Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Goðafoss og Selfoss koma og fara í dag. Saturnus, Mánafoss, Arnarfell, Nordic Frost og Almak koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss fer í dag til Reykjavíkur. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Skrif- stofa, s. 551 4349, opin miðvikud. kl. 14–17. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og opin handa- vinnustofa, kl. 13–16.30 opin smíða- og handa- vinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 bað, kl. 9–12 gler- list, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–10.30 Búnaðarbankinn, kl. 13–16.30 brids/vist, kl. 13–16 glerlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað, kl. 10 leikfimi, kl. 14.30 bankaþjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9 silkimálun, kl. 13–16 körfugerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. kl. 13.30 bankaþjónusta. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Kl. 9 alm. handavinna, bókband og aðstoð við böðun, kl. 13 leikfimi, kl. 14 sag- an. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Vorferðin. Lagt af stað frá Kirkjulundi kl. 10. Far- ið verður um Suður- land. Kvöldverður í Hestheimum kl. 18. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 postulínsmálun, kl. 13– 16.30 módelteikning, kl. 9–14 hárgreiðsla, kl. 9–16.30 fótaaðgerð. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 hár- greiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tréút- skurður kl. 9, línudans kl. 11, glerlist kl. 13, pílukast kl. 13.30, kór- æfing kl. 16.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Miðviku- dagur: Söngfélag FEB, kóræfing kl. 17. Hringferð um Reykja- nes 20. maí, laus sæti. S. 588 2111. Félag eldri borgara, Suðurnesjum, Selið, Vallarbraut 4, Njarð- vík. Í dag kl. 14 fé- lagsvist. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 9.30 boccia og glerlist, kl. 13 glerlist og félagsvist, kl. 17 bobb. Kl. 15.15 söngur. Guðrún Lilja leikur undir á gítar. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 10 ganga, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, bútasaum- ur, útskurður, hár- greiðsla og fótaaðgerð, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 14 dans, kl. 15 frjáls dans, kl. 15 teiknun og málun. Fótaaðgerðir og hár- greiðsla. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10–11 samverustund, kl. 9–16 fótaaðgerð, kl. 13–13.30 banki, kl. 14 félagsvist. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 12.15– 14.30 verslunarferð í Bónus, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 10 fótaað- gerð, kl. 13 kóræfing, kl. 12.30 verslunarferð. Vinnustofurnar verða lokaðar miðvikud. 14. og fimmtud. 15. maí vegna undirbúnings handverkssýningar. Vinnustofurnar opn- aðar aftur þriðjud. 20. maí. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vestfjörðum: Jón Jóhann Jónsson, Hlíf II, Ísafirði, s. 456 3380, Jónína Högna- dóttir, Esso-verslunin, Ísafirði, s. 456 3990, Jó- hann Kárason, Engja- vegi 8, Ísafirði, s. 456 3538, Kristín Karvels- dóttir, Miðstræti 14, Bolungarvík, s. 456 7358. Í dag er miðvikudagur 14. maí, 134. dagur ársins 2003. Vinnu- hjúaskildagi. Orð dagsins: Sá sem breiðir yfir bresti eflir kærleika, en sá sem ýfir upp sök veldur vinaskilnaði. (Orðskv. 16, 17.)     Í pistli í Deiglunni veltirGuðmundur Svansson fyrir sér stjórnarmynd- unarmöguleikum eftir kosningarnar. „Yfirlýsing Davíðs Oddssonar um að hann reikni ekki með því að sitja þetta kjörtímabil til enda opnar ef til vill fyrir þann eftirtektarverða möguleika að Halldór setjist í forsætisráð- herrastólinn á miðju kjör- tímabili,“ skrifar Guð- mundur. „Halldór getur í það minnsta í framhaldi velt möguleikanum upp í viðræðum milli flokk- anna. Jafnvel þótt ekki verði samið um slíkt sér- staklega gæti vonin um slíkt aukið möguleikann á áframhaldandi stjórn- arsamstarfi. Það yrði þungt fyrir Framsókn að halda starfinu áfram eftir að hafa fengið áberandi betri kosningu en sam- starfsflokkurinn án þess að fá einhvers konar dúsu. En Halldór hefur fáa aðra góða kosti. Sam- steypustjórn með Sam- fylkingunni er ekki fýsi- leg með svo knappan meirihluta þegar til dæm- is Jóhanna Sigurðardóttir og Kristinn H. Gunn- arsson eru í eins manns þingmeirihluta. Hinn kosturinn, sem er þriggja flokka vinstristjórn, er einnig ákaflega ólíklegur í ljósi þess að Vinstri- grænir misstu mann eftir að hafa gert sér vonir um aukið fylgi.