Morgunblaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 141. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Myrkvuð sól Stjarnfræðinga drífur að vegna sólmyrkva 31. maí Fréttir 6 Fréttamenn framtíðar? Nemar í Varmalandsskóla fóru á stúfana Fréttir 27 Fyrsti sigurinn Heiðar Davíð Bragason slær um sig á golfvellinum Íþróttir 12 STJÓRN Ísraels samþykkti naum- lega í gær svonefndan Vegvísi til friðar sem gerir ráð fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu árið 2005. Vegvísirinn var samþykktur með 12 atkvæðum gegn sjö en fjórir sátu hjá. Stjórnin samþykkti einnig ályktun um að ekki kæmi til greina að leyfa palestínsku flóttafólki að snúa aftur til svæða, sem það flúði við stofnun Ísraelsríkis fyrir rúmum 50 árum. Hafa Palestínu- menn þegar fordæmt þessa afstöðu Ísraelsstjórnar. Þrátt fyrir að enginn einhugur hafi ríkt um Vegvísinn er þetta í fyrsta skipti sem ísraelsk ríkis- stjórn hefur formlega viðurkennt rétt Palestínumanna til stofnunar sjálfstæðs ríkis. Samþykkt álykt- unar er varðar rétt 3,7 milljóna Pal- estínumanna og afkomenda þeirra til að snúa aftur til svæða, sem þeir rýmdu 1948–1949, er þó talin munu geta sett strik í reikninginn. „Það fullnægir ekki að Ísrael samþykki Vegvísinn ef það er með fyrirvörum. Við viljum að þeir sam- þykki Vegvísinn án skilyrða – líkt og Palestínumenn – en setji ekki fyrirvara,“ sagði Nabil Abu Rudeina, ráðgjafi Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna. Kom fram í máli palestínsks embættismanns að þrátt fyrir fyrirvara Ísraela myndi Mahmud Abbas, forsætisráðherra Palestínu- manna, hitta Sharon á fundi í dag, mánudag, „til að ræða hvernig vinna megi að því að hrinda efni Vegvísisins í framkvæmd“. Sharon lýsti fyrir helgi yfir stuðningi við Vegvísinn eftir mik- inn þrýsting Bandaríkjamanna. Palestínumenn samþykktu friðar- áætlunina í apríl en Ísraelar hafa farið fram á miklar breytingar á henni. Bandarísk yfirvöld sögðu á föstudag að kröfur Ísraela yrðu skoðaðar en jafnframt yrðu engar breytingar gerðar á Vegvísinum. „Skásti kosturinn“ í stöðunni Mun Sharon hafa sagt ráðherr- um í stjórn sinni á fundinum í gær, sem var að sögn stormasamur, að hann væri ekki sjálfur fullsáttur við Vegvísinn. „Mér líkar Vegvísirinn ekki heldur, en hann er skásti kost- urinn,“ var haft eftir Sharon. Ríkisstjórn Ísraels samþykkir Vegvísinn Jerúsalem. AFP. MISHEPPNUÐ tilraun bresku leyniþjónustunn- ar, MI5, til að leggja gildru fyrir þýska orustu- skipið Tirpitz undan ströndum Íslands sumarið 1942 olli því að tuttugu og fjögur flutningaskip urðu kafbátum og flugvélum þýska hersins auð- veld bráð undan norðurströnd Rússlands og 153 sjómenn biðu bana. Aðgangur hefur nú verið leyfður í Bretlandi að skjölum sem rekja þessa sögu en af þeim má ráða að Bretar hafi grunað gagnnjósnara sinn á Íslandi, Ib Árnason Riis, um að hafa borið ábyrgð á því hvernig fór. Frá þessu er sagt í breska blaðinu The Sunday Times í gær, en Ib vísar fullyrðingum blaðsins á bug í samtali við Morgunblaðið. Í frásögn The Sunday Times er m.a. fjallað um þátt Ibs en hann var gagnnjósnari Breta á Íslandi 1942–1945. Saga Ibs hefur verið rakin í bók Ásgeirs Guðmunds- sonar, Gagnnjósnari Breta á Íslandi, sem kom út hér á landi árið 1991. Ib er fæddur og uppalinn í Kaupmannahöfn en var íslenskur ríkisborgari er þessir atburðir áttu sér stað. Hann kom hingað til lands með þýskum kafbáti árið 1942 á vegum þýsku leyniþjónustunnar en gaf sig strax fram við bresku hernaðaryfirvöldin í landinu. Þau notuðu hann sem gagnnjósnara undir dulnefninu Cob- web. Komust á snoðir um gildruna The Sunday Times segir að gögn úr Þjóðskjala- safninu í London, sem nú hefur verið veittur að- gangur að, sýni að Ib hafi verið fenginn til að koma upplýsingum til Þjóðverja um ferðir 35 skipa, sem voru á leið yfir hafið frá Bandaríkjunum í skipa- lest. Var ætlunin að lokka Þjóðverja til að senda á staðinn 50 þúsund tonna orustuskip sitt, Tirpitz, en það hafði