Morgunblaðið - 13.06.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL sumarhátíð verður haldin í
dag á Ingólfstorgi. Hátíðin verður
opnuð af Þórólfi Árnasyni, borg-
arstjóra og verndara hátíðarinnar,
klukkan 15. Margir þekktir jafnt
sem óþekktir skemmtikraftar koma
fram á hátíðinni, en kynnir verður
Edda Björgvinsdóttir.
„Hátíðin ber nafnið Lykill að
betri framtíð og vísar til þess að við
erum að reyna að opna dyr fordóm-
anna með þessari hátíð,“ segir Elín
Ýr Arnardóttir, einn af skipuleggj-
endum hátíðarinnar. Markmiðið
með hátíðinni er að reyna að vinna
gegn fordómum fyrir geð-
sjúkdómum og þeim sem þjást af
þeim og efla vitund fólks á sjúk-
dómunum og meðferðarúrræðum
að sögn Elínar.
Það er 13. júní-hópurinn sem
stendur að hátíðinni, en hann er
samstarfsverkefni Dvalar, Geð-
hjálpar, Hins hússins, Klúbbsins
Geysis, Iðjuþjálfunar Kleppi og við
Hringbraut og Vin.
Meðal þeirra sem koma fram
verða Páll Óskar og Monica, Maga-
dansfélag Reykjavíkur, Latibær og
Einar Már Guðmundsson rithöf-
undur. Hljómsveitirnar Sínus, Sein,
Sign og Ber munu svo spila fram til
klukkan 18. Allir skemmtikraft-
arnir gefa vinnu sína við hátíðina.
Einnig verður götubasar á torginu
þar sem einstaklingar frá meðal
annars Sólheimum í Grímsnesi,
Dvöl og Iðjuþjálfunar Kleppi og við
Hringbraut selja vörur sem þeir
hafa unnið sjálfir.
„Við byrjuðum á þessu verkefni í
framhaldi af hugmynd sem kom
upp í febrúar,“ segir Elín. „Þetta
hefur svo allt undið upp á sig upp í
það að verða að þessari sumarhátíð
sem verður á föstudaginn á Ingólfs-
torgi.“
Elín segir hópinn ætla að sjá til
hvernig þessi hátíð gangi. Ef hún
gengur vel verður hugsanlega
stefnt á að gera hana að árlegum
viðburði.
Sumarhátíðin Lykill að betri framtíð á Ingólfstorgi í dag
„Opnar dyr fordómanna“
Morgunblaðið/Jim Smart
Elín Ýr Arnardóttir og Bjarki Þór
Jónsson standa m.a. að hátíðinni á
Ingólfstorgi í dag.
KARLMAÐUR á þrítugsaldri
hefur játað á sig vopnaða árás
á ungan mann í Bankastræti
aðfaranótt sunnudags. Mun
hann hafa beitt litlu högg-
sverði á manninn með þeim af-
leiðingum að sauma þurfti 70
spor í höfuð hans. Skaddaðist
hann í kringum auga og hlaut
fleiri áverka. Fékk hann að
fara heim af sjúkrahúsi að lok-
inni aðhlynningu. Tveir menn
stóðu að árásinni og hefur fé-
lagi árásarmannsins setið í
gæsluvarðhaldi vegna aðildar
sinnar að málinu. Hann hefur
einnig játað á sig verknaðinn
og losnar úr varðhaldi út í dag,
föstudag. Að sögn lögreglunn-
ar vaknaði grunur um að fleiri
en einn hefðu staðið að árás-
inni eftir mikil átök í Banka-
stræti um kl. 5 á sunnudags-
morgun. Leiddi sá grunur til
þess að seinni árásarmaðurinn
var handtekinn í gær. Málið
telst upplýst.
Hjó í andlit
manns
með sverði
FRJÁLSLYNDI flokkurinn hefur
farið þess á leit við yfirkjörstjórnir
allra kjördæma að kjörgögnum
verði ekki eytt svo unnt sé að leita
réttarúrræða vegna þeirra ann-
marka sem voru á framkvæmd
kosninganna 10. maí sl. Þetta gerði
flokkurinn með bréfi til allra yf-
irkjörstjórna dags. 27. maí sl.
