Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Nokkur spenna var í troðfulluíþróttahúsinu þegar flautað var til leiks í Austurbergi, það var að duga eða drepast fyrir ÍR-inga, þeir urðu að vinna til að geta tryggt sér odda- leik í rimmunni. Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, hafði hins vegar gefið út þá yfirlýs- ingu eftir þriðja leik liðanna á sunnu- daginn, að hann ætlaði ekki að fara með lið sitt í fimmta leikinn, farið yrði í fjórða leikinn til þess að ljúka dæm- inu. Greinilegt að Haukar voru þjálf- ara sínum sammála í einu og öllu, verkefnið sem hófst þegar flautað var til leiks á Íslandsmótinu í september á síðasta ári, mótið yrði ekki teygt lengra fram á vorið. Flugstjórinn Bjarni Frostason var eins og maður í hans stöðu viss hvert skyldi stefnuna og eftir nokkurra sekúndna leik gerði hann samherjum sínum það ljóst að áfangastaðurinn væri á hreinu þegar hann varði víta- kast nafna síns Fritzsonar. Flug- stjórinn og áhöfn hans tóku stjórn- ina, ÍR-ingar skyldu aðeins vera farþegar. Áfangastaðurinn væri Hafnarfjörður og þegar þar yrði lent skyldi Íslandsbikarinn vera með í för. Framan af leik gekk allt að óskum hjá Haukum, ÍR-ingar áttu í mesta basli með að halda í við gestina sem léku að vanda sterka flata 6/0 vörn. Sóknarleikurinn var hikandi og ráð- leysislegur. Hinum megin vallarins gekk Haukum allt í haginn, þeir fundu hverja glufuna á fætur annarri á framliggjandi vörn ÍR og fátt virtist geta komið í veg fyrir að Haukar gerðu út um leikinn strax í fyrri hálf- leik. Það gekk hins vegar ekki eftir, ÍR-ingar streittust við, tókst að kom- ast inn í leikinn og halda jöfnu eftir miðjan fyrri hálfleik og framundir leikhlé. Þá tókst Haukum aftur að komast fram úr og vera fjórum mörkum yfir í hálfleik, 14:10. Haukar gáfu lítið eftir í byrjun síð- ari hálfleiks, minnstur varð munur- inn fjögur mörk og greinilegt var að ÍR-liðið var að brotna undan þunga Haukaliðsins sem var ákveðið í að það væri mætt til leiks til að sjá og sigra. Og sú varð og raunin. Hvað eina sem ÍR-inga reyndu til þess að halda aftur af gestunum mistókst, Haukaliðið hafði ráð undir hverju rifi, var of reynslumikið, of vel skipu- lagt og of vel skipað til þess að það slakaði á klónni. Íslandsmeistaratit- illinn var í höfn. Eins áður segir var Haukaliðið ein- faldlega of stór biti fyrir hið efnilega og dugmikla ÍR-lið í þessari rimmu, ekkert lið stendur Haukum á sporði um þessar mundir. Haukar verð- skulda það svo sannarlega að varð- veita Íslandsbikarinn næsta árið. Leikmenn liðsins og þjálfari höfðu allt sitt á hreinu í úrslitaleikjunum fjórum þótt einn þeirra tapaðist. Vörnin sterk, markverðirnir framúr- skarandi og sóknarleikurinn oftast nær fumlaus og árangursríkur, engin taugaspenna þótt á stundum gengi ekki allt upp, menn vissu að með þol- inmæði og festu fengi ekkert þeim ógnað. ÍR-ingar eru svo sannarlega reynslunni ríkari eftir þessa leiki. Þótt það sé sárt að sjá á eftir gull- verðlaunum og bikarnum góða í Hafnarfjörðinn þá geta ÍR-ingar allir sem einn borið höfuðið hátt eftir framúrskarandi leiktíð, jafnt leik- menn, stjórnendur og stuðnings- menn. Verði áfram haldið rétt á spöð- unum hjá félaginu má telja víst að innan tveggja til þriggja ára verða það ÍR-ingar sem fagna að leikslok- um í Austurbergi. Þá mun reynslan af þessari rimmu við Hauka koma sér vel. Morgunblaðið/Sverrir Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, var tolleraður af lærisveinum sínum eftir sigurinn