“     Guðmundur helduráfram: „Það er mjög ólíklegt að Steingrímur hafi áhuga á að fara í stjórnarsamstarf með fylgistap á bakinu og þar að auki undir þeim kring- umstæðum að flokkurinn hans sé einhvers konar varadekk tveggja stærri flokka. Ríkisstjórnin stendur ekki og fellur með atkvæðum Vinstri- grænna og fyrir vikið verður erfitt fyrir þá að knýja sínar róttæku áherslur í gegn í stjórn- inni. Ef sú er raunin hefur fylgisaukning Samfylk- ingar á kostnað Vinstri- grænna í rauninni dregið úr líkum á klassískri þriggja flokka ríkisstjórn.     Tveggja flokka ríkis-stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks er ekki líklegur kostur, en samt umfjöllunarverður möguleiki. Það er til dæmis skemmtileg til- hugsun að ráðherrar Samfylkingar í slíkri rík- isstjórn yrðu meðal ann- ars Guðmundur Árni Stefánsson, Össur Skarp- héðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir. Þau sátu öll í fyrstu ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og stjórnarseta þeirra yrði svolítið hjákátleg í ljósi þess að Samfylkingin lagði áherslu á breyt- ingar fyrir þessar kosn- ingar. Áframhaldandi sam- starf sömu flokka er því líklegur kostur. Það eyk- ur enn á líkurnar að sam- starf þessara flokka hefur gengið vel.“ STAKSTEINAR Fylgisaukning Samfylk- ingar minnkaði líkur á klassískri vinstristjórn Víkverji skrifar... VÍKVERJI er svo ljómandiánægður með sig því hann dreif sig í ristilspeglun um daginn. Hann hefur nefnilega fylgst með vitund- arvakningu Landlæknisembættisins um ristilkrabbamein og veit að það er þriðja algengasta krabbameinið hér á landi. Sjúkdómurinn er ámóta algengur hjá konum og körlum og kemur yfirleitt fram um eða eftir fimmtugt og ef ættarsaga er um ristilkrabba eykst áhættan. Ristilkrabbamein á upptök sín í slímhúð ristilsins. Langoftast mynd- ast þessi tegund krabbameins (yfir 95%) út frá góðkynja forstigi, svo- kölluðum ristilsepum eða kirt- ilæxlum. Víkverji ákvað semsagt að láta at- huga hvort í ristli hans leyndust nú ristilsepar því ristilkrabbamein hef- ur greinst í nánustu fjölskyldu hans. Hann þurfti að vera á fljótandi fæði í tvo og hálfan dag og var með nokkrar áhyggjur af því að rist- ilspeglunin kynni að reynast afar sársaukafull. En það var öðru nær. Ristilspeglunin er kannski ekki beint ein ánægjulegasta reynsla sem Víkverji hefur komist í tæri við en hún er ekki sársaukafull og raun- ar fannst honum bara nokkuð svalt að sjá og fylgjast með ristlinum á sér á skjá. Víkverji sem er á besta aldri reyndist vera með góðkynja sepa sem hægt var að fjarlægja meðan á ristilspeglun stóð. Læknirinn var aug- ljóslega með húmorinn á réttum stað og kvaddi Víkverja með mynd af her- legheitunum sem hann tók á meðan speglunin átti sér stað. Mættu svo bara aftur eftir fimm ár, sagði hann að end- ingu og Víkverji verður sko ekki í vandræðum með það. x x x REIÐHJÓLI var stolið af heimilivinkonu Víkverja. Hún fór á lög- reglustöðina til að athuga hvort far- arskjótinn hefði komið í leitirnar en svo reyndist ekki vera. Þá þurfti hún að láta taka lögregluskýrslu til að fara með í tryggingarnar. Sá sem kunni á tölvuna á þessari deild lög- reglustöðvarinnar var hins vegar ekki við, svo vinkonan hékk og beið í allt að klukkustund. Loksins þegar maðurinn kom þurfti að ræsa tölv- una og allt tók þetta langan tíma, matartímann og meira til. Eftir að þetta hafðist sagði starfsmaðurinn sem tók skýrsluna að hún gæti sótt afrit af skýrslunni á annan stað á lögreglustöðinni. Maðurinn var með skýrsluna í höndunum en virtist ekki geta tekið ljósrit af henni. Vin- konan arkaði þangað en þar kom starfsmaðurinn af fjöllum og sagðist ekki hafa skýrsluna undir höndum og ekki fá hana til sín strax. Konan var orðin þreytt á þessu og spurði hvort ekki væri hægt að fletta skýrslunni upp í tölvu. Nei það var ekki hægt og vinkonan mátti gjöra svo vel og gera sér ferð á lög- reglustöðina aftur til að nálgast af- ritið. Vinkonan hugsaði til allra þeirra sem lentu í þessum hremm- ingum