Í öðru bréfi til allra yfirkjör-
stjórna sem dags. er 10. júní sl.
óskar Frjálslyndi flokkurinn enn-
fremur eftir að fá að skoða vafa-
atkvæði í krafti upplýsingalaga. Í
bréfinu er tekið fram að í upplýs-
ingalögum sé kveðið á um skyldu
stjórnvalda, sé þess óskað, að veita
almenningi aðgang að gögnum sem
varða tiltekið mál. Meginmarkmið
upplýsingalaga sé að styrkja lýð-
ræðislega stjórnarhætti og réttar-
öryggi í stjórnsýslu hins opinbera,
sem og að auka tiltrú almennings á
störfum stjórnvalda. Í fréttatil-
kynningu segir að ástæða beiðn-
innar sé sú að Frjálslyndi flokk-
urinn vilji fá tækifæri til að skoða
með sanngjörnum hætti hvort þær
athugasemdir sem hann gerði við
framkvæmd talningar vafaatkvæða
eigi við rök að styðjast.
Kjörgögn-
um verði
ekki eytt
VALGERÐUR Sverrisdóttir, ráð-
herra byggðamála, og Sveinn Þor-
grímsson, deildarstjóri í ráðuneytinu,
fóru á fund forsvarsmanna Raufar-
hafnar í gærmorgun. Þar voru hug-
myndir starfshóps um atvinnuvand-
ann á Raufarhöfn kynntar.
Tillögurnar fela það m.a. í sér að hafin
verði saltfiskverkun á Raufarhöfn, að
gert verði átak í ferðamálum og að
fyrirtæki á staðnum verði aðstoðuð
við að vinna sér markaði annars stað-
ar á landinu. Gert er ráð fyrir að
stofnaður verði starfshópur sem skip-
aður yrði fulltrúum frá Iðntækni-
stofnun, Byggðastofnun, Atvinnuþró-
unarfélagi Þingeyinga,
heimamönnum og Útgerðarfélagi Ak-
ureyrar, sem er eigandi Jökuls ehf.,
fyrirtækisins sem fyrir skömmu til-
kynnti um algjöra endurskipulagn-
ingu á rekstri sínum og fækkun um 30
á starfsliði.
Ekki sértækar aðgerðir
Sveinn Þorgrímsson, sem var í
starfshópi um atvinnuvandann á
Raufarhöfn, segir að teknar hafi verið
saman tillögur í tíu punktum. Hann
gerir ráð fyrir að þessar hugmyndir
komi nú þegar til framkvæmda en lík-
legt er að þær verði lagðar fyrir rík-
isstjórn eftir tíu daga eða svo.
„Starfshópurinn er búinn að skila af
sér tillögum sínum. Þær eru í raun og
veru komnar á ríkisstjórnarborðið.
Við Valgerður fórum austur í gær og
hittum sveitarstjórnina þar og sögð-
um þeim frá helstu atriðunum. Þetta
eru allt almennar aðgerðir sem snú-
ast fyrst og fremst um að beita því
stuðningsumhverfi sem er til staðar.
Annars vegar geta félagsmála- og
iðnaðarráðuneytin beitt stuðningsað-
gerðum sem falla undir ráðuneytin og
svo þarf að ná samstöðu um önnur
mál,“ segir Sveinn. Hann telur að-
komu Útgerðarfélags Akureyringa
mikilvæga: „Það sem er veigamest í
þessu er að Útgerðarfélag Akureyr-
inga vill koma að því með okkur að
mynda starfshóp. Helsti styrkurinn
er að við fáum aðgang að þekkingu og
reynslu ÚA sem er tilbúið að vera
hópnum ráðgefandi um allt sem lýtur
að stofnsetningu og rekstri sjávarút-
vegsfyrirtækja. Þessi fimm manna
hópur myndi þá fara út í að velta fyrir
sér nýjum atvinnuþróunarmöguleik-
um á Raufarhöfn,“ segir Sveinn.
Opinberir aðilar aðstoði
við gerð áætlana
Helstu hugmyndir starfshópsins
fela í sér að stofnað verði til hefð-
bundinnar saltfisksvinnslu á Raufar-
höfn en slík starfsemi hefur ekki verið
stunduð þar síðan 1996. Starfshópur-
inn telur líklegt að sá fiskur sem ekki
hefur nýst hjá Jökli ehf. kunni að
henta vel til saltfisksvinnslu auk þess
sem húsnæði, þekking og búnaður til
vinnslunnar sé nú þegar til staðar.
„Það þarf að fara í gegnum mat og
viðskiptaáætlanir og þess háttar. Þar
munum við beita stuðningskerfinu
okkar í ráðuneytunum,“ segir Sveinn.
Starfshópurinn telur einnig að
tækifæri séu til aukins ferðamanna-
iðnaðar á Raufarhöfn og hefur hóp-
urinn sérstaklega skoðað leiðir til að
beina ferðamannastraumi inn í Rauf-
arhöfn og lengja viðveru ferðamanna
á svæðinu.
Þá segir Sveinn að heppilegt kunni
að reynast að styðja trésmiðju og vél-
smiðju, sem reknar eru á staðnum, til
þess að ná betri fótfestu á markaði ut-
an Raufarhafnar. Hann leggur
áherslu á að stuðningskerfin sem
ráðuneytin búa yfir geti aðstoðað
byggðarlög án þess að gripið sé til
sértækra aðgerða.
Sveinn telur að aðgerðir stjórn-
valda til aðstoðar Raufarhafnarbúum
kunni að þjóna sem fyrirmynd um
hvernig ríkið geti komið til aðstoðar
ef skyndileg og stórfelld áföll eiga sér
stað í atvinnulífinu.
Faglega að málum staðið
Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitar-
stjóri á Raufarhöfn, kveðst ánægð
með fundinn og segist bjartsýn á að
varanlegar lausnir finnist í málefnum
Raufarhafnar. Hún segir þó að ekkert
verði aðhafst nema viðskiptaáætlanir
líti vel út og að langtímafjárfestar séu
tilbúnir að leggja fé í reksturinn.
Guðný segist ánægð með þá vinnu
sem farið hefur fram í kjölfar end-
urskipulagningar hjá Jökli ehf.: „Mér
sýnist að miðað við hvernig tekið hef-
ur verið á þessu hjá okkur sé verið að
gera þetta mjög faglega. Það er ekki
verið að leggja til skammtímalausnir
þótt sú staða kunni að koma upp að
hjálpa þurfi sveitarfélögum tíma-
bundið vegna sambærilegra erfið-
leika.“
Starfshópur um atvinnumál á Raufarhöfn hefur skilað tillögum
Saltfiskur, ferðamenn,
trésmiðja og vélsmiðja
Stuðningskerfi ráðuneytanna
verði nýtt til atvinnuþróunar
TVÆR einingar í burðarboga hinn-
ar nýju Þjórsárbrúar voru hífðir á
sinn stað í gær, fimmtudag. Hvor
eining um sig vegur um 30 tonn og
eru þær steyptar inn í stöpla brúar-
innar.
Búið var að koma fyrir tveimur
einingum vestan megin árinnar og
framundan er að koma á sinn stað
tveimur einingum sem loka burð-
arboganum en það verður gert á
næstu vikum.
Stór vélskófla var notuð til þess
að halda í við flutningabílinn sem
flutti bitann niður brekkuna að öfl-
ugum krana sem hífði bitann á sinn
stað.
Umhverfi brúarstæðisins, þar
sem Þjórsá beljar fram af afli,
smækkar menn og vélar þegar
horft er á úr fjarlægð.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Ein af einingum burðarboga Þjórsárbrúar var hífð á sinn stað á brúarstæðinu í gærdag.
Burðarbogi
Þjórsár-
brúar tekur
á sig mynd
Selfossi. Morgunblaðið.