á ÍR-ingum í Austurbergi í gær þar sem Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í fjórða sinn, þar af þann þriðja á síðustu fjórum árum, tveir þeir síðustu undir stjórn Viggós. Haukar eru svo sannarlega bestir HAUKAR eru svo sannarlega með besta handknattleikslið landsins í karlaflokki, á því leikur enginn vafi. Því til staðfestingar innsigluðu þeir sinn þriðja Íslandsmeistaratitil á fjórum árum í gærkvöldi með því að leggja ÍR-inga þriðja sinni í fjórum viðureignum liðanna í úr- slitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn, lokatölur, 33:25, í Aust- urbergi. Staðan í hálfleik var 14:10 í hálfleik, leikmönnum Hauka í vil. Haukar voru einfaldlega rúmlega skrefinu á undan efnilegu ÍR- liði alla úrslitakeppnina.   $ ;< = :< 3 + 3< $   6 !  0  >    ?  ? >  >   6 !  0 3 ;   // > > >@ 9+ 9+ # 00   // ? @ ? )              Ívar Benediktsson skrifar AC Milan hafði betur í uppgjöri við granna sína í Inter í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu í gær. Liðin skildu jöfn, 1:1, en AC Milan tryggði sér farseðilinn í úr- slitaleikinn á útimarkareglunni þar sem leikurinn í gær var heima- leikur Inter. Úkraínumaðurinn Andrei Shevchenko skoraði markið mikilvæga á lokamínútu fyrri hálf- leiks en Obafemi Martins jafnaði átta mínútum fyrir leikslok. AC Milan, sem fimm sinnum hefur hampað Evrópumeistaratitlinum, mætir annað hvort Real Madrid eða Juventus í úrslitum en liðin eigast við í Torínó í kvöld. AC Milan í úrslit „VIÐ erum að berjast í vörn- inni, vinnum boltann og förum í hraðaupphlaup en tökum svo óskynsamleg skot eða einfald- ar sendingar eru ekki gripn- ar,“ sagði Júlíus Jónasson þjálfari og leikmaður ÍR eftir leikinn. „Við vorum í erf- iðleikum og eins og í fleiri leikjum í þessu einvígi var það sóknarleikurinn fyrst og fremst sem klikkar. Við börð- umst áfram en þegar mun- urinn var orðinn sjö mörk og tíu mínútur eftir var þetta sér- lega erfitt. Ég tel að reynslan skipti mestu máli. Haukar hafa verið í þessari stöðu áður en þeir sem eru að bera leik- ina uppi hjá okkur eru ekki að spila vel í öllum leikjunum,“ sagði Júlíus eftir leikinn. „Ég tel að hópurinn okkar hafi verið að vissu leyti sigurveg- arar líka því veturinn hefur verið frábær. Það verða ekki stórar breytingar á liðinu og málin skoðuð í næstu viku. Ég hef ekki skrifað undir en það er samt búið að ákveða það.“ Þeir stöðvuðu skytturnar „Við áttum slaka úrslitaleiki en komum tvíefldir á næsta ári,“ sagði stórskyttan Einar Hólmgeirsson, sem náði ekki að sýna sínar bestu hliðar. „Þetta var lélegt. Þeir voru betri og áttu skilið að sigra. Við vissum að við þyrftum að berja á þeim því þeir eru með betur spilandi lið en við og náðu að stöðva okkur skytt- urnar og þá var þetta búið.“ Óskyn- samir „ÞAÐ kemur til greina að hætta, ég ætla að gefa mér tíma til að velta því aðeins fyr- ir mér. Ég er farinn að þreyt- ast og úrslitakeppnin hefur verið erfið,“ sagði Viggó Sig- urðsson, þjálfari Hauka, eftir að hann hafði stýrt liði sínu til sigurs á Íslandsmótinu í hand- knattleik. Síðan Viggó tók við Haukum fyrir þremur árum hefur hann stýrt þeim til sig- urs í tvígang á Íslandsmótinu og tvisvar í bikarkeppni auk tveggja sigra í deildinni. Viggó gerði þriggja ára samning við Hauka fyrir ári. „Ég ætla aðeins að velta stöð- unni fyrir mér áður en ég ákveð af eða á með framtíð- ina,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka. Viggó íhugar að hætta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.