Morgunblaðið - 02.03.2003, Page 11
að vinna í kosningum. En ég hef góð
tengsl. Til að mynda vorum ég og
John Kerry, sem sækist núna eftir
forsetatilnefningu Demókrataflokks-
ins, saman í viðskiptum áður en hann
sneri sér að stjórnmálum.“
– Þið rákuð saman kexfyrirtæki.
„Já, og það gekk mjög vel,“ segir
hann og hlær. „Það var mikið ævin-
týri. Við nefndum það eftir móðurfjöl-
skyldu minni og móðurfjölskyldu
hans svo það heitir Kilbert & Forbes.
Það hefur gamaldags og virðulegt yf-
irbragð þó að það hljómi frekar eins
og fasteignasala en kex.“
– Voruð þið með súkkulaðikex?
„Já, við vorum með stórar og girni-
legar súkkulaðikökur,“ segir hann og
hlær.
– Er enn hægt að fá þetta kex?
„Já, við seldum fyrirtækið og það
er rekið enn í dag. En kökurnar eru
ekki eins góðar og þær voru,“ segir
hann angurvær. „Það vantar herslu-
muninn.“
– Hvaða möguleika hefur Kerry?
„Ég held hann eigi ágæta mögu-
leika. Hann á fyrst og fremst eftir að
etja kappi við náunga frá Norður-
Karólínu, John Edwards, sem er
bráðskarpur og mjög ungur. Ég held
líka að mikið af gamla fólkinu eigi eft-
ir að styðja Gephart sem er alveg
skelfilegt. En gamla fólkið hefur mik-
ið vægi, því það er svo margt.“
Bush stendur höllum fæti
Hann segir marga stjórnmála-
menn líta svo á að George Bush
standi höllum fæti fyrir næstu for-
setakosningar. „Jafnvel í Bandaríkj-
unum eru 70% á móti stríði. Ef við
förum í stríð viljum við auðvitað vinna
það og koma drengjunum eins fljótt
heim og mögulegt er. En þjóðin er
andvíg stríði og auk þess mjög
áhyggjufull vegna efnahags-
ástandsins sem virðist á niðurleið.
Bush hefur brjálaðar hugmyndir;
hann er róttækasti forseti Bandaríkj-
anna frá upphafi. Og það er hryllilegt
sem hann hefur komist upp með.
Eina ástæðan er 11. september. Hann
hefði aldrei komist svona langt ef ekki
hefði verið fyrir þær hörmungar.“
Það eru erfiðir tímar að vera
Bandaríkjamaður, að sögn Giffords.
„Ég finn fyrir því hér. Fólk hugsar
með sér: Ertu einn af þessum brjál-
uðu Bandaríkjamönnum. Hvernig
getið þið sem ríki verið að gera þetta.
Og ég á ekkert svar við því enda er ég
mótfallinn því sjálfur. Það eru til aðr-
ar leiðir til að takast á við þennan
vanda.“
Stefnum að sama marki
Áður en Gifford kom til landsins
var hann á sveitasetri Davids Rocke-
fellers eldri í grennd við New York,
sem til stendur að breyta í fræðslu-
miðstöð um sjálfbæra þróun. „Rocke-
feller-fjölskyldan er virkilega áhuga-
söm um þetta málefni,“ segir hann.
„Þegar ég tala um að koma á fót
tæknistofnun á Íslandi, sem sérhæfir
sig í sjálfbærri þróun, er ég ekki að
tala út í loftið. Það býr margra ára
reynsla að baki þessara orða og þið
hafið auðlindina sem getur laðað að
fólk úr öllum heiminum. Ég held þið
hafið unnið mikilvægara starf en þið
gerið ykkur grein fyrir. Þið hugsið að-
eins um að fá hingað ferðamenn og
selja þeim vörur og það er allt í lagi
því hagsmunir okkar fara saman. Við
stefnum í átt að sama marki, sjálf-
bærum samfélögum.“
Enginn hefur löggilt umboð til þess.