og velti fyrir sér hvort starfs- maðurinn sem var með eina afritið vissi ekki að embættið byggi ekki yfir þeirri nútímatæki að annar starfsmaður gæti prentað út skýrslu sem er í gagnagrunni lögreglunnar. Morgunblaðið/Ásdís Það var búið að stela reiðhjólinu og vinkonan þurfti að láta taka lög- regluskýrslu. OKKUR langar til að vekja athygli á sérstaklega góðri þjónustu sem okkur var veitt af TNT Hraðflutning- um. Yfirmaður þar er Héð- inn Gunnarsson og starfs- maður Sævar Ásgrímsson. Málið var það að við þurft- um að senda passa til sendi- ráðs Sri Lanka í Stokkhólmi vegna vegabréfsáritunar og vorum mjög tímabundnir. Höfðum samband við nokkr- ar hraðflutningaþjónustur og TNT varð fyrir valinu þar sem okkur mætti sérstakur skilningur á aðstæðum. Við mættum með bréfið kl. 16:00 þriðjud. 6.5. og fengum passana og vísauppáskrift- ina aftur í hendurnar kl. 12:00 fimmtud. 8.5. Þetta er góð þjónusta. Sagan er ekki öll, við ætl- uðum að fljúga til London mánud. 12.5. kl. 7:45 og áfram til Sri Lanka sama dag. Miðarnir til Sri Lanka áttu að bíða okkar í flugaf- greiðslunni en misskilning- ur hafði orðið og þeir sendir í ábyrgðarpósti til Íslands. Það hittist þannig á að við vorum að heiman þegar starfsmaður Íslandspósts reyndi að koma bréfinu til skila 8.5. kl. 19:00, tilkynn- ing var sett inn og bréfið lagt inn á pósthús Kópa- vogs. Við skiluðum okkur ekki heim fyrr en laugar- daginn 10.5. kl. 19:30. Okk- ur til mikillar skelfingar sáum við tilkynninguna um ábyrgðarbréfið sem hafði að geyma miðana áfram. Á þessari örlagastundu datt okkur enginn annar í hug en Sævar hjá TNT sem hafði látið okkur hafa nafn- spjaldið sitt. Af þvílíkri alúð og þjónustulund hlustaði hann á erindi okkar og hafði síðan samband við yfirmann sinn, Héðin Gunnarsson, sem kom því þannig fyrir að það var hringt í okkur sunnud. 11.5. kl. 12:00 af stöðvarstjóra pósthússins í Kópavogi og okkur afhent bréfið. Með þessum orðum vilj- um við þakka þessu fólki hjartanlega fyrir góða þjón- ustu og hvetjum fólk til að virða það sem vel er gert. Guðbjartur G. Gissurarson, 011254-2099. Einar Helgason, 141270-5329. Kópavogi. Að falla á sjálfs sín bragði FYRIR kosningar var gerð aðför að Sjálfstæðisflokkn- um. Eins og dæmin sanna eiga þeir sem temja sér að- ferðir Gróu á Leiti á hættu að falla á sjálfs sín bragði. Máltækið segir: Sá hlær best sem síðast hlær. Eldri borgari. Tapað/fundið Lyklakippa í óskilum LYKLAKIPPA, með hús- lykli og bíllykli, fannst við Bessastaðatjörn á Álfta- nesi. Upplýsingar í síma 898 2116. Dýrahald Kisa týnd á Seltjarnarnesi DIMMALIMM, 9 mánaða svört og hvít læða, týndist á Bollagörðum á Seltjarnar- nesi sunnudaginn 11. maí. Hún er ekki vön að vera mikið úti og því líklegt að hún sé einhvers staðar í fel- um og gráti það sárt að vera villt. Hún var með bleika ól, bjöllu og rautt merkispjald. Þeir sem hafa orðið hennar varir eða vita hvar hún er eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 562 2176, 861 2176 eða 897 9892. Fundarlaun. Marlin er týnd MARLIN týndist í Bökkun- um í Neðra-Breiðholti. Hún er merkt í eyra R-8318. Fólk er beðið að svipast um eftir henni í geymslum. Þeir sem geta gefið upplýsingar hafi samband í síma 861 7855. Kisa týnd ÞESSI læða fór að heiman frá sér á Njálsgötu sl. föstu- dag og hefur ekkert spurst til hennar síðan. Hún er eyrnamerkt númer 187. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hennar eru beðnir að hringja í síma 865 9637. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Góð þjónusta LÁRÉTT 1 fjötur, 4 renningurinn, 7 ilmur, 8 askja, 9 ílát, 11 labba, 13 valda, 14 stíf, 15 ró, 17 atlaga, 20 snák, 22 horaður, 23 laun, 24 dreg í efa, 25 togi. LÓÐRÉTT 1 klett, 2 ókyrrðin, 3 framkvæma, 4 kná, 5 fiskur, 6 systir, 10 glyrna, 12 væn, 13 star- artjörn, 15 efablendni, 16 goð, 18 spjalla, 19 benti á, 20 megni, 21 hönd. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 rótartaug, 8 unaðs, 9 næðið, 10 ann, 11 lútan, 13 aurar, 15 stagl, 18 álfur, 21 ugg, 22 ráðin, 23 Óðinn, 24 makalaust. Lóðrétt: 2 óvart, 3 ausan, 4 tunna, 5 urðar, 6 bull, 7 æður, 12 agg, 14 ull, 15 særð, 16 auðna, 17 lunda, 18 ágóða, 19 fliss, 20 röng. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.