reynst skipalestunum úr vesturheimi óþægur ljár í þúfu. Átti að blekkja Þjóðverjana til að halda að skipalestin nyti lítillar sem engrar her- verndar. Skipalestin átti að hörfa í var við Ísland en þar myndi breski flotinn í öllu sínu veldi bíða og ráðast gegn Tirpitz. Þjóðverjar komust hins vegar á snoðir um gildr- una og fengu veður af því að skipalestin frá Banda- ríkjunum væri vel varin, að sögn The Sunday Tim- es. Tirpitz hélt því aftur til hafnar. Skipalestin hélt hins vegar áfram austur um haf og naut fljótlega ekki lengur verndar breska flotans, sem hélt á önnur mið. Taldi Sir Dudley Pound aðmíráll, yfir- maður breska flotans, víst að Tirpitz myndi ráðast gegn skipalestinni þegar austar væri komið og fyrirskipaði hann því að skipin 35 skyldu dreifa sér. Undan norðurströnd Rússlands urðu tuttugu og fjögur þeirra aftur á móti kafbátum og flug- vélum Þjóðverja að bráð, sem fyrr segir. Kemur fram í bresku skjölunum að Bretarnir höfðu Ib grunaðan um að hafa varað Þjóðverja við. Meðal annars þótti Bretunum grunsamlegt að Þjóðverjar skyldu hafa komist á snoðir um þrjú atriði sem snertu ferðir skipalestarinnar, en Ib hafði verið falið að segja þeim til um eitt þessara atriða. Er sagt um Ib í skjölunum að hann sé „lík- lega ekki eins mikill andstæðingur nasista og við erum“. Bretar grunuðu íslenskan gagnnjósnara sinn um svik Einfaldlega að leita að blóraböggli IB Árnason Riis, sem er 88 ára og býr í Kaliforníu, hafnar því alfarið í samtali við Morgunblaðið að hafa sagt Þjóð- verjum of mikið um ferðir skipa- lestarinnar, sem sagt er frá í The Sunday Times í gær, og þannig valdið skips- skaðanum, sem er sagður einn sá mesti sem Bretar máttu þola í seinni heimsstyrjöld. Ib seg- ist enga hugmynd hafa haft um efni skeytisins sem hann var lát- inn síma Þjóðverjum á sínum tíma. Hyggst krefjast skýringa hjá bresku leyniþjónustunni „Þegar ég fékk skilaboðin [sem átti að senda Þjóðverjum til að gabba þá] voru þau þegar á dul- máli,“ segir Ib. „Ég man eftir þessu skeyti en ég vissi ekki um efni þess fyrr en eftir stríð. Ég gerði aðeins það sem mér var sagt að gera, ég var beðinn um að senda þessi skilaboð [til Þjóðverja] og það gerði ég,“ segir hann. Ib segir að aðeins þrisvar hafi Bretar fengið honum skilaboð til að senda sem þegar var búið að snúa á dulmál. Enn viti hann ekki um hvað hin tvenn skilaboðin fjölluðu. Þá segir Ib að umsjónarmaður sinn á Íslandi, leyniþjónustumað- urinn Harold Blyth, hafi eins og alltaf verið við hlið hans er hann sendi skilaboðin. Hann segist munu skrifa bresku leyni- þjónustunni og óska skýringa á þessum fréttum. „Ég held að menn séu einfaldlega að leita að blóraböggli,“ segir Ib. Ib Árnason Riis NESTOR Kirchner sór í gær embættiseið sem forseti Argentínu en hann er sjötti for- seti landsins á aðeins átján mánuðum. Hét hann því í ræðu sem hann flutti við inn- setningarathöfnina í gær að takast á við þann mikla efnahagsvanda sem nú steðjar að í Argentínu. Kirchner fékk aðeins 22% atkvæða í forsetakosningunum fyrir mán- uði en Carlos Menem fékk 24,3%. Kjósa átti á milli þeirra 18. maí sl. en Menem dró sig í hlé nokkrum dögum áður þegar ljóst var orðið að Kirchner myndi vinna. Fjölmargir stuðningsmanna Kirchners fögnuðu embættistökunni með honum í gær, eins og sjá má á myndinni. Meðal þeirra sem voru viðstaddir athöfnina voru Fidel Castro, forseti Kúbu, Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, og Hugo Chavez, forseti Venesúela. Kirchner sver embættiseið AP MYNDIN Fíll hlaut Gullpálmann sem besta myndin og Gus van Sant fékk Gullpálma fyrir leikstjórn myndar- innar á lokaathöfn kvikmyndahátíð- arinnar í Cannes í gærkvöldi. Að mati blaðamanna og annarra sem sótt hafa hátíðina í Cannes árum saman þóttu fáar myndir eiga verð- laun skilin og margar hreinlega ekki sýningarhæfar á hátíð sem þessari. Tilþrifalítið í Cannes  Gullpálminn/30 Jeanne Moreau og Wim Wenders. Cannes. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.