Morgunblaðið - 02.03.2003, Síða 22
Einn skrítinn…
– Hvað myndirðu gera ef þú hittir Kínverja, Frakka og Rússa?
– Sprengja Kínverjann, fara í Frakkann og keyra burt á Rússanum!
FLESTIR okkar siðir sem tengjast bollu-,
sprengju- og öskudegi eru annaðhvort komnir úr
kaþólskri trú eða frá Norðurlöndunum. En ösku-
pokasiðurinn er íslenskur og er næstum 400
ára gamall. Og á bara að gleyma honum?
Við leggjum til að allir krakkar föndri nokkra
öskupoka og hengi á aðra
krakka á öskudaginn, einsog
gert var í gamla daga.
Þá reyndu stelpur að koma
öskupokum á stráka, en
strákarnir nældu pokum með
smásteinum í á stelpurnar.
Hvað vilt þú hafa í þínum pok-
um? Brandara? Málshætti?
Ástarbréf? Þú ræður…
1) Klippið niður litla ferhyrnda
efnisbúta.
2) Brjótið þá saman og saumið, botn og hlið.
3) Setjið eitthvað óvænt í pokann.
4) Bindið þráð eða band efst um pokann, og festið bréf-
klemmu, eða einhverskonar nælu, á enda bandsins.
5) Þið eruð tilbúin í stuðið! Lausn: Hún tók hatt, stígvél og lykil.
Fjör að föndra
Hvað varð um
öskupokana?
Langar þig að vera mar-
íuhæna á öskudaginn? Þann
búning er auðvelt að búa til
og jafnvel líka handa vinum
þínum og systkinum. Þau geta
verið einhver önnur skordýr og
þá breytið þið bara pappanum á
bakinu í samræmi við það. Auð-
velt og skemmtilegt!
Það sem til þarf:
Svört föt Tveir pípuhreinsarar Svitaband
eða hárspöng Rauður og svartur föndurpappi
Gamall Moggi Reglustika Skæri Lím
2-3 sm breiður borði
Hvað gera skal:
1) Vefjið pípuhreinsurunum utan um svitaband eða
hárspöng og þá eru komir þreyfarar. Þá
má krulla með því að vefja þeim um
putta.
2) Klippið rauða föndurpappann í egg-
laga hring sem passar á bakið.
3) Klippið úr svarta föndurpappanum 1
sm breiða línu og límið hana langsum í miðju rauða
pappahringsins.
4) Klippið líka út misstóra svarta pappahringi og
límið hér og þar á rauða pappahringinn.
5) Látið þorna.
6) Til að festa vængina þarf að gera 8 lítil göt á
pappahringinn. Tvö sett ofarlega og tvö sett um 30
sm neðar. (Sjá litlu myndina).
7) Þræðið borðann í gegnum götin, fyrst uppi og
síðan niðri. Farið í svörtu fötin ykkar, setjið þreif-
arana á ykkur og vængina að lokum.
Öskudagsbúningur
Maríuhæna
Hvað ætlar þú að vera á öskudaginn?
Strumpur, beinagrind eða M&M nammi?
Í öllum þessum tilvikum gæti komið sér vel að geta
málað sig vel í framan. Prófaðu þessa málningu.
2 matskeiðar mjúk fita
4 matskeiðar maíssterkja
matarlitur að eigin vali
1) Blandaðu fitu og maíssterkju
saman og skiptu í nokkra bolla, ef
þú vilt fleiri en einn lit.
2) Settu handklæði um hálsinn.
Þvoðu þér í framan og berðu á
þig andlitskrem. Passaðu
augun.
3) Með bómullarhnoðra
berðu smá maíssterkju
framan í þig.
4) Berðu andlitsmálningu
framan í þig með putt-
unum, í búninginn með þig
og af stað í stuðið!
Heimalöguð
andlitsmálning
„Æi, amma, hvað á ég eiginlega að vera á ösku-
daginn?“ vælir Guðrún Edda. Amma yppir öxlum
og bendir henni síðan á að fara upp á háaloft þar
sem finna má fullt af dóti. Guðrún Edda gramsar og
dregur fram úr gömlum pappakössum það sem
sést á efri myndinni. Á neðri myndinni er Guðrún
Edda búin að taka það sem hún ætlar að nota í
búninginn sinn. Finndu út hvað hún tók.
Lausn hjá öskupokunum.
Hvað á ég að vera?