Oldways hefur áhuga fyrir því að
kynna þá hugmynd með því að segja
að við höfum skoðað rökin fyrir því
og þetta sé sjálfbær eyja. Er Ísland
100% sjálfbært? Auðvitað ekki, þetta
eru venjulegar manneskjur og ekki
allar færar um að vera sjálfbærar, en
ekkert samfélag stendur betur.
Mikilvægt er að fá vottun þriðja að-
ila. Ef Íslendingar lýsa sig einhliða
sjálfbært samfélag gengur það ekki
upp í heimi alþjóðlegra viðskipta. Það
gæti gengið um hríð meðan Íslend-
ingar væru fyrstir, en forskotið hyrfi
þegar aðrar þjóðir segðust líka sjálf-
bærar.
Með tilkomu Netsins er hægt að
vinna þessum hugmyndum braut-
argengi á skömmum tíma. Við vitum
ekki ennþá hvernig best er að standa
að því eða hvar leita eigi vottunar. Ég
held það geti ekki verið hjá rík-
isstjórnum, því það getur tekið mörg
ár, linnulítil fundarhöld og svo þarf
leyfi frá hinum og þessum stofn-
unum.
En við eigum eftir að lifa það að
sett verði á fót stofnun á vegum
Sameinuðu þjóðanna sem vottar
sjálfbærni. Þá verður það mjög kostn-
aðar- og tímafrekt ferli að fá slíka
vottun og gerðar strangar kröfur.“
Gætum við ekki haft
þessa stofnun hér?
„Auðvitað, það væri hægt að
stofna sjálfseignarstofnun, sem ekki
væri rekin í ágóðaskyni og vottaði
sjálfbærni, en til skamms tíma litið
verður það Oldways sem kynnir Ís-
land sem sjálfbæra eyju fyrir banda-
ríska og evrópska markaðnum í sam-
ráði við Íslendinga.“
Og það stendur til að mynda
smáeyjabandalag?
„Aflið felst í bandalögum vegna
þess að með fleira fólki verða áhrifin
meiri. Þá spyrst hugmyndin út og
verður vinsælli. Vissulega gæti Ísland
reynt að eigna sér hugmyndina, en
þá væri það ekki eins markvisst. Aðrir
gætu tileinkað sér hana og myndað
bandalög og þá væri staða Íslands
veikari. Ísland á aldrei eftir að anna
eftirspurn heimsins eftir sjálfbærum
afurðum, t.d. sjávarútvegs- eða land-
búnaðarafurðum. En það getur verið
fyrst á markaðinn, byggt upp vöru-
merki og hollustu við það. Og 1%
Bandaríkjamanna er 30 milljónir. Ef
1% fær sér sjálfbært lamb einu sinni
á ári – þá farið þið öll á ströndina,“
segir hann og hlær.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 B 11
Robert Kennedy var skotinn til bana á Ambassador Hotel í New York og átti
Gifford þátt í handsama morðingjann, Sirhan Sirhan.
Reuters
John Kerry sækist eftir forsetatilnefningu Demókrataflokksins, en hann rak
áður kexfyrirtækið Kilbert & Forbes með Gifford.
pebl@mbl.is
ANTIK
FATASKÁPUR
Til sölu þrískiptur fataskápur úr
valhnoturót frá því um 1850-1900.
Mál eru: Hæð 215 cm, dýpt 70 cm
og lengd 210 cm.
MJÖG VEGLEGT HÚSGAGN.
Upplýsingar í síma 821 9265.
Lithimnulestur
Með David Calvillo
fimmtudag og
föstudag
Lithimnulestur er gömul fræðigrein þar sem
upplýsingar um heilsufar, mataræði og
bætiefni eru lesnar úr lithimnu augans.
Á fimmtudag og föstudag mun David Calvillo
vera með lithimnulestur í Heilsubúðinni, Góð
heilsa gulli betri. Njálsgötu 1, uppl. og tímapantanir í s:561-5250.
Innlit • matur • ljós • hillur • glös • lítil rými • kaffi • hönnunlif
u
n
Fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn 5. mars