Morgunblaðið - 26.05.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 9
Glæsilegir kjólar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
undirfataverslun
Síðumúla 3-5 - Sími 553 7355
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15.
Frábært úrval af sundfatnaði
Kringlunni, sími 588 1680.
iðunn
tískuverslun
gallabuxur
kvartbuxur
Laugavegi 84, sími 551 0756
Stuttbuxur
Kvartbuxur
Síðbuxur
www.casa.is
Jakkaföt 18.600
Skyrtur 1.990 - Bindi 800
Laugavegi 34, sími 551 4301
Er brúðkaup í
vændum
Gull- og Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3, s. 552 0775.
Síðan 1924 • www.erna.is
Fallega íslenska silfrið
Landsins mesta úrval
Munið brúðargjafalistana
— pantanir óskast sóttar —
Diskur kr. 470
Súpudiskur kr. 390
- föt — skálar og allir fylgihlutir
Sími 544 2140
Sími 567 3718
virka daga frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 10-14
Opið
LAGERÚTSALA
Undirföt - sundföt
og eldri vörur
Allt að 80% afsláttur
Stendur út þessa viku
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
RÁÐSTEFNA á vegum Evrópu-
deildar Alþjóðasamtaka um vinnu og
verkþjálfun (WIE) verður haldin á
Grand hótel í Reykjavík dagana 27.–
30. maí. Samtök um vinnu og verk-
þjálfun er gestgjafi ráðstefnunnar,
sem er um leið aðalfundur Evrópu-
deildarinnar.
Að sögn Guðrúnar Hannesdóttur,
forstöðumanns Hringsjár, starfs-
þjálfunar fatlaðra, er von á um fimm-
tíu erlendum gestum til landsins á
morgun, auk þess sem um þrjátíu ís-
lenskir fulltrúar sitja fundinn. Yfir-
skrift ráðstefnunnar er „Vinnumark-
aður fyrir alla“.
Varaforseti Microsoft í Evrópu
flytur erindi á fimmtudag
Guðrún segir að dagskráin hefjist
á miðvikudaginn með ávarpi Krist-
jáns Valdismarssonar, formanns
Samtaka um vinnu og verkþjálfun,
en í kjölfar hans taka til máls Hans
Vrind, forseti Evrópudeildarinnar,
og Frank Flannery, forseti Alþjóða-
samtakanna. Miðvikudagurinn verð-
ur helgaður Íslandi, en Árni Magn-
ússon félagsmálaráðherra flytur
erindi og fjölmargir íslenskir fulltrú-
ar skýra frá stöðu mála á Íslandi. Að
því loknu fara ráðstefnugestir í heim-
sókn á Múlalund, vinnustaði Ör-
yrkjabandalags Íslands og Hringsjá.
Að mati Guðrúnar er lykilerindið á
fimmtudag erindi Umberto Paolucci,
varaforseta Microsoft í Evrópu, en
hann mun fjalla um aðgengi að upp-
lýsingatækni og jafnréttishugsjón.
„Microsoft hefur lagt áherslu á að
hinir ýmsu atvinnurekendur og fyrir-
tæki móti sér ákveðna stefnu í mál-
efnum fatlaðra,“ bætir hún við.
Á föstudeginum fer síðan aðal-
fundur Evrópudeildar samtakanna
fram. Guðrún segir að ráðstefnan sé
haldin hér á landi fyrir tilstuðlan
Kristjáns Valdimarssonar. „Það er
sérstakur heiður fyrir okkur að halda
þessa ráðstefnu, sérstaklega þar sem
Evrópuár fatlaðra er í ár. Þess vegna
verður samþykkt þessi yfirlýsing,“
leggur hún áherslu á. Hún segir að
það sé kostur fyrir Íslendinga að fá
tækifæri til að halda þessa ráðstefnu,
með því sé hægt að vekja athygli á at-
vinnumálum fatlaðra og stuðla að op-
inberri umræðu allra hlutaðeigandi
aðila, þar á meðal atvinnurekenda.
„Ég tel að það sé þörf á því að opna
þessa umræðu út fyrir raðir fatlaðra
og ríkisins,“ segir hún.
Ráðstefna Evrópudeildar Alþjóða-
samtaka um vinnu og verkþjálfun
Búist er við 50
erlendum gestum
www.fotur.net
STJÓRN Samtaka atvinnulífsins
tekur í ályktun undir það mat Seðla-
bankans að eitt mikilvægasta verk-
efni nýrrar ríkisstjórnar sé að
tryggja efnahagslegan stöðugleika
og halda verðbólgu nálægt markmiði
án mikilla þrenginga fyrir útflutn-
ingsgreinarnar. „Ný ríkisstjórn þarf
að leggja fram trúverðuga áætlun í
fjármálum hins opinbera til nokk-
urra ára sem hefði það að markmiði
að mynda mótvægi við stóriðjufram-
kvæmdirnar beinlínis til þess að
sporna gegn of háu gengi krónunn-
ar.“ Í ályktun SA segir einnig að
brýnt sé að skýr aðhaldsstefna verði
mótuð í opinberum fjármálum.
Aðhald í opin-
berum fjár-
málum brýnt