„Þegar bollubollur bakast …“ heyrist
sönglað innan úr eldhúsi þar sem
hinn 10 ára Þorlákur bakar sínar al-
ræmdu bollur. Þetta er skemmtileg-
asti dagur ársins hjá honum. Boll-
urnar hans eru nefnilega ekkert
venjulegar bollur. Fyrst bakar hann
þessa grunnuppskrift, en setur síðan
ótrúlegustu sætindi ofan á. Hann hef-
ur sett ís og ananas á bollurnar sínar,
en þekktastur er hann fyrir að hræra
saman skyri og súkkulaðisósu og
smyrja á bollurnar. Vitiði hvað hann
gerir svo? Hámar þær í sig!
Þessi uppskrift dugar í svona 15–
20 bollur. Hvað langar þig að hafa á
þínum bollum? Lakkrís? Hví ekki?
200 gr hveiti
125 gr smjörlíki
5 tsk þurrger
1 msk sykur
1 egg
1 dl vatn
Nammi namm
Hámið hefst!
1) Hveiti og sykur sett í skál og smjör-
líkið mulið ofan í.
2) Þurrgerinu blandað saman við.
3) Egg og vatn þeytt saman og
bætt við deigið. Hrærist vel.
4) Sett með skeið á plötu og látið
lyfta sér við stofuhita í hálftíma.
5) Bakist við 200°C í 10–15 mínútur.
Fylgist með hvernig þeim líður.
6) Bollunum er leyft að kólna. Skerið
þær í tvennt og setjið gómsæti að eig-
in vali ofan á. Nammi namm.
T
hereza B. Petkova, 12
ára stelpa úr Kópa-
voginum, skrifaði
þessa skemmtilegu
sögu í vinakeppninni
okkar. Og hún á held-
ur betur við núna. Takk Thereza.
Við vorum byrjaðar í nýjum
skóla. Það var fullt af skemmti-
legum krökkum í bekknum okk-
ar, þ.á m. fjórar stelpur, þær
Andrea, Vala, Helga og Jónína og
þrír strákar, þeir Jakob, Pétur og
Ingi. Allar stelpurnar í bekknum
voru skotnar í Inga og ég reynd-
ar líka. Sesselja var hins vegar
ekki hrifin af neinum.
Við stelpurnar ræddum um
hvað við ætluðum að vera á ösku-
daginn. Ég var ekki viss en Andr-
ea ætlaði að vera köttur, Vala
ætlaði að vera vampíra, Helga
ætlaði að vera rokkstjarna en
Jónína og Sesselja voru ekki viss-
ar.
Dagarnir liðu og öskudagur
nálgaðist. Það voru fimm dagar
til öskudagsins. Fjórði dagurinn
leið og var bara venjulegur. En á
fimmta degi gerðist dálítið ótrú-
legt. Ég var að koma af klósett-
inu og þvoði mér um hendurnar í
vaskinum. Skólinn var búinn og
ég var að fara heim til mín. Ég
klæddi mig í íþróttaskóna mína
og var að reima þá þegar ég
heyrði sagt: Sæl María. Þessi
rödd var kunnugleg, svo áttaði ég
mig á því að þetta var Ingi! Ég
leit upp og horfði á hann. Dökk-
bláu, djúpu augu hans horfðu á
móti.
Ég trúði ekki mínum eigin eyrum
Sæll Ingi, hálfhvíslaði ég. Ingi
ræskti sig og sagði: Ég var að
pæla hvort þú mundir vilja fara
með mér í bæinn á öskudaginn.
Það var smáþögn og svo bætti
hann við: Ef þú ert ekki búin að
skipuleggja ferð í bæinn með ein-
hverjum öðrum á öskudaginn.
Ég trúði ekki mínum eigin eyr-
um! Hafði hann sagt þetta eða
var þetta bara blekking? Nei, nei,
ég er ekki að fara með neinum
öðrum og vil endilega fara með
þér í bæinn, sagði ég. Allt í lagi,
sjáumst þá. Eigum við að hittast
fyrir utan Hagkaup? Já, já, sagði
ég. Og hann fór. Ég stóð ein eftir
og reið við sjálfa mig. Ég var búin
að skipuleggja ferð með Sesselju
á öskudaginn. Hvað átti ég nú að
gera?
Ég var búin að ákveða að fara
með Inga í bæinn. Ég meina,
Sesselja gæti ekki orðið mjög
vond út í mig, ég gæti bara sagt
að ég yrði að fara til frænku
minnar en kæmi síðan klukkan
svona 16 og þá gætum við farið
saman í bæinn. Ég hringdi í Sess-
elju og sagði henni þetta sem ég
var búin að plana með frænku
minni og því. Hún sagði: Ég trúi
þér ekki! Þú ert að skálda þetta
upp er það ekki? Og þegar ég
neitaði skellti hún á mig. Þetta er
slæmt, núna er Sesselja óvinkona
mín og maður þarf virkilega á
vinkonu að halda á öskudegi og
reyndar öllum dögum.
Á morgun er öskudagur. Ég
ætlaði að vera kúrekastelpa. Ég
ætlaði að flétta síða brúna hárið
mitt í fastafléttu og setja brúnan
kúrekahatt á hausinn. Svo ætlaði
ég að setja á mig ljósan augn-
skugga og bleikan gloss, fötin
mín voru svo bara í kúrekastíl:
brún peysa, brúnar, útvíðar bux-
ur og geðveikt flottir brúnir, há-
hælaðir skór.
Ekkert nammi
Ég var mætt stundvíslega fyrir
utan Hagkaup en ég þurfti að
bíða í korter. Svo loksins kom
hann. Hann var í sömu fötunum
og hann hafði verið í í gær. Svart-
ar buxur og svartur leðurjakki.
Við gengum um en ég þorði ekki
að syngja fyrir framan af-
greiðslufólkið því að hann var
með mér. Svo ég fékk ekkert
nammi. Loks fengum við okkur
franskar og gos í McDonalds.
Eftir langa stund sagði hann: Ég
þarf að koma mér heim því ég lof-
aði kærustunni minni að fara með
henni út að borða og í bíó. Þessi
orð urðu mér mikið áfall. Hann
áttu kærustu! Og samt sat ég
hérna með honum meðan aum-
ingja vinkona mín lét sér leiðast
heima hjá sér. Ég er ekki sönn
vinkona, sagði ég við sjálfa mig á
meðan ég gekk út á leiðinni að
strætisvagnastöð.
Hann fór með leigubíl til kær-
ustunnar sinnar en ég hafði ekki
efni á leigubíl svo ég tók strætó
heim til mín. Svo hringdi ég í
Sesselju:
Ekki skella á!
(M=María (ég) S=Sesselja (vin-
kona mín)
M: Hæ, hæ.
S: Hæ.
M: Ég verð að segja þér dálítið.
S: Hvað er að?
M: Ég fór aldrei með frænku
minni í bæinn.
S: (greip frammí) Svo þú fórst
aldrei í bæinn, hvað gerðirðu þá?
M: Jú, ég fór í bæinn, en með
Inga. Það var rosalega leiðinlegt
að vera með honum, það eina sem
var ágætt var að við fengum okk-
ur franskar og gos.
Það var löng þögn í símanum
og hvorug okkar sagði orð í fimm
mínútur. Loks sagði Sesselja.
S: Nú, ég held að þú hafir
skemmt þér mjög vel með honum
Inga! Svo var hún að því komin að
skella á þegar ég sagði:
M: Gerðu það, ekki skella á!
S: Hvers vegna ætti ég ekki að
skella á?
M: Ég get útskýrt allt! Leyfðu
mér að útskýra.
S: Hvað getur þú svo sem út-
skýrt! En útskýrðu þá.
M: Komdu heim til mín, svo að
við getum talað almennilega sam-
an. Bæ.
S: Ok. bæ.
Vinátta endist að eilífu!
Sesselja kom til mín eftir tæpt
korter. Hún sparkaði af sér
Nike-skónum og fór úr jakkanum
sínum og fór svo með mér upp í
herbergið mitt. Hún var í búningi
og hún var kúrekastelpa alveg
eins og ég! Ég sagði það við hana
og við brostum báðar út að eyr-
um. Svo sagði ég henni alla sólar-
söguna. Ég sagði að mér þætti
þetta leitt og bað hana að fyr-
irgefa mér. Hún fyrirgaf mér.
Svo breiddust bros um andlit
okkar og ég spurði hana hvort
hún vildi koma með mér í Kringl-
una og hún játaði. Svo lögðum við
af stað og þetta var besta
skemmtun mín með Sesselju! Og
nú var mér alveg sama um Inga.
Hann var líka einhvernveginn
ekki mín týpa.
Og nú er sagan búin. Sesselja
er besta vinkona mín í öllum
heiminum og þið ættuð aldrei að
gera sömu mistök og ég gerði.
Vinátta endist að eilífu!
Öskudagurinn
Saga af vináttu