Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 4

Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ FYRSTI dagur opnana einstakra skála og sýninga var á Fen- eyjatvíæringnum í gær, en þá streymir fjölmiðlafólk, listgagnrýn- endur, listsafnarar og sýning- arstjórar til borgarinnar til að skoða skálana og sýningarnar áður en hlið Giardini-garðsins eru opnuð fyrir al- menningi. Þema tvíæringsins að þessu sinni er Draumar og árekstrar – alræðisvald áhorfandans, og ekki var laust við að mátt hefði heimfæra það upp á ástandið á sýningarsvæð- inu í gærmorgun þegar fólk var að reyna að komast sem fyrst inn á svæðið. Strax um morguninn, áður en boðsgestir hófu að safnast í bið- raðir um tvöleytið, var umferðin á milli skálanna hafin, enda allir að reyna að skoða sem mest áður en svæðið fylltist af fólki. Í íslenska skálanum, en opinber opnun hans er í dag, kl. 14.30, voru þær Laufey Helgadóttir og fulltrúi Íslands, Rúrí, þegar komnar á stjá, enda stöðugur straumur fólks inn í skálann og auðséð að fljótt hafði spurst út að þar var eitthvað for- vitnilegt á ferðinni. Verk Rúríar heitir „Archive – endangered wa- ters“, og er einskonar gagnasafn um íslenska fossa, byggt á ljósmyndum og hljóði. Laufey sagði viðtökurnar nú þeg- ar hafa verið vonum framar, „sem dæmi um það má nefna að Dorothea van der Koelen, sem rekur gallerí í Frankfurt og hefur m.a. verið í sam- starfi við Eddu Jónsdóttur í i8, frétti af því að Rúrí væri fulltrúi Íslands í ár og hafði samband við okkur þar sem hún er með sýningu hér í Fen- eyjum núna á meðan á tvíæringnum stendur. Verk Rúrí eru sýnd þar sem hliðarverkefni við sýninguna hjá henni en um er að ræða trílógíu úr þessu verki hér í skálanum. Annars eru þegar komnar fyrirspurnir um það hvort hægt sé að kaupa hluta af þeim myndum sem eru í skálanum,“ segir Laufey og hlær, „svo ég er al- veg himinlifandi yfir móttökunum, bara núna í morgun. Það eina sem við höfum átt í erfiðleikum með hérna er hljóðið í verkinu, því hér hafa verið vandræði með rafmagnið á öllu svæðinu. Annars finnst mér vinnan hafa gengið vonum framar hjá okkur, sérstaklega miðað við það að við er- um bara tvær, auk aðstoðarmanna okkar, Þórs Vigfússonar og Péturs Arnar Friðrikssonar, það var mikil vinna að koma þessu hérna inn og setja þetta saman.“ Rúrí var önnum kafin í skálanum við að koma á hljóðinu eftir raf- magnstruflanir en lét samt vel af sér. „Ég verð bara að vera stöðugt til taks hérna þangað til búið er að leysa vandann, en þetta er eitthvað sem við gátum ekki séð fyrir, enda virkaði allt vel heima. Ástralarnir hafa lent verr í þessum vanda en við og ég verð hér þar til þetta er komið í lag.“ Hún segir þetta hafa verið mikla vinnu, „en þetta hefur gengið betur en við þorðum að vona. Það er svo gaman að sjá fólkið koma hér inn með spurnarsvip á andlitinu og fara síðan aftur út brosandi.“ Sex vikna vinna Ólafur Elíasson var á stjái fyrir ut- an danska skálann um ellefuleytið og bauðst til að leiða blaðamann í gegnum verkið, sem heitir „Blind Pavilion“. Það er, eins og fram kom í Lesbók um síðastliðna helgi, mjög viðamikið og augljóst að miklar væntingar eru bundnar við það. Ólafur sagði vinnuna við verkið hafa staðið í sex vikur og unnu fyrst tólf manns við uppsetninguna en síðan færri eftir því sem nær leið opnun. Strax í gærmorgun mátti sjá að margir voru komnir langt að til þess að vera við opnunina sem var síð- degis í gær. Opnanir hjá tveimur íslenskum listamönnum á Feneyjatvíæringnum Rúrí er fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í ár. Ólafur Elíasson við verk sitt á tvíæringnum. Draumar og árekstrar í Feneyjum Feneyjum. Morgunblaðið. SKIPSTJÓRINN á Bjarma BA sem ákærður er fyrir að hafa kastað „að minnsta kosti 53 þorskum“ í tveimur veiðiferðum í nóvember 2001 hélt því fram fyrir dómi í gær að það hafi sést utan á fiskunum að þeir hafi allir verið illa sýktir af hringormi. Aflinn hafi verið ónýtur og því hent í sjóinn. Friðþjófur Helgason, sem tók sjónvarpsmyndir af brottkastinu, mætti ekki til skýrslutöku hjá Héraðsdómi Vestfjarða í gær og að kröfu fulltrúa ríkislögreglustjóra gaf dómari út handtökuskipun á hendur honum. Sagðist stundum kasta 90% Upptökur af brottkasti frá tveimur bátum voru sýndar í Ríkissjónvarpinu 8. nóvember 2001 og ljósmyndir birtust í Morgunblaðinu daginn eftir. Myndirnar vöktu þjóðarathygli. Skipstjóri annars bátsins sagði í samtali við Morgunblaðið, sama dag og myndirnar birtust, að hann hafi þurft að láta henda allt að 90% aflans í einni veiðiferð. Honum væri nauðugur þessi kostur. „Annaðhvort komum við aðeins með verðmætasta fiskinn að landi eða förum á hausinn,“ sagði hann. Lögreglu grunaði fljótlega að myndirnar væru teknar um borð í Báru ÍS og Bjarma BA. Í kjölfarið voru skipstjórar beggja bátanna ákærðir og var fjöldi fiska sem ákært var fyrir byggður á sjónvarpsmyndunum. Skipstjórinn á Báru var ákærður fyrir brottkast á 25 fiskum en hann sagði að þeir hefðu allir verið ónýtir eftir fjögurra nátta legu í netum. Héraðsdómi Reykjaness þótti ekki sannað að fiskurinn hafi ekki verið ónýtur og sýknaði í málinu. Ólíkt Báru þá var Bjarmi á dragnótarveiðum en skipstjóri hans sagði fyrir dómi í gær að þorskurinn hafi verið ónýtur vegna mikils hringorms. Á þessum tíma var löglegt að henda sýktum og selbitnum fiski en lögunum hefur nú verið breytt. Myndirnar klipptar til Helgi Magnús Gunnarsson, fulltrúi ríkislög- reglustjóra, sótti hart að skipstjóranum og spurði hvernig hann gæti séð það utan á heilum þorski, sem hvorki var blóðgaður né slægður, að hann væri sýktur af hringormi. Skipstjórinn, sem hefur sótt sjóinn í yfir 20 ár, sagði sýk- inguna m.a. geta komið fram í dökkum dílum og kýlum á maga og slíkur þorskur væri ónýtur. „Fiskurinn var sýktur. Punktur,“ sagði hann eftir að Helgi Magnús hafði ítrekað spurningu sína um sýkingarstig fisksins. Skipstjórinn var spurður um tildrög þess að Friðþjófur Helga- son myndatökumaður og Magnús Þór Haf- steinsson, þáverandi fréttamaður en núverandi alþingismaður, voru með í veiðiferðinni. Kvaðst hann ekki minnast þess að brottkast hafi borið á góma fyrirfram og mundi ekki glöggt hvort hann hafi sagt þeim að brottkastið væri sýktur fiskur. „Þeir komu um borð sem fréttamenn og það er bara mín skýring. Búið,“ sagði hann. Droplaug Ólafsdóttir, líffræðingur á Haf- rannsóknastofnun, sem bar vitni símleiðis, kvaðst ekki kannast við að merki um hringorm sæjust utan á þorskum. Aðspurð af Hilmari Ingimundarsyni hrl., verjanda skipstjórans, sagði hún það þó fræðilegan möguleika. Hjá skipstjóranum kom fram að þeir voru á veiðum á Kópanesrifi sem er skammt frá sellátri og sagði hann fisk þar gjarnan illa sýktan af hring- ormi. Þaulreyndur skipstjóri sem kom fyrir dóminn kvaðst á hinn bóginn ekki hafa heyrt að þetta væri sérstaklega þekkt sem hringorms- svæði. Af sjónvarpsfréttinni má dæma að allur fisk- ur á tilteknum færiböndum fari í rennu sem lá út í sjó. Skipstjórinn sagði að myndirnar væru klipptar, þ.e. myndskeiðin væru aðskilin, og taldi alls ekki víst að færiböndin lægju út í rennuna. Hann neitaði síðan að svara frekari spurningum um upptökuna. Gaf aðrar uppplýsingar í meiðyrðamálinu „Nei, ég kannast ekki við það,“ sagði þáver- andi vélstjóri á Bjarma þegar hann var spurður um hvort brottkastið hafi miðast við stærð fisksins. Helgi Magnús Gunnarssson bar þá undir hann skýrslu sem tekinn var af honum fyrir dómi vegna meiðyrðamáls sem Magnús Þór Hafsteinsson fréttamaður höfðaði á hend- ur Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra vegna ummæla um að brottkastið hafi verið sviðsett. Helgi benti á að í endurriti af skýrsl- unni væri haft eftir vélstjóranum að brottkastið hafi ekki verið sviðsett og það ekki verið meira en venjulega; brottkastið hafi numið einhverj- um tugum tonna, það væri „kjaftæði“ að aðeins sýktum fiski hafi verið hent og að með því að halda því fram væri skipstjórinn aðeins að reyna að verja sig. Vélstjórinn var þráspurður út í þessar misvísandi yfirlýsingar sínar. Sagði hann að ágiskun sína um magnið hafi verið óá- byggileg og kvaðst ekkert geta fullyrt um hversu miklu var kastað fyrir borð. Skipstjóri skipaði fyrir að kasta smáum fiski Háseti og netamaður sem voru í veiðiferðinni sögðu allt aðra sögu. Smáum fiski hafi verið hent fyrir borð af þeirri einu ástæðu að þar sem hann var svo verðlítill hafðist ekki upp í kostn- að. Netamaðurinn sagðist hafa fengið fyrir- mæli um brottkastið frá skipstjóranum og á sjó færu allir eftir skipunum hans. Kvað hann að stærðin hafi ráðið öllu um hvort fiski væri kast- að og væri miðað við 50–60 cm langan fisk. Mundi hann ekki eftir því að hafa séð sýktan fisk. Aðspurður sagðist hann telja að um 2.000 fiskum hafi verið hent fyrir borð í túrnum og að vinnubrögðum hafi ekki verið breytt vegna nærveru sjónvarpsmyndavéla. Framburður hásetans var að nokkru leyti frábrugðinn því sem hann sagði hjá lögreglu en hann kvað það skýrast af því að þá var hann grunaður um af- brot. Var að taka myndir af fuglum Stefnt var að því að ljúka aðalmeðferð máls- ins í gær en af því varð ekki þar sem Friðþjófur Helgason myndatökumaður mætti ekki fyrir dóm. Helgi Magnús sagði hann hafa fengið skriflega boðun og Friðþjófur gefið þá skýr- ingu að hann væri að taka myndir af fuglum við Kárahnjúka en það var ekki hægt seinna. Krafðist hann þess að gefin yrði út handtöku- skipun á hendur honum til að hægt yrði að tryggja nærveru hans í dómsal þegar aðalmeð- ferðin heldur áfram 27. júní nk. og varð Erling- ur Sigtryggsson dómstjóri við því. Helgi tók þó fram að hann vonaðist til þess að ekki þyrfti að nota handtökuskipunina. Magnús Þór Hafsteinsson, sem var staddur á Grænlandi vegna starfa sinna sem alþingis- maður, var viðbúinn að gefa skýrslu símleiðis en til þess kom ekki. Skipstjóri Bjarma segir fiskinn sýkt- an af hringormi Morgunblaðið/Friðþjófur Brottkast úr skipinu Bjarma BA. Á FASTEIGNAVEF mbl.is hafa nú verið gerðar eftirfar- andi breytingar: Niðurstöðu- listi leitar sýnir nú fyllri upplýs- ingar fyrir hverja eign ásamt mynd sé hún til. Á listanum kemur einnig fram verð, stærð, tegund og fjöldi herbergja. Til að skoða heildarupplýsingar um hverja eign nægir að smella á tengilinn meira. Til að hafa yf- irsýn yfir eignir sem verið er að skoða er hægt að færa eignir í svokallaða eignamöppu og einn- ig er hægt að skoða innihald eignamöppunnar þegar óskað er. Þessa tengla er að finna á síðunni þar sem upplýsingar um stakar eignir eru birtar. Notendur geta einnig leitað að draumaeigninni með því að skil- greina ákveðin leitarskilyrði og fá í framhaldi tölvupóst ef finn- ast eignir sem samsvara leitar- skilyrðunum. Sendir eru að meðaltali 1.000 tölvupóstar daglega til notenda Drauma- eignarinnar. Í leitarforminu hefur einnig verið bætt við þeim möguleik- um að hægt er að leita að eign- um sem bæst hafa við síðustu vikuna og einnig ert hægt að leita að eignum sem borist hafa í dag. Þá er leitað frá miðnætti til þess tíma sem leitin fer fram. Fasteignavefurinn hefur um allnokkurt skeið verið næst- stærsti vefur mbl.is og fær að jafnaði um fimm hundruð þús- und flettingar í viku hverri. Breyt- ingar á fast- eignavef mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.