Morgunblaðið - 26.05.2003, Side 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Síðustu sætin til Rimini þann 10. júní
í eina eða 2 vikur. Kynnstu Feneyjum, Flórens, Rimini og Róm.
Sumarið er komið og yndislegt veður á þessum vinsælasta áfangastað á
Ítalíu. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin, og fjórum dögum
fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Síðustu 14 sætin
Stökktu til
Rimini
10. júní
frá kr. 39.963
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.963
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug,
gisting, skattar, 10. júní.
Alm. verð kr. 41.960.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í stúdíó/íbúð, flug, gisting,
skattar. Alm. verð kr. 52.450.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 2.800.
„MÉR líður æðislega vel, þetta var
ævintýri lífs míns og ein besta
reynsla sem ég hef upplifað,“ sagði
Birgitta Haukdal, fulltrúi Íslands í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva, við komuna til landsins í gær-
kvöld. Ísland hafnaði i í 9. sæti í
keppninni, sem haldin var í Riga í
Lettlandi á laugardagskvöldið. Tyrk-
ir báru sigur úr býtum, en úrslitin
réðust ekki fyrr en þegar Slóvenía,
síðasta landið, greiddi atkvæði.
„Ég var ótrúlega lítið stressuð þeg-
ar ég steig á sviðið. Ég var meira
stressuð þegar ég kom niður af því,
þá fór ég að skjálfa,“ lýsti Birgitta og
sagði það frábært að hafa fengið
tækifæri til að vera fulltrúi Íslands í
jafnstórri keppni og Evróvisjón er.
„Það var frábært að fá að syngja fyrir
framan svona mikið af fólki. Ég er
rosalega ánægð og mér finnst yndis-
legt að þjóðin skuli hafa valið mig til
að fara í þessa keppni.“
Birgitta sagði að atriðið hefði geng-
ið mjög vel og hún vissi ekki til þess
að neitt hefði farið úrskeiðis. Hún
sagðist jafnframt ekki enn hafa feng-
ið tækifæri til að horfa á keppnina
aftur og bætti við að það væri næst á
dagskrá.
Stigagjöfin tók á taugarnar
Það kom henni á óvart að Tyrkir
skyldu sigra keppnina. „Mér finnst
lagið mjög töff, ég er mjög sátt við
það sem sigurlag, en ég var nú ekki
búin að spá því fyrsta sæti. Ég var
búin að sjá fyrir mér kannski Noreg
eða Spán og mér fannst Írland líka
flott. En þetta lag er allt öðruvísi en
öll hin lögin í keppninni. Það var allt
annar taktur í laginu og atriðið var
mjög flott, þau áttu þetta virkilega
skilið,“ sagði hún og benti á að flestir
úti hefðu verið sáttir við sigurlagið.
„Við fórum upp á hótel eftir keppnina
og vorum þar og sungum og tröll-
uðum alla nóttina og fögnuðum. Þar
voru Svíar, Norðmenn og fullt af öðr-
um þjóðum sem voru greinilega mjög
hamingjusöm með úrslitin. En
ábyggilega fóru einhverjir heim með
tárin í augunum, það er bara eins og
gengur og gerist. Við erum að
minnsta kosti mjög sátt,“ lagði hún
áherslu á.
Birgitta sagði að það hefði tekið á
taugarnar á meðan stigagjöfin fór
fram. Hún lýsti því að mikil stemning
hefði ríkt í græna herberginu. „Þar
var stress og sviti. Við sáum út úr
herberginu allt fólkið og heyrðum öll
öskrin og fengum þetta beint í æð.
Mér fannst það æðislegt að vera ekki
lokuð inni í einhverju herbergi. Það
er mjög ólíklegt að maður eigi eftir að
upplifa svona aftur.“
Alveg til í að fara aftur
Birgitta sagði að keppnin ætti eftir
að þýða mikið fyrir þau. „Bara
reynslan og það að kynnast nýju fólki
og nýju landi, þótt við séum ekkert að
fara að gera það gott í útlöndum,
enda var það aldrei ætlunin, heldur
ætluðum við að fara og vera landi og
þjóð til sóma,“ undirstrikaði hún. Að
hennar sögn kynntust þau best kepp-
endunum frá Írlandi og Noregi, en
sáu lítið af tyrknesku stelpunum.
Hún sagði að þau hefðu nú hitt flesta
keppendurna og ítrekaði hversu gam-
an væri að kynnast nýju fólki frá nýj-
um löndum.
„Ég er að minnsta kosti mjög sátt
við það hvernig okkur gekk,“ sagði
hún og bætti við að hún væri alveg til
í að fara aftur. Þetta hefði verið svo
gaman. „En það er ekki stefnan í dag,
ég held að þetta sé nóg fyrir mig í bili
en eins og ég segi getur maður ekkert
spáð um framtíðina,“ sagði Birgitta.
Níunda sætið tryggir Íslandi þátt-
tökurétt í aðalkeppninni á næsta ári,
en Íslendingar hlutu 81 stig og Spán-
verjar einnig. Íslendingar fengu 12
stig frá tveimur löndum og Spánverj-
ar einnig, þeir fengu hins vegar 10
stig frá einni þjóð en ekki Íslendingar
og hafna því í 8. sæti. Löndin tvö sem
gáfu Íslandi tólf stig voru Malta og
Noregur, en alls gáfu sextán lönd Ís-
landi atkvæði. Íslendingar gáfu
norska laginu 12 stig.
AP
Birgitta Haukdal steig fyrst á svið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og söng lagið „Open Your Heart“.
„Ævintýri lífs míns“
EINN var með allar tölur réttar
þegar dregið var í lottóinu sl. laug-
ardagskvöld. Sá eða sú heppna
hreppir því ríflega 6,9 milljónir
króna. Vinningstölurnar voru 9, 11,
20, 24, 27 og bónustalan var 26. Vinn-
ingsmiðinn var seldur í söluturnin-
um Póló við Bústaðaveg í Reykjavík.
Hreppti 6,9
milljónir
PÉTUR Gordon Hermannsson, ný-
stúdent frá Verzlunarskóla Íslands,
brautskráðist með 9,7 í meðal-
einkunn, en það er ein hæsta stúd-
entseinkunn sem nemandi við skól-
ann hefur náð, að sögn Þorvarðar
Elíassonar, skólastjóra VÍ.
Útskriftin fór fram í Háskólabíói
á laugardag og brautskráðust alls
232 nýstúdentar. Er það stærsti út-
skriftarárgangur skólans til þessa,
að sögn Þorvarðar.
Á meðfylgjandi mynd er Pétur,
dúx skólans, á milli Þorvarðar og
Ingu Rósu Sigursteinsdóttur, eigin-
konu Þorvarðar.
Ljósmynd/Jóhannes Long
Stærsti útskriftar-
árgangur VÍ
LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði
tíu ökumenn grunaða um ölvun frá
miðnætti í fyrrinótt þar til í gær-
morgun. Engin slys urðu þó af völd-
um ölvunaraksturs í höfuðborginni
um nóttina. Aðfaranótt sunnudags
var mjög erilsöm hjá lögreglunni og
þurftu lögreglumenn að sinna mörg-
um kvörtunum vegna hávaða í
heimahúsum í tengslum við veislu-
höld. Ölvun var nokkuð áberandi í
borginni.
Þá voru þrír teknir ölvaðir við
akstur í Kópavogi frá því klukkan
þrjú í fyrrinótt. Mikill erill var hjá
lögreglunni í Kópavogi vegna kvart-
ana yfir hávaða í heimahúsum. Einn
ökumaður var stöðvaður í Hafnar-
firði, grunaður um ölvun. Erilsamt
var hjá hafnfirskum lögreglumönn-
um einkum vegna kvartana yfir há-
vaða í heimahúsum.
Ölvunar-
akstur og
hávaði
♦ ♦ ♦
1. Tyrkland
2. Belgía
3. Rússland
4. Noregur
5. Svíþjóð
6. Austurríki
7. Pólland
8. Spánn
9. Ísland
10. Rúmenía
11. Írland
12. Þýskaland
13. Holland
14. Úkraína
15. Króatía
16. Bosnía-Hersegóvína
17. Grikkland
18. Frakkland
19. Ísrael
20. Kýpur
21. Eistland
22. Portúgal
23. Slóvenía
24. Lettland
25. Malta
26. Bretland