Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 17
AP Clare Short tilkynnir afsögn sína í ræðu á breska þinginu í fyrradag. ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 17 LÖGREGLUMENN í Seattle í Bandaríkjunum á æfingu þar sem æfð voru viðbrögð við hryðjuverk- um, meðal annars árásum með geislasprengjum. Æfingin hófst í fyrradag og var þá öflug sprengja sprengd í bíl á iðnaðarsvæði í borg- inni. Á sama tíma voru „hryðju- verkamenn“ látnir ráðast inn í há- skólabyggingu og taka þar fólk í gíslingu. Heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna stendur fyrir æfing- unni og áætlað er að hún kosti and- virði tæpra 1,2 milljarða króna. Um 8.500 manns, meðal annars slökkvi- liðs-, lögreglu- og björgunarmenn, taka þátt í æfingunni sem stendur í fimm daga. AP Þúsundir Bandaríkjamanna æfa viðbrögð við hryðjuverkum LÖGFRÆÐINGAR Belfast-búa, sem er sagður hafa verið háttsettur foringi í Írska lýðveldishernum (IRA) og njósnað fyrir leyniþjónustu breska hersins, neitaði því í gær að hann væri breskur njósnari. Lögfræðingarnir sögðu í yfirlýs- ingu að Belfast-búinn, Alfredo Scappaticci, væri „venjulegur verka- maður“. „Hann hefur aldrei verið uppljóstrari, aldrei haft samband við leyniþjónustuna, aldrei verið í ör- yggisgæslu og aldrei fengið peninga frá leyniþjónustunni.“ Fjögur sunnudagsblöð í Bretlandi skýrðu frá því um helgina að Alfredo Scappaticci hefði verið uppljóstrari í IRA í rúm 20 ár og gengið undir dul- nefninu „Stakeknife“. Að sögn blað- anna hafði verið vitað í mörg ár að leyniþjónusta breska hersins væri í sambandi við einn af æðstu mönnum IRA, sem ljóstraði upp um félaga sína, og hún hefði lagt sig í líma við að koma í veg fyrir að flett yrði ofan af honum. Breskir og írskir fjöl- miðlar segja að uppljóstrarinn hafi drepið 20-40 manns og leyniþjónusta breska hersins hafi vitað af drápun- um. Að sögn breskra fjölmiðla var „Stakeknife“ næstæðsti yfirmaður illræmdrar sveitar IRA sem gegndi því hlutverki að hafa uppi á, yfir- heyra, pynta og drepa IRA-liða sem veittu breskum yfirvöldum upplýs- ingar. Hann hafi einnig verið náinn samstarfsmaður Gerry Adams, leið- toga Sinn Fein, stjórnmálaflokks IRA. Bresku fjölmiðlarnir sögðu að leyniþjónustan hefði greitt Scapp- aticci andvirði 9,4 milljóna króna á ári fyrir njósnirnar og að hann hefði boðist til að njósna fyrir hana í hefndarskyni eftir að félagi hans í IRA hefði gengið í skrokk á honum vegna rifrildis á milli þeirra. Lög- fræðingar Scappaticcis sögðu hins vegar að hann væri „fórnarlamb rangra upplýsinga, sem virðast hafa komið frá öryggissveitunum og hafa verið breiddar út í fjölmiðlunum“. Uppnám í IRA Breskir fjölmiðlar sögðu að talið væri að „Stakeknife“ hefði meðal annars skýrt breskum yfirvöldum frá aðgerðum IRA á Gíbraltar árið 1998 og upplýsingar hans hefðu orð- ið til þess að þrír IRA-menn voru drepnir. Hann er einnig talinn hafa tekið þátt í drápum á IRA-liðum, sem grunaður voru um að hafa veitt Bretum upplýsingar, og líklegt þykir að hann hafi ákveðið, með samþykki breska hersins, hvaða menn í haldi IRA yrðu drepnir. The Irish Times hafði í gær eftir heimildarmanni í IRA að fréttirnar um „Stakeknife“ hefðu valdið „miklu uppnámi í öllum lýðveldishernum“. „Menn spyrja hvort þeir hafi verið handteknir, eða að félagar þeirra hafi verið drepnir, vegna þessa manns. Þeir spyrja líka hvers vegna ekki voru gerðar neinar ráðstafanir til að tryggja að slíkt gerðist ekki. Hvers vegna var engum manni eða hópi falið að hafa eftirlit með starf- semi þeirra sem önnuðust innra ör- yggi? Hafi þeir verið spilltir var allri hreyfingunni stefnt í hættu.“ Annar heimildarmaður í Vestur- Belfast sagði að IRA-menn hefðu áhyggjur af því að aðrir háttsettir fé- lagar þeirra kynnu að vera á mála hjá Bretum. Leiðtogar IRA reyndu þó að gera lítið úr málinu, sögðu að Scappaticci hefði ekki gegnt mikil- vægu hlutverki í IRA, væri heilsu- veill og hefði dregið sig í hlé nýlega. Fjölskyldur IRA-manna, sem voru drepnir fyrir að veita Bretum upplýsingar, kröfðu IRA skýringa á málinu. Þær hafa alltaf haldið því fram að mennirnir hafi ekki verið uppljóstrarar. „Í mörg ár höfum við orðið að lifa við þá skömm að bróðir minn var ranglega stimplaður sem uppljóstr- ari. Sá sem njósnaði í raun var for- ystumaður í IRA,“ sagði systir IRA- manns sem var pyntaður og drepinn. Sagður vera enn í Belfast Talsmaður Sinn Fein, Gerry Kelly, sakaði bresku leyniþjón- ustuna um að hafa lekið nafni „Stakeknife“ í fjölmiðlana og hélt því fram að Scappaticci væri enn í Bel- fast þótt breskir fjölmiðlar hefðu skýrt frá því að breska varnarmála- ráðuneytið hefði flutt hann á leyni- legan stað á Englandi. Ritstjóri eins sunnudagsblaðanna, Glasgow-blaðsins Sunday Herald, kvaðst hafa spurt varnarmálaráðu- neytið í vikunni sem leið hvort birt- ing fréttarinnar myndi hafa ein- hverjar afleiðingar og ráðuneytið hefði svarað að líklega væri óhætt að birta fréttina ef blöð í öðru umdæmi hefðu þegar gert það. Þrjú sunnu- dagsblöð á Írlandi voru þá að búa sig undir að birta fréttina. Ritstjóri Sunday Herald, Andrew Jaspan, sagði að blaðið hefði eitt sinn ætlað að birta nöfn breskra njósnara en lögmaður bresku stjórnarinnar hefði þá hótað að höfða mál gegn blaðinu. Varnarmálaráðuneytið hefði hins vegar ekki hótað máls- höfðun þegar hann spurði hvort birta mætti fréttina um Scappaticci. Ritstjórinn kvaðst því hafa talið lík- legt að ráðuneytið vildi að skýrt yrði frá nafni uppljóstrarans. Kveðst ekki vera upp- ljóstrari í IRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.