Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 1
Mótmæla árásum Ísraela
REIÐUR Palestínumaður heldur hér á lofti pela og skó barns
sem lét lífið í þyrluárás Ísraela á Gazasvæðinu í gær en hlut-
irnir fundust í eyðilögðum bíl sem hafði orðið fyrir flugskeyti.
Að minnsta kosti sjö manns létu lífið í árásinni og 25 særðust.
Mikil ólga er á svæðinu og harðorðar hótanir ganga á milli
ísraelskra stjórnvalda og Hamas-samtakanna.
CONDOLEEZZA Rice, ör-
yggismálaráðgjafi George W.
Bush Bandaríkjaforseta, seg-
ir að enn sé von um að frið-
aráætlun stórveldanna, Veg-
vísirinn, geti orðið að
veruleika, þrátt fyrir blóðsút-
hellingar undanfarinna daga.
Rice sagði í gær að Bush væri
staðráðinn í að beita sér fyrir
friðarsamningum en jafnt
Ísraelar sem Palestínumenn
yrðu að standa við gefin lof-
orð.
„Forsetinn stendur við lof-
orð sín. Hann væntir þess að
allir aðilar standi við sín,“
sagði Rice. Utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Colin Powell,
sagði í gær að ríki heims yrðu
að fordæma hryðjuverkasam-
tök á borð við Hamas og Ísl-
amska Jihad og koma í veg
fyrir að þau fengju fjárstuðn-
ing frá öðrum löndum.
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, sagðist í gær
ekki myndu bíða eftir því að
forsætisráðherra Palestínu-
manna, Mahmud Abbas, öðru
nafni Abu Mazen, legði til at-
lögu við hryðjuverkahópana.
„Ef ég verð að velja á milli
þess að hefja stríð gegn
Sharon og Abbas
standi við loforð sín
Rice segir enn von til þess að friðarumleitanir beri árangur
Los Angeles, Gazaborg, Jerúsalem. AP, AFP.
Reuters
Grefur/28
hryðjuverkamönnum og
styðja Abu Mazen kýs ég fyrri
kostinn,“ sagði Sharon á
stjórnarfundi. Hann hæddi
palestínska leiðtoga og sagði
þá „grenjuskjóður“ er þeir
segðust ekki geta lagt til at-
lögu gegn Hamas.
Ísraelska útvarpið greindi
frá því í gær að herinn hefði
fengið fyrirmæli um að „tor-
tíma algerlega Hamas“ eftir
að sjálfsmorðsárás liðsmanns
samtakanna varð sextán Ísra-
elum að bana á miðvikudag.
Að minnsta kosti sjö manns
létu lífið í gær þegar ísra-
elskar þyrlur skutu flugskeyt-
um á bíl háttsetts Hamas-liða,
Yassers Taha, í Gazaborg.
Meðal hinna látnu var ungur
sonur Taha og aðrar heimildir
segja að dóttir hans og minnst
25 manns að auki hafi særst.
Hamas-menn hétu í gær að
halda áfram hryðjuverkum og
hvöttu útlendinga til að yfir-
gefa landið af öryggisástæð-
um. „Við hvetjum alla útlend-
inga til að yfirgefa svæði
síonista og bjarga þannig lífi
sínu.“
TVEIR íslenskir myndlistarmenn sýna nú á Feneyjatvíæringnum sem
var opnaður fyrir fjölmiðlafólki, listgagnrýnendum, listsöfnurum og
sýningarstjórum í gær. Skoðuðu þeir einstaka skála og sýningar áður
en hlið Giardini-garðsins eru opnuð fyrir almenningi. Þema tvíærings-
ins að þessu sinni er Draumar og árekstrar – alræðisvald áhorfandans.
Fulltrúi Íslands að þessu sinni er Rúrí og sýnir hún verkið sem hér
sést, „Archive – endangered waters“, eins konar gagnasafn um ís-
lenska fossa, byggt á ljósmyndum og hljóði. Hinn Íslendingurinn er
Ólafur Elíasson en hann er fulltrúi Dana og sýnir viðamikið verk sem
nefnist „Blind Pavilion“./4
Tveir Íslendingar sýna í Feneyjum
STOFNAÐ 1913 158. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Fljótir og
fífldjarfir
Bílaáhugamenn í
bíóstellingum Fólk 53
Bjartar
sumarnætur
Menningarhátíð á Seltjarn-
arnesi Listir 26
Siv á
faraldsfæti
Skoðar öll nýju friðlýsing-
arsvæðin 24
FJÁRDRÁTTUR fyrrverandi aðal-
gjaldkera Símans nemur að minnsta
kosti 250 milljónum króna. Fyrir ligg-
ur að um 130 milljónir króna runnu til
fyrirtækisins Alvara lífsins ehf. en
verið er að rannsaka hvert 120 millj-
ónir fóru.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Símans, gerði grein fyrir þessu á
blaðamannafundi í gær. Sagði hann að
fjárdrátturinn hefði verið þaulskipu-
lagður, gjaldkerinn haft þekkingu á
málinu, trúnað yfirmanna og beitt að
vissu leyti óhefðbundnum aðferðum.
Samkvæmt upplýsingum Brynjólfs
náði aðalgjaldkerinn stærstum hluta fjárins með því að breyta
textaskrám með upplýsingum um reikninga sem hann átti að
greiða og millifærslur sem hann átti að framkvæma. Allt virtist
rétt og eðlilega skráð í bókhaldskerfinu en upplýsingunum var
breytt eftir að þær voru komnar út úr kerfinu og á leið í banka.
Þannig velti gjaldkerinn upphæðum á undan sér án þess að
nokkuð vantaði í bókhaldið.
Forstjórinn segir að gjaldkerinn hafi ekki tekið frí lengi í
einu. Í fyrra hafi hann t.d. tekið frí yfir tvo mánuði en unnið
hálfan daginn vegna heimilisaðstæðna, að eigin sögn, og engum
hafi þótt það óeðlilegt.
Hert eftirlit og fyrirbyggjandi aðgerðir verða nú innleiddar
innan Símans, að sögn forstjórans. Sá sem varðveitir fjármuni
eða eignir hefur ekki aðgang að bókun á gjalda- og tekjulykla.
Aðgreining starfa og verkefna verður skýrari og aðferðir við af-
stemmingar hertar. Einnig verða tilteknir starfsmenn að taka
stóran hluta orlofs í samfellu og yfir mánaðamót.
Þaulskipulagður fjárdráttur
aðalgjaldkera Símans
DRÓ SÉR AÐ
MINNSTA KOSTI
250 MILLJÓNIR
Ekki/10
EINN af hverjum 67 íbúum Sameinuðu
arabísku furstadæmanna er millj-
ónamæringur, þ.e. á meira en eina millj-
ón Bandaríkjadala eða yfir 73 milljónir
íslenskra króna. Rúmlega þrjár milljónir
manna búa í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum sem þýðir að um 1,5% þjóð-
arinnar teljast til milljónamæringa. Þessi
tala er einkum forvitnileg þegar haft er í
huga að 80% íbúanna eru lágt launaðir
innflytjendur frá öðrum löndum, aðallega
Asíuríkjum.
Milljónamær-
ingar um allt
Dubai. AFP.
♦ ♦ ♦
JAPANIR hafa hótað að ganga út af fundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins ef samþykkt verður
að mynda sérstaka friðunarnefnd innan þess
þegar ráðið kemur saman í Berlín í næstu
viku. Þetta hefur Reuters eftir embættis-
manni í hvalveiðideild opinberrar fiskveiði-
stofnunar í Japan sem segir ennfremur að
staða hvalveiðiþjóðanna í ráðinu sé að verða
„afar undarleg“. Átján þjóðir, m.a. Ástralía,
Bretland og Þýskaland, hafa tekið höndum
saman um að hafa frumkvæði að því að auka
vægi hvalaverndunar innan ráðsins.
Fara saman/17
Japanir hóta
að ganga út