Morgunblaðið - 26.05.2003, Síða 13

Morgunblaðið - 26.05.2003, Síða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 13 KJÖTMJÖL EHF., sem vinnur mjöl og fitu úr sláturúrgangi sem meðal annars nýtist sem áburður á gróður og til framleiðslu á líf- dísil, stefnir í að verða gjaldþrota komi ekki til aðstoð frá ríkinu. Á aðalfundi félagsins sem var hald- inn nýverið kom fram að ítrekað hefur verið leitað eftir aðkomu ríkisvaldsins að málinu. Sam- þykkt var á aðalfundinum að beina því til stjórnar að knýja fram formleg svör um stuðning frá ríkinu fyrir 30. maí nk. Segja forsvarsmenn félagsins að ef ríkissjóður eða stofnanir á hans vegum keyptu um 500 tonn af kjötmjöli á ári á 25 kr./kg þá myndi reksturinn standa undir sér. Segja þeir að það verð sé mun hagstæðara en fæst fyrir tilbúinn torleysanlegan áburð af sömu gæðum sem notaður er við skógrækt. Ennfremur segja þeir að málið snúist að stórum hluta um umhverfissjónarmið enda þyrfti að hefja aftur urðun slát- urúrgangs leggist verksmiðjan af en um er að ræða rúmlega 5.000 tonn á ári eða um 50% af öllum úrgangi af þessu tagi í landinu. Segja þeir að slíkt væri afturhvarf til fortíðarfyrirkomu- lags og komi niður á svæðum þar sem urðað er og hefði í för með sér mikinn kostnaðarauka fyrir urðunaraðila sem aftur leiddi til hækkunar á urðunargjöldum. „Það er afar einkennilegt að notkun á þessum áburði sé ekki hluti af þeim stórhuga skógrækt- aráætlunum sem ríkisstjórnin og Alþingi hafa nýverið samþykkt,“ sagði Karl Björnsson, fráfarandi stjórnarformaður félagsins, á að- alfundinum og bætti við að félag- ið hefði sent erindi til ráðherra, ráðneytisstjóra og aðstoðar- manna ráðherra landbúnaðar- ráðuneytis og umhverfisráðu- neytis auk þess sem þingmenn kjördæmisins hefðu fengið afrit af sumum erindanna. „Áhuga- leysi allra þessara aðila á þessu mikilvæga umhverfismáli er mér hreinlega óskiljanlegt,“ sagði Karl. Miklar áhyggjur Á fundinum var bókað að aðal- fundurinn lýsti yfir miklum áhyggjum af bágri fjárhagsstöðu félagsins en við óbreyttar að- stæður er ekki til lausafé til að greiða laun, vörsluskatta og aðr- ar skammtímaskuldir. „Ljóst er að fyrirtækið getur ekki staðið undir þeim fjármagnskostnaði sem fylgir þeim skammtíma- skuldum sem það nú ber,“ sagði Karl á fundinum. Í máli hans kom fram að horf- ur í rekstri félagsins eru slæmar, ekki er raunhæft að hækka skila- gjald enn meira til sláturleyfis- hafa og kjötvinnsluaðila en þegar hefur verið gert og tekjur ekki fyrirsjáanlegar úr þeirri áttinni. Jafnframt eru ekki líkur á að út- flutningsverð á kjötmjöli hækki á næstu árum. „Af þessum sökum er eina leiðin til að auka fram- legðina að fá hærra verð fyrir af- urðirnar og er það í raun ein- ungis á valdi ríkisins að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru svo slíkt geti tekist.“ Í máli Karls kom fram að að auki hefur ítrekað verið beðið formlega um beinan fjárstyrk frá ríkinu sem líta má á sem stofn- styrk þess til framþróunar á sviði umhverfismála. Að mati Karls yrði það mikil afturför í umhverfislegu tilliti ef aftur yrði farið að urða sláturúr- gang, sem myndi vera eina úr- ræðið eftir að verksmiðjunni yrði lokað. „Þessi lífræni úrgangur mun þá væntanlega fara til urð- unar um ókomin ár sem telja verður til algerrar öfugþróunar á sviði umhverfismála ef litið er til þeirra skuldbindinga sem lagðar hafa verið á herðar landsmönn- um í því alþjóðlega samstarfi sem þeir nú taka þátt í. Þær skuldbindingar eru á ábyrgð rík- isins.“ Kúariðan eyðilagði rekstrarforsendurnar Kjötmjöl ehf. tók til starfa um miðjan september á árinu 2000. Hluthafar eru skráðir 11 og eru stærstu hluthafarnir Sorpstöð Suðurlands Sáturfélag Suður- lands, Sorpa, Búnaðarfélag Hraungerðishrepps, Gámaþjón- ustan hf. og Eignarhaldsfélag Suðurlands. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að fyrirtækið hafi farið vel af stað en í desember árið 2000 hafi ógæfan brostið á. „Kúariða greindist í mörgum V-Evrópu- löndum, en hafði áður verið talin einangruð við Bretlandseyjar. Bann var sett á notkun beina- mjöls og Evrópumarkaðurinn fyrir mjölið lokaðist, ásamt því að heimsmarkaðsverð féll. Þar með voru upphaflegar rekstrar- forsendur kjötmjölsverksmiðj- unnar brostnar,“ segir í tilkynn- ingunni. Á árinu 2001 voru teknar ákvarðanir um aðgerðir sem mið- uðu að því að styrkja stöðu fé- lagsins. Heimild var veitt til að auka hlutafé um 55 milljónir króna og ákvörðun tekin um hækkun vinnslugjalda. Einnig tókst að koma öllu mjöli á mark- að til Asíu og einnig til loðdýra- ræktar innanlands. Á miðju ári 2001 kom upp riða í sauðfé í Árnessýslu sem gerði það að verkum að stjórnvöld settu bann á að sláturúrgangur frá því svæði færi til vinnslu í Kjötmjölsverksmiðjunni. Þessar aðstæður minnkuðu verulega tekjur Kjötmjöls af vinnslugjöld- um og gerði það einnig að verk- um að ekki hefur verið hægt að framleiða gæðamjöl í sláturtíð sem gaf fyrirtækinu í upphafi meiri tekjur af mjölsölu. Kjötmjöl ehf. hefur einnig unnið ásamt Iðntæknistofnun að samvinnuverkefni um fram- leiðslu á lífdísil úr ýmiskonar fitu. Ágætt rekstrarár í fyrra Í fréttatilkynningu félagsins segir að starfsemin hafi gengið ágætlega rekstrarárið 2002. Rekstrartekjur jukust úr 28 milljónum árið 2001 í tæpar 57 milljónir á síðasta ári en á sama tíma jukust rekstrargjöld án fjármagnsliða um 36%. Hlutafé fyrirtækisins er 95,6 milljónir króna og eigið fé í lok árs 2002 39,7 milljónir. „Sala afurða gekk ágætlega fyrstu 10 mánuði ársins 2002 en síðan dró ský fyrir sólu og ekki hefur selst gramm af mjöli á er- lendan markað síðan í október. Birgðastaða kjötmjöls núna í maí 2003 er rúm 700 tonn. Erfiðleik- ar í búgreinum eins og svínabú- skap, kjúklingarækt og loðdýra- eldi hafa gert það að verkum að innheimta hefur ekki gengið sem skyldi og hefur þurft að afskrifa skuldir af þeim sökum. Allt þetta hefur leitt til þess að greiðslu- staða Kjötmjöls ehf. hefur farið hríðversnandi og sér ekki til sól- ar í þeim efnum þessa dagana.“ Greiðslustöðv- un yfirvofandi hjá Kjötmjöli ● HAGNAÐUR Eskju hf., sem áður hét Hraðfrystihús Eskifjarðar, nam 264 milljónum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2003. Árið áður var hagnaðurinn 568 milljónir á sama tímabili. Í tilkynningu frá Eskju segir að rekstrarniðurstaða tímabilsins á þessu ári sé nokkuð á skjön við áætl- anir félagsins. Búist hafi verið við meiri loðnuveiði og minni styrkingu íslensku krónunnar á tímabilinu. Fé- lagið hafi þó gert samninga til varnar hluta af tekjuflæði sínu á árinu. Í til- kynningunni segir að ljóst sé að áframhaldandi sterk staða íslensku krónunnar muni hafa verulegan tekju- samdrátt í för með sér fyrir íslenskan sjávarútveg. Rekstraráætlun Eskju gerði ráð fyr- ir 303 milljóna hagnaði á fyrsta árs- fjórðungi en reyndin varð tæpar 264. Er stærri hluti þess hagnaðar vegna meiri fjármagnstekna en áætlaðar voru. Rekstrartekjur Eskju námu 903 milljónum króna á tímabilinu janúar til mars á þessu ári og rekstrarkostn- aður 623 milljónum. Árið áður voru rekstrartekjurnar 1.394 milljónir og rekstrargjöldin 770 milljónir. Segir í tilkynningu félagsins að ástæður tekjusamdráttar í rekstri megi helst rekja til samdráttar í loðnuveiðum og -vinnslu en 52 þúsund tonn veiddust á yfirstaðinni loðnuvertíð samanborið við 91 þúsund tonn árið áður. Þá seg- ir að gengi íslensku krónunnar hafi styrkst um 11,81% frá sama tímabili árið áður, sem hafi í för með sér beina tekjuskerðingu fyrir félagið. Heildarveiði skipa Eskju voru rúm 53 þúsund tonn, að verðmæti 373 milljónir, samanborið við rúm 92 þús- und tonn, að verðmæti 771 milljón, árið áður. Framleiddar afurðir í mjöl og lýsisvinnslu námu tæpum 16 þús- und tonnum miðað við rúm 20 þús- und tonn árið áður. Framleiddar bol- fiskafurðir jukust lítillega á milli ára en rækjuvinnslu félagsins hefur verið lokað. Afurðabirgðir rækju hafa verið seldar og rekstrartapið er að fullu bókfært. Eskja hf. hagnast um 264 milljónir 1.Tillaga um að breyta nafni félagsins. 2.Tillaga um breytingu á grein 2.01.2 í samþykktum félagsins þess efnis að heimild vegna útgáfu kaupréttarsamninga verði hækkuð um kr. 50.000.000. 3.Kosning meðstjórnanda í stjórn félagsins. 4.Önnur mál Dagskrá og fundargögn verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins, Síðumúla 28 Reykjavík, viku fyrir fundinn. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað. Stjórn Íslandssíma hf. Hluthafafundur Íslandssíma hf. Íslandssími hf. boðar hér með til hluthafafundar sem haldinn verður þriðjudaginn 3. júní 2003, kl. 15:00, í Skála, 2.hæð, Radisson SAS Saga Hótel við Hagatorg. Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.