Morgunblaðið - 13.06.2003, Page 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
120 MILLJÓNIR TÝNDAR
Fjárdráttur fyrrverandi aðal-
gjaldkera Símans nemur að minnsta
kosti 250 milljónum króna. Fyrir
liggur að um 130 milljónir króna
runnu til fyrirtækisins Alvara lífsins
ehf. en verið er að rannsaka hvert
120 milljónir fóru. Forstjóri Símans
sagði á blaðamannafundi í gær að
fjárdrátturinn hefði verið þaul-
skipulagður og gjaldkerinn beitt að
vissu leyti óhefðbundnum aðferðum.
Sagði fiskinn sýktan
Skipstjórinn á Bjarma BA, sem er
ákærður fyrir brottkast á fiski, sagði
fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í gær
að það hafi sést utan á fiskunum að
þeir hafi allir verið illa sýktir af
hringormi og því hent í sjóinn. Gefin
var út handtökuskipun á hendur
sjónvarpstökumanninum sem var
með í túrnum þar sem hann mætti
ekki til skýrslutöku í gær.
Ráðherra á Raufarhöfn
Valgerður Sverrisdóttir, ráðherra
byggðamála, fór á fund forsvars-
manna Raufarhafnar í gærmorgun.
Þar voru hugmyndir starfshóps um
atvinnuvandann á Raufarhöfn
kynntar. Tillögurnar fela það m.a. í
sér að hafin verði saltfiskverkun á
Raufarhöfn, að gert verði átak í
ferðamálum og að fyrirtæki á staðn-
um verði aðstoðuð við að vinna sér
markaði annars staðar á landinu.
Hótanir á báða bóga
Vonast er til að friðarumleitanir á
milli Ísraels og Palestínu geti haldið
áfram þrátt fyrir blóðsúthellingar
síðustu þrjá daga. Hamas-samtökin
hafa heitið því að halda áfram
hryðjuverkum og hvatt útlendinga
til að yfirgefa svæðið og bjarga
þannig lífi sínu. Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, kveðst munu
„berjast til síðasta manns“ gegn her-
skáum hreyfingum Palestínumanna
og ísraelski herinn mun hafa fengið
fyrirmæli um að „tortíma algerlega
Hamas“.
Hótar Belgum
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, segir að
stjórnvöld þar muni ekki leggja fé í
nýjar höfuðstöðvar NATO í Belgíu,
verði ekki gerðar breytingar á lög-
um sem leyfa málsókn gegn útlend-
ingum sem sakaðir eru um stríðs-
glæpi. Yfirmaður bandaríska
hersins í Íraksstríðinu hefur verið
kærður í Belgíu.
F Ö S T U D A G U R 1 3 . J Ú N Í 2 0 0 3 B L A Ð B
BÚTAR, TÁLGUN OG GRÆNIR FINGUR/2 GAMAN FYRIR STUBBA
MEÐ LUBBA/2 ÖÐRUVÍSI BÚÐIR – GLEÐI OFAR GRÓÐAVON/4
GAUKAR Í GARÐI/6 SANDALAR MEÐ HÆL/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
HÁLSFESTAR, orður, lindar ogarmbönd með íslenska fánan-
um eru nýstárlegur kostur fyrir þá
sem telja sig vaxna upp úr fánaburði
17. júní, en fýsir eigi að síður að hafa
fánann í hávegum þann dag. Hug-
myndina eiga eigendur Aurum við
Bankastræti, Ása Gunnlaugsdóttir,
gullsmiður og iðnhönnuður, og Guð-
björg Kr. Ingvarsdóttir, gullsmiður
og skartgripahönnuður. Í vikunni
hafa þær verið önnum kafnar við að
hanna og búa til skartgripi, sérstak-
lega ætlaða fyrir fólk að skreyta sig
með á þjóðhátíðardaginn. Skartið er
allt á þjóðlegu nótunum og sumt gert
úr gamalli, íslenskri mynt, t.d. hring-
ir og eyrnalokkar, sem þær gull-
húða.
Ásamt vinkonu
sinni, Katrínu
Elvarsdóttur
ljósmyndara,
búsettri í New
York, sem er í
heimsókn á
Fróni, ákváðu
þær að leggja
sitt af mörkum til
að auka á þjóðhá-
tíðarstemmninguna
í miðborginni. Á sýn-
ingu í Aurum, sem opn-
uð verður kl. 16 hinn 16.
júní verða ljósmyndir Katr-
ínar og þjóðlegt skart búðareig-
endanna til sýnis – og sölu.
„Þetta er svona meira til gamans
gert,“ segja þær og búast ekki endi-
lega við rífandi sölu. „Við rýmum
búðina af öðrum vörum og ætlum að
hafa hér allt með þjóðlegu sniði. Síð-
degis hinn 16. júní bjóðum við gestum
og gangandi upp á þjóðardrykkinn
appelsín og malt og alíslenskt með-
læti. Þótt búðin verði lokuð sjálfan
þjóðhátíðardaginn, verða munirnir
og ljósmyndirnar úti í glugga, vegfar-
endum vonandi til gleði og ánægju.
Tiltækið er líka í tilefni þess að sama
dag verður Bankastræti opnað fyrir
umferð eftir margra mánaða við-
gerðavinnu.“
Framlag Katrínar til þjóðhátíðar-
stemmningarinnar eru ljósmyndir,
sem hún tók í New York, af Banda-
ríkjamönnum með íslenska fánann.
„Mér finnst gaman að setja íslenska
fánann í annað umhverfi og sjá hann í
höndum þessa fólks, sem vant er að
veifa bandaríska fánanum við hvaða
tilefni sem er. Flestir, sem ég mynd-
aði, höfðu aldrei séð íslenska fánann
og einn þeirra hélt að þetta væri
breski fáninn. En allir voru til í að
láta taka af sér myndir, eins og ekk-
ert væri sjálfsagðara en að ég vildi
eiga myndir af New York-búum með
þjóðfána minn,“ segir Kristín.
Verslunareigendur um land allt
hafa lengi tíðkað að stilla viðhafnar-
myndum af forsetum lýðveldisins
umvöfðum fánaborðum út í glugga
17. júní, en stöllurnar Ása, Guðbjörg
og Katrín vildu hafa sinn háttinn á og
sýna eigin hönnun í þjóðlegu ljósi.
„Það er líka svo gaman að skapa eitt-
hvað án þess að vera að hugsa um
framleiðsluferli og sölumöguleika –
bara vera með,“ segja listakonurnar.
Íslenski
fáninn
í öðru ljósi
Morgunblaðið/Arnaldur
Katrín, Guðbjörg og Ása skreyttar í tilefni þjóðhátíðardagsins.
Ljósmynd/Katrín Elvarsdóttir
Bandaríkjamönnum þótti ekkert sjálfsagðara en að láta mynda sig með ís-
lenska fánann, þótt þeir hefðu aldrei séð hann áður.
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 32/37
Viðskipti 16/17 Bréf 40
Erlent 18/19 Kirkjustarf 41
Höfuðborgin 20 Staksteinar 42
Akureyri 22 Dagbók 42/43
Suðurnes 24 Íþróttir 44/47
Landið 24 Leikhús 48
Listir 25/26 Fólk 48/53
Umræðan 27 Bíó 50/53
Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54
Viðhorf 32 Veður 55
* * *
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
Kristján Viðar Júlíusson í 5½ árs
fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás
og tilraun til manndráps gegn fyrr-
verandi sambúðarkonu sinni. Lík-
amsárásin var framin árið 2001 en
manndrápstilraunin ári síðar. Í þeim
þætti málsins var hann sakfelldur
fyrir að brjóta hægri upphandlegg
konunnar, skera hana með hnífi á
vinstri augabrún og vinstra megin á
háls með þeim afleiðingum að hún
hlaut þar djúpt sár og slagæð og blá-
æð skárust sundur. Hæstiréttur
féllst á það með héraðsdómi að við
hina hættulegu árás hafi hending ein
ráðið að ekki hlaust banvænn áverki
á hálsi konunnar. Ákærða hafi hlotið
að vera ljóst að langlíklegast væri að
bani hlytist af atlögu hans þegar
hann réðist gegn henni með hnífn-
um. Bæði líkamsárásin og mann-
drápstilraunin voru stórfelld og
manndrápstilraunin sérlega háska-
leg að mati dómsins.
Með dómi sínum mildaði Hæsti-
réttur 7 ára fangelsisdóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur. Í dómi Hæsta-
réttar segir að ljóst sé að konan hafi
reitt ákærða vísvitandi til reiði áður
en hann réðist á hana og var það virt
honum til refsilækkunar. Við ákvörð-
un refsingar var einnig litið til þess
að ákærði hlaut síðast refsingu fyrir
hegningarlagabrot árið 1980 þegar
hann var dæmdur í 16 ára fangelsi
fyrir líkamsárás, manndráp af gá-
leysi, rangar sakargiftir og þjófnað.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Árni
Kolbeinsson og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir. Verjandi ákærða var
Páll Arnór Pálsson hrl. Málið sótti
Ragnheiður Harðardóttir, saksókn-
ari hjá ríkissaksóknara.
Fangelsi fyrir líkamsárás
og tilraun til manndráps
ÁHÖFN á TF-SIF, þyrlu
Landhelgisgæslunnar, flutti slasaða
konu á Landspítala – háskólasjúkra-
hús í Fossvogi í gærkvöld eftir bíl-
veltu á Fróðárheiði. Jeppabifreið
sem konan var í ásamt eiginmanni
sínum valt nokkrar veltur en hafnaði
á hjólunum. Hin slasaða festist inni í
bifreiðinni og þurfti að kalla til
tækjabíl slökkviliðs til að klippa bíl-
flakið utan af henni. Konan var með
meðvitund þegar lögreglan í Ólafs-
vík kom á slysstað og kvartaði undan
eymslum í baki en hún hafði einnig
hlotið áverka á höfði.
Hjónin eru bæði læknar og voru á
ferðalagi um Ísland. Slysið varð eftir
að þau höfðu mætt bifreið og talið er
að eiginmaður hinnar slösuðu hafi
misst stjórn á jeppanum í lausamöl í
vegkanti með þeim afleiðingum að
hann valt út af veginum.
Karlmaðurinn slapp með skrámur
á hendi. Jeppinn er talinn ónýtur.
Morgunblaðið/Alfons
Beita varð klippum til að ná hinni slösuðu úr bílnum og hún var síðan flutt til Reykjavíkur með TF-SIF.
Slasaðist í bílveltu á Fróðárheiði
NÚ HAFA smíðavellir borgarinnar hafið starfsemi sína en þeir eru 13 tals-
ins. Um 300 kofar eru smíðaðir á hverju sumri. Þau Birkir Einarsson og
Ásdís Birna Hermannsdóttir voru á smíðavellinum við Hlíðaskóla í gær að
hamast við að koma upp sínu eigin húsi er blaðamann og ljósmyndara bar
að garði. Þau eru búin að vinna við gerð sinna kofa í tvo daga og gera ráð
fyrir að ljúka verkinu á næstu dögum.
Kofarnir eru svo fluttir þangað sem eigendurnir vilja hafa þá en Birkir
og Ásdís Birna eru svo heppin að búa í sama húsi svo að kofinn verður í
sameiginlegum garði þeirra.
Morgunblaðið/Sverrir
300 lítil hús rísa
í Reykjavík
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis-
ins var kallað út vegna mikils vatns-
leka í Árbæjarskóla í gær. Þar voru
verktakar að vinna við breytingar
innanhúss þegar lagnir í vatns- og
hitaveitukerfi skólans hrundu niður
með þeim afleiðingum að mikið heitt
vatn flæddi um ganga og skólastof-
ur. Óljóst er um skemmdir.
Vatnsleki í
Árbæjarskóla
NÝR sæstrengur, Farice, verður að
öllum líkindum tekinn í gagnið í lok
þessa árs, að því er fram kemur í fyr-
irtækjafréttum Símans. Strengurinn
liggur frá Seyðisfirði til Færeyja og
þaðan til Skotlands. Síminn, fær-
eyska símafélagið Foroya Tele, ís-
lenska ríkið og fleiri aðilar vinna að
Farice-verkefninu sem hófst fyrir
fjórum árum. Vinna við sjálfan
strenginn fer fram í sumar.
Þegar vinnu við strenginn lýkur er
vonast til að öryggi og afkastageta
útlandasambands Símans aukist
verulega.
Sérstakur strengur frá Reykjavík
til Seyðisfjarðar mun tengjast sæ-
strengnum en flutningsgeta hans
verður aukin með viðbótarbúnaði.
Farice-streng-
urinn tilbúinn
á árinu
♦ ♦ ♦
Tryggvi Gíslason lætur senn af starfi skólameistara
Menntaskólans á Akureyri eftir aldarþriðjungs setu.
Skapti Hallgrímsson ræddi við skólameistarann.
Þingmenn undir þrítugu
Kynslóðaskipti urðu á Alþingi í síðustu kosningum og
hafa aldrei verið jafnmargir þingmenn undir þrítugu
og verða á komandi þingi. Ragna Sara Jónsdóttir
spjallaði við yngstu þingmennina.
Skáldið Káinn
Skáldið Káinn setti svip sinn á Íslendingabyggðir Norð-
ur-Dakóta. Steinþór Guðbjartsson forvitnaðist um
skáldið hjá Christine Hall.
Skólameistari á förum
á sunnudaginn