiðnum hans um að gert yrði mat á
vegarlagningu á skerjum fast við
Hrútey að norðanverðu hafi ekki ver-
ið svarað og sömu sögu sé að segja um
tillögur hans um að leggja nýjan veg
yfir Eyrarfjall í 300 metra hæð.
Reynir segir að þegar upphaflegar
áætlanir um kostnað við vegarlagn-
inguna voru settar fram hafi það verið
staðhæft að það kostaði 100–200 millj-
ónum krónum minna að leggja veginn
um Hrútey en um Eyrarfjall en síðar
hafi komið í ljós að þetta væri rangt. Í
raun yrði vegurinn um Hrútey um
helmingi dýrari en vegur yfir Eyrar-
fjall. „En á meðan verið var að sann-
færa fólk var dregin upp kolröng nið-
urstaða til þess að það væri
óhjákvæmilegt að komast að þeirri
niðurstöðu að það yrði að fara yfir
Hrútey,“ segir hann.
Hægt að stytta Vestfjarðaveg
um 100 kílómetra
Að mati hans væri skynsamlegra
að nýta fjármunina til að stytta leiðina
milli Ísafjarðar og Reykjavíkur um
Vestfjarðaveg. Vegurinn um Mjóa-
fjörð er hins vegar hluti af Djúpvegi,
sem liggur milli Brúar í Hrútafirði og
Ísafjarðar um Ísafjarðardjúp. Til
standi að gera jarðgöng milli Dýra-
fjarðar og Arnarfjarðar sem myndi
stytta Vestfjarðaveg um 25 kílómetra
og í raun sé búið að eyrnamerkja pen-
inga í jarðganga- og vegaáætlun fyrir
þeirri framkvæmd. Þá hafi lengi verið
rætt um að brúa Þorskafjörðinn og
stytta leiðina enn um 10 kílómetra
sem mætti gera fyrir helming þess
fjár sem vegurinn um Hrútey muni
kosta. Vegagerðin hafi einnig horft til
þess að jarðgöng gegnum Gufudals-
háls myndu stytta leiðina enn um 15
kílómetra.
„Að gerðum þessum endurbótum
yrði Vestfjarðavegur 90–100 kíló-
metrum styttri en Djúpvegur og sér-
fræðingur Vegagerðarinnar segir
mér að það þýði 3–4 milljarða í hagn-
að fyrir umferðina að stytta leiðina
um 100 kílómetra,“ segir Reynir.
Hann hyggst ekki láta Hrútey
umyrðalaust af hendi. „Ég geri ráð
fyrir að ekki sé hægt að gera eign-
arnám nema að sannfæra fólk um að
þar liggi að baki almannaheill og al-
mannaþörf. Og ég sé ekki að það sé al-
mannaheill að Ísfirðingar fái endilega
að keyra lengri leiðina til Reykjavíkur
í staðinn fyrir styttri leiðina og eyði-
leggja þessa perlu í leiðinni.“
Leggst gegn vegi um Hrútey
Landeigandi hyggst ekki láta
eyjuna umyrðalaust af hendi
!
"
# "
$