Morgunblaðið - 08.04.2003, Page 46

Morgunblaðið - 08.04.2003, Page 46
46 B ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Mosfellsbær — Hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar er nú til sölu ein- býlishúsið Arnarfell þar í bæ. Húsið er á tveimur hæðum, 292 ferm. að stærð með tvöföldum bílskúr. Lóðin er afar stór eða 7.481 ferm. Ásett verð er 45 millj. kr. „Húsið stendur á einni af betri lóðum Mosfellsbæjar með gríðar- miklu útsýni yfir bæinn og til fjallanna í kring,“ sagði Einar Páll Kjærnested hjá Fasteignasölu Mos- fellsbæjar. „Keyrt er að húsinu frá Reykja- lundarvegi og beygt inn Engjateig. Á vinstri hönd er lítill afleggjari upp hæð, sem endar við húsið. Aðkoman er einkar falleg og minnir einna helzt á óðalssetur. Aðalinngangur hússins er að vest- anverðu. Komið er inn í litla forstofu og úr henni er komið í forstofuhol. Á vinstri hönd er fataherbergi, gesta- salerni og rúmgott húsbóndaher- bergi. Á hægri hönd úr holi er geng- ið inn í stóra og glæsilega stofu með miklu útsýni. Úr stofunni er frönsk hurð fyrir dyrum inn í borðstofu, en einnig er gengið inn í borðstofu úr holi. Inn af borðstofu er ágætt eldhús með L-laga viðarinnréttingu. Úr holi er stigi upp á 2. hæð. Þar er gott sjónvarpshol og á hægri hönd er lítið svefnherbergi undir súð að hluta. Þar við hlið er er bað- herbergi með baðkari og góðri inn- réttingu. Við hlið baðherbergis er ágætt barnaherbergi og inn af sjón- varpsholi er rúmgott barnaherbergi með góðu skápaplássi. Við hlið borðstofu á 1. hæð er tengibygging og forstofa fyrir heim- ilisfólk. Inn af henni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, búrherbergi og þvottahús. Úr þvottahúsi er gengið inn í 55 ferm. tvöfaldan bílskúr með góðu geymsluherbergi. Úr forstofu er gengið út á stóra timburverönd með góðri skjólgirð- ingu í suður og á veröndinni er heit- ur pottur. „Þetta er sérlega vel staðsett eign með miklu útsýni,“ sagði Einar Páll Kjærnested að lokum. Möguleiki er á að kaupa aukalega 5.373 ferm. að- liggjandi lóð. Arnarfell Húsið er á tveimur hæðum, 292 ferm. að stærð með tvöföldum bílskúr. Lóðin er afar stór eða 7.481 ferm. Ásett verð er 45 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar. Nýjar íbúðir til sölu hjá 3ja herbergja 4ra herbergja Raðhús Klapparhlíð - Mosfellsbæ Við erum að reisa blandaða byggð lítilla fjölbýlishúsa og raðhúsa. Byggðin rís á framtíðarbygginga- svæði Mosfellsbæjar. Mjög falleg hönnun, gott útsýni og rými milli húsa. Öll þjónusta, skóli og leik- skóli í næsta nágrenni. Teikni- stofan Úti og Inni sá um hönnun húsanna. Laugarnesvegur 87 og 89 Rúmgóðar íbúðir á einum eftir- sóttasta stað í bænum (gamla Goðalóðin). 5 og 6 hæða fjöl- býlishús með lágmarksviðhaldi og frábærri hönnun. Húsin eru einangruð að utan og klædd ál- klæðningu. Teiknistofan Úti og Inni hannaði húsin. 5 herbergja KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ Um 100 fm íbúðir í litlum 3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að utan og klædd harðviði og álklæðningu. Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergis-og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 13,7 millj. ÞÓRÐARSVEIGUR Vel hannaðar rúmlega 100 fm íbúðir. Íbúðunum verður skilað fullbúnum án gólfefna að undanskildum baðherbergis- og þvottahúsgólfum sem verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 14,7 millj. með sérstæði í bílageymsluhúsi. Söludeild okkar er að Höfðabakka 9, sími 530 4200. Einnig eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is. Nánari upplýsingar Innréttingar eru sérlega vandaðar en óski kaupandi eftir að hanna íbúðina að eigin smekk tökum við vel í slíkar óskir. Þær þurfa þó að koma fram í tíma. Breytingar á íbúðum Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is. LAUGARNESVEGUR Vandaðar tæplega 90 fm íbúðir á frá- bærum stað í höfuðborginni. 5 hæða fjölbýli með sérinngangi af svalagangi. Lyftublokk með bílageymsluhúsi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólf- efna en baðherbergi verða flísalögð. Stutt í laugarnar og miðbæinn. Verð frá 15,6 millj. með sérstæði í bílageymsluhúsi. KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ 63 til 67 fm íbúðir í litlum 3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að utan og klædd harðviði og álklæðningu. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gó l fe fna en baðhe rbe rg i s -og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 10,4 millj. ÞÓRÐARSVEIGUR Vel hannaðar rúmlega 70 fm íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna að undanskildum baðherbergis- og þvottahúsgólfum sem verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 11,2 millj. með sérstæði í bílageymsluhúsi. 2ja herbergja Þórðarsveigur – Grafarholti Skemmtilegar hannaðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í 4ra og 5 hæða lyftuhúsi á skjólgóðum og fallegum stað. Sérinngangur af svalagangi eða beint af jarðhæð í hverja íbúð. Vandaðar innrétt- ingar. Þvottahús er í öllum íbúð- um. Mjög stutt er í alla þjónustu og er leikskóli steinsnar frá húsinu. Húsið er steinsallað að utan og þarfnast því lítils viðhalds. Kanon arkitektar hönnuðu húsin. Borgartún 30 A og B Stórglæsilegt sex hæða lyftuhús með stórum og björtum lúxus- íbúðum sem hannaðar eru með þægindi íbúa í huga af Ingimundi Sveinssyni arkitekt. Sérlega vandaður frágangur úti sem inni, viðhald í lágmarki. Húsið er ein- angrað að utan og klætt álklæðn- ingu. Brunaviðvörunarkerfi er í húsinu, sérstaklega er hugað að hljóðeinangrun, loftskiptakerfi, mynddyrasími, lyfta opnast beint inn í íbúðir, sólskáli til suðurs, tvennar svalir með endaíbúð- um, tvö baðherbergi o.m.fl. LAUGARNESVEGUR Vandaðar 110 til 130 fm íbúðir á frábærum stað í höfuðborginni. 5 eða 6 hæða fjölbýli með sérinngangi af svala- gangi. Lyftublokk með bílageymsluhúsi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergi verða flísalögð. Stutt í laugarnar og miðbæinn. Verð frá 15,9 millj. með sérstæði í bílageymsluhúsi. KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ 82 til 88 fm íbúðir í litlum 3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að utan og klædd harðviði og álklæðningu. Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergis- og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 12,2 millj. ÞÓRÐARSVEIGUR Vel hannaðar rúmlega 84 til 88 fm íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna að undanskildum baðherbergis- og þvottahúsgólfum sem verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 12,6 millj. með sérstæði í bílageymsluhúsi. BORGARTÚN Sérlega vandaðar 130 til 170 fm íbúðir á frábærum stað í höfuðborginni, mitt á milli Laugardals og miðbæjarins. Öllum íbúðum fylgir sér stæði í bílageymslu- húsi sem innangengt er í. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna að undanskildum baðherbergjum og þvotta- húsgólfum. Svalir eru yfirbyggðar að hluta með gleri. Verð frá 19,0 millj. með sérstæði í bílageymsluhúsi. KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ Um 113 fm endaíbúðir í litlum 3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að utan og klædd harðviði og álklæðningu. Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergis-og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 15,0 millj. KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ Um 170 fm tveggja hæða raðhús með innbyggðum bílskúr. Tilbúið að utan og fokhelt að innan. ATH. Húsin verða klædd að utan að hluta með harðviði og að hluta með litaðri bárumálmklæðningu, gluggar eru álklæddir og þarfnast húsin því lágmarksviðhalds. Verð frá 14,8 millj. Fjórar staðsetningar